Morgunblaðið - 12.12.1984, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1984
39
Afmæliskveðja:
Ingvi S. Ingvarsson
ráðuneytisstjóri
Sextugur er í dag sómamaður í
Stjórnarráði íslands, Ingvi Sig-
urður Ingvarsson, ráðuneytis-
stjóri utanríkisráðuneytisins.
Ingvi er svo hógvær maður og
sanngjarn að þeim sem með hon-
um starfa er einkar ljúft að
hugsa til hans á þessum merkis-
degi ævi hans. Sama mun gegna
um þá aðra sem átt hafa samleið
með honum lengur eða skemur.
Lengst af embættisferils síns
til þessa hefur Ingvi og hans
kostum prýdda kona, Hólmfríður,
dvalist á erlendri grund við gæslu
íslenskra hagsmuna þ.á m. hjá
risaveldunum báðum í austri og
vestri. Þar og í París, Brussel og
Stokkhólmi hefur þeirra íslenska
heimili staðið — og staðið mðrg-
um opið. Þar hafa í gegnum tíð-
ina mæst mörg þjóðerni og vin-
átta í garð íslands vaxið ómælt.
Djúpstæð kynni þeirra af mörg-
um þjóðum sem við eigum mikil-
væg samskipti við koma nú til
góða utanríkisþjónustunni sem
þau helga óeigingjarnt starf sitt.
í höndum Ingva þenst ekkert
mál út fyrir sitt eðlilega umfang.
Um það sér rólyndi hans og milt
skap. Hann snýr sér að viðfangs-
efnum sem til hans kasta koma
og tekur á málefnalegum grund-
velli þær ákvarðanir sem þarf að
taka. Kyrrlátur rekstur mála sem
svo vel hæfir og oft reynist far-
sælastur í milliríkjasamskiptum
er honum eðlislægur. Það hefur
þó líka komið i hans hlut að
bregða hinum breiðu spjótum.
Þegar farið var með landhelgis-
málið fyrir Öryggisráð SÞ — í
eina skiptið sem ísland hefur
borið upp mál þar — hvíldi flutn-
ingurinn á hans herðum þá eftir-
minniiegu stund.
Enginn munaður stórborga
tekur fram því yndi sem Ingvi
hefur af því í tómstundum að
leggja frá landi á báti sínum —
og kljúfa öldur eða renna fyrir
fisk. Þar ræður hin ramma taug
sem langar fjarvistir hafa ekki
náð að slíta.
Á þessum degi verður okkur
mörgum líka hugsað til þeirrar
kímni og skemmtilegu stríðni
sem gerir návist við Ingva nota-
lega á góðri stund. Sjálfur hefur
hann — svo vanur veisluhöldum
— nú til tilbreytingar og í anda
rólyndis síns kosið að verja deg-
inum utan skarkala heimsins á
fjarlægri strönd með nánustu
fjölskyldu sinni. Þar eru þeir því
trúlega á gangi þessa stundina
afmælisbarnið og dóttursonur
hans og nafni — traust hönd
Ingva með litla hönd í sinni.
Þangað sendum við samstarfs-
fólk hans og vinir honum einlæg-
ustu heillaóskir.
Óiafur Kgilsson
Dvalarstaður afmælisbarnsins
nú er:
Ocean Reef Club
Anchor Drive AC 71 B
Key Largs, Florida 33037
USA.
Segja skæru-
liða Unita
hafa fram-
ið fjöldamorð
l.ussahon, 10. denember. AF.
YKIRVÖLI) í Angóla greindu frá því I
dag, að skæruliðar UNITA sem berj-
ast gegn stjórninni hefðu gert sekir
um mikil óhæfuverk er þeir myrtu 85
óbreytta borgara í þorpinu Longonio í
Huambo-sýslu í skjóli náttmyrkurs
um helgina.
f tilkynningu stjórnvalda kom
fram að fjöldamorðin hefðu engan
tilgang haft, um ekkert annað en
hreinræktað grimmdarverk hefði
verið að ræða, því um löghlýðna
borgara hefði verið að ræða.
Talsmenn UNITA minntust ekk-
ert á ásakanir stjórnvalda í frétta-
bréfi sem þeir sendu frá höfuðstöðv-
um sínum, sem eru í Lissabon í
Portúgal. Þar sögðu þeir einungis
frá stórsigrum í orrustum við
stjórnarherinn og sögðust þeir hafa
drepið 132 stjórnarhermenn og 20
kúbanska hermenn í nokkrum bar-
dögum síðustu dagana. Áttu þeir
bardagar að hafa farið fram í allt
öðrum sýslum og héruðum.
Unita hefur í 9 ár barist gegn
stjórnvöldum í landinu. Jafnan er
erfitt að henda reiður á fréttir
stríðsaðila.
Itölsk'biita
Úrval af ítölskum Ijósum í loft - á veggi - á borð - á gólf -
hvar sem þörf er fyrir mjúka lifandi lýsingu.
íbúðin fær hlýja birtu og blæ með Ijósi frá okkur.
Þú gengur að gæðunum vísum.
Sérverslun með listræna húsmuni
Borgartúni 29 Simi 20640