Morgunblaðið - 22.11.1984, Síða 36

Morgunblaðið - 22.11.1984, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1984 35 TRUIN Innan við fimmtungur trú- ir á persónulegan guð ÍSLENDINGAR segjast vera mjög trúhneigdir (68% — sjá töflu IX) og svipar um þad til kaþólskra þjóða Evrópu (67%) og Bandaríkjamanna (81%). 29% segja að þeir séu ekki trúhneigðir og 2% segjast vera sannfærðir trúlevsingjar. Trúhneigð lslendinga endur- speglast hins vegar ekki í kirkju- sókn þeirra. Einungis 12% ís- lensku svarendanna sögðust sækja kirkju einu sinni í mánuði eða oftar. Þetta er svipað hlutfall og á Norðurlöndunum í heild, þar sem það er 14%. Kirkjusókn í þessum mæli er hins vegar miklu algeng- ari í Norður-Evrópu (34%) og Suður-Evrópu (40%). Aftur á móti segja 74% íslend- inga að trúin veiti þeim huggun og styrk, en einungis 29% Norður- landabúa í heild eru sama sinnis. Meðal Evrópuþjóðanna eru það einungis Möltubúar (94%) og lrar (79%) sem sækja huggun og styrk í trúna í ríkari mæli en lslend- ingar. Allt annað er hins vegar upp á teningnum þegar spurt er hvort menn taki sér tíma til að biðjast fyrir, til hugleiðslu eða einhverrar andlegrar iðkunar. 46% íslend- inga svara spurningunni játandi og er þetta hlutfall einungis lægra meðal Svía (33%) og Frakka (44%), en Danir og Finnar eru svipaðir íslendingum í þessu efni. fslendingar segja guð skipta miklu máli í lífi sinu og eins og i dæmi trúhneigðarinnar svipar þeim til kaþólskra landa um þetta. Guð skiptir fslendinga mestu máli allra Norðurlandaþjóða, en Finn- ar koma þeim næstir. Þegar þýð- ingu guðs er skipað á kvarða frá 1—10 er meðaltala íslendinga 6,60, en tala Bandaríkjamanna, sem er hæst, er 8,21. Tala Finna er 6,20, tala Norðmanna 5,35, tala Dana 4,47 og tala Svía, sem er TAFLA VII TRUHNEIGÐ ísland Norðurl. Svíþj. Danm. Finnl. Nor. N-Evr. S-Evr. USA Trúhneigð(ur) 68 46 32 61 55 46 59 67 81 Ekki trúhneigð(ur) 29 39 55 17 29 46 27 22 16 Sannf. trúleysingi 2 4 6 4 2 3 3 6 1 Veit ekki 1 11 7 18 15 5 10 5 2 SPURT VAR: Óháð því hvort þú sækir kirkju eða ekki, telur þú að þú sért (og síðan gefnir svarmöguleikarnir hér að ofan). Gefnar eru hlutfalls tölur). TAFLA vm HVERS KONAR GUÐ? ísland Norðurl. Svíþj. Danm. Finnl. Nor. N-Evr. S-Evr. a) 18 25 19 24 25 40 32 33 b) 58 36 39 24 45 31 37 35 c) 15 18 19 22 12 18 17 15 d) 7 14 17 21 6 9 10 11 e) 1 7 6 10 11 2 6 6 Settar voru fram fullyrðingar og spurt hver þeirra kæmi næst trú þátttakenda. Fullyrðingarnar voru: a) Það er til persónulegur guð. b) Það er til einhvers konar alheimsandi eða llfskraftur. c) Ég veit í rauninni ekki hverju trúa skal. d) í raun og veru held ég ekki, að það sé til neins konar alheimsandi, guð eða lífskraftur. e) Veit ekki gru trúhneigð fsle lægst, 3,99. hvaða grunni hvílir hin mikla slendinga? Hvaða guð er það, sem skiptir þá jafn miklu máli og raun ber vitni? Þegar svarendurnir voru beðnir að velja á milli nokkurra fullyrðinga um trú sína kom I ljós að meirihluti íslendinga (58%, sjá töflu X) taldi, að fullyrðing um að til væri ein- hvers konar alheimsandi eða lífskraftur kæmist næst trú þeirra, en einungis 18% völdu full- yrðingu um að til væri persónu- legur guð. Hér hafa íslendingar mikla sérstöðu. Engin þjóð í könn- uninni trúir jafn mikið á alheims- anda eða lífskraft, en ítalir koma næstir á eftir íslendingum (50%). Engin þjóðanna trúir hins vegar á persónulegan guð í jafn litlum mæli og íslendingar — 19% hinna trúlitlu Svia trúa á persónulegan guð. Þegar spurt var um fjórar teg- undir „dulrænnar reynslu" skáru íslendingar sig einungis úr á einu sviði, 41% þeirra töldu sig hafa orðið vara við nálægð látins manns, og er sú reynsla ekki jafn algeng i neinu hinna Evrópuland- Þrír tjórðu trúa á Iff að loknu þessu ÞRÍR af hverjum fjórum íslending um trúa á líf eftir dauðann og er sú trú einungis útbreiddari meðal Möltubúa (84%) þegar litið er til Evrópulandanna. Hinar Norður- landaþjóðirnar eru mjög ólíkar fs- lendingum hvað þetta varðar, Ld. trúa einungis 26%Dana og 28%Svía á líf eftir dauðann. f Noregi og Finn- landi eru hlutfallstölurnar hærri, 44% Norðmanna segjast trúa á líf að loknu þessu og sama sinnis eru 49% Finna. Þegar spurt er hvort menn trúi að sál sé til er svara íslendingar oftar játandi