Morgunblaðið - 13.01.1985, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 13.01.1985, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JANtJAR 1985 B 5 „Þróunin hélt áfram. Mér finnst að breytingarnar hafi orðið full ör- ar og vinnuhagræðingin ekki fylgt þeim nægilega vel eftir. Menn gera sér ekki nægilega grein fyrir því að tíminn er peningar," segir Sigur- páll nú, tíu árum síðar Vissulega urðu breytingarnar örar og óaflát- anlegar í örtölvutækninni. Sigur- páll segir: „Það byrjaði með tölvu- setningunni og offsetprentuninni en nú er þetta orðin allt önnur tækni. Strax fóru flinkar vélritun- arstúlkur aö setja á ljóssetningar- vélarnar með okkur setjurunum. Svo hurfu fljótiega gatastrimlarn- ir, sem runnu út úr vélunum i fyrstu, og farið var að setja beint inn á diskana í heilanum. Um það leyti hætti ég í setningunni og fór að lesa prófarkir eftir ljósriti af dálkunum, en hefi síðustu árin ver- ið mest vio auglýsingaprófarkirn- ar, sem eru út af fyrir sig leiði- gjarnari en textarnir. að því er mér finnst. Nú orðið setja blaðamenn- irnir sjálfir sínar greinar beint, en annað er sett af stúlkum, sem hafa sérstaklega lært til þess. Og alltaf eru að koma ný kerfi." Ekki hefur Sigurpáll þó alveg skilið við tölvurnar þótt hann sé hættur störfum, því heima hjá honum stendur glæný og falleg BBC-tölva. „Um það leyti sem ég var að hætta vann ég 37 þúsund krónur í happadrætti Háskólans og það dugði næstum því fyrir þessan vönduðu tölvu. sem er af þeirri gerðinni sem framhaldskólarnir í Bretlandi nota, Björn Thors yngri, sá ágæti og flínki maður, sem séð hefur um uppsetningu flestra tækja á Morgunblaðinu og annast allt viðhalcl og viðgerðir, valdi hana með mér. Á hana get ég nú skrifað að gamni mínu, vantar þó ennþá Morgunblaðið/ól.K. Mag Sigurpáll Þorkelsson lauk starfi sínu í prentsmiðju Morgunblaðsins meö prófarkalestr: á auglýsingum í setj- arasal Morgunblaðsins. Á bak við hann má sjá hinn mikia „heila", þar sem allur texti safnast saman á disk- um frá hinum ýmsu rittölvum. diskettudrif við hana og prentara til að geta unnið á hana. Ég ætla mér líka bara setja á hana það sem mig langar til og hefi hug á. Ekki þó svo að skilja að ég hyggist skrifa ævisögu eða neitt slíkt," bætir Sig- urpáll við. Að lokum er Sigurpáll spurður hvernig honum líði nú þegar hann er hættur vinnu eftir að hafa varla misst úr dag frá því hann var 14 ára gamall. „Mér líður alveg prýði- lega og sakna ekki vinnunnar," svarar hann um hæl. „Mér finnst satt að segja tími til kominn að taka mér frí í ellinni eftir 55 ár innan prentsmiðjuveggja. Nú verð- ur nægur tími til að lesa og læra það sem ég hefi ekki haft tíma til að gera fyrr. Það eru mörg ár síðan ég fór að kaupa efni til tungumála- náms, plötur fyrst og síðan kasett- ur og svo á ég mikið af bókum sem eru ólesnar." Við lítum í kring um okkur og sjáum að allar bókahillur eru fullar af bókum svo Sigurpáll hefur næg viðfangsefni þótt hann eigi eftir nokkra áratugi í þessu lífi í viðbót. — E.Pá. VðKVHSIROKKAR EFIIR MAU Afgreiddir með stuttum fyrirvara. Stærðin sem hentar þér getur allt eins verið til á lager. Strokkrör: Stál DIN St. 52-3 rvromnuoao siai trua kromhúðað ryðfrítt stál 12, 16, 20, 25, 30,35, 40, 50. 65 og 80 mm Veitum tæknilega aóstoð og allar upplýsingar LAA/DVEIARHF SMIEXIWEGI66, PÓSTHÓLF20, 202KÓFAVOGI, S.91-76600 TOLVUNAMSKEIÐ Á NÆSTUNN! -PC helgarnámskeiö í notkun hinnar vinsælu einkatölvu frá IBM Dagskrá: Uppbygging IBM-PC PC-DOS stýrikerfiö Ritvinnsla með Word-kerfinu Multiplan töflureiknirinn D-base II gagnasafnskerfið Bokhald á IBM-PC Fyrirspurnir Tímh 26. oa 27. janúar kl. 10—12 og 13—17. Tölvunámskeið fyrir fullorðna Námskeiö fyrir þá sem ekki hafa átt þess kost aö læra um tölvur í skóla. Kennd eru undirstööuatriöi í notkun tölva, forritun í BASIC, ritvinnsla meö tölvu o.fl. Tími: 22., 24., 29. og 31. janúar kl. 18—21. Innritun í Verktræðinganámskeið Fjölbreytt namskeíö um notkun tölva og for- rita sem notuö eru viö verkfræöistörf. Dagskrá: Grundvallaratriöi í tölvunotkun Forritun i BASIC Töflureiknirinn Multiplan Notkun smátölvs á verkfræðiskrifstofum Forrit sem leysa verkfræöileg vandamái CAD kerfi (Computer aided design) Tölvur og tölvuval Umræöur og fyrirspurnir Leiöbeinendur: Dr Kristján Ingvarssof verkfrasðingur Jón Bui Guðiaugsson verkfræóingur Halldor Kristjánsson verkfræðingur Tími: 28., 29., 30., 31. jan. og 1. febrúar ki. 13—16. Heimilistölvur Gleðifrétt fyrir aiia smátölvueigendur Námskeið í notkun Commodore, BBC, Sinclair Spectrum, Oric, Spectravideo, Amstrad og fleiri heimilistölva. Þátttakendur mæti með sina eigin tölvu. Tölvu- fræöslan útvegar sjónvörp. Tími: 28., 29., 30. og 31. janúar kl. 18—20. ÐSLA Armúla 36 — Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.