Morgunblaðið - 30.11.1984, Síða 1
72 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
236. tbl. 71. árg.
FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kohl hittir Reagan:
Færir skilaboð
frá Sovétmönnum
Bonn, Ventnr Þýsknlnndi. 29. nóvember. AP.
HELMUT Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands hélt f dag áleiðis til Washington
þar sem hann mun ræða við Ronald Reagan Bandaríkjaforseta á morgun,
föstudag. í farangri sínum ber Kohl skilaboð frá Sovétríkjunum, en sendiherra
Rússa í Bonn afhenti Kohl bréf frá sovéskum yfirvöldum áður en hann lagði af
stað til fundar við Reagan.
Ekki hefur innihald bréfsins ver-
ið gert opinbert í smáatriðum, en
inntakið hefur þó kvisast út.
ónafngreindur háttsettur embætt-
ismaður í Bonn sagði Rússa vænta
þess að viðræðumar yrðu „raun-
sæjar, en ekki eins og verið hefði til
Feigur
reyndist
hann eigi
Aþenu, 29. nóvember. AP.
HANN VAR ekki aldeilis feigur,
jórdanski stjórnarerindrekinn
sem óþekktur hryðjuverkamaður
hugðist myrða á götum Aþenu í
dag. Þetta gerðist:
Erindrekinn, Assim Quta-
ishat, var í bifreið sinni ásamt
eiginkonu og tveimur bðrnum.
Skyndilega vatt sér að þeim
ungur maður, smávaxinn, hör-
undsdökkur og krullhærður.
Bifreiðinni var ekið á hægri
ferð vegna mikillar umferðar,
en ungi maðurinn ætlaði ein-
mitt að nota tækifærið og
myrða Assim.
Þreif hann skammbyssu úr
vasa sínu, miðaði og Assim
féllust hendur, hann gat enga
björg sér veitt og beið dauða
síns. En Assim reyndist fjarri
því að vera feigur, þegar sá
krullhærði togaði í gikkinn
gerðist ekkert. Brá honum þá í
brún, en gaf sig ekki og hamað-
ist á gikknum, en allt kom fyrir
ekki, Assim var ekki ætlað að
deyja. Við svo búið kastaði
ungi maðurinn byssunni frá
sér og forðaði sér á hlaupum.
þessa“. Fundur Gromykos og Shulz
í Genf í janúar verður trúlega aðal-
umræðuefni þeirra Reagans og
Kohls í Washington. Sovétmenn
hafa gefið í skyn að þeir séu tilbún-
ir til einhverra tilslakanna ef
Bandaríkjamenn séu það einnig.
Sami ónafngreindi embættismað-
urinn sagði t. d. að í bréfinu umtal-
aða hefði staðið að Sovétmenn
væru reiðubúnir að „losa sig við öll
kjarnorkuvopn ef samkomulag
tækist við Bandaríkjamenn".
Kohl
Reagan
Stmamynd/AP.
McCartney heiðursborgari
Bítillinn Paul McCartney kom í nokkurs konar pflagrímsför til beimaborgar sinnar Liverpool í dag. Þar hófst
bítlaævintýrið sem hafði svo mikil áhrif á dægurlagatónlistina. Borgarstjórinn í Liverpool var í broddi mikillar
fylkingar sem tók á móti McCartney og eiginkonu hans Lindu. Við þetta tækifæri var bítillinn gerður að
heiðursborgara Liverpool. Á myndinni hampar McCartney skjali því til staðfestingar, en til hægri við hann er
Linda McCartney.
Stjómskipuð nefnd um kjarnorkuvopn f Danmörku:
Engin vörn í afneit-
un kjarnorkuvopna
Kaupmannahófn, 29. nóvember. AP.
STJÓRNSKIPUÐ nefnd hefur
skilað áliti um stöðu Danmerkur í
varnarmálum. Niðurstaðan er sú, að
Danir eru varaðir við koma í veg
fyrir að kjarnorkuvopnum yrði kom-
ið fyrir í landinu, jafnvel á stríðs-
tímum, það myndi veikja varnir
NATO-landanna, kollvarpa varnar-
áætlun bandalagsins auk þess sem
slíkt væri síður en svo trygging fyrir
því að kjarnorkuvopnum yrði ekki
skotið á Danmörku.