en flestar aðrar þjóðir (81%). írum og Norður- írum svipar mjög til Islendinga um þetta, en talsverðra efasemda gætir á Norðurlöndum, þar sem vegið hlutfall já-svara er 43%. Tslendingar trúa hins vegar ekki á Djöfulinn að neinu marki (15%) og er trúleysi á hann einungis minna meðal Dana og Svia (12%), en engin Evrópuþjóð neitar tilvist hans jafn eindregið og í slendingar (80%). Nákvæmlega sama er að segja um Helvíti, nema hvað 12% íslendinga trúa því að það sé til, en 82% gera það ekki. Rösklega helmingur íslendinga trúir aftur á móti á Himnaríki og er sú trú einungis útbreiddari meðal Möltubúa (86%), fra (83%), Norður-íra (81%) og Breta (57%). Jafnvel Bandaríkjamenn eru ekki jafn trúaðir á tilvist Himnaríkis og íslendingar. Trúin á tilvist syndarinnar er líka útbreidd meðal fslendinga (65%) og það eru einungis Norð- ur-írar (91%), Möltubúar (90%), frar (85%) og Bretar (69%) sem slá okkur við í þessu efni. Loks trúir fjórðungur fslend- inga á endurholdgun, en meðal Evrópuþjóðanna er algengast að þetta hlutfall sé á bilinu 20—30%. Flestir telja sig virða boðorðin betur en aðrir MEIRIHLUTI landsmanna telur að boðorðin tíu séu enn í fullu gildi, að undanskildu þriðja boðorðinu („Halda skaltu hvfldardaginn heil- agan.“), sem aðeins 26% telja enn í gildi. Njóta boðorðin hvergi í heim- inum, nema í Bandarfkjunum, meiri stuðnings, en Norðmenn eru yflrleitt í þriðja sæti. Þegar spurt er aftur á móti hvort þátttakendur telji, að öðru fólki finnist boðorðin enn i fullu gildi, eru svörin talsvert frábrugð- in. í öllum tilvikum kemur fram, að fólk telur að það virði sjálft boðorðin betur en aðrir. Dæmi um það ert t.d. að 56% aðspurðra telja, að annað boðorðið („Þú skalt ekki leggja nafn drottins Guðs þíns við hégóma.") sé í fullu gildi, en aðeins 32% telja að aðrir séu sömu skoðunar. Sama er að segja um tíunda boðorðið („Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, þjón, þemu né nokkuð það, sem náungi þinn á.“). Þar telja 78% aðspurðra það enn í fullu gildi, en einungis 45% álíta að aðrir séu á sama máli. Engin ein sönn trú HVORKI fleiri né færri en 66% þátttakenda í könnuninni reyndust vera þeirrar skoðunar, að ekki væri til nein ein sönn trú, en flnna mætti grundvallarsannindi í öllum helstu trúarbrögðum heims. Aðeins fjórð- ungur var þeirrar skoðunar, að ein- ungis væri til ein sönn trú. 6% töldu engin sannindi fólgin í neinum af belstu trúarbrögðum heims. Mest er sannfæringin um eina sanna trú á Norður-írlandi (34%), Spáni (44%) og í frska lýðveldinu (46%). í Noregi eru 27% að- spurðra sannfærðir um eina sanna trú, og sömu sögu er að segja um 19% Dana, 20% Finna og 17% Svía. 85 prósent telja siðferði afstætt í LJÓSI hinnar miklu trúhneigðar fslendinga, sem kemur fram í Hag- vangskönnuninni, er það mjög athyglisvert að þeir eru mestir afstæðis- hyggjumenn í Evrópu þegar spurt er hvort til séu einhlítar skilgreiningar á því hvað sé gott og hvað sé illt (Tafla IX). 85% íslendinga telja að aldrei sé hægt að skilgreina nákvæmlega hvað sé gott og hvað sé illt, það sé algerlega háð aðstæðum hverju Aðeins 10% telja að til séu algjörlega einhlítar skilgreiningar á góðu og illu. Dönum svipar mest til fslendinga að þessu leyti, en annars staðar í Evrópu er trú á einhlítar skilgreiningar góðs og ills miklu útbreiddari. Mest fylgi hefur þessi skoðun í Bandaríkjunum (34%) og Noregi (31%). Vegið meðaltal Norðurlanda (annarra en íslands) er 21% og vegið meðtaltal Norður og Suður-Evrópu er 26% sinni. TAFLAIX GOTT OG ILLT ísland Norðurl. Svíþj. Danm. Finnl. Nor. N-Evr. S-Evr. USA Sammála a) 10 21 21 10 26 31 26 26 34 Sámmála b) 85 69 72 75 63 61 9 61 59 ósammála báðum 2 4 3 6 3 4 8 6 3 Veit ekki 3 6 4 9 8 4 7 8 3 Viðfangsefnið var tvær fullyrðingar, sem stundum eru settar fram, þegar rætt er um gott og illL Spurt var hvor þeirra kæmist næst því að lýsa skoðun þátttakenda. Fullyrðingarnar voru: a) Það eru til algjörlega einhlftar skilgreiningar á hvað sé gott og b) Það er aldrei hægt að skilgreina nákvæmlega hvað sé gott og hvað hvað illt. Þær eiga ætíð við, gilda fyrir alla án tillits til aðstæðna. sé illt. Það er algjörlega háð aðstæðum hverju sinni hvað sé gott og hvað sé illt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.