Morgunblaðið - 22.12.1984, Síða 11

Morgunblaðið - 22.12.1984, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1984 11 Innrásinni í Afganistan mótmælt 27. desember A ÞRIÐJA í jólum, fimmtudaginn 27. desember nk., verða 5 ár liöin frá því að Rauði herinn sovéski réðst inn í Afganistan og hernam landið. Til þess að minnast þess, mót- mæla veru sovéska hersins í Afg- anistan og lýsa yfir samstöðu með frelsisbaráttu afgönsku þjóðar- innar, hefur verið ákveðið að efna til '/i klst. mótmælastöðu við sov- éska sendiráðið við Garðastræti, á þriðja jóladag, það er fimmtudag- inn 27. desember, kl. 17.30. Þar mun Stefán Kalmannsson, for- maður Stúdentaráðs Háskóla ís- lands, flytja ávarp og sendiherra Sovétríkjanna verður afhent mót- mælaskjal. Þeir sem að þessu standa eru: Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna i Reykjavík, Varðberg, samtök áhugamanna um vestræna samvinnu, Týr, félag ungra sjálfstæðismanna i Kópa- vogi. Stefnir, félag ungra sjálf- stæðismanna í Hafnarfirði, Frið- arhreyfing framhaldsskólanema og Afganistan-nefndin. Það er vissulega ástæða fyrir ís- lendinga að minnast hinna ömur- legu örlaga afgönsku þjóðarinnar eftir að Rauði herinn réðst inn í landið á þriðja í jólum árið 1979. Afganistan hafði um langan aldur verið óháð ríki utan hernaðar- bandalaga og innrásin var ský- laust brot á alþjóðareglum og við- urkenndum hefðum í samskiptum ríkja. Átti hernám landsins þvi mikinn þátt í því að kynda undir nýjum viðsjám milli Austur- og Vesturveldanna með þeim afleið- ingum að svonefnd slökunarstefna leið undir lok. Á þeim fimm árum sem liðin eru frá innrásinni hefur afganska þjóðin orðið að líða óbærilegar þjáningar. Vígvélar risaveldisins hafa farið eyðandi eldi yfir þetta fátæka og hrjóstruga land og mannfallið er orðið eitt hið mesta í átökum síðari tíma. Rösklega ein milljón manna er talin hafa fallið og á fimmtu milljón, um þriðjung- ur landsmanna, hefur flúið til nágrannaríkjanna og býr þar við hörmuleg kjör í flóttamannabúð- um. Við hvetjum fólk til að fórna V4 klukkustund af jólahátíðinni til að sýna samstöðu með afgönsku þjóðinni og óska þess að hún fái aftur að njóta friðar og fullra yfir- ráða yfir sínu landi. (FrétUtilkynning.) Hiö nýja skip Eimskipafélagsins, Reykjafoss. Morgunblaðid/Árni Sæberg. Nýr Reykjafoss tii landsins REYKJAFOSS, nýtt skip Eimskipa- félagsins er komið til landsins. Skip- ið er systurskip Skógafoss, sem af- hentur var Eimskipafélaginu 11. september síðastliðinn. Skipið er gámaskip og munu leysa Dettifoss og Mánafoss af og sigia á Skand- inavíu. Þau geta hvort um sig flutt 300 gáma. Skógafoss og Reykjafoss koma til landsins á kaupleigusamningi með kauprétti. Skipin eru smíðuð í Sietas-skipasmíðastöðinni í Vestur-Þýskalandi árið 1979, en fengin frá útgerðarfélaginu Peter Döhle í Hamborg. Fyrst um sinn verður þýsk áhöfn á skipunum, þar til íslensk áhöfn getur tekið við. Lengd skipanna er 109,94 metr- ar og breidd 16 metrar. Aðalvélin er af MAK gerð, 4 þúsund hestöfl og ganghraðinn 14,5 sjómílur. Þau eru búin fullkomnum siglinga- tækjum með sjálfvirkt vélarúm, bógskrúfu og öxulrafal. Burðar- geta er 4.140 tonn og lestarrými 275 þúsund rúmfet. Tveir síðu- kranar eru um borð sem geta lyft 35 tonnum hvor. Skipin eru sérstaklega búin til gámaflutninga, en hafa einnig möguleika til margvíslegra ann- arra flutninga. Nokkur breyting verður á Skandinavíusiglingum Eimskips með tilkomu hinna nýju skipa, þar sem minniháttar breyt- ingar verða á lestunardögum í ein- stökum höfnum. Áfram verður boðið upp á vikulega flutninga- þjónustu frá 7 höfnum í Skand- inavíu og áætlun skipanna verður öll öruggari vegna rýmri tíma skipanna og aukinnar flutnings- getu. Hugað er nú að sölu Mánafoss og Dettifoss, en þar til af verður munu þau gegna nýjum verkefn- um hjá Eimskipafélaginu. Barnaguðsþjónusta í Dómkirkjunni Á morgun verður barnaguðsþjónusta verið síðasta sunnudag fyrir jól, sem að og hefst hún kl. 11.00. Undanfarin ár hafa barnasam- komur Dómkirkjunnar verið í húsnæði Vesturbæjarskólans, en nú í vetur hafa þær verið í Dóm- kirkjunni. Börnin, sem sækja þessar sam- komur eða kirkjuskóla, hafa und- anfarna daga verið