Morgunblaðið - 19.01.1985, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.01.1985, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1985 MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1985 25 JMtaQgtntUbifeife Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 330 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 25 kr. eintakiö. Bjartara yfir Reykjavík Hvar sem borið er niður í tölulegum staðreyndum um fjárhagsstöðu Reykjavík- urborgar blasa við batamerki frá liðnu kjörtímabili vinstri meirihluta. Davíð Oddsson, borgarstjóri, rakti ýmis dæmi batnandi stöðu, er hann mælti fyrir frumvarpi að fjárhags- áætlun borgarinnar og stofn- ana hennar í fyrradag: • Skammtímaskuldbindingar, sem vóru rúmlega 390 m.kr. samkvæmt ársreikningi borg- arsjóðs 1983, vóru 94 m.kr. lægri í árslok 1984. • I heild var staðan 200 m.kr. betri, m.a. vegna þess að ekki þurfti að grípa til erlendra lána á liðnu ári til að brúa bil gjalda og tekna í samþykktri fjárhagsáætlun ársins. • Reiknislegur yfirdráttur á hlaupareikningi í Landsbanka, sem var 190,1 m.kr. í upphafi liðins ár var aðeins 17,6 m.kr. við lok þess. • Frá því sjálfstæðismenn hlutu á ný meirihluta hafa gjöld fólks til borgarinnar lækkað um samtals 176 m.kr., miðað við álagningarstuðla vinstri meirihlutans, útsvör um 135 kr. og fasteignagjöld um 41 m.kr. • Þessi stefnubreyting sparar borgarbúum nálægt 700 m.kr. miðað við heilt kjörtímabil. Það hefur vissulega vel tek- izt til um stjórn borgarinnar. Hún hefur ótvírætt sýnt „að hægt er að sameina tvennt, öfl- ugan framkvæmdavilja ann- arsvegar og hófsemi í álagn- ingu á borgarbúa hinsvegar", eins og borgarstjóri komst að orði. Vinstri meirihlutinn hækk- aði hinsvegar skatta frá ári til árs og safnaði skuldum að auki, án þess að skila fjárfestingu eða framkvæmdum sem orð er á gerandi. Fjárhagsstaða borg- arsjóðs og borgarstofnana versnaði verulega í valdatíð hans. Fjárhagsáætlun borgarinnar 1985 er seinni á ferð en til stóð vegna kjarasamninga seint á liðnu ári og breyttra verðlags- forsenda, sem fyrirséðar vóru í kjölfar þeirra. Reykjavíkur- borg, með og ásamt stofnunum sínum, er stærsti launagreið- andi í landinu, að ríkissjóði einum undanskildum. Launa- þróun hefur því afgerandi áhrif á útgjöld og fjárhags- áætlun hennar. Borgarstjóri dró enga dul á það í framsögu sinni fyrir fjár- hagsáætlun borgarinnar 1985, að „teflt er á tæpasta vað með hliðsjón af verðlagsforsend- um“, sem hefðu breytzt til hins verra. í fyrsta lagi gæti verð- lagsþróun á árinu reynzt önnur en þær spár stæðu til, sem áætlunin væri byggð á. í annan stæð væri ekki, frekar en í fjár- lögum, reiknað með neinum launahækkunum 1. september nk. Víki verðlags- og kaup- gjaldsþróun verulega frá því, sem nú væri gert ráð fyrir, verði óhjákvæmilegt að taka fjárhagsáætlunina á ný til at- hugunar. Þetta er eðlilegur fyrirvari af hálfu borgar- stjórnarmeirihlutans. Heildarútgjöld borgarinnar 1985 nema 3.123 m.kr. sem er nálægt 30% hækkun frá áætl- un fyrra árs. Heildartekjur eru hinsvegar áætlaðar 3.125 m.kr., þ.e. 21% hærri en rauntekjur 1984 og rúmlega 30% hærri en áætlun þess árs. Til saman- burðar