Morgunblaðið - 22.12.1984, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 22.12.1984, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1984 41 Kveðjuorð: Guðmundur Jóns son, Grímsey Guðmundur Jónsson mágur minn hefði orðið 64 ára í dag, 22. desember, hefði honum auðnast lff, en hann var jarðsunginn frá Miögarðakirkju sunnudaginn 25. nóvember. Mig langar aðeins með nokkrum orðum að þakka honum allar þær ánægjustundir sem fjöl- skyldur okkar áttu saman. Við Al- freð bróðir hans bjuggum í Siglu- firði frá því að við giftum okkur og þar til við fluttum til Grímseyjar 1957 með dætur okkar 4 á aldrin- um 3ja til 12 ára. Ég hafði ekki haft tækifæri til að kynnast þeim hjónum Steinunni Sigurbjörns- dóttur kaupfélagsstjóra og Guð- mundi fyrr, aðeins hitt þau nokkr- um sinnum. En þegar við komum til Grímseyjar stóð heimili þeirra okkur opið og var alla tíð kært með þeim bræðrum. Kjörsonur þeirra, Hafliði, var þriggja ára og var hann leikfélagi dætra okkar eftir það. Þau voru og mörg önnur systkinabörn þeirra hjóna, sem áttu þar sitt annað heimili, sér- staklega á sumrin, því sumar hér í Grímsey er börnunum heillandi heimur með því fjölbreytta fugla- lífi sem einkennir eyjuna. Þótt hjónin í Nýja Sjálandi ættu aðeins einn son var æskuhópur unga fólksins stór sem fyllti heimili þeirra með fjöri og gáska og þau fylgdust náið og vel með þroska og störfum þessara ungu ættingja sinna. Guðmundur var mjög heimakær, gestrisinn og mikill heimilisfaðir. Hann fór ávallt snemma á fætur og hellti þá strax upp á kaffi sem stóð öllum til boða, er voru á leið á sjó eða áttu i öðrum erindagjörðum nálægt heimili þeirra Guðmundar snemma morguns og sama hress- ing stóð öllum til boða, sem leið áttu um heimilið um daginn. í Nýja Sjálandi stóð fallegt heimili, þar sem öllu var komið fyrir af stakri smekkvísi, en fyrst og fremst var það hið hlýja og að- laöandi viðmót þeirra hjóna, er sveipaði gesti og gangandi, sem fundu ætíð að þeir voru velkomn- ir. Þau Steinunn og Guðmundur gáfu sér tíma til aö sinna öllum, enda mikið um gestagang, eyja- skeggja og aðkomufólks. Enginn dagur leið svo eftir að við fluttum til Grímseyjar, að ekki væru ein- hver samskipti milli heimila okkar. Nú á afmælisdegi Guð- mundar mágs míns fer sólin að hækka á lofti og eins og hún gleð- ur og vermir með geislum sinum, gleðir og vermir minningin um góöan mág og tryggan vin á leið- inni gegnum lifið til endaloka. Ragnhildur Einarsdóttir, Básum, Grímsey. Minning: Garðar Helga- son Eskifirði Fæddur 15. nóvember 1911 Dáinn 14. desember 1984 Vinur er dáinn, vinur hefur ver- ið burtu kallaður, vinur horfinn harmafregn. Mig setti hljóðan er mér barst andlátsfregn vinar mins Garðars Helgasonar bifreið- arstjóra á Eskifirði. Ekki það, mér var vel kunnugt um að i mörg ár hafði Garðar ekki gengið heill til skógar, heldur það að kallið kemur alltaf svo óvænt. Fyrir fáeinum dögum hafði Garðar kvatt okkur hér á Akureyri, þá svo friskur og fullur af lífsvilja. Eftir stóra að- gerð á fæti hafði hann fulla ástæðu til bjartsýni. Kvalirnar i hnénu sem sett höfðu mark á lif hans í mörg ár voru nú horfnar. Hann gat nú með ánægju sýnt hvernig hann gat orðið