Morgunblaðið - 10.01.1985, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JANUAR 1985
49
Kveðjuorð:
Ólöf Halldórsdóttir
frá Litlu-Skógum
Fædd 17. nóvember 1908
Dáin 31. nóvember 1984
Hún OUa, föðursystir mín, er
dáin. Hin sviplega harmafregn
fyllir mig þörf fyrir að skrifa
nokkur kveðju- og minningarorð:
Það fyrsta sem ég minnist í
sambandi við Ollu frænku eru
heimsóknir okkar systkinanna til
hennar þegar komið var til
Reykjavíkur. Það var jafnan einn
af hápunktum ferðarinnar að
koma til hennar, fá að skoða alla
skemmtilegu hlutina sem hún átti,
og alltaf átti hún eitthvað gott að
gefa okkur. En þá vissi ég ekki hve
náin kynni okkar áttu eftir að
verða, hve ég og við systkinin eig-
um henni nú mikið að þakka. Hún
veitti okkur ómetanlegan stuðning
er við stunduðum nám við fram-
haldsskóla í Reykjavík.
Við systkinin fjögur, Halldór,
Gísli, Sóley og ég, bjuggum hjá
henni í litlu vinalegu fbúðinni við
Stigahlíðina vetur eftir vetur, eitt
eða fleiri í senn. Alls bjó ég hjá
henni í sjö ár.
Olla hélt heimili fyrir okkur og
gerði allt sem hún gat til að okkur
liði vel. Sjálf flutti hún úr svefn-
herberginu sínu, þegar við vorum
hjá henni þrjú samtímis, til að
geta búið betur að okkur.
Á þeim árum var oft margt um
manninn hjá Ollu frænku. Vinir
okkar og skólafélagar voru allir
jafn velkomnir. Á kvöldin voru
jafnan pönnukökur með kaffinu,
en þær brögðuðust ekki betur hjá
neinum öðrum.
Olla sagði okkur frá umhverfi
og atburðum æskuáranna, hvernig
hún og systkinin höfðu það í
Litlu-Skógum í uppvextinum,
sagði okkur frá foreldrum sínum,
sem ég kynntist aldrei.
Hún Olla hafði reynt margt um
ævina. Hún vann mikið og var
slitin eftir erfið störf frá barn-
æsku. En hún tók sér það nærri að
verða að hætta að vinna 70 ára
gömul vegna heilsubrests.
Hvert af öðru fluttum við systk-
inin frá henni og hún bjó ein þeg-
ar heilsan bilaði. Þá átti hún oft
erfiða daga og þarfnaðist þá líka
hvíldar.
Sumarið 1982, rúmu ári eftir að
ég flutti til Noregs, kom Olla
frænka í heimsókn ásamt Sóley
systur minni og Ágústi litla syni
hennar. Þá áttum við saman þrjár
góðar eftirminnilear vikur. Þá
virtist hún vera búin að ná betri
heilsu og líða vel bæði andlega og
likamlega.
Síðastliðið sumar hitti ég svo
Ollu aftur. Þá vann hún nokkra
tíma á dag á Blindraheimilinu við
Hamrahlíð og var ánægð með að
vera orðin til einhvers nýt aftur
eins og hún orðaði það.
Fram til síðasta dags var hún
alltaf jafn vinsæl hjá yngstu
kynslóðinni, nú voru það barna-
börn systkina hennar sem hún sat
með á gólfinu og lék sér við. Þeirra
stunda er ég hrædd um að sumir
eigi eftir að sakna og hef ég þá
sérstaklega í huga hann Ágúst
litla. En mér leiðist að dóttir mín
skuli vera of ung til að muna Ollu
frænku sína.
Olla reyndist mörgum stoð og
stytta og hjálpaði þeim sem hún
kunni. Henni þótti vænt um
marga og kunni vel að meta þá
sem henni voru góðir.
Hún talaði stundum við mig um
dauðann og hvernig dauðdaga hún
óskaði sér. Helst vildi hún komast
hjá því að valda öðrum erfiði og
óþægindum af að þurfa að hugsa
um sig veika og hafa fyrir sér.
Kannski hið sorglega slys, sem
batt svo snöggan enda á ævi Ollu
frænku og ég á svo erfit að sætta
mig við, nú einmitt er henni virt-
ist líða svo vel, hafi þrátt fyrir allt
verið umskipti sem henni voru
ekki svo á móti skapi.
En tómlegt verður að koma til
íslands næst án þess að geta hitt
Ollu frænku, þiggja hjá henni
pönnukökur og skötu og njóta vin-
áttu hennar og hlýju.
Eftirlifandi systkinum og fjöl-
skyldum þeirra votta ég samúð
mína.
Ég og fjölskylda mín munum
ætíð minnast Ollu með virðingu og
þökk.
Skedsmokorset, 1. des. 1984.
Ása SigurþórsdóUir
t
Eiginmaöur minn og faöir okkar,
GISSUR GIS8URARSON
fyrrum bóndi og hreppstjóri
Salkoti,
Austur-Eyjafjöllum,
veröur jarösunginn frá Eyvindarhólakirkju laugardaglnn 12. janúar
kl. 14.00.
Ferö verður frá BSl sama dag kl. 11.00 f.h.
