Morgunblaðið - 13.01.1985, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 13.01.1985, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1985 B 15 Fargaöi móöirin barni sínu? Fá dómsmál í Ástralíu hafa vakiö upp eins mikla flokkadrætti. . . SJÁ: Morðgáta KAUPMENNSKA ■ Fágætu dýrin eru ennþá föl Japanskir kaupmenn stunda arð- vænleg viðskipti með skinn dýra- tegunda, sem eru í útrýmingarhættu, og hrjóta þar með gegn ákvæðum al- þjóðlegs sáttmála, sem Japan undir- ritaði árið 1980. Til að kanna málið þóttist ég vera fulltrúi verzlunarfyrirtækis i London og sem slíkum var mér boðinn ein- stakiega sjaldgæfur svartur jagúar fyrir 120 þúsund krónur af kaup- manni í Tókýó. Kyusuke Takase, forstjóri Zao Sangyo-verzlunarfélagsins, sagði mér að hamurinn af jagúarnum væri eins árs gamall. Hann hélt því fram full- um fetum, að hann hefði verið feng- inn frá japönskum dýragarði, en hann hefur engin vottorð sem stað- festa þá fullyrðingu. „Það mun taka um það bil 10 daga að fá slíkt vott- orð,“ sagði hann. „Útflutningsleyfi verður hins vegar ekkert vandamál." Takase kvaðst vera hættur að selja hami af risapöndúm eftir að blöðin hefðu komist í málið og allar reglur hefðu verið hertar í samræmi við al- þjóðasáttmálann um verzlun með dýrategundir sem menn óttast að verði útrýmt með öllu. Heildarfjöldi risapanda í heiminum er nú áætlaður talsvert innan við 1000 dýr. Þau skinn sem Zao Sangyo verzlun- arfélagið selur langmest af eru hamir ísbjarna frá Kanadá. Þótt sérstök út- flutningsleyfi verði að liggja fyrir frá Umhverfismálastofnun Kanada full- yrðir Takase að hann fái þaðan 100 ísbjarnarfeldi á ári og tveir af starfs- mönnum hans voru önnum kafnir að troða út ísbjarnarham þegar ég heim- sótti vinnusali fyrirtækisins utan við Tókýó nýlega. Fullgerður ísbjarnar- hamur er seldur fyrir allt að 140 þús- und kr. Takase segir, að hamir tfgrisdýra hafi áður fyrr komið frá Malasíu og Indónesíu, en sökum aðgerða yfir- valda hafi útflutningurinn stöðvast eftir að tigrisdýrum var bætt á list- ann yfir dýr í útrýmingarhættu. „Ljón eru ekkert vandamál," segir hann, „en tígrisdýr eru erfiðari sem útflutningsvara. Við verðum að fá vottorð frá dýragarði þar sem segir, að dýrið hafi dáið af náttúrulegum orsökum.“ Hann hefur hami sex tígr- isdýra til sölu um þessar mundir, sem bendir óneitanlega til furðu hárrar dánartíðni í japönskum dýragörðum. Hvaða gagn er af skinni gamals eða sjúks dýrs? spurði ég og benti á eitt sem virtist vera I sérlega góðu ásig- komulagi í vörugeymslunni. „Við lag- færum þau og bætum eftir að við fáum þau í hendur,“ svaraði hann, „og ef við fáum yfirlýsingu frá dýragarð- inum um að dauðadaginn hafi verið eðlilegur, þá spyrjum við einskis frek- ar.“ Hamir tígrisdýra kosta frá 200 þús- und krónum og allt að hálfri milljón. Zao Sangyo stundar einnig undar- lega sölu á hömum strúta, en þeir bættust á listann yfir dýr í útrým- ingarhættu í apríl 1983. Hjá fyrirtæk- inu voru þrír starfsmenn að hreinsa og bæta ham svarts strúts sem kven- veski eru saumuð úr. Takase bsuðst til að selja fyrirtæki mínu kvenveski úr strútshami og verðið var 28 þús- und krónur fyrir stykkið. — PGTER MCGILL Nú á að byrgja brunninn Þegar öUin rar önnur. MæAgurnar restur í Bandaríkjunum fýrir rösk- lega sjö írum. UPPELDISMÁL Dóttir Svetlönu kærir sig ekki um kerfið Fjölmiðlar á Vesturlöndum hafa mikinn áhuga á Svetlönu Stalínsdóttur og Olgu dóttur