standa spár til þess að meðaltal vísitölu framfærslu- kostnaðar verði 26—30% hærra 1985 en 1984. Borgarstjóri gagnrýndi harðlega að tekjur Jöfnunar- sjóðs sveitarfélaga væru nú skertar annað árið í röð við fjárlagagerð, um 50 m.kr. 1984 og 90 m.kr. 1985, þrátt fyrir ótvíræð lagaákvæði. Þetta rýri tekjur borgarsjóðs um 33—35 m.kr. Engu að síður sé áformað að lækka útsvör í 10,8%, þ.e. um 0,2% eða 25 m.kr., og verði þá útsvör 1% lægri en í tíð vinstri meirihlutans. Án skerð- ingar á tekjum borgarinnar um Jöfnunarsjóð hefði mátt lækka útsvör niður í 10,6% af álagn- ingarstofni. Davíð Oddsson sagði fjár- muni borgarinnar hafa nýtzt illa í tíð vinstri meirihluta. Ákvarðanir hafi dregizt á lang- inn vikum og mánuðum saman, jafnvel um einföldustu atriði. Vegna hrossakaupa milli flokk- anna, sem að þeim meirihluta stóðu, var fjármunum dreift víða og áfangaskipti einatt þannig að fjármunir nýttust illa. Nú hefur dæminu verið snúið við. Framkvæmdir eru mark- vissari og fjármunir nýtast betur. Fjárhagsstaða borgar- innar hefur styrkzt og traust hennar eflzt. Skattheimta hef- ur lækkað sem svarar 700 m.kr. á heilu kjörtímabili, miðað við skattstiga vinstri meirihlut- ans. Reykvíkingar hafa ástæðu til að horfa bjartari augum til framtíðarinnar. Úr ræðu Davíðs Oddssonar borgarstjóra: Kjarasamningarnir og Reykjavíkurborg Davíð Oddsson borgarstjóri fylgdi fjárhagsáætlun Ueykja- vfkurborgar úr hlaði á borgarstjórnarfundi á fímmtudaginn. í ræðunni fjallaði borgarstjóri meðal annars um kjaramál og nýgerða kjarasamninga. Birtist sá kafli hér á eftir í heild. Borgarsjóður er, að öllum stofn- unum og fyrirtækjum borgarinnar meðtöldum, stærsti launagreið- andi landsins fyrir utan ríkissjóð. Að meðaltali fengu um 7.000 manns greidd einhver laun frá borginni í hverjum mánuði í fyrra, og er Bæjarútgerð Reykjavíkur þá undanskilin. Það lætur að líkum, að þessi fjöldi skiptist á mörg stéttarfélög, en borgin gerir sjálfstæða saminga við flest þess- ara félaga og greiðir nú laun eftir um það bil 20 mismunandi kjara- samningum. í samningunum við Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar, Verkakvennafélagið Sókn, Hjúkrunarfélag íslands, Læknafé- lag Reykjavíkur og Lyfjafræð- ingafélag Islands er höfð hliðsjón af samningum ríkisins, eða samið beint við hlutaðeigandi félög ásamt ríkinu. Við flest önnur félög er samið með hliðsjón af samning- um aðildarfélaga Vinnuveitenda- sambands íslands og Alþýðu- sambands Islands. Samið á fyrri hluta árs í kjarasamningum Vinnuveit- endasambandsins og Alþýðusam- bandsins, sem gerðir voru 21. febrúar í fyrra, var áhersla lögð á að bæta kjör hinna lakast settu á vinnumarkaðnum með lágmarks- tekjutryggingu fyrir dagvinnu, fjármagnstilfærslum innan trygg- ingakerfisins og hækkun barna- bóta, svo hið helsta sé nefnt. Um- samdar hlutfallshækkanir launa urðu að sama skapi minni, eða 5% frá undirskriftardegi, 2% í viðbót 1. júní, 3% 1. september og 3% 1. janúar 1985, en heimilt var að segja upp launaliðum samning- anna miðað við 1. september 1984 og 1. janúar 1985. Hinn 9. mars 1984 var síðan undirritaður aðalkjarasamningur við Starfsmannafélag Reykjavík- urborgar, er