Gróa Sveinsdóttir
og börn.
STÓRA myndin, sem Ævar Auð-
björnsson, fréttaritari Mbl. ó Eski-
firði tók, sýnir hvernig þokan ligg-
ur yHr Eskifirði og byrgir sýn yfir
bæinn og fjörðinn af veginum í
Oddsskarð. Til samanburðar er
svo litla myndin, sem sýnir það,
sem liggur undir þokunni ó hinni.
Aust-
fjarðaþoka
EakinrAi. 7. janúar.
f GÆR og fyrradag gerði hér
mikla þoku og svo var hún dimm
að ekki sást nema nokkra metra
og stórvarasamt að vera ó ferðinni.
Sem dæmi um þokuna þó var verið
að skipa út síldartunnum I Lagar-
foss, en því þurfti að hætta vegna
þcss að ekki sóst úr löndunarkrön-
um skipsins niður ó bryggjuna.
Ekki er vitað nema um eitt
umferðaróhapp, sem varð er ekið
var á kyrrstæðan bíl. Ekki bætti
úr skák að reykurinn úr loðnu-
bræðslunni blandaðist saman
við þokuna með sínum „ljúfa
ilrni", en vegna lognsins, sem
hefur verið hér svo lengi, leggst
brælan oft yfir bæinn og kemst
ekki í burtu. Maður þurfti ekki
að aka nema rétt upp í hlíðina
fyrir ofan bæinn til þess að kom-
ast út úr þokunni og var
skemmtilegt að horfa yfir firð-
ina fulla af þoku út í hafsauga,
en fjöllin stóðu alls staðar upp
úr og hefur þokulagið verið
svona 50—100 metra þykkt, en
sól og blíða fyrir ofan. Var
margt um manninn í skíðaland-
inu í Oddsskarði þar sem skíða-
lyfturnar eru að fara í gang og
góður snjór þar uppi, þótt ekki
hafi neitt snjóað í byggð það sem
af er vetri.
t
Móöir okkar og tengdamóölr,
GUORÍOUR JÓNSDÓTTIR,
Hjótshólum,
sem lést 4. janúar sl. veröur jarösungin frá Gaulverjabæjarkirkju
laugardaginn 12. janúar kl. 13.30.
Bilferð veröur frá BSl kl. 11.30.
Jón Tómasson,
Gunnar Tómasson,
Sigrföur Tómasdóttir,
Bjarni Tómasson,
Þurlóur Tómasdóttir,
Bjarni Guömundsson,
Hjördls Þorsteinsdóttir,
Kristján Þórisson.
t
HÖGNI HALLDÓRSSON,
Langholtsvegi 145,
Reykjavík,
verður jarösunginn frá Dómkirkjunni i Reykjavik föstudaginn 11.
janúar kl. 13.30. Þeir sem vilja minnast hans vinsamlegast látl
liknarstofnanir njóta þess.
Fanný Egilson,
Guörún og Charles Ansiau,
Christine Ansiau,
Catherme Ansiau,
Chantal Ansiau,
Erla Egilson og Skarphóöinn Loftsson.
t
Þökum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför
eiginmanns mins, fööur okkar, tengdafööur og afa,
ÓSKARSGUDLAUGSSONAR,
Gnoösrvogi 34,
Dýrleif J. Tryggvadóttír,
Guölaugur Tr. Óskarsson, Þorbjörg Arnadóttír,
Baldvin P. Óskarsson,
Sigurlln Rósa Óskarsdóttir, Sveinn Jóhannesson,
Óskar J. Óskarsson,
Anns Elin Óskarsdóttir, Hjálmar Ævarsaon
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
jaröarför fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa,
JÓNS STEFÁNSSONAR VOPNA,
Gránufélagsgötu 43,
Akureyri.
Unnur Jónsdóttir,
Marta Jónsdóttir, Eövarö Sigurgeírsson,
Ásta Jónsdóttir, Grlmur Jónsson,
Kristin Huld Haróardóttir, Siguröur Þorgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
KRISTÍN JÓHANNESDÓTTIR,
Freyjugötu 8,
(Dalbraut 27),
lést 26. desember sl. Jarðarförin hefur fariö fram. Þökkum auö-
sýnda samúö.
Sigrióur Guömundsdóttir, Björn I. Valdimarsson,
Maris Björgvinsdóttir, Sigurjón Helgason,
Petrina K. Björgvinsdóttir, Þórir Ólafsson,
Guölaug B. Björgvinsdóttir, Erla Jónsdóttir,
barnabðrn og barnabarnabðrn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför
eiginmartns míns, fööur og tengdafööur,
ÓLAFS EIRÍKS GUNNLAUGSSONAR
frá Flatey, Breióafirói.
Guöbjörg Páturadóttir,
Guölaug Ólafsdóttir, 8igurþór Þorgrlmsson,
Pétur Ólafsson.
Lokaö
i dag, fimmtudag 10. janúar, vegna jarðarfarar
MARÍU JENSDÓTTUR.
Þumalbuöirnar,
Leifsgötu 32.
Þumalína - Tumi þumail.
Kransar kistuskreytingar
BORGARBLÓMiÐ
SKÍPHOLTÍ 35 SÍMÍ: 32ZI3