Morgunblaðið - 22.11.1984, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1984
47-
Sjötugur:
Ólafur Sigurðs-
son verkfræðingur
í dag, fimmtudaginn 22. nóv-
ember, á góður sonur þessa lands
70 ára afmæli. Þar sem maðurinn
hefur átt heima utanlands meiri-
hluta ævinnar, en er þó enn sami
hógværi pilturinn af Seltjarnar-
nesi, sem hann alitaf hefur verið,
vinmargur beggja vegna hafsins,
þykir við hæfi að minnast þessa
atburðar að nokkru.
Nafnið er Ólafur Sigurðsson
verkfræðingur frá Pálsbæ á Sel-
tjarnarnesi. Foreldrarnir voru
Sigurður Pétursson frá Hrólfs-
skála, skipstjóri á flaggskipi ís-
lenska flotans, gamla Gullfossi, í
áratugi, óumdeildur sómi sinnar
stéttar, skipafélags og lands, og
kona hans Ingibjörg Ólafsdóttir
frá Mýrarhúsum.
Ekki verða raktar hér ættir
nánar, en þess eins getið að systk-
ini Ólafs eru systurnar Anna (lát-
in) og Guðlaug, sem störfuðu á
skrifstofu Eimskipafélagsins
langa starfsævi og Pétur, fyrrum
forstjóri Landhelgisgæslunnar.
Systkinabörn við þau eru Pétur
núverandi biskup vor og systkini
hans. Þarf ekki lengra að rekja
fyrir þá sem eitthvað vita og vilja
vita um ættir og persónusögu.
Ólafur fæddist á Seltjarnarnesi
í Pálsbæ 22. nóvember 1914. Stúd-
entsprófi lauk hann frá Mennta-
skólanum í Reykjavík vorið 1934
og prófi í skipaverkfræði frá
Tækniháskólanum í Stokkhólmi
1939.
Hóf hann síðan störf hjá skipa-
smíðastöðinni Kockums Mekan-
iska Verkstad í Málmey og starf-
aði þar öll stríðsárin. Réðst hann
til íslensku ríkisstjórnarinnar,
með aðsetur í Svíþjóð árið 1945, til
að sjá um byggingu svokallaðra
Svíþjóðarbáta. Að því loknu fór
hann til Landssmiðjunnar sem
forstjóri hennar og starfaði þar í
fimm ár til ársloka 1951.
Hjá Kockums mun þá hafa boð-
ist mjög áhugavert starf og var
því slegið til og söðlað um að nýju
og þar hefur Olafur starfað síðan
og búið í Málmey. Fyrsta starfið
mun hafa verið að annast sem
fulltrúi framleiðslustjóra sam-
starf við aðrar deildir þessa stór-
fyrirtækis, en ekki leið á löngu þar
til stöðuhækkanir komu hver af
annarri. Lauk því svo með stöðu
aðalforstjóra síðustu árin, þar til
eftirlaunaaldri var náð, 65 ára, en
þá hætta menn aðalstörfum sínum
þar í landi. Ekki munu menn hafa
viljað missa þennan frábæra
starfsmann, fyrr en í síðustu lög,
og situr Ólafur líklega enn í aðal-
stjórn fyrirtækisins og ýmissa
annarra fyrirtækja því tengdu,
svo sem viðgerðarstöðvar í Port-
úgal, sem hér verður ekki rakið
nánar.
Á starfstíma ólafs hjá Kock-
ums gerðist þar mikið tækni- og
fjárhagsundur, sem víða hefur
vakið athygli. Starfsmannafjöldi
mun lengst af hafa verið kringum
5.000 manns. Svokölluðu hvít-
flibbafólki, þ.m.t. tæknimönnum,
fjölgaði á sama tíma og öðrum
fækkaði og starfsmannafjöldinn
var álíka og áður. Afköst, tækni og
verkgæði jukust hins vegar með
ólíkindum og varð fyrirtækið
verulegt stórveldi í sinni grein.