staðið upp án þess að stingandi sársauki færi um hnéð og án þess að styðja sig. Handtakið þétta þegar kvatt var, varð þá það síðasta. Kynni okkar Garðars hófust fyrir mörgum árum austur á Eski- firði. Hann var þá þegar orðinn bifreiðarstjóri, en það varð hans ævistarf. Faðir minn var einnig bifreiðarstjóri svo oft lágu leiðir saman. Fljótlega varð Garðar mikill fjölskylduvinur og mikils metinn af foreldrum mínum og systkinum. Það getur vart talist tilviljun að Garðar varð bifreiðar- stjóri að ævistarfi. Honum var aksturinn i blóð borinn og enginn dró í efa ökumannshæfileika hans. Það, hvernig hann umgekkst bif- reiðir sínar var til fyrirmyndar svo til var tekið. Nokkru eftir að foreldrar mínir fluttu frá Eski- firði til Akureyrar hóf Garðar að aka áætlunarbifreið milli þessara staða. Hann var þá jafnan mikill aufúsugestur á heimili okkar. Þá var ekki neitt umsamið verð fyrir fæði eða gistingu, en eitt var full- víst, Garðar sá um að greiða fyrir sig og gerði það rausnarlega. Frásagnargáfu haföi Garðar með ágætum og margar ferðasögur og minningar komu fram sem unun var á að hlýða. Garðar var fæddur að Hlíð 1 Eskifiröi, sonur Helga Pálssonar frá Sellátrum og konu hans, Jón- ínu Guðrúnar Jónsdóttur. Þann 26. nóvember 1937 gekk Garðar það gæfuspor að ganga að eiga Jensinu Karlsdóttur frá Eskifirði, fyrir eiginkonu. Börn þeirra urðu þrjú: Helgi rafvirki á Eskifirði, giftur Herdísi Hallbjörnsdóttur, Agústa búsett á Eskifirði, gift Helga Hálfdánarsyni og Jónína, búsett í Reykjavík, gift Svavari Svavarssyni. Tvo bræður átti Garðar, þá Leif og Ásgeir, og eru þeir báðir látnir. Elsku Jensína. Ég vil fyrir hönd okkar systkinanna og móður okkar senda þér og börnunum og barnabörnunum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Við munum biðja góðan Guð að styrkja ykkur öll i sorginni. Við erum öll þakklát fyrir allar góðar stundir og í minningunni eigum viö margar fagrar myndir um góðan og traustan vin. Minn- ingu um traustan dreng sem kært var að hitta og ávallt var tilbúinn að rétta hjálparhönd þeim sem með þurfti. Verum fullviss orðanna sem standa í Jóhannesar Guðspjalli, 11. 25.: Ég er upprisan og lífiö, sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. Blessuð sé minning hans. Bogi Pétursson Kveikt á Hamborgarjólatrénu UM SÍÐUSTU helgi voru Ijósin tendruð á Hamborgarjólatrénu við Hafn- arbúðir. Tréð er gjöf frá klúbbnum Wikingerrunde í Hamborg, sem er Félagsskapur fyrrverandi sjó- manna, blaðamanna og verzlun- armanna í Hamborg. Tréð afhenti Achim D. Möller blaðamaður og eiginkona hans kveikti á trénu. Gunnar B. Guð- mundsson hafnarstjóri veitti trénu viðtöku fyrir hönd Reykja- vikurhafnar. Hér má sjá Gunnar hafnarstjóra hjálpa frú Möller við að kveikja og hjá þeim stend- ur Achim D. Möller. Morgunbltíift/ÓI.K.Miw. ÚRKOM4 SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR 3, S=11133 JÓLABÓKIN Á BIBLÍUÁRINU Biblían er kjörin jólagjöf nú á ári Biblíunnar á íslandi. Fæst í bókaverslun og hjá kristilegu fólögunum. HIÐ ÍSL. BIBLÍUFÉLAG Guöbrandsstofu Hallgrímskirkju, Reykjavík sími 17805, opiö 3—5 e.h. Blaóió sem þú vakrnr vió!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.