Morgunblaðið - 16.01.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.01.1985, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 12. tbl. 72. árg. MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Eþíópía: Stjórnin stöðvaði vistaflutning á skæruliðaslóðir < anh-erra, Astralíu, 15. janúar. AP. STJÓKNVÖLI) í Ástralíu hafa krafist skvringa af Kþíópiustjórn um það hvers vegna skipsfarmur af nauðþurftum frá Ástralíu var tekinn traustataki á leið sinni til hungursvæða þar sem skæruliðar andsnúnir stjórnvöldum ráða ríkjum. Hér var um nauðsynjar upp á 1,2 milljónir dollara að ræða. aðallega matvæli. Bill Heyden, utanríkisráðherra Ástralíu, sagði að gengið yrði hart fram í að fá skýrslu stjórnvalda, en þau hafa legið undir grun um að reyna að koma í veg fyrir að fólk sem býr á landsvæðum þeim sem skæruliðar ráða yfir fái að- hlynningu og hlut af þeirri erl- endu aðstoð sem borist hefur til landsins í ríkum mæli. Skipið „Golden venture" var á leið til Port Sudan er yfirvöld í Eþíópíu komust á snoðir um varninginn, sem var auk matvæla teppi, lyf og vatnsborunartæki. Var skipstjór- inn neyddur til að leggja að bryggju í Port Assab og þar var farminum skipað upp. Heyden sagði það ekkert laun- ungarmál að Ástralir hefðu ekki síður sent nauðsynjar til skæru- liðasvæðanna og það hefðu mörg Vesturlanda einnig gert án sam- ráðs við stjórnvöld í Addis Ababa, enda létu þau umrædd héruð lönd og leið að miklu leyti þegar vistum væri skipt. AP/Símamynd Vetur konungur víkur eigi Ekki gefur vetur konungur eftir á meginlandi Evrópu fremur en fyrri daginn og Evrópubúar eru orðnir langeygir eftir hlýindakafla í þeim fimbulvetri sem geysað hefur lengst af. Þessi mynd er frá lestarstöð í Napólí á Ítalíu. Lestirnar komast hvergi vegna snjóalaga og frosta. Sjá nánar frétt á bls. 20. Afganistan: Andspyrnumenn sneru vörn í mikla stórsókn Tancredo Neves Neves kjörinn forseti Kio I)e Janeiro, Brviilíu. 15. janúar. AF. TANCREDO Neves var í dag kjör- inn forseti Brasilíu og er hann fyrsti forsetinn úr röðum óbreyttra borg- ara í 21 ár. Sérstök kjörmanna- nefnd, skipuð 686 mönnum, sat fyrir luktum dyrum í 3,5 klukkustundir og þar voru atkvæðin greidd. Sigur Neves var mjög öruggur eins og bú- ist var við. Einn var í framboði á móti Nev- es, Paolo Maluf, 53 ára gamall, og naut stuðnings hersins. Maluf fékk 180 atkvæði, 20 kjörmenn voru fjarverandi og sex skiluðu auðu. Neves hlaut því 480 atkvæði. Hinn 74 ára gamli Neves hefur lofað að „breýta Brasilíu", og naut hann mikilla vinsælda meðal al- mennings í landinu, enda brutust út fagnaðarlæti í „karnivalstíl" um alla Brasilíu. Landinu hefur lengi verið stjórnað af hernum og fráfarandi forseti landsins, Joao Figuereido hershöfðingi, lagði fram drög að því að óbreyttir borgarar tækju við stjórn landsins í áföngum, fyrir fáum árum. Nýju Delhi, 15. janúar. AP. MEIKI háttar sókn sovéskra og afg- anskra hermanna gegn andspyrnu- liðum með nýja árinu snerist heldur bctur í höndum þeirra og nú í viku- byrjun hafði gagnsókn þeirra síðast nefndu verið svo öflug að níu virki hinna fyrst nefndu voru á valdi and- spyrnumanna og heil deild úr afg- anska stjórnarhernum var umkringd og það þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Sovétmanna til að stökkva umsáturs- liðinu á flótta. Bardagar þessir hafa staðið yfir nærri landamærum Afganistans og Pakistans. Umkringda deildin hef- ur hreiðrað um sig í borginni Paktya og hafa Sovétmenn reynt að flæma andspyrnumenn á brott með hernaði úr lofti og af láði, en árangur ekki orðið sem skyldi. Mik- ið mannfall hefur orðið i liðum beggja, en útilokað að fá áreiðan- legar tölur þar um og trúlega veit enginn með vissu hve margir hafa fallið í átökum andspyrnumanna annars vegar og stjórnarhermenna og Sovétmanna hins vegar. þó er vitað að meiri