Morgunblaðið - 13.01.1985, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1985
B 11
Priscilla lýsti því síðar yfir að
hún hefði alltaf elskað Elvis. Lífið
með honum hefði hins vegar verið
orðið óbærilegt. Hún var einangruð
í Graceland á meðan hann skemmti
sér í Hollywood eða Las Vegas.
Hann mun líka hafa verið orðinn
nokkuð erfiður í sambúð þegar hér
var komið sögu. Priscilla kynntist
karate-kennara einum, ættuðum
frá Hawaii, Mike Stone að nafni, og
einn góðan veðurdag var hún flogin
úr hreiðrinu með honum. Látum
vera ef hún hefði stungið af með
Frank Sinatra eða einhverjum
álíka stórlaxi. En það, að kona hans
skyldi stinga af með vesælum kar-
ate-kennara, með 200 dollara í laun
á viku, var meira en EIvis gat tekið.
Red West heldur því fram, að þetta
hafi framar öðru eyðilagt Elvis.
Fyrir Priscillu var þetta aðeins
leið til frelsisins enda sleit hún
fljótlega sambandi sinu við Mike
Stone. Elvis og Priscilla héldu all-
góðu sambandi sín á milli eftir
skilnaðinn og einkum var Elvis
annt um velferð Lisu dóttur sinnar.
Nánasta vinkona Elvis eftir
skilnaðinn var Linda Thompson og
svo síðar Ginger Alden. Það var sú
síðarnefnda, sem kom að Elvis
liggjandi á baðherbergisgólfinu
skömmu eftir hádegi hinn 16. ágúst
1977. Elvis hafði þá átt við vaxandi
vanheilsu að stríða um hríð og talið
er nokkuð víst að dánarorsökin hafi
verið ofneysla eiturlyfja þótt opin-
ber yfirlýsing þar að lútandi hafi
aldrei verið gefin. Þar með var endi
bundinn á stórbrotinn ferill ein-
hvers mesta skemmtikrafts, sem
uppi hefur verið. Milljónir að-
dáenda um víða veröld eru enn að
syrgja hann og í Graceland er stöð-
ugur straumur pilagríma, sem
komnir eru til að votta minningu
hans virðingu sína.
Elvis lifir
Skyldurækinn sonur, örlátur vin-
ur, skemmtikraftur í sérflokki, hinn
eini og sanni konungur rokksins,
flekklaus og fullkominn, þannig var
sú ímynd sem Elvis Presley hafði í
vitund bandarísku þjóðarinnar og
aðdáenda sinna þar til hann lést.
Það má þvf nærri geta hvílíkt áfall
það var er út spurðist hvernig lát
hans bar að höndum. Allt sem þá
var grafið upp á yfirborðið var í
himinhrópandi ósamræmi við þá
ímynd sem menn höfðu gert sér um
goðið.
Eftir dauða Presleys fundu ýmsir
hjá sér hvöt til að ata minningu
hans auri og það var í samræmi við
tilefnið, að gera það eftir að hann
var látinn og gat ekki svarað fyrir
sig, að ráðast á minningu látins
manns og sparka f lfkið. Áður er
nefnd bók þeirra félaga úr
Memphis-mafíunni, bar sem reynd-
ar er slegið úr og í. Astæða er einn-
ig til að nefna bók eftir blaðamann-
inn og rithöfundinn Albert Gold-
man, sem þýdd hefur verið á fs-
lensku. Ekki skal þvi mótmælt að
einhver sannleikskorn sé að finna í
bók Goldmans, en bókin er skrifuð
af slíkri illkvittni og mannfyrirlitn-
ingu að engu er líkara e'n höfundi
hafi ekki verið sjálfrátt, og að þvf
leyti segir bókin ef til vill meira um
Goldman en Elvis.
Aðdáendur Presleys hafa auðvit-
að gert sér ljóst, að hann var ekki
sá engill sem haldið var fram á
meðan hann lifði. Hann var fórnar-
lamb eigin frægðar og endaði ævi
sína einangraður og yfirgefinn,
sjúkur á líkama og sál. Ástæðulaust
er þó að velta sér upp úr þeirri
ógæfu sem yfirþyrmandi frægð og
vinsældir færðu þessum manni. Sú
harmsaga verður ekki rifjuð upp
hér. Ef satt skal segja fara þessar
sögur ákaflega f taugarnar á okkur,
aðdáendum hans. Og þegar allt
kemur til alls, skiptir það okkur
engu máli hvernig lífi hann lifði.
