Morgunblaðið - 13.01.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1985
B 3
fjármálum þjóðarinnar mun hins
vegar marka stefnuna sem fylgt
verður næstu árin.
í sambandi við Satúrnus er það
athyglisvert sem Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
sagði í áramótaávarpi sínu — að
hér hefði venjulega kreppt að á
fimmtán ára fresti um langt skeið.
Það er í samræmi við umferðart-
íma Satúrnusar, sem er 30 ár, með
mikilvægum tímamótum á sjö og
hálfs árs fresti. Á því tímabili sem
Steingrímur getur um er Satúrnus
í sterkum afstöðum f kortinu, á
Tungli og Mars.
Það verður í lok ársins (desem-
ber) sem Satúrnus fer úr 2. húsi
(peningar) í í 3. hús (menntun —
skólamál). Þetta þýðir að sam-
dráttur og uppstokkun munu næst
beinast að menntakerfinu og e.t.v.
heilsugæslukerfinu — mun þetta
sjálfsagt verða komið á nokkurn
skrið í upphafi næsta árs.
Annars virðist mér stjörnukort
lýðveldisins fyrir árið 1985 tiltölu-
lega tíðindalítið og lítið um breyt-
ingar.
BREYTINGAR í FRJÁLS-
RÆÐISÁTT
Það virðast hins vegar miklar
breytingar í vændum á næstu ár-
um — 1986 til 1988. Á því tímabili
mun Úranus verða í mótstöðu við
Venus, Sól og Satúrnus. Þetta
mun líkast til þýða aukna sókn
þjóðarinnar í frjálsræðisátt og
meiri einstaklingshyggju. Auk
þess sem einstaklingsfrelsið mun
aukast er svo að sjá sem miklar
tæknibyltingar verði í atvinnuveg-
um landsmanna á þessum árum.
Ef lengra er litið — til ársins 1990
— virðist stórfelld breyting með
tilheyrandi umróti koma yfir
þjóðina. Þá mun Plútó fara i mót-
stöðu við Tungl og kvartilstöðu við
Mars.
— Hvað um verkföll á árinu
1985?
Samkvæmt stjörnukortinu
verður lítið sem ekkert um verk-
föll á þessu ári. Eins og ég sagði
komu verkföllin í haust mjög
skýrt fram í stjörnukorti síðasta
árs — sem tímabundin stöðvun á
þjóðlífinu. Eins komu verkföllin
fyrir sjö árum vel fram i kortinu
en þá var Satúrnus i samstöðu við
Mars.
— Hvað um pólitíkina — verða
breytingar á ríkisstjórninni?
Það er ekkert i kortinu sem
bendir til þess að breytingar verði
á ríkisstjórninni. Mér virðist sem
hún sitji út kjörtímabilið. Á árun-
um 1987 og 1988 eru fyrirsjáanleg-
ar miklar breytingar í frjálsræðis-
átt eins og ég kom að áðan — mér
virðast þær breytingar vera í anda
þessarar ríkisstjórnar og ættu þvi
að geta gengið fyrir sig undir
hennar forystu.
Það virðist bjart yfir komandi
sumri — því veldur sterkur Júpit-
er. Það gæti bent til góðs veður-
fars en Júpíter veldur lika þenslu
og hefur verið aðal verðbólguhvat-
inn á undanförnum árum. Það er
þó engin ástæða til að setja sama-
semmerki milli Júpíters og verð-
bólgu------óbeislaður Júpiter
veldur verðbólgu og fjármála-
óreiðu en sé vel á málum haldið
má komast hjá slíku.
Um tölverðan vöxt er einnig að
ræða veturinn 1985—86, sterk
Júpiter, þensla. Það gæti táknað
mikinn afla og hagsæld, en einnig
aukna verðbólgu ef ekki er að gáð.
— Hvað um andleg mál þjóðar-
innar?
Þar á það sama við og annars
staðar i heiminum nú á tímum.
Neptúnus í Steingeit veldur þvi að
meiri skynsemi gætir i trúar-
brögðum og þvi sem við nefnum
andlegt í daglegu tali. Við getum
sagt að þetta komi þannig út að
skýjaglóparnir komi dálítið niður
á jörðina en efnishyggjumenn og
bókstafstrúarmenn fari dálitið á
loft. í trúmálum mun þetta leiða
til meira jafnvægis og samruna en
verið hefur. Þetta aukna raunsæi
til allra hluta mun einnig hafa
ýmis ytri einkenni — eins og t.d.
aukna íhaldsemi í klæðaburði, það
þarf engum að koma á óvart þó
gömlu góðu jakkafötin fara að
tiðkast á ný.
V^terkur og
hagkvæmur
auglýsingamiöill!
STOR-
BÍLASÝNI
Við sýnum um helgina allar nýjustu
gerðimar af FORD og SUZUKI bílum.
Þar á meðal nýjan SUZUKIFOX
með 40% aflmeiri vél og luxus búnaði
bíl sem á eftir að vekja verulega athygli.
Sýndar verða einnig 5 gerðir af
FORD ESCORT mest selda bíl í heimi
auk annarra gerða FORD OG SUZUKI bíla.
Komið oq skoðið frábært bílaval á einum stað
Opið trá 10-17 FORD frá kr. 279 þús.
laugardag og sunnudag. SUZUKI frá kr. 194 þús.
SVEINN EGILSSON HF.
Skeifan 17 Sími: 685100
bó.