Morgunblaðið - 22.12.1984, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 22.12.1984, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1984 51 VELVAKANDI SVARAR Í SÍMA 10100 KL. 11-12 FRÁ MANUDEGI TIL FÖSTUDAGS nt' i/jAmtoi''gjz'i/ n Hleypum jóla- gestinum horarinn E. Jónsson skrifar: Engum dylst að jólin eru í nánd. Ljósaskreytingar í gluggum húsa og á götum borgarinnar. Kveikt hefur verið á jólatrénu á Austur- velli og víðar í borginni. Allt er þetta góðra gjalda vert. Sjálfsagt er að fagna jólunum á þennan hátt. Þegar friðarhöfðinginn fæddist, í hvers minningu jólahá- tíðin er haldin að kristnum sið, þá birtist ljós hér á jörðu. Það ljós var ekki kveikt af mannahöndum. Því ljósi fylgdi birta er lýsti af, sem um bjartan dag væri. Þá birt- ust gestir, komnir af öðru vitund- arstigi en því, sem við dveljum á, plánetunni Jörð. Þessu ljósi fylgdu himneskir herskarar og sungu guði lof og dýrð. í jólaguðspjallinu segir: „I dag er yður frelsari fæddur. Krist- ur drottinn í borg Davíðs." Engill- inn tjáði fjárhirðunum einnig hvar hið nýfædda barn væri að finna. Eftir tilvísan engilsins fannst það liggjandi í jötu, í gripa- húsi. Þetta er gömul sögn, sem ég trúi bókstaflega. Ég fagnaði jólunum, það ég man fyrst til, fimm ára gamall. Sjötíu og átta ár liðin síðan. Ég man eftir lágreistri baðstofu, sandskúruðu gólfi. Ljósadýrðin lítil, samanbor- ið við rafljós nútímans. Bezt man ég eftir jólakertinu mínu á rúm- stuðlinum. Kertaljósið var í mín- um augum, fimm ára drengs, tákn guðlegrar dýrðar. Þetta var fyrsta kertaljósið sem ég minnist að hafa séð. Skin þess var bjart og skin þess varir enn. Nú, árið 1984, minnir þetta litla kertaljós mig á annað ljós. í bernsku heyrði ég jólalesturinn lesinn, sálma sungna. Ég sá fólkið inn íhugult, en skildi þá ekki íhygli þess, byggða á lífsreynslu langrar ævi. Nú skil ég þetta betur. Hina einu sönnu jóiagleði að minnast barnsins, liggjandi í jötunni. „Dýrð sé guði í upphæðum," sungu þeir sem sendir voru hingað, hin fyrstu jól. Engillinn var sendur af alföður til að vitna um barnið í jötunni. Ljósið eilífa lýsir þá og lýsir enn, Jesús er hið eilífa ljósið. Mannkynið á Jesú Kristi allt að þakka, en leiðsögn hans vill gleymast í ölduróti mannlegs lífs. Margir ráfa um ráðþrota og vegarvilltir. Þeir virð- ast hafa misst sjónar á veginum og Ljósinu eilífa. „Leitið og þér munuð finna," segir Jesús Kristur. Jólin eru kom- in. Kristur stendur við dyrnar og knýr á. Opnum dyrnar. Lofum jólagestinum að koma inn. Höldum vínlaus jól Árni Helgason skrifar: Senn eru blessuð jólin gengin í garð. Hátíð hátíðanna. Þeir eru einkennilegir sem ekki hlakka til þeirra. Þrá ylinn sem þá streymir um allt og alla, fegurð og helgi sem þá tekur við af erli og and- streymi dagsins. Það er mikið rætt um allt umstang sem jólin hafa í för með sér, en vildum við missa það? Er ekki alltaf tekið til í húsunum þegar von er á góðum gesti og hvernig er það þegar tign- ir gestir heimsækja fósturjörð vora, er þá nokkuð sparað til að allt sé prýtt og fágað jafnt mat- borð sem annað? Þá er nú ekki talið neitt eftir. Er þá mikið þótt við hreinsum og fágum og prýðum allt, þegar tignasti gestur og bróð- ir vor frelsari allra manna heim- sækir hvert heimili og við getum með sanni sagt Hvert fátækt hreysi höll nú er, því guð er sjálf- ur gestur hér. Og á hátíð hátíð- anna, er þá til of mikils mælst að helginni sé ekki spillt með ein- hverju sem er andstætt boðskap Jesú Krists? Um jólin hlustum við á fréttirn- ar. Það er eins og létti af fólki þegar sagt er að jólin hafi farið vel fram. Hvílíkar fréttir. Eins og það sé ekki sjálfsagt. Og svo ef eitt- hvað fer úrskeiðis er það alltaf í sambandi við ölvun. Hvflík and- stæða. Hvernig getur nokkur hreyft við eitri þegar ljósið er að koma í heiminn og okkur er boðað- ur mikill fögnuður, koma Drottins vors. Ég skil þetta ekki. Er hjart- að svona hart, eða hvað er að þeg- ar menn taka hina fölsku gleði fram yfir jólagleðina. Hvers vegna eru mennirnir sjálfir að leggja all- ar þessar freistingar fyrir fólk sem svo kaupir dýru verði að eitra sina sál? Er nema von að spurt sé. Áminnið hver annan, segir hin heilaga bók. Áminnið um að hætta göngunni um stiga vímu og eyði- leggingar og gangið inn á blessun- ar- og friðarbraut frelsarans. Kæru landar. Hugleiðum ástandið í dag. Landið okkar er auðugt og ef við viljum hjálpast að þarf enginn að líða skort. Hugsum til hinna þjáðu um allan heim. Fögnum þessum jólum með því að láta flöskuna eiga sig og allt það eitur sem hún geymir. Höld- um nú heilög jól. Biðjum góðan guð um hjálp og vernd. Látum aldrei þurfa um þessa tíma að segja að ölvun eyðileggi jólagleð- ina. Vímulaus jól. Það er besta gjöfin til frelsara vors, Jesú Krists. Guð gefi öllum landsmönnum sanna farsæld og gleðileg jól. MOSS Málið er leyst Þetta er stóllinn sem þú gefur sjálfum þér í jólagjöf. Hann er sterkur, þægilegur, hreyfanleg- ur, Ijós eöa dökkur og svo fæst hann líka á snúningsfæti og meö skammel. EFNI: grind formbeygt beyki í viöarlit og dökkbæsaö. Mjúkt og sterkt 1. flokks leöur á setu, baki og örmum. Gervileður á grind. Stóllinn á myndinni verð kr. 7.9 0.- Stóll á snúningsfæti verð kr. 9.650.- Skammel verð kr. 2.720.- 7.950 i Þú þarft ekki að m leita lengur Þú finnur livergi betri stól á lægra verði. ■ ■ Öga: cgk BISGACNAHOLLIN BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK S 91-61199 OQ 81410
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.