hennar, en talið er að þær séu nú niðurkomnar í Georgíu, ættlandi Stalíns. Margt er enn á huldu um ferð Svetlönu aftur til heimalands síns en enn minna er þó vitað um aðstæður Olgu. Er raunar haft eftir ýmsum heimildum í Moskvu, að bæði stjórnvöld og Svetlana geri sitt besta til að halda þeim leyndum. Þegar Olga fór með móður sinni til Moskvu í nóvember sl. vissi hún ekki, að meiningin væri að setjast að í Sovétrikjunum fyrir fullt og allt. Henni var bara sagt að ætl- unin væri að heimsækja systur hennar og bróður, börn Svetlönu frá fyrsta hjónabandi hennar, og það var raunar í fyrsta sinn sem Olga, sem fæddist í Bandaríkjun- um, fékk að heyra um þessi skyldmenni sín. Og ekki nóg með það, Olga mun líklega ekki hafa vitað fyrr en hún kom austur tii Moskvu, að hún er dótturdóttir Stalíns. AUt þetta kom upp á yfirborðið eftir að Olga fór að sækja sérstak- an skóla fyrir hina útvöldu í Moskvu en þar hefur hún átt í verulegum erfiðleikum. Áður en Olga settist í skólann voru mál hennar rædd í Uppeld- isvísindaakademíunni og „sér- fræðingar" í hennar aldursskeiði lögðu á ráðin um hvernig best væri að „laga hana“ að kerfinu. Var það talið ráðlegast að „velja henni vini“, sem hefðu áhrif á skoðanir hennar og framkomu. Þessar ráðagerðir fóru út um þúfur vegna trúarskoðana Olgu. Það var ekki aðeins að hún neitaði að taka af sér krossinn sem hún bar, hún tók heldur ekki í mál að bera skólabúninginn, sem rautt bindi fylgir. Öllum tilraunum skólayfirvaldanna til að velja henni vini vísaði hún einfaldlega á bug. Þessi málalok voru fyrst rædd í nefndum og ráðum kommúnista- flokksins í viðkomandi hverfi þar sem skólastjórinn gerði grein fyrir málinu. Síðan var það rætt á æðri stöðum og ioks var ákveðið að senda þær mæögurnar til Gori í Georgíu, fæðingarbæjar Stalíns, eina plássins í Sovétríkjunum þar sem enn eru minnismerki um hann og jafnvel safn. Óiiklegt er hins vegar, að Olga verði ham- ingjusamari þar en í Moskvu. — ANDREW WILSON GLÆPUR OG REFSING Hungurverkfallið leiddi til hjartaáfalls Búizt er við að leiðtogar helztu iðnríkja heims muni sam- þykkja alþjóðlegar reglur sem mótaðar hafa verið í því skyni að koma í veg fyrir harmleiki á borð við þann sem varð vegna gasleka í Bhopal á Indlandi fyrir skömmu. Svo sem komið hefur fram í fréttum varð gasleki þessi rösk- lega 2.500 manns að aldurtila og hinn skelfilegi atburður hratt af stað margs konar viðbrögðum. Til dæmis komu umhverfismálaráð- herrar ýmissa iðnríkja saman í Lundúnum og ákváðu að nýjar reglur yrðu settar. Ráðherrarnir voru frá Bandarikjunum, Bret- landi, Vestur-Þýzkalandi, Ítalíu, Japan og Kanada. Þeir hafa farið þess á leit við Efnahags- og þróun- arsamvinnustofnun Sameinuðu þjóðanna að hún leggi úrbótatil- lögur fyrir leiðtogafund, sem ríkin sex halda ásamt Frökkum í Bonn í júní næstkomandi. Tillögurnar hafa ekki verið út- færðar til fulinustu en gert er ráð fyrir að í þeim felist ákvæði sem tryggi að stjórnvöldum í ríkjum þriðja heimsins verði gerð ná- kvæm grein fyrir hættum þeim sem gætu verið samfara iðjuver- um er fjölþjóðafyrirtæki ætla að reisa og reka i löndum þeirra. Þá er hugsanlegt að kveðið verði á um alþjóðlegt eftirlit með iðjuverum til að unnt sé að ganga úr skugga um að þau séu rekin á sómasam- legan hátt. Umhverfismálaráðherrarnir gerðu með sér ályktun, sem nefn- ist: „Leiðin fram á við.