skyldi gilda frá 1. mars 1984 til 31. mars 1985. Þar var höfð hliðsjón af fyrrnefndum samningi Vinnuveitenda- og Al- þýðusambandsins og skyldu al- menn laun hækka um 5% frá 1. mars, 2% 1. júní, 3% 1. september og 3% 1. janúar 1985. Hinn 3. maí var síðan gengið frá sérkjara- samningi við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, sem meðal annars fól í sér flutning nokkurra starfsheita í hærri launaflokk, auk þess sem kveðið var á um endurskoðun á röðun skrifstofu- fólks. Sú endurskoðun leiddi síðan til talsverðs launaskriðs hjá þess- um hópi, sérstaklega hjá þeim sem voru í lægstu launaflokkunum. Þessara samninga mun þó ef til vill lengst verða minnst fyrir það að ákveðið var að taka aftur upp hjá Reykjavíkurborg fyrirfram- greiðslu launa til fólks í Starfs- mannafélagi Reykjavíkurborgar, en sem kunnugt er samþykkti borgarráð hinn 21. apríl 1978 að hverfa frá því fyrirkomulagi, sem í reynd hafði verið lagt af að mestu þegar á árinu 1976. Snemma í apríl í vor náðust samningar við Verkakvennafélag- ið Sókn og Verkamennafélagið Dagsbrún um sambærilegar hækkanir og áður er getið, auk þess sem fellt var niður ákvæði um sérstakar lágmarkstekjur 18 ára og yngri, en það hafði sætt mikilli gagnrýni í samningum Vinnuveitenda- og Alþýðusam- bandsins, enda var þetta ákvæði numið brott úr öllum samningum, sem það höfðu að geyma. Launalið sagt upp Strax í fyrravor var orðið ljóst, að launaliðum flestra kjarasamn- inga yrði sagt upp við fyrsta tæki- færi, eða hinn 1. september um haustið. Hinn 27. júlli sagði Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar upp launalið aðalkjara- samningsins frá 1. september og í ágúst hófust viðræður fulltrúa Vinnuveitendasambands íslands og Verkamannasambandsins um gerð nýs kjarasamnings. Þessar viðræður beindust fljótleg að leið- um til þess að tryggja kaupmátt launa með lækkun skatta í stað aukinna peningagreiðslna. Hér skal ekkert sagt um það, hvort þær leiðir gátu talist færar eða skynsamlegar, eins og á stóð, en hitt er mér meira umhugsunar- efni, hvernig að þessum málið var staðið í upphafi. Áríðandi var, að réttkjörinn stjórnvöld fjölluðu um þessa ráðstöfun opinberra fjár- muna og hvaða leiðir væru færar í þeim efnum áður en aðilar vinnu- markaðarins tækju málið á dagskrá funda um kjarasamninga sína. Einhverjar efasemdir munu hafa leynst í hugskoti fulltrúa Bandalags starfsmanna rikis og bæja um skattalækkunarleiðina, því að þeir settu i staðinn fram óraunhæfar kröfur um beinar launahækkanir. Kröfugerð Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar var samhljóða kröfugerð BSRB og í meginatriðum á þá leið, að föst mánaðarlaun skyldu hækka frá 1. september 1984 um 30% og 5% frá 1. janúar 1985. Jafnframt var far- ið fram á hækkun á vaktaálagi. Davíð Oddsson Starfsmannafélagið vísaði samn- ingaviðræðum um kröfur félags- ins strax til sáttasemjara rikisins, en samningsaðili var, samkvæmt umboði, launanefnd Sambands ís- lenskra sveitarfélaga. Báðir aðilar áttu síðan fulltrúa á samninga- fundum BSRB og rikisins, sem hófust hjá sáttasemjara rikisins 2. ágúst. Þar miðaði viðræðum litt og félög opinberra starfsmanna