Það er tónlistin hans sem skiptir
öllu máli og þar gaf hann okkur allt
sem hann átti. Þetta finnum við
þegar við setjum plöturnar hans á
fóninn og þá fyllast hjörtu okkar
þakklæti fyrir það sem hann hefur
gefið okkur. Elvis mun lifa í gegn-
um tónlist sfna og hana getur eng-
inn tekið frá okkur.
esió
reglulega af
ölmm
fjöldanum!
Áramótaspilakvöld Varöar
Landsmálafélagið Vöröur heldur áramótaspila-
kvöld sitt sunnudaginn 13. janúar nk. í Súlnasal
Hótels Sögu. Húsiö opnaö kl. 20.00.
Davíö Oddsson, borgarstjóri, flytur ávarp. Ómar
Ragnarsson skemmtir. Hljómsveit Magnúsar
Kjartanssonar leikur fyrir dansi. Glæsilegir vinn-
ingar. Kortiö kostar aöeins 200 kr. Sjálfstæö-
ismenn eru hvattir til aö fjölmenna.
Landsmálafélagið Vörður.
IXýltmerki
mlttííkn
Mikil gróska er nú í starfsemi Iðnaðarbankans.
Bankinn hefur vaxið ört undanfarin ár, enda lagt
kapp á að mæta kröfum viðskiptavina sinna um sífellt
betri þjónustu. Um þessar mundir stendur yfir víðtæk
endurskipulagning á starfsemi bankans, í því skyni, að
búa hann enn betur undir það markmið,,að vera
nútíma banki, sem veitir góða þjónustu. Liður í þess-
ari endurskipulagningu er hugmyndasamkeppni sem
bankinn efnir nú til. Samkeppnin er í tveimur liðum:
a) Um nýtt merki, skrift og einkennislit, eða liti fyrir
bankann.____________________________________
b) Um myndrænt tákn til notkunar í auglýsingum og
kynningargögnum bankans.
Samkeppnin er haldin samkvæmt reglum FÍT, Félags
íslenskra auglýsingateiknara og er öllum opin.
Veitt verða ein verðlaun fyrir bestu tillögumar.
a) Fyrir merki, skrift og einkennislit kr. 120.000.00
b) Fyrirtáknkr. 40.000.00
Tillögur um merki skulu vera 10-15 cm í þvermál, í
svörtum lit, á pappírsstærð DIN A -4. Einkenna skal
tillögumar með kjörorði, en nafn höfundar og
heimilisfang fylgi með í lokuðu ógagnsæju umslagi.
Pátttakendum er heimilt að senda fleiri en eina
tillögu. Skal hver tillaga þá hafa sér kjörorð og henni
fýlgja sér umslag með nafni höfundar.
Dómnefnd skipa: Bragi Ásgeirsson, listmálari, Gísli
B. Bjömsson, teiknari FÍT., Rafn Hafnfjörð, prent-
smiðjustjóri, Tryggvi T. Tryggvason, teiknari FÍT. og
Valur Valsson, bankastjóri.
Ritari dómnefndar og jafnframt trúnaðarmaður
keppenda er Jónína Michaelsdóttir, Iðnaðarbankan-
um við Lækjargötu. Þátttakendur geta snúið sér til
hennar og fengið frekari upplýsingar um samkeppn-
ina og um Iðnaðarbankann. Síminn er 91 -20580.
Skilafrestur tillagna var til 15. janúar 1985 en hefur
nú verið framlengdur til 15. febrúar 1985. Skal skila
tillögunum í póst eða til einhverrar afgreiðslu Iðnaðar-
bankans merktum:
Iðnaðarbankinn
H ugmy ndasam ke ppni
b/t Jónínu Michaelsdóttur
Lækjargötu 12
101 Reykjavík.
Dómnefrid skal skila niðurstöðum innan eins mánað-
ar frá skiladegi.
Efnt verður til sýningar á tillögunum og þær endur-
sendar. Verðlaunaupphæðin er ekki hluti af þóknun
höfundar. Iðnaðarbankinn áskilur sér einkarétt á
notkun þeirra tillagna sem dómnefnd velur. Jafn-
framt áskilur bankinn sér rétt til að kaupa hvaða
tillögu sem er samkvæmt verðskrá FÍT.
Iðnaðarbankmn