Morgunblaðið - 19.01.1985, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANtJAR 1985
37
Helle og Raggi Bjarna.
HorgunblaðiA/Árni Sæberg
RAGGI BJARNA
Úr söngnum í sælgætið
að kannast flestir við Ragga
Bjarna, a.m.k. flestir sem ekki
eru undir lögaldri, svo lengi hefur
hann skemmt okkur landsmönn-
um. Svo var hann allt í einu horf-
inn af Sögu, en hvað varð af hon-
um? Hann fór að versla. Hvernig
skyldi ganga, er hann söiumaður-
inn syngjandi? Blm. leit við og tók
Ragnar tali sem snöggvast.
— Eru ekki mikil viðbrigði að
koma úr söngnum í „sjoppubrans-
ann?“
Nei, ég skal segja þér, maður
hefur bara gaman af þessu. Þetta
er svo allt öðruvísi, en það sem ég
hef verið í hingað til, en þetta er
þó ekki svo ólíkt að því leyti að það
er alltaf fullt af fólki í kringum
mann.
— Syngurðu eitthvað núna?
Það er nú eitthvað minniháttar.
Ég er alveg hættur á böllunum, en
við erum þó að fara af stað með
undirbúning fyrir Sumargleðina
sem verður 15 ára nú í sumar. Hún
stendur frá enduðum júní og fram
í nóvember.
Ég hyggst aldrei ráða mig aftur
á fastan dansstað til að spila á
eins og áður. Ég var búinn að vera
í því í næstum þrjátíu ár og nenni
því hreinlega ekki lengur.
— Ertu með marga í vinnu hér?
Stefán Jóhannsson er hjá mér í
sjoppunni á daginn en hann spil-
aði á trommur hjá mér í ein
fimmtán ár. Auk hans hef ég 5 eða
6 viðloðandi í vinnu.
— Tekurðu ekki lagið af og til
fyrir viðskiptavininn?
Jú, jú, mikil ósköp. Ég er alltaf
syngjandi. Ekki skrifa þetta niður
samt, því þá get ég átt von á við-
skiptavinum í hrönnum sem krefj-
ast lags í kaupbæti.
Brooke
hannar
nú föt
Leikkonan unga Brooke
Shields hefur snúið baki við
kvikmyndaleik í biii. Hún flýtir
sér að segja að leiðin muni liggja
þangað aftur, en hún sé dálítið
þreytt sem stendur og vilji
breyta til. Brooke hefur fengið
vinnu við tískuhús í Sviss,
frængt nafn: Vorster í Zurich.
Ætlar Brooke að spreyta sig í
fatahönnun og kannski sýna föt
dálítið í bland, svona til að hafa
reynt sem flest í sýningarbrans-
anum.
Þyrnifuglum
fjölgar
„Þyrnifuglarnir“ Rachel Ward og Brian Brown, sem léku hjónakornin
í „Þyrnifuglunum", eru í raun gift og veit það mæU vel alþjóð öll, að
minnsta kosti hinir mýmörgu aðdáendur sjónvarpsþáttanna umræddu.
Það sem alþjóð veit kannski ekki, að síðustu níu mánuðina hefur frú
Brown ekki verið kona einsömul og nú er erfingi kominn ( heiminn. Á
myndinni heldur pabbi á syninum og ræður ekki síður við hann en
sykurreyrinn. Mamma horfir hugfangin á, en myndin var tekin suður í
Astralíu, þar sem hjónin bafa dvalið að undanfornu í frfi. Ástralía er
heimaland beggja.
COSPER
COSPER
— Klott að þú skulir hafa fundið upp eldinn, ég var að flnna upp
vindilinn.
21200
bein lína
váðleggingasími
sparifjáreigenda
BÚNAÐARBANKINN
TRAUSTUR BANKl
MELÓDÍUR
MINNINGANNA
HAUKUR
NIORTHENS
og félagar skemmta.
Kristján Kristánsson leikur á orgel
k ° Skála
fell
#NOTEU.«>
m
FLUGLEIDA Æ* HÖTEl
S a f a r i
★ Diskótek ★
Opið í kvöld, laugardag
19. janúar, kl. 10—03
U2 • New Order • Malcolm Mclaren • Sade • Frankie Goes •
Simple Minds • Eurythmics • Spandau Ballet • Talk Talk • Orange
Juice • Scritti Pollti • Human League • Ultravox • Blancemance •
Cocteu Twlns • Llmal • Japan • Matt Bianco • Gary Numan •
Thompson Twlns • Duran Duran • Howard Jones • UB40 • Blurt •
Tina Turner • Kirk Brandon • Wham • Culture Club • Killing Joke
• The Fugitives • Pax Vobis • Cabaret Voltaire • Siouxsi and the
Banshess • Nick Kershaw • David Bowie • The Fall • Stranglers •
The Smiths