Morgunblaðið - 15.01.1985, Page 1
64 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
STOFNAÐ 1913
11. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Brezkar heilsu-
verndarstofnanir
í tóbaksrekstri
London, 14. janúar. AP.
BREZKU hjartaverndarsamtökin ákváöu í dag að selja hlutabréf sín í Grand
Metropolitan-hótelkeðjunni eftir uppljóstranir um að fyrirtækið ætti tvö banda-
rísk tóbaksfyrirtæki.
Brezku læknasamtökin (BMA)
ljóstruðu upp á sunnudag að mörg
krabbaverndarsamtök og stofnanir
á sviði læknavísinda og heilsu-
verndar væru tóbaksframleiðendur
þar eð þau hefðu fjárfest í tóbaks-
fyrirtækjum.
Krabbameinsfélagið Imperial
Cancer Research Fund kvað 100.000
hluti sína í Grand Met ekki fala.
Bréfin hefðu verið keypt endur
fyrir löngu er fyrirtækið hefði
engra tóbakshagsmuna haft að
gæta. Þá væru tekjur Grand Met af
tóbakssölu óverulegur hluti tekna
Pundið
fellur
London, 14. jnnúar. AP.
BREZKA pundið snarhækkaði í
verði í morgun á gjaldeyrismörk-
uðum er ríkisstjórnin kom því til
leiðar að seðlabanki Bretlands
hækkaði forvexti í 12% sem þýddi
að lægstu útlánsvextir hækkuðu í
13% en það dugði skammt, þvi er
á daginn leið tók að halla undan
hjá pundinu og dollar var ( lok
viðskipta verðmeiri en nokkru
sinni fyrr gagnvart sterlingspund-
inu og Frakklandsfranka.
Brezka stjórnin greip i taum-
ana í morgun er verð á pundi fór
undir 1,10 dollara i Hong Kong. 1
London fengust 1,1137 dollarar
fyrir pundið í kvöld. Hefur gengi
pundsins gagnvart dollar aldrei
verið lægra og er spáð að verðið
eigi eftir að lækka undir 1,10
dollara i vikunni.
Dollar hækkaði vegna spá-
dóma um góðar efnahagshorfur i
Bandaríkjunum, en tölur þar að
lútandi verða birtar í vikunni.
fyrirtækisins. Grand Met eignaðist
Liggett and Myers og Pinkerton-
tóbaksfyrirtækin árið 1980.
Samkvæmt BMA eiga konung-
lega skurðlæknareglan (RCS) og
sjúkrasamlögin í Glasgow og Lond-
on tóbakshagsmuna að gæta.
Framkvæmdastjóri brezku
hjartaverndarsamtakanna sagði
upplýsingar BMA hafa komið fyrir-
mönnum samtakanna í uppnám og i
ljósi þeirra hefði tafarlaus sala
hlutabréfa, 36.000 hlutir, verið
fyrirskipuð. Uppljóstranir BMA er
liður í baráttu samtakanna gegn sí-
garettureykingum sem þau segja
draga 100 þúsund manns til dauða í
Bretlandi árlega.
AP/Símunynd
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Wilfried Martens forsætisráðherra Belgíu fyrir utan skrifstofu forsetans í Hvíta
húsinu í upphafi fundar leiðtoganna í gær. Reagan er sagður hafa lagt hart að Martens að leyfa uppsetningu nýrra
stýriflauga í Belgíu í marz, en sá síðarnefndi vikið sér hjá því að taka af skarið í máli sem er umdeilt heimafyrir.
Reagan leggur að Belgum að leyfa uppsetningu stýriflauga:
Martens vék sér hjá
því að taka af skarið
Washington, 14. janúar. AP.
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti og Wilfried Martens forsætisráðherra
Belgíu lýstu yfir stuðningi við ákvörðun Atlantshafsbandalagsríkjanna að koma
nýjum stýriflaugum fyrir ( Vestur-Evrópu en Martens vék sér þó hjá því að taka
af skarið og lýsa yfir að Belgar hyggðust hefja uppsetningu flauga í Belgíu (
marz, eins og ráð er fyrir gert í samþykkt NATO.
Reagan sagði að viðræður þeirra
Martens hefðu einkum snúist um
staðsetningu stýriflauga í Belgíu.