að æfa helgi- leik sem er byggður á jólaguð- spjallinu og munu þau sýna hann í guðsþjónustunni á morgun undir stjórn sr. Agnesar Sigurðardóttur, sem sér um barnastarf Dómkirkj- unnar. Hannes Baldursson hefur í Dómkirkjunni eins og venja hefur þessu sinni ber upp á Þorláksmessu, æft jólasálma, sem notaðir eru í helgileiknum. Við fáum líka góða gesti í heim- sókn, en það er Lúðrasveit Laug- arnesskóla, sem mun leika jólalög undir stjórn Stefáns Þ. Stephen- sen. Einnig mun sr. Hjalti Guð- mundsson tala við börnin um jól- in. Foreldrar eru hvattir til að fjöl- menna með börnum sínum í Dómkirkjuna á morgun og eiga þar góða stund með þeim. Frá Dómkirkjunni. Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra gefin íbúð SAMKVÆMT erfðaskrá Júlíusar Jónssonar, Holtsgötu 13 ( Reykjavík, og látinn er fyrir allmörgum árum, var Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra nýlega afhent til eignar íbúð, sem hann ánafnaði félaginu. Júlíus var fatlaður maður, vantaði hægri handlegg. Um margra ára bil leigði Soffía Jó- hannesdóttir frá Laxamýri hjá Júlíus og konu hans, Dagbjörtu Hannesdóttur, en hún var hjartasjúklingur og lést löngu á undan manni sínum. Aðstoðaði Soffía þau eftir megni og var því bæði ráðgjafi þeirra og hjálparhella. Sem þakklætisvott var það ætlun Júlíusar að arfleiða Soffíu að íbúð sinni, en Soffía óskaði eftir því, að Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra fengi íbúðina. Þáði hún hins vegar með þökkum afnot íbúðarinnar svo lengi sem hún þyrfti hennar með. Soffía Jóhannesdóttir frá Laxamýri lést hinn 6. október sl. á Borgarspítalanum 83ja ára að aldri. (FrétUtilkynninji.) SoíTía Jóhannesdóttir frá Laxa- mýri. tm Margir fá konfektkassa á jólunum. Sumir kassanna eru með formuðum bökkum í fyrir kon fektið. Fleygið þeim ekki strax þegar þeir eru tómir, sérstaklega ekki ef börn eru á heimilinu. Börnin gætu haft gaman af að fylla bakkann af vatni og frysta, því þá fást ísmolar í ýmsum myndum, sem nota má í gosdrykki eða ávaxta- safa. - O - Nú er einmitt sá tími sem kerti eru mest notuð, og þess vegna gæti verið gott að hafa þetta ráð í huga: Ef kertið er of stórt eða of lítið í stjakann, er auðvelt að bæta úr með heitu vatni. Haldið kertinu í mjög heitu vatni og þrýstið því síðan ofan í stjakann. Þá stendur það fast og örugglega þegar það stífnar á ný. Þegar efnt er til veizlu er það venjan víðast hvar að bjóða upp á drykk fyrir matinn. Þar sem óleyfilegt er að auglýsa áfengi í fjölmiðlum, verða engar upp- skriftir gefnar af áfengum drykkjum, en hér flýtur upp- skrift af einum óáfengum for- drykk með uppskriftum af tveimur ídýfum, mjög lystugum. Uppskriftirnar eru ætlaðar 10 manns. Óáfengur fordrykkur Hristið saman jafna hluta af appelsínu-, sítrónu- og ananas- safa með nógum ís. Framreitt í háu glasi með appelsínurönd á glasbarminum. ídýfa með kavíar 150 gr. olíusósa (mayonnaise) og 1 dl sýrður rjómi hrært sam- an. 1 dl mild soyasósa, 1 matsk. þurrt sherry, ca. 1 'k glas ólitað- ur kavíar, 3 matsk. fínt saxaður rauður piparávöxtur (paprika), framan á hnífsoddi af cayenne pipar. Öllu blandað saman og kælt. Osta ídýfa 125 gr. gráðostur (Blue cheese), 4 matsk. rjómi, 2 matsk. koníak, 250 gr olíusósa (may- onnaise). Stappið ostinn með rjóma og konóaki, látið út í olíu- sósuna, þeytið með handþeytara og kryddið aðeins með papriku- dufti. Kælið. Eld- hús- krók- urinn Óvenjulegt ristað brauð með salati: Hér kemur uppskrift að heitu jólabrauði, sem hæfir vel í léttan hádegisverð eða sem náttverður. 4 brauðsneiðar (gjarnan heilhveiti) Smjörklípa kínakál (meðalstórt) 1 rauð paprika 2 tómatar 4 ostsneiðar Steytt muskat Franskt sinnep. Skerið kálið og paprikuna niður í sneiðar og veltið þeim í smjöri á pönnu í nokkrar mínútur. Dreifið þeim siðan yfir brauðsneiðarn- ar, sem áður eru smurðar þunnt með sinnepinu. Ofan á eru svo settar nokkrar sneiðar af tómat og væn sneið af osti. Þá er muskat- inu dreift yfir, allt látið í eldfast fat og sett inn f 200 gráðu heitan ofn í 10 minútur. Dyngjan sendir öllum lesendum sínum innilegar jólakreðjur og ronar að jólahátíðin rerði þeim ánægjuleg.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.