Síðar kom reyndar til hörð sam-
keppni Japana og fleiri austur-
landabúa, olíukreppan og fleiri at-
vik sem urðu til þess að skipa-
smíðaiðnaður vesturlanda hefur
átt mjög á brattann að sækja um
tíma.
Haft hefur þó verið eftir austur-
lenskum stórjöfrum í þessari
grein, að af öllum vesturlandafyr-
irtækjum bæru þeir aðeins fulla
virðingu fyrir einu, það er Kock-
ums-stöðinni.
Á bak við þetta afrek stóð að
sjálfsögðu margt snjallra manna,
en þó mun ekki á neinn hallað,
þótt nafn Ólafs sé nefnt þar á und-
an öðrum.
Eins og eldri starfsmenn Lands-
í DAG, laugardag, verður opnuð í
Listamiðstöðinni við Lækjatorg sýn-
ingin „Mon Opera“, sem er grafík-
sýning franska listamannsins J.P.
Chambas. Verndari sýningarinnar er
sendiherra Frakklands á íslandi, Lou-
is Legendre. Sýningin verður opin
daglega kl. 14—18 nema á fimmtu-
dögum og sunnudögum, þá kl.
14—22. Sýningunni lýkur 2. desem-
ber.
Jean Paul Chambas er 37 ára
gamall og starfar nú í París. Hann
hefur haldið yfir 20 einkasýningar
víða um heim og hefur tekið þátt f
fjölmörgum samsýningum. Þá hef-
ur hann starfað sem leiktjalda-
smiður bæði í leikhúsum og óper-
um. Gerð hefur verið kvikmynd um
líf hans og list.
í fréttatilkynningu frá franska
smiðjunnar muna og fjöldi ann-
arra, sem til þekktu þar kringum
1950, er Ólafur vel heima í sínum
fræðum, glöggur og klár og sem
ekki skiptir minnstu, duglegur og
vinnusamur í besta lagi. Að auki
er maðurinn svo vel gerður að öllu
skapferli, að ekki gat hjá því farið
að hann kæmist í fremstu röð.
Framsýni hans og hæfileika til
frjósamrar samvinnu má meðal
annars marka af þessu: Kockums
var talið vel á vegi statt í ná-
kvæmri tilsniðningu efnis í skips-
skrokka, en þó var hafist handa
um þróun næstu kynslóðar slikra
tækja með notkun tölvutækni.
Mun þetta hafa verið gert í sam-
vinnu við Tækniháskólann í Lundi
með glæsilegum árangri. Fyrir
forystu sína, m.a. á þessu sviði,
sendiráðinu er listamanninum lýst
þannig:
„Chambas sækir sinn innblástur í
ýmsar áttir og í verkum hans má
heyra óma hina ólíkustu tóna, ljóð-
ræna, litmikla og kröftuga. Verk
hans eru ímynduð ópera rétt eins og
til eru söfn ímyndunaraflsins. Sú
ópera er algjörlega hans verk, graf-
ísk ópera er beitir aðferðum
steinprentunar og innleiðir þar
ýmsar nýjungar.
Jean-Paul Chambas hefur mikið
yndi af ljóðlist, af Verdi, Wagner,
Puccini, reggae-tónlist og rödd
Maríu Callas í Tosca. Hann semur
tónverk sitt á sinn sérstæða hátt,
með meðulum dráttlistar og lita.
Hvort sem um er að ræða þau
myndverk er gefið var samheitið
„Endurkoman til Egyptalands" eða
Sýning á verkum
J.P. Chambes opnuð
var Ólafur heiðraður af háskólan-
um með doktorsgráðu árið 1982.