boðuðu til verkfalls frá og með 19. september, en sáttasemjara bar samkvæmt lögum að leggja fram sáttatillögu. Hún var kynnt 13. september, en um leið ákvað sáttasemjari frestun á boðuðu verkfalli til 4. október. Samið hjá borginni Sáttatillögunni var siðan hafn- að og þótti nú sýnt, að verkfall hæfist 4. október. Miklar deilur urðu um þá ákvörðun að greiða ekki októberlaun starfsmanna á fyrirframgreiðslukjörum hinn 1. október og höfðaði Starfsmanna- félag Reykjavíkurborgar mál fyrir félagsdómi um lögmæti þeirrar ákvörðunar, en dómur gekk á þá lund, að ákvörðun borgaryfirvalda hefði verið fyllilega lögmæt. Verk- fall starfsmannafélagsins hófst 4. október, en hinn 13. október ritaði stjórn félagsins mér bréf og óskaði eftir því, að ég beitti mér fyrir lausn kjaradeilunnar með því að Reykjavíkurborg tæki frumkvæðið við lausn hennar, en ekkert virtist þokast í samkomu- lagsátt í viðræðum fulltrúa BSRB og ríkisins, né heldur hafði við- Ieitni launanefndar Sambands ís- lenskra sveitarfélaga borið árang- ur. í framhaldi af þessari málaleit- an hófust samningaviðræður við samninganefnd starfsmannafé- lagsins, sem lauk hinn 15. október með samkomulagi með venju- legum fyrirvara um samþykki. Verkfallinu var frestað þangað til niðurstaða var fengin, en at- kvæðagreiðsla meðal félagsmanna starfsmannafélagsins fór fram dagana 19. og 20. október. Öhætt er að fullyrða, að mjög harður áróður hafi verið rekinn gegn þessu samkomulagi, ekki síst af hálfu forystumanna BSRB, enda fór svo að samkomulagið var fellt og verkfallt hófst á ný hinn 21. október. Sjálfur er ég enn þeirrar skoð- unar, að samningar á grundvelli þessa samkomulags hefðu komið öllum, sem hlut áttu að máli, bet- ur en núgildandi samningar með sínum augljósu afleiðingum. Niðurstaða að lokum Samningar tókust loks hinn 31. október með fulltrúum BSRB og fjármálaráðuneytisins um nýjan aðalkjarasamning og daginn eftir sömdu borgin og starfsmannafé- lagið um aðalkjarasamning fyrir tímabilið frá 1. nóvember 1984 til 31. desember 1985 með heimild til uppsagnar á launaliðum samn- ingsins frá og með 1. september í ár, náist ekki samkomulag fyrir 1. júlí um breytingar á þeim. At- kvæðagreiðsla innan starfs- mannafélagsins um samninginn fór fram dagana 8. og 9. nóvember og var hann samþykktur með 1.537 atkvæðum gegn 145, en sér- kjarasamningur við starfs- mannafélagið var síðan undirrit- aður 14. desember. Helstu atriðin í gildandi samningum við starfs- mannafélagið eru þessi: 1. Bil milli launaflokka sam- kvæmt launatöflu, sem gilti í ágúst síðastliðnum, var jafnað og hvarvetna haft 3,5% og öll laun samkvæmt hinni leiðréttu töflu hækkuð um 10% frá og með 1. nóvember. Jafnframt er í sérkjarasamningi kveðið á um það, að öll starfsheiti skuli flytjast upp um einn launaflokk frá sama tíma. 2. Greiddar voru í eitt skipti fyrir öll 2.500 krónur til hvers starfsmanns í fullu starfi i september og sérstök persónu- uppbót, 4.500 krónur, í nóv- ember til starfsmanna í fullu starfi, sem hófu störf eigi síðar en 1. september 1984 og voru í fullu starfi í nóvember. Hér var því samtals um að ræða 7.000 krónur til hvers manns í fullu starfi, en annars skyldi þessi fjárhæð reiknast eftir starfs- hlutfalli. 