hluti hinna föllnu eru óbreyttir borgarar sem í mörg- um tilvikum hafa fallið í fjölda- morðum Sovétmanna sem hafa verið með hefndaraðgerðir. Auk þessa hafa átök verið í hér- uðunum Kundush, Badkish, Sama Ngan og Ghazny. Utvarpið í Kabúl greindi frá dauða 204 andspyrnu- liða í þeim átökum, en minntist ekkert á mannfall í liði stjórnar- innar og Rússa. Rússar hafa sent 11.000 manna lið á vettvang, til tandamærasvæða við fran og Pak- istan. Er það gert í tvíþættum til- gangi: að koma í veg fyrir vopna- sendingar til andspyrnumanna frá þessum löndum og einnig til að koma í veg fyrir skæruhernað and- spyrnuhópa sem halda til í löndun- um tveim, en laumast svo yfir landamærin til að gera stjórnar- hermönnum, afgönskum eða sov- éskum, skráveifur. Cotton gefur tóninn Lundúnum. 15. janúar. Al*. ÞKJÁK breskar konur eru nú ófrískar af sæði ónafngreindra manna sem greióa þeim fyrir að ganga með börn- in og afhenda þeim þau síðan. Máli af þessu tagi er nýlokið og vakti mikið umtal og deilur. Var það mál kennt við „Baby Cotton“ en svo var barnið almennt kallað. Dómstólar fjölluðu um það mál og komust að þeirri niður- stöðu að faðir barnsins og eiginkona hans skyldu fá barnið þar sem sannað þótti að þau gætu tryggt gott uppeldi. Svo er hann hinn rétti faðir þó svona hafi verið farið að. Bresk dagblöð höfðu tíðindin eft- ir frú Harriet Blankfeld, forstöðu- manni fyrirtækis í Maryland sem sá um að koma þunguninni og fæð- ingunni í kring með aðstoð útibús sins í Lundúnum. Frú Blankfeld vildi ekki tjá sig nánar um börnin þrjú sem „væru á leiðinni" eins og hún komst að orði, að öðru leyti en því að von væri á því fyrsta í vor. Blankfeld sagði enn fremur að ungfrú Cotton, sem gekk með barn- ið umtalaða, hefði enn ekki fengið umsamdar greiðslur. Ákvörðun um það með hvaða hætti skyldi greiða ungfrú Cotton yrði tekin á næstu 1—2 vikunum. Á þessum sömu vik- um munu dómstólar í Bretlandi kveða upp úrskurð um það hvort barneignir af þessu tagi verði leyfð- ar eða bannaðar. Réttarhöldin í Torun: Bílstjóri ofurstans saumar að honum Torun, 15. janúar. AF. KÉTTAKHÖLDIN yfir fjórmenningunum úr pólsku leynilögreglunni sem sakaðir eru um morðið á prestinum Popieluzsko héldu áfram í dag, tólfta daginn í röð, og í vitnastúkuna steig bflstjóri ofurstans Adams Pietr- uszka. Ofurstinn er sakaður um að hafa skipulagt ránið og morðið, en gagnstætt félögum sínum hefur hann ekki játað á sig ódæðið heldur haldið fram sakleysi sínu. Framburður bflstjórans gefur þó til kynna að frásagnir ofurstans séu ekki endilega sannleikanum samkvæmt. Það hefur áður komið fram að var spurður hvenær hann hefði undirmenn Pietruszka höfðu und- ir höndum sérstakt skírteini sem gerði þeim kleift að komast fram- hjá vegartálmum án þess að lög- reglan gæti leitað í bifreiðinni. Framburður bílstjórans, Miro- slavs Wronski, var á þá leið, að hann myndi vel eftir því er einn félaganna sótti skírteinið. Hann sagt Pietruszka frá því að undir- maðurinn hefði sótt skírteinið og fullyrti Wronski þá að það hefði hann gert daginn sem prestinum var rænt. Framburður Wronskis þykir mikilvægur, því saksóknar- inn vill sanna að ofurstinn sé meðsekur. Verjandinn tók til máls eftir stutt hlé og spurði Wronski hvort það væri nú alveg öruggt að Pietr- uszka hefði heyrt í honum er hann sagði honum frá skírteininu, eða hvort hann kunni að hafa misskil- ið tíðindin. Wronski sagði þá: „Það er auðvitað hugsanlegt að hann hafi ekki heyrt hvað ég sagði, útvarpið var í sambandi." Pietruszka sagði að sér hefði verið ókunnugt um að Pietrowski höf- uðsmaður hefði fengið skírteini þar til daginn eftir, er höfuðsmað- urinn skilaði því aftur. Wronski sagði í dag að höfuðsmaðurinn hefði sagst hafa heimild Pietr- uszka fyrir úttekt skírteinis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.