Hermt er að Reagan hafi lagt að
Martens að líta framhjá samþykkt
eigin flokks og lýsa yfir að Belgar
myndu standa við sinn hlut. 1 yfir-
lýsingu itrekaði Martens stuðning
við ákvörðun Atlantshafsbanda-
tagsins. Belgíustjórn hefur verið
samþykk því að 48 flaugum verði
komið fyrir þar í landi, en stjórnar-
andstaðan hefur blásið upp miklu-
moldviðri vegna þessa og gert að
stórmáli, sem haft hefur m.a. í för
með sér að flokkur Martens hefur
samþykkt að beðið skuli útkomu
nýrra afvopnunarviðræðna stór-
veldanna.
Leiðtogarnir lýstu jafnframt von-
um sínum um að árangur næðist í
fyrirhuguðum viðræðum stórveld-
anna um takmörkun vígbúnaðar.
Sagði Reagan að einörð samstaða
og stuðningur ríkja NATO við
ákvörðun um að koma fyrir nýjum
Eþíópíumenn selja
Egyptum matvæli
London, Djibouti, 14. janúar. AP.
EÞÍOPÍUSTJORN hefur ákveðið að selja Egyptum matvæli í skiptum
fyrir málma, áburð, lyf og byggingarvörur, aö sögn útvarpsins í Addis
Ababa. Er það niðurstaöa fimm daga heimsóknar viðskiptaráðherra Eg-
yptalands til Eþíópíu.
Utvarpið í Addis sagði Eþíóp-
íustjórn hafa ákveðið að senda
Egyptum dýr á fæti, kjöt og aðr-
ar landbúnaðarafurðir. Sagði út-
varpið að ríkin tvö hefðu og gert
með sér samkomulag um sam-
eiginlega framleiðslu landbún-
aðarafurða til að mæta eftir-
spurn beggja þjóða.
Á sama tíma og Eþíópíumenn
ákveða að flytja út matvæli,
þrátt fyrir hungrið heimafyrir,
ákvað matvælastofnun Samein-
uðu þjóðanna (FAO) í dag sér-
staka aukaaðstoð við hungur-
svæðin í Eþíópíu, Súdan, Níger,
Uganda, Pakistan og Kólombíu,
að jafnvirði 25 milljóna Banda-
ríkjadala, eða milljarðs ís-
lenzkra króna. Eþíópía fær
stærstan hluta aðstoðarinnar,
eða jafnvirði 7,3 milljarða doll-
ara.
Hraðlest fór út af sporinu á
leiðinni frá Djibouti til Addis
með þeim afleiðingum að 418
manns fórust og 559 slösuðust,
sumir lífshættulega. Skuldinni
var skellt á lestarstjórann, sem
hægði ekki ferðina á brú, sem
liggur í boga yfir djúpt gil.
Margir lestarvagnar steyptust
ofan í gilið. Eittþúsund manns
voru um borð. Miklar tafir eru
fyrirsjáanlegar á flutningum
hjálpargagna frá Rauðahafs-
höfnum til Eþíópíu vegna
óhappsins.
Fórnarlamb hungursneyðarinnar (
Eþíópíu
stýriflaugum í Evrópu hefði átt
stóran þátt í að fá Sovétmenn að
samningaborði á ný.
TASS-fréttastofan sagði tilraun-
ir af hálfu Bandaríkjamanna til að
hampa áformum sínum um geim-
vígbúnað sem „trompi“ í fyrirhug-
uðum afvopnunarviðræðum myndu
koma í veg fyrir árangur í viðræð-
unum. Endurspeglar þetta skoðun,
sem Andrei Gromyko hafði uppi í
löngu viðtali við Moskvusjónvarpið
um helgina.
Vestur-Þjóðverjar fögnuðu ýmsu
af því sem kom fram í viðtalinu við
Gromyko en sögðu að uppsetningu
nýrra flauga ( Vestur-Evrópu yrði
fram haldið þar til samkomulag
næðist í viðræðum stórveldanna um
takmörkun vígbúnaðar.
ísraelar
hverfa frá
Líbanon
Jerúsalem, 14. janúar. AF.
RÍKISSTJÓRN Israels samþykkti í
kvöld áætlun um brottflutning herja
sinna frá Líbanon og hefst fyrsti
áfangi brottflutningsins seinnihluta
febrúar.
Niðurstaða fékkst eftir 11 stunda
langar þrætur í ríkisstjórninni.
Yitzhak Rabin varnarmálaráðherra
var sigri hrósandi í lok seinni fund-
ar stjórnarinnar um málið i kvöld,
en tillögur hans voru samþykktar
með 16 atkvæðum gegn 6.