Morgunblaðið - 10.01.1985, Síða 1

Morgunblaðið - 10.01.1985, Síða 1
64 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 7. tbl. 72. árg. FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Reagan afar ánægður með árangur Genfarfundaríns Washington, 9. janúar. AP. RONALD Reagan Bandaríkjaforseti sagðLst í dag vera „afar ánægður“ með árangurinn af fundi utanríkii ráðberra Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna í Genf, Þar sem samkomu- lag náðist um nýjar viðræður milli risaveldanna um afvopnunarmál. Haft var eftir áreiðanlegum heimildum í dag, að Bandaríkja- stjórn hafi þegar ákveðið, að Max Kampelman verði aðalfulltrúi hennar í þessum viðræðum. Kamp- elman, sem er 64 ára að aldri, er úr röðum demókrata. Hann var aðal- fulltrúi Bandaríkjamanna á örygg- ismálaráðstefnu Evrópu 1983 og hafði áður tekið þátt i svonefndum SALT II afvopnunarviðræðum. Samkomulagi því, sem náðist i Genf, hefur almennt verið fagnað i Rússar auka kaup á korni WuhinftoD, 9. >anúar. AP. RÚSSAR hafa samið um kaup á 350.000 tonnum af korni í viðbót af Bandaríkjamönnum. í síðustu viku pöntuðu þeir 2,4 milijónir tonna og 350,000 tonn á mánudaginn. Það sem af er þessu ári hafa þeir því pantað 3,1 milljón lesta. Verðmæti þessa korns er talið nema um 36 milljónum dala. Alls hafa Rússar keypt 14,3 milljónir tonna samkvæmt samningi um kornviðskipti 1984—85 miðað við 14,5 milljónir lesta næsta fjárhags- ár á undan. George Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna ræðir við Reagan forseta símleiðis frá hótelherbergi sínu í Genf, þar sem hann gerði forsetanum grein fyrir árangrinum af viðræðum sínum við Andrei Gromyko utanríkisráðherra Sovét- ríkjanna. Við hlið Shultz stendur Robert McFarlane, ráðgjafi Bandaríkjastjórnar í öryggismál- um. Evrópu. Víða mátti þó heyra að- vörunarraddir í dag um að leiðin yrði grýtt og torsótt, áður en nokkrum raunhæfum árangri á sviði afvopnunar væri náð. Sexburar á Ítalíu Róm, 9. jan. AP. ÞRÍTUG kona ól í dag sexbura í Róm. Fæddust þeir fyrir tímann, en bæði móður og börnum heilsaðist vel samkvæmt frásögn lækna og ættingja. „Við verðum sennilega að fletta upp í síma- skránni til þess að ákveða nöfn handa þeim,“ var haft eftir Ren- ato Di Pietro, afa sexburanna. „Við vissum, að það var von á þremur eða fjórum börnum, en okkur datt aldrei I hug að þau yrðu sex.“ Móðirin, Mara di Pietro Calc- atelli, sem er veðurfræðingur við Leonardi da Vinci-flugvöll- inn i Róm, hafði gengið með börnin í 6V4 mánuð. Börnin voru tekin með keisaraskurði. Konan hafði tekið frjósemislyf og eru þetta hennar fyrstu börn. Sexburarnir verða hafðir i súrefniskössum fyrst um sinn. Faðir þeirra er Giuseppe Mario Calcatelli, 35 ára að aldri og starfsmaður hjá IBM á Italíu. Margaret Thatcher, forsætis- ráðherra Bretlands, kvaðst fagna innilega því samkomulagi sem náðst hefði i Genf. 1 Nöregi lýsti Káre Willoch forsætisráðherra samkomulaginu sem „mjög já- kvæðu“ og Olof Palme, forsætis- ráðherra Svíþjóðar, sagði að það ætti eftir að hafa „afar mikla þýð- ingu“. Viðbrögð innan Varsjárbandal- agsins voru einnig mjög jákvæð. Komst pólska blaðið Zycie Wars- awy svo að orði í dag, að árangur af fundinum væri „framar öllum vonum“. Sjá frekari fréttir varðandi fund- inn í Genf