Ejginkona Ólafs er Maj Hillevi
f. Áström, sænskrar ættar, frá
Norður-Svíþjóð. Er hún hinn
ágætasti kvenkostur og hefur ætíð
reynst maka sínum traustur fé-
lagi. Dætur þeirra tvær, Ebba
Ingibjörg hjúkrunarkona og Karin
Guðlaug, sálfræðingur, eru löngu
giftar og mæður en halda góðu og
traustu sambandi við foreldra
sína.
Á síðastliðnu hausti kom tæpt
hundrað rotaryfélaga og eigin-
kvenna þeirra frá Suður-Svíðþjóð
í stutta heimsókn hingað til lands.
Var auðheyrt á gestum þessum að
Ólafur er þekktur vel og nýtur
mikillar virðingar og vináttu á
þeim slóðum. Hefur hann reyndar
verið rotaryfélagi í áratugi og til-
einkað sér margt úr boðskap þess
góða félagsskapar.
Ef rétt er munaö hefur þar með-
al annars verið sagt eitthvað á þá
leið að fyrir því séu lítil takmörk
hve miklu góðu sé hægt að koma
til leiðar, ef verkefnið sjálft sé sett
ofar einstökum persónum, er við
sögu koma.
Afmælisbarnið Ólafur hefur
ekki mér vitanlega sóst eftir ytri
táknum þeirrar virðingar, er hann
nýtur nú víða. Að hinu hlýtur að
koma að samferðamenn um lang-
an og skamman veg vilja minnast
góðs drengs að verðleikum.
Þykist ég með þessum orðum
tala fyrir munn fjölmargra er
óska að senda honum og fjöl-
skyldu hans hlýjar kveðjur á þess-
um hátíðisdegi í lífi hans.
Megi hann og kona hans lengi
lifa við góða heilsu, velgengni og
verðskuldaða virðingu.
B.Á.
Franski grafíklistamaðurinn J.P.
Chambes.
sú sýning sem hér er á ferðinni
„Óperan min“ er ljóst að hæfileikar
Chambas liggja í því að tjá hina
óáþreifanlegu tónlist með mynd-
máli steinprentlistar.
Sýnigin „Óperan mín eftir Cham-
bas“ hefur verið sýnd í Luxemborg,
Englandi, Þýskalandi og Irlandi og
fer héðan til lsrael.“
Allehanda
En variation av lackra ljusa
och mörka chokUdbitar.
foarabou
j I - ’ I ■] fðBH
•
KULDAÚLPUR
M/HETTU
LÓÐFÓÐRAÐIR
SAMFESTINGAR
FYRIR DÖMUR OG HERRA
KAPPKLÆÐNAÐUR
MARGAR GERÐIR
MITTISÚLPUR
ÚR ULLAREFNI
ULLARPEYSUR
ÍSL. ULLARNÆRFÖT
STILL-LONGS
ULLARNÆRFÖT
NÆLONSTYRKT
DÖKKBLÁ FYRIR
BÖRN OG FULLORÐNA
SOKKAR
MED TVÖFÖLDUM BOTNI
•
REGNFATNAÐUR
VINNUFATNAÐUR
VINNUHANSKAR
KLOSSAR
GUMMÍSTÍGVÉL
ÖRYGGISSKÓR
'un/ijii i. r<"—a——w
BORÐLAMPAR
HENGILAMPAR
VEGGLAMPAR
OLÍUOFNAR
GASLUKTIR
OLÍUHANDLUKTIR
OLÍULAMPAR
10, 15, 20 LÍNA
ARINSETT
FÍSBELGIR
VIÐARKÖRFUR
NEIST AHLÍFAR
ARINVIÐUR
usnc
ST JÖRNULYKLAR
TOPPPLYKLAR
LYKLASETT
TENGUR
FJÖLBREYTT
ÚRVAL
•
ÞJALIR
MIKIÐ ÚRVAL
TRÉRASPAR
ÞJ ALABURST AR
VERKFÆRAKASSAR
fÉEð
VÍR- OG
BOLT AKLIPPUR
SÍMI 28855
Opið laugardaga 9—12