Morgunblaðið - 22.11.1984, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 22.11.1984, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1984 Streisand í jafnstöðu Kvikmyndir Árni Þórarinsson Bíóhöllin: Yentl. Bandarísk. Árgerð 1983. Hand- rit: Jack Rosenthal, Barbra Streisand, eftir sögu Isaac Bashevis Singer. Leikstjóri: Barbra Streisand. Aðalhlut- verk: Barbra Streisand, Mandy Patinkin, Amy Irving, Nehemi- ah Persoff. Meinið við söngvamyndir og söngva- og dansmyndir er að þegar búið er að byggja upp til dæmis skemmtilegt samtal með dramatískri stígandi þá rjúka persónurnar til og fara að þenja sig fullum hálsi uppí opið geðið á áhorfanda og jafnvel sparka út og suður. Þeir áhorfendur eru að vísu til sem finnst einmitt þessi söngþensla og þetta dansspark besti þáttur myndanna. En víst er að það er fjári erfitt að fella saman meira eða minna raun- sæislega atburðarás og hversdagslegar persónur annars vegar og þau tilfinngingalegu gos sem tjáð eru með söng og/eða dansi hins vegar, þannig að það síðarnefnda vaxi út úr hinu fyrrnefnda en ekki öfugt. Reyndar heppnast svona myndir best sem einhvers konar fantasí- ur eða sögur úr skemmtanaiðn- aðinum, þar sem slíkur tjáning- arháttur tíðkast hvort eð er. Söngva- og dansmyndum hef- ur farið fækkandi hin seinni ár og þær sem gerðar hafa verið hafa kostað morð fjár og tapað því mestöllu. Barbra Streisand hefur því ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur þegar hún velur söguna um Yentl eftir Singer Nóbelsskáld til að gera úr söngvamynd með sjálfri sér í tit- ilhlutverkinu. Og hún hefur ýmsu klúðrað en klárað annað furðu vel. Áður en iengra er haldið er rétt að gleyma Singer Nóbels- skáldi. Kvikmyndin Yentl kemur honum ósköp lítið við. Hún kem- ur eiginlega aðeins Barbra Streisand við. Streisand tók ást- fóstri við söguna fyrir fimmtán árum og hefur stefnt að því síð- an að kvikmynda hana. Ljóst má vera að efni hennar hefur höfðað sterkt til hennar persónulega: Yentl er ung gyðingastúlka í gömlu Austur-Evrópu sem hald- in er óslökkvandi löngun til að standa jafnfætis karlmönpum. Hún sættir sig ekki við lögskipað hlutverk kvenna samkvæmt gyð- ingdómnum og grípur til þess ráðs að dulbúast sem karlmaður til að svala þekkingarþorsta sín- um og komast til mennta. Út frá þessum forsendum snýst svo ást- arflækja þegar Yentl kynnist samstúdent sínum, Avigdor og heitmey hans, Hadass og verða ýmsir skotnir í ýmsum. En for- sendurnar eru sumsé falskar. Og í lokin heldur Yentl á braut í leit að meiri þekkingu þar sem konur þurfa ekki að karlvæðast til að njóta jafnstöðu, kannski á lýð- háskóla í Svíþjóð. Með því að skrifa handrit (í samvinnu við karlmann), leik- stýra, framleiða og leika aðal- hlutverk þessarar stórmyndar er Barbra Streisand að reyna að sanna hið sama fyrir Hollywood og Yentl fyrir gyðingasamfélagi sínu. Ég fer ekki ofan af því að Yentl væri á köflum hin besta mynd ef ekki væri þessi voðalega söngþensla. Ég sé í fyrsta lagi engin rök fyrir því að túlka við- Barbra Streisand sem bókaormur- inn Yentl — fyrir „kynskipting- fangsefnið með þessum hætti. Söngurinn kemur þannig ekki innan frá. Hann kemur utan frá — af þeirri einföldu ástæðu að stjarnan Streisand hefur góða söngrödd. í öðru lagi eru laglín- ur Michel Legrand lítt spenn- andi þótt þær séu í voldugum út- setningum. Og í þriðja lagi er leikræn og myndræn útfærsla þessara atriða oft — en ekki allt- af — fálmkennd og vandræðaleg; tökuvél David Watkin sem með myndugum sveiflum sínum lyft- ir Yent yfirleitt upp um nokkra gæðaflokka lendir í því að þeyt- ast I hringi um Streisand og keyra að henni og frá henni af- tur í algjöru tilgangsleysi. En það er magt sem gleður auga og eyra þegar hlé verður á hávaðanum úr hálsi Barbra Streisand. Sagan er grípandi, þótt maður trúi reyndar aldrei á „dulargervi" Yentls, samtölin eru oft prýðis vel skrifuð, leikar- arnir, einkum Mandy Patinkin sem Avigdor, rækta persónur sínar af alúð og innlifun, vand- virkni einkennir öll vinnubrögð. Og þótt Barbra Streisand sé ekki mest aðlaðandi leikkona í um- ferð þá gerir hún margt vel, og hún sýnir í nokkrum atriðum að hún er alls ekki óefnilegur leik- stjóri. Með Yentl ætlaði hún sér of mikið, eða a.m.k. kaus hæpna efnismeðferð. En hver einasta sekúnda ber með sér að myndin er gerð af sannri þörf, áræði og ástríðu. Það er meira en unnt er að segja um obbann af amerísk- um kvikmyndaiðnaði nú á dög- um. — Enn getum viö boðið þennan glæsi- lega fjölskyldbíl á verði síðan fyrir gengisbreytingu, og með sérstökum afslætti að auki. BILVANGUR sf !... 1 ! ( 1 I 1 l.. ! i ! j HOFÐABAKKA-9 124 RGYKJAVIK SIMI 687300 1 M ! M ! Jafet S. Ólafsson Ráðinn for- stöðumaður Fatadeildar Sambandsins Jafet S. Ólafsson, viðskiptafræó- ingur, var nýlega ráðinn forstöðu- maður Fatadeildar Sambandsins, en þessi deild er hluti af Verslunar- deild. Fatadeild er nýstofnuð og varð til samfara skipulagsbreytingum á Sambandinu. Undir Fatadeild heyra skóverksmiðjan Iðunn og fataverksmiðjan á Akureyri, Yl- rún á Sauðárkróki, fataverksmiðj- an Gefjun, verslanirnar Torgið, Herraríki Glæsibæ og Herraríki á Snorrabraut. Einnig heyrir undir deildina innflutningur á fatnaði og skóm. Jafet S. Ólafsson er fæddur í Reykjavík 1951. Hann varð stúd- ent frá Verzlunarskóla tslands 1973 og útskrifaðist viðskipta- fræðingur frá Háskóla tslands 1977. Hóf hann þá störf í iðnaðar- ráðuneytinu fyrst sem fulltrúi og síðan sem deildarstjóri. Hann er kvæntur Hildi Hermóðsdóttur og eiga þau tvö börn. Málverk sleg- ið á 160 þús- und krónur Á málverkauppboði Klaustur- hóla, sem haldið var á sunnudag, var olíumálverk eftir Ásgrím Jónsson slegið á 160 þúsund krón- ur. Alls voru 117 myndir seldar á uppboðinu og fóru þrjú málverk á yfir 100 þúsund krónur. Hin eru „Bærinn minn“ eftir Kjarval, sem slegið var á 130 þúsund krónur, og i Þingvallamynd eftir Gunnar I Blöndal á 145 þúsund krónur. I
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.