“ Þetta er ekki efnismikið plagg og er ekki ætlað til birtingar á opinberum vettvangi. Þó er ljóst að ályktunin er mikið vatn á myllu Patricks Jenkin, umhverfismálaráðherra Bretlands. í henni segir að á leið- togafundum um efnahagsmál muni umhverfismál framvegis verða mjög til umræðu svo og mál er snerta styrjaldir og friðarum- leitanir. Meðal þess sem bar á góma á fundi umhverfismálaráðherranna var nauðsyn eins konar viðvörun- arkerfis, sem greint gæti á byrj- unarstigi ýmiss konar hættur I umhverfismálum. Má þar til dæm- is nefna loftslagsbreytingar af völdum koltvísýrings, sem mynd- ast við brennslu á olíu, gasi og kolum. Að áeggjan Breta var þess sér- staklega getið í ályktuninni að ný vinnubrögð í landbúnaði hefðu haft í för með sér umhverfisspjöll og gefa þyrfti aukinn gaum að varðveizlu ósnortinnar náttúru. GEOFFREY LEAN Rússneskur rokktónlistarmað- ur, Valery Barinov, var hand- tekinn í heimalandi sínu í marz á síöasta ári og vakti handtakan bæði athygli og áhyggjur viða á Vesturlöndum. í nóvember síð- astliðnum féll svo dómur í máli hans og var hann dæmdur til vist- ar í þrælkunarbúðum i tvö og hálft ár fyrir þá sök að hann hefði ætlað að flýja land. Síðustu fréttir af Barinov eru nú þær að hann hafi fengið slæmt hjartakast i kjölfar réttarhaldanna. Jafnskjótt og dómur hafði verið kveðinn upp yfir Barinov hóf hann hungurverkfall sem hann kvaðst mundu halda til streitu þar til hann hefði fengið leyfi til að hverfa úr landi ásamt eiginkonu sinni og dætrum. Hann er fertug- ur að aldri og hafði aldrei kennt sér meins fyrir hjarta, en fimm dögum eftir að hann hóf hungur- verkfallið fékk hann hjartakastið. Þegar kona hans kom i heimsókn daginn eftir, fannst henni honum mjög brugðið. 1 Keston-háskóla á Bretlandi er fylgst grannt með kirkjulegum málefnum i kommúnistaríkjunum og þar hafa menn haft spurnir af Barinov, sem er heittrúaður bapt- isti. Að sögn þeirra hefur hann trúlega verið þvingaður til að neyta matar eftir að hann hóf hungurverkfallið, en fékk hinsveg- ar enga læknisaðstoð eftir hjarta- áfallið. Svo virðist sem hann hafi verið sovézkum stjórnvöldum þyrnir i augum fyrir ýmissa hluta sakir. Fyrir nokkrum árum byrjaði hann að liðsinna allsleysingjum og fikniefnaneytendum á götum Len- ingrað, en þar eystra er slíkt „ein- staklingsframtak" ekki vel séð af því opinbera þótt þörfin sé aug- ljós. Ekki er heldur vist að tónlistar- iðkun Barinovs hafi fallið stjórn- völdum eystra i geð heldur. Hann stofnaði á sínum tima rokk- hljómsveitina „Trompettinn kall- ar“ og hún samdi samnefnda rokk- óperu. Árið 1982 barst upptaka af henni til Vesturlanda og þættir úr henni voru sendir út á þeirri dagskrá BBC, sem útvarpað er á rússnesku. Þá er ætlunin að verkið verði gefið út i heild i marz næst- komandi. En raunveruleg ástæða þess að Barinov var tekinn höndum kom glöggt fram við réttarhöldin yfir honum. Þar var hann sakaður um að hafa rekið kristilegan áróður á opinberum vettvangi. Einu vitnin gegn honum voru samfangar hans, en Barinov sagði við réttarhöldin, að eini „glæpurinn" sem hann hefði framið væri sá að hann hefði játað kristna trú. Atvik þetta hefur vakið svo mikið umtal í Leningrað að Len- ingrad Pravda fannst nauðsynlegt að birta stóra grein um málavöxtu þann 27. nóvember siðastliðinn. Höfundur eyðir þar talsverðu púðri í að sverta Barinov, rússn- eska dagskrárgerð hjá BBC og starfslið Keston-háskólans. — PETER REDDAWAY

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.