Það voru Sósíaldemókratar sem
Enn deilt um fjölgun í EBE:
Forsetinn
Bmmel, 29. návember. AP.
j FORSETI ráðherr-
anefndar Efna-
hagsbandalags
Evrópu, Garret
Fitzgerald, sem
' einnig er forsætis-
, ráðherra írlands,
flaug í dag í
skyndi til Parísar
til viðræðna við
' þarlend yfirvöld.
Fitzgerald Nú eru aðeins fjór-
ir dagar þar til leiðtogafundur EBE
verður haldinn í Dublin og ætlar
Fitzgerald að freista þess að leysa
þann hnút sem hnýttur hefur verið
leysa
reynir
vandann
stungu upp á því að umrædd nefnd
tæki þegar í stað til starfa á sin-
um tíma, þeir eru í stjórnarand-
stöðu og vildu fá hlutlaust mat á
miklu deilumáli sínu og stjórnar-
innar. Sósialdemókratar hafa
þingmeirihluta fyrir því að kjarn-
orkuvopnum skuli ekki komið
fyrir í Danmörku, en stjórnin hef-
ur á hinn bóginn haldið til streitu
nauðsyn varnarsamstarfsins með
NATO. í tvö ár hefur þetta verið
eitt af helstu hitamálunum i
dönskum stjórnmálum.
í nefndarálitinu, sem er 147
síðna skýrsla, er hvatt til þess að
„farið verði varlega og af gætni út
í aðrar hugmyndir en þær sem
stjórnvöld fylgi því hér sé um ör-
yggi Danmerkur að ræða og því
megi ekki rasa um ráð fram“. Uffe
Elleman Jensen, utanrikisráð-
herra Danmerkur, sagði í samtali
við fréttamenn, að skýrslan segði
aðeins einn hlut að sínu mati:
„Það veitti ekkert af NATO árið
1949 og forsendurnar eru síður en
svo breyttar."
varðandi inngöngu Spánar og Port-
úgals í bandalagið.
Hvort sem Fitzgerald nær góð-
um árangri eða slæmum í París,
þá er vitað mál að áætluð inn-
ganga Spánar og Portúgals í
bandalagið verður mál málanna á
þinginu í Dublin. Ýmsir óttast þó
að viðleitni írska forsetans dugi
ekki til, því þriggja daga fundar-
höld utanríkisráðherra EBE-
landanna i þessari viku lauk án
þess að vandamálið leystist. Það
sem ekki semst um er hvað bjóða
skuli Spánverjum og Portúgölum
er væntanleg innganga þeirra tek-
ur gildi, en það er 1. janúar 1986.
Bendir ýmislegt til að sú dag-
setning frestist, nema að eitthvað
óvænt gerist á næstu dögum.
Vandamálið er ekki einþætt,
vínframleiðsla, fiskveiðar og land-
búnaðarvöruframleiðsla eru með-
al þeirra þátta sem ná þarf sam-
komulagi um og herma fregnir að
enn beri margt á milli.
Sem dæmi um hversu illa hefur
gengið að leysa málið, þá aflýsti
Gaston Thorn, forseti fram-
kvæmdanefndar bandalagsins,
fréttamannafundi sem halda átti í
lok þriggjadaga fundarsetunnar í
vikunni.
Vestur-Þýskaland:
Enn flýja Pól-
verjar af skipum
TraTenUnde, Veatur l*ýukalandi. 29. nóvember. AP.
FJÓRTÁN Pólverjar bættust í dag í ört stækkandi hóp flóttamanna sem
stokkið hafa frá pólskum skipum í Vestur Þýskalandi upp á síðkastið.
I>eir 14 sem um ræðir forðuðu sér er ferjan Rogalin kom til hafnar í
Travemiinde.
Þar með hafa 442 Pólverjar flú-
ið pólsk skip í Vestur Þýskalandi
það sem af er nóvember og hefur
flóttinn aldrei verið jafn ör.
Margir Pólverjar líta ferjuna
Rogalin hýru auga er þeir ákveða
að flýja land, alls hafa nú 770
Pólverjar flúið til Vestur Þýska-
lands frá Rogalin á þessu ári, 250
þeirra á siðustu tveimur vikun-
Viðbrögð yfirvalda í Póllandi
hafa verið með þeim hætti að þau
hafa lýst yfir að fólkið vaði í villu
um „fyrirheitna landið í vestri“,
það sé illa upplýst og rasi því um
ráð fram.