á bls. 28. Vaxandi fjandskapur milli Kína og Víetnams Peking, 9. jan. AP. KÍNA hafnaði í dag tilboði Víetnams um vopnahlé á landamærum ríkj- anna, á meðan nýárshátið þeirra (TET) stendur yfir, en hún gengur I garð í næsta mánuði. Sökuðu Kín- verjar Víetnama um nýjar árásarað- gerðir og að hernámslið þeirra I Kambódíu bæri ábyrgð á fjölda- morðum á óbreyttum borgurum þar. Ma Yuzehen, utanríkisráðherra Kína, lýsti hernaðaraðgerðum Víetnama í Kambódíu sem „villi- mannslegum" og hefðu þær leitt til þess, að fjöldi óbreyttra borg- ara var drepinn eða missti heimili sín. Tillögur Víetnama um vopna- hlé nú væru ekkert annað en sýnd- armennska og bornar fram til þess að dylja sífelldar ögranir þeirra á landamærunum við Kína og áform þeirra um áframhald- andi hernaðaraðgerðir í Kambó- dlu. Á árinu 1979 kom til harðra átaka á landamærum Kína og Víetnams og stóð það stríð í 6 vik- ur. í dag bárust á ný fréttir af hörð- um bardögum í vesturhluta Kam- bódíu. Hafa Kambódíumenn enn neyðst til þess að láta undan síga fyrir fjölmennu liði Víetnama, sem er vel búið bryndrekum og öðrum vígvélum er Rússar hafa látið þeim í té. 50 ár frá fœðingu Elvis Söngvarinn frægi Elvis Presley hefði orðið fimmtugur á þriðjudag hefði hann lifað. Fjölmargir aðdáendur söngvar- ans flykktust að gröf hans í Graceland í Memphis, Tenness- ee og sjást hér tveir þeirra við eina af þeim myndum sem lagðar voru á leiði Elvis þennan dag. Eitt versta kuldakast í áratugi í V-Evrópu Meira en 35 stiga frost mældist í Frakklandi i gær Allt á kafi I fönn f Kalmar I Svíþjóð. Frankfurt, 9. jnn. AP. TALA þeirra, sem látizt hafa af völd- um kuldanna í Evrópu, hækkaði enn í dag og er nú komin langt yfir hundrað. Ekkert lát virðist vera á kuldunum, sem ná allt til Norður- Afríku. Víða hafa skipaskurðir lok- azt sökum ísa og f Suður-Evrópu er talið vfst, að ávaxtauppskera f vor verði fyrir stórfelldu tjóni vegna kuldanna. íbúar Amsterdam fara nú á skautum um siki borgarinnar. Flugvöllurinn í Nizza í Frakklandi hefur hvað eftir annað lokazt sök- um fannfergis og frosta og snjór þekur pálmatrén á sumarleyfis- stöðunum meðfram frönsku Mið- jarðarhafsströndinni. Tilkynnt hefur verið um dauða 126 manna í 8 löndum Vestur- Evrópu og 2 löndum Norður- Afríku. Frakkland hefur orðið verst úti. en síðan koma Spánn og Alsír. I Frakklandi hafa að minnsta kosti 36 manns beðið bana, en mestur kuldi þar f dag mældist mfnús 35,5 stig á Celsíus. Var það f borginni Mouthe f aust- urhluta landsins. Á Spáni hafa 26 manns dáið af völdum kuldanna samkvæmt frásögn almannavarna þar f landi. Eru kuldarnir nú þeir mestu, sem komið hafa á Spáni allt frá árinu 1956. Miklar truflanir hafa víða orðið á samgöngum vegna kuldanna og mikil slysahætta skapazt sökum hálku. Járnbrautarlestir og flug- vélar hafa orðið að breyta áætlun- arferðum sínum og jafnvel fella þær niður hvað eftir annað og svellbunkar á vegum hafa skapað hættulegar slysagildrur fyrir bif- reiðir. Útvarpsstöð ein í Suður- Frakklandi hefur sent út neyðar- kall til fuglavina f nágrenninu um að bjarga 100 flamingófuglum frá því að frjósa í hel, en þykkur fs þekur nú tjarnir þeirra. Sjá frekari frásagnir og myndir af vetrarkuldunum á bls. 31.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.