Morgunblaðið - 22.11.1984, Page 52

Morgunblaðið - 22.11.1984, Page 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1984 fólk í fréttum Richard Burton ásamt fimmtu og síðustu konu sinni, Sally. Mestur hluti arfsins rennur benni í skaut. Hvað ber á milli Dudley Moore og Susan? Leikarinn Dudley Moore og fyrr- um sambýliskona hans, Susan Anton, hafa sést grunsam- lega oft saman að undanförnu og þykir það benda til, að þau hafi sæst heilum sáttum. Þau bjuggu saman í nokkur ár en skildu og báru því við, að þeim hefði borið svo mikið á milli. Hvað það var vilja þau ekkert um segja en sumir benda á, að það hljóti þó að liggja í augum uppi. Þeim beri á milli hvorki meira né minna en 20 sm. Sus- an er nefnilega 180 sm á hæð en Dudley ekki nema 160 sm. 60 ára afmæli SigurAur Steinþórsson og Dóra Jónsdóttir gullsmiðir halda hér i Ijósriti af stofnfundi félagsins sem ritað var fyrir sextíu irum 11 Kvosinni, þi Rósenbergkjallaranum. Nýlega hélt félag íslenskra gullsmiða upp á 60 ára afmæli sitt. Fór veislan fram í Rósenbergkjallar- anum eða öðru nafni 1 Kvosinni en þar var félagið einmitt stofnað fyrir sextíu árum. Meðfylgjandi myndir voru teknar í afmælinu. Burton var ekki alveg á nástrái Richard Burton, leikarinn kunni, sem lést í ágúst sl., lét eftir sig 4,58 milljónir dollara og kom það mörgum á óvart. Burton hafði að visu góðar tekjur um ævina en hann var hins vegar óskaplegur eyðsluseggur og allt annað en aðsjáll í peningamálunum. Mestur hluti arfsins rennur til Sally Burtons, eiginkonu Richards, en hann var hins vegar fimmkvæntur um ævina og þar af tvisvar sinnum sömu konunni, Elizabeth Taylor. Eignir Burtons voru aðallega peningar í banka á Bermudaeyjum, fasteignir, fjárfestingar í þremur löndum og listaverk, þar af verðmæt teikning eftir Picasso, sem Liz Taylor hefur nú undir höndum, og handrit eftir skáldið Dylan Thomas, sem raunar hefur ekki fundist enn. Bresku blöðin segja, að Burton hafi gert erfðaskrá sína í Sviss og að þar hafi hann verið jarðsettur vegna þess hvernig erfðafjárskattinum er háttað í Bretlandi. Ef hann hefði verið grafinn í sínu ástkæra Wales hefði ríkið fleytt rjómann ofan af reytunum. Það var margt um manninn I veislunni. Tveir gullsmiðir voru gerðir að heiðursfélög- um, þeir Jens Guðjónsson gullsmiður I Reykjavík og Sigtryggur Helgason gullsmið- ur í Akureyri. Á milli þeirra mí sjá Guðmund Þorsteinsson gullsmið er gerður var að heið- ursfélaga fyrir tíu árum. Ljóamynd/ól.K.M. FÉLAG ÍSLENSKRA GULLSMIÐA Sally Burton vakti hneyksli Ekkjan hans Richards Burt- on, Sally, olli hneyksli miklu fyrir skömmu er hún mætti í veislu nokkra í London með karlkyns vin sinn. Samsætið var nefnilega haldið til heiðurs sið- ustu myndinni sem Richard heit- inn lék í. Þessi karlkyns vinur Sally heitir John Hurt og fór vel á með þeim eins og glöggt má sjá á myndinni. Að sögn leit Sally vel út og var í essinu sínu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.