3. Hinn 1. desember síðastliðinn hækkuðu öll mánaðarlaun um 800 krónur og hinn 1. maí 1985 flytjast öll starfsheiti upp um einn launaflokk. 4. Viðmiðun vaktaálags, lág- marksupphæðar orlofsfjár og árlegrar persónuuppbótar í desember var hækkuð úr 11. í 13. launaflokk og felld niður takmörkun á hækkun um einn launaflokk eftir þriggja ára starf. 5. Til viðbótar framangreindum hækkunum var í sérkjarasamn- ingi kveðið á um flutning margra starfsheita upp um einn launaflokk og bætt viö nýrri starfsaldurshækkun eftir eitt ár hjá svonefndum „heil- brigðishópi". Ennfremur urðu aðilar sammála um það, að við mat á starfsaldri þeirra, sem bera starfsheiti samkvæmt 7.—10. launaflokki, skyldi taka til greina reynslu við öll al- menn störf, þar með talin heim- ilisstörf. Launakostnaður óviss Eins og sjá má og heyra af þess- ari upptalningu getur reynt allerf- itt að segja nákvæmlega fyrir um launakostnað borgarinnar á ný- byrjuðu ári, en eftir því sem næst verður komist verða launin í ár að meðaltali um 10,5% hærri en þau voru í desember samkvæmt hinum nýju samningum. Með öllum stöðuheimildum fullnýttum svar- ar það til rösklega 28% hækkunar á milli meðallauna þessa árs og hins síðasta, en hér er gert ráð fyrir 26,4% hækkun launakostn- aðar milli fjárhagsáætlunar i fyrra og frumvarps þessa árs. Hækkun frá útkomu verður að Kk- indum öllu meiri, eða nálægt 30%, þar sem launakostnaður varð heldur minni en ella vegna verk- fallsins. Niðurstöður kjarasaminga á hinum almenna vinnumarkaði höfðu í meginatriðum svipaðar hækkanir í för með sér og hér hef- ur verið lýst, en gengið hafði verið frá flestum þessara samninga fyrir þing Alþýðusambands fs- lands, sem hófst 26. nóvember. Talið var, að þessir samningar fælu i sér 24% hækkun launa á samningstímabilinu, til ársloka 1985, auk afnáms hins svokallaða tvöfalda kerfis eða lágmarks- tekjutryggingar. Jafnframt var í samningunum yfirleitt að finna heimild til uppsagnar frá og með 1. september næstkomandi. Skoðanaköimun Hagvangs hf. um ferðavenjur íslendinga: TF-GRO aðstoðar bændur á Barðaströnd: 57,4 % þátttakenda ferðuðust ínnanlands HAGVANGUR HF. efndi sl. haust til skoðanakönnunar um ferðavenjur fslendinga. Hagvangur birti í gær niðurstöður könnunarinnar og fer frétta- tilkynning fyrirtækisins hér á eftir. Á undanförnum árum hefur Hagvangur hf. framkvæmt fjöl- margar skoðanakannanir hér á landi og staðið fyrir ýmsum nýj- ungum á því sviði. Ein þessara nýjunga er spurningavagn Hag- vangs sem er sérstök tegund markaðskannana („Omnibus") sem Hagvangur vinnur sam- kvæmt viðurkenndum aðferðum frá Gallup-stofnuninni. Að undanförnu hafa birst i blaðagreinum og auglýsingum ýmsar tölur úr könnuninni. Til þess að gefa heildarmynd um ferðavenjur landsmanna eru hér birtar niðurstöður úr eftirtöldum spurningum. 1. Hefur þú farið í sumarfrí á þessu ári? 2. Hvert (hvernig) fórstu (ef við- komandi hafði farið í sumar- frí)? 3. Hvar keyptir þú farmiða (ef viðkomandi fór til útlanda)? 