Morgunblaðið - 12.12.1984, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1984
Best seldu bækumar
í Bókabúð Máls og Menningar,
fram til 9. desember 1984.
Fullorðinsbækur:
1. Á Gljúfrasteini ...............kr. 998.-
2. Með kveðju frá Dublin ......... kr. 778.-
3. Jólaoratórian .................kr. 889.-
4. Guðmundurskipherra ............kr. 946.-
5. Ógnarráðuneytið ............... kr. 298,-
6. Ekkertmál ..................... kr. 778.-
7. Glæpurog refsing .............. kr. 1.170.-
Einsoggengur ................... kr. 1.170.-
8. Maðuroghaf .................... kr. 698.-
9. Vertu þú sjálfur ..........ib. kr. 966.-
Vertu þú sjálfur ........... kilja kr. 780.-
10. Þel .......................... kr. 778.-
Barna- og unglingabækur:
1. Bróðirminn Ljónshjarta ........ kr. 298.-
2. Sjáðu Madditt það snjóar .......kr. 238.-
3. Barnaijóð JóhannesarúrKötlum ...kr. 595.-
4. Elsku litla grís .............. kr. 238.-
5. Af hverju afi ................. kr. 398,-
6. Fimrhtán ára á föstu .......... kr. 398.-
7. Tröllabókin ................... kr. 238.-
Flugið heillar ................. kr. 448.-
8. Júlíus .........................kr. 321.-
9. Töff týpa á föstu ..............kr. 548.-
10. Karl Blomkvistog Rasmus .......kr. 420.-
(—M—l
Bókabúð
LmALS & MENNINGiAR J
LAUGAVEGI18 101 REYKJAVÍK SÍMAR: 24240 - 24242
Kápur, jakkar
og frakkar
í miklu úrvali. Góð snið, vönduð efni og sérlega
hagstætt verð. „Gæði er okkar kjörorð".
Opið mánudaga — föstudaga kl. 09.—18.00,
laugard. 15. des. til kl. 22.00
og laugard. 22. des. til kl. 23.00.
v_____________y
KÁPUSALAN
BORGARTÚNI 22 SÍMI 23509
Næg bílastæði.
Seyðisfjörður:
Tækniminjasafn Aust-
urlands stofnað
ÞANN 21. október síðastliðinn var
.stofnað á Seyðisfirði safn, er hlotið
hefur nafnið Tækniminjasafn
Austurlands. Stofnfundurinn, sem
boðað var til af safnanefnd og bæj-
arstjórn Seyðisfjarðarkaupstaðar,
var haldinn í Gömlu símstöð eða
Wathnes-húsi, einu elsta og
merkasta húsi kaupstaðarins. Þar
mun safnið eiga aðsetur sitt í fram-
tíðinni.
Hlutverk Tækniminjasafns
Austurlands, sem er sjálfseign-
arstofnun í umsjá Seyðisfjarðar-
kaupstaðar, er að safna og varð-
veita muni og mannvirki er
snerta sögu tækniþróunar á
Austurlandi. Á Seyðisfirði er að
finna margar af merkustu
tækniminjum fjórðungsins. Þar
kom sæsíminn fyrst á land 1906,
þar er starfandi elsta vélsmiðja
landsins, Vélsmiðja Seyðisfjarð-
ar, stofnuð 1906, og þar stendur
Fjarðarselsvirkjun, elsta rið-
straumsrafstöðin, reist árið
1913.
Wathnes-hús eða Gamla sím-
stöð, er Otto Wathne lét reisa
1894, hýsir nú bæjarskrifstofur
Seyðisfjarðarkaupstaðar en
fyrir nokkrum árum var húsið
gert upp með væntanlegt safn í
huga.
Á stofnfundinum bárust safn-
inu góðar gjafir. M.a. gaf Jóhann
Grétar Binarsson, formaður
safnanefndar, gamalt útvarp er
Þorsteinn Gíslason stöðvarstjóri
smíðaði á árunum 1915—1918.
Að fundinum loknum þáðu gest-
ir veitingar í boði bæjarstjórnar.
Stofnun Tækniminjasafns Aust-
urlands var gerð bæjarbúum
heyrum kunn með dúndrandi
skoti úr gamalli fallbyssu, sem
hefur verið dubbuð upp til nota
við hátíðleg tækifæri eftir að
hafa þjónað í 30—40 ár sem
bryggjupolli.
Með stofnun Tækniminjasafns
Austurlands fjölgar enn þeim
söfnum sem eru á starfssvæði
Safnastofnunar Austurlands
(SAL) en á vegum þeirrar stofn-
unar er unnið skipulega að upp-
byggingu safna í Austurlands-
kjördæmi. Nú eru þessi minja-
söfn starfandi á Austurlandi:
Minjasafnið á Burstarfelli,
Vopnafirði; Minjasafn Austur-
lands, Egilsstöðum; Náttúru-
gripasafnið í Neskaupstað; Sjó-
minjasafn Austurlands, Eski-
firði; Byggðasafn Austur-
Skaftafellssýslu, Höfn, og
Ljósmyndasafn Austurlands á
Egilsstöðum.
Formaður stjórnar Tækni-
minjasafns Austurlands er Pét-
ur Blöndal.
Stofnun Tæknirainjasafns var gerð Seyðfirðingum heyrum kunn með því að skjóta úr fallbyssu, sem gerð hefúr
verið upp.
Komið
að
landi
Séð yfir höfnina í Stykkishólmi.
Skelveiðibátarnir eru að koma að
landi og aðrir komnir og verið að
landa afianum. Þá sést út um eyjar.
Skelin hefir verið Hólmurum mikill
velmegunargjafi.
Morgunblaðift/Arni