4. Við hvaða ferðaskrifstofu mundir þú skipta ef þú ætlaðir í ferðalag til útlanda? I fjórðu spurningunni er spurt um hvaða ferðaskrifstofu fólk mundi velja án tillits til þess hvort viðkomandi færi í sumarfrí til útlanda eða ekki. Niðurstaðan segir því ekki til um markaðs- hlutdeild, heldur gefur vísbend- ingu um þekkingu og afstöðu fólks, burt séð frá hvaða ferða- skrifstofu það teldi að það myndi velja. I spurningu 3 kemur hins vegar fram hvað fólk í raun og veru gerði, og gefa niðurstöður því til kynna markaðshlutdeild þeirra er selja farseðla til útlanda. Niðurstöðurnar sem hér eru birtar sýna svör allra, þ.e. bæði þeirra er tóku afstöðu og þeirra sem svöruðu „veit ekki“. önnur hlutfallsleg skipting fæst ef ein- göngu er miðað við þá sem afstöðu tóku, t.d í spurningu 1 yrði hlut- fallsskiptingin eftirfarandi: Arn- arflug 1,6%, Atlantik 2,1%, Ferðamiðstöðin 1,6%, Flugleiðir 6,5%, Samvinnuferðir 19,3%, Úr- val 11,9%, Útsýn 39,3% og annað 17,6%. Svarmöguleikarnir sem koma fram við spurningunum voru ekki lesnir upp. Könnunin var gerð 25. sept,—8. okt. 1984 og var úrtaksstærðin 1000 manns, valið úr þjóðskrá að undanfengnu leyfi tölvunefndar og Hagstofu íslands. Könnunin náði til alls landsins, og var hún gerð símleiðis og voru þátttakend- ur á aldrinum 18 ára og eldri. Spurning 1 Hefur þú farið I sumarfrf á þessu ári? Já 67,6% Nei 32,4% Spurning 2 Hvert (hvernig) fórstu (ef viðkom- andi hafði farið í sumarfrQ? Ferð innanlands 57,4% Sólarströnd 9,0% Sumarhús erlendis 1,7% Ferð á eigin vegum erlendis 16,1% Flug og bfll 2,6% Til annarra heimsálfa 1,5% Annað 11,1% Veit ekki 0,6% Spurning 3 Hvar keyptir þú farmiða (ef viðkom- andi fór til útlanda)? Samvinnuferðir 16,4% Söluskrifstofa flugfélags 32,1% Úrval 12,7% Útsýn 15,2% Aðrar ferðaskrifstofur 13,3% Annars staðar 9,7% Veit ekki 0,6% Spurning 4 Við hvaða ferðaskrifstofu myndir þú skipta ef þú etlaðir í ferðalag til útlanda? Arnarflug 1,4% Atlantik 1,8% Ferðamiðstöðin 1,4% Flugleiðir 5,4% Samvinnuferðir 16,2% Úrval 10,0% Útsýn 33,0% Annað 14,8% Veit ekki 15,9% Sauðfé sótt í Svínanes STARFSMENN Landhelgisgæslunnar fóru á fímmtudag a þyrlunni TF GRO vestur í Múlasveit f Austur-Barðastrandarsýslu til að sækja sauðfé, sem þar var í klettum í Svínanesi. Ekki var hægt að komast að kindunum nema með þessum hætti, en vegna riðuveikinnar þótti brýnt að ná fénu og lóga því. Forsaga málsins er sú, að Ragnar Guðmundsson, bóndi á Brjánslæk á Barðaströnd, hefur að undanförnu reynt að ná 13 kindum, sem hafa hafst við í utanverðu Svínanesi. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur honum ekki tekist að ná þeim, en meðal annars reyndi hann að nálgast féð með svifdreka. Ragnar leit- aði þá aðstoðar Landhelgisgæsl- unnar og var þyrlan send í gær til að freista þess að aðstoða heimamenn við að ná fénu. Flugmennirnir Tómas Helga- son og Bogi Agnarsson lentu þyrlunni í botni Kerlingafjarðar þar sem fyrir voru níu heima- menn og voru þeir fluttir yfir að Svínanesi þar sem sauðféð var. Eftir nokkrar sviptingar tókst að króa féð af á tanga sem geng- ur út í Skálmarfjörð. Tveir hrút- ar sluppu þó og komust þeir upp í klettana fyrir ofan en hitt féð var flutt á þyrlunni til byggða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.