Morgunblaðið - 22.01.1985, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1985
Vísitala byggingarkostnaðar:
4,39 % hækkun
HAGSTOFAN hefur reiknaö vísitölu byggingarkostnaðar eftir verðlagi í fyrri
hluta janúar 1985. Reyndist hún vera 193,39 stig. Samsvarandi vísitala miðuð
við eldri grunn (október 1975 = 100)
Visitala byggingarkostnaðar
miðað við desemberverðlag 1984
var 185,26 stig og hefur visitalan
hækkað um 4,39% frá desember
1984 til janúar 1985. Þessi hækkun
svarar til 67,5% árshækkunar.
Undangengna þrjá mánuði hefur
vísitalan hækkað um 14,6%, sem
svarar til rösklega 72% árshækk-
unar, en hækkunin undanfarna
tólf mánuði er 24,6%, segir í frétt
2866 stig.
frá Hagstofu íslands.
Af þessari 4,4% hækkun bygg-
ingarvísitölu er 2,3% vegna hækk-
unar á töxtum útseldrar vinnu
hinn 1. janúar sl. Hækkun á verði
steypu olli 0,7% hækkun bygg-
ingarvísitölu og ýmsar hækkanir á
verði innfluttra og innlendra efn-
isliða höfðu i för með sér 1,4%
hækkun vísitölunnar.
„Nauðsynlegt að
formaður flokksins
sitji í ríkisstjórn"
— segir Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra
„ÉG TEL í hæsta máta eðlilegt og, eins og nú standa sakir, nauðsynlegt að
formaður Sjálfstæðisflokksins eigi sæti í ríkisstjórninni,“ sagði Sverrir Her-
mannsson, iðnaðarráðherra, á almennum stjórnmálafundi á Höfn í Horna-
firði á sunnudag.
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, var frum-
mælandi á fundinum auk Sverris.
Þorsteinn var spurður hvort hon-
um fyndist að formaður flokksins
ætti að eiga sæti í ríkisstjórninni.
Hann svaraði því til, að honum
þætti ráðlegast að hafa engar
fastar reglur um slfkt. Sverrir
Hermannsson óskaði þá eftir að fá
að svara spurningunni og sagði:
„Sjálfstæðisflokkurinn sest á
rökstóla um sín mál i apríl. Þá
verður formanni okkar án efa
veitt áframhaldandi umboð og
honum fengið vald til að stjórna
með okkur.“
Nicolai Gedda kemur
ekki vegna veikinda
S/ENSKI óperusöngvarinn, Nicholai
Gedda, sem væntanlegur var hingað
til lands veiktist af bronkítis á söng-
ferðalagi um Svíþjóð og verður því
ekki af komu hans að þessu sinni.
Hann átti að syngja á tvennum tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar íslands
og einum hjá Tónlistarfélaginu.
Hjá Tónlistarfélaginu fengust
þær upplýsingar að enn væri ekki
ákveðið hvort annar söngvari
verði fenginn til þess að koma
fram á tónleikum félagsins á
mánudag i stað Nicholai Gedda,
eða hvort tónleikunum verði frest-
að.
íslendingum fjölgaði
um 0,94% árið 1984
Minni fjölgun en á undanförnum árum
MANNFJÖLDI á íslandi var
240.122 samkvæmt bráðabirgða-
tölum Hagstofu íslands frá 1. des-
ember 1984. Þar af voru 120.779
karlar og 119.343 konur. Fjölgunin
á einu ári nemur 0,94% eða 2.228
og er það talsvert minni fjölgun en
verið hefur undanfarin ár. 1982
var fjölgunin 1,51% en 1983 var
hún 1,16%. Á síðustu fjörutíu árum
hefur hlutfallsleg fólksfjölgun
fimm sinnum orðið minni en árið
1984. Það var árin 1969, 1970,
1976,1977 og 1978.
Ekki liggja enn fyrir tölur um
breytingar mannfjöldans árið
1984 en í frétt frá Hagstofu ís-
lands segir að svo virðist sem
tala brottfluttra hafi orðið
nokkrum hundruðum hærri en
tala aðfluttra til landsins. Árin
1981 til 1983 fluttust 1000 fleiri
til landsins en frá því og hefur
flutningsstraumurinn því snúist
við árið 1984.
Tala lifandi fæddra virðist
hafa orðið 2—300 lægri en árið
áður. Fæðingum hefur fækkað
og svarar tala þeirra nú til þess
að vöxtur mannfjöldans milli
kynslóða hafi stöðvast.
Árið 1984 varð framhald á
þeirri þróun sem hófst aftur eft-
ir 1980 að fjölgun landsmanna
átti sér fyrst og fremst stað á
höfuðborgarsvæðinu. Fjölgun
þar var örlítið meiri en heild-
arfjölgunin i landinu, eða um
1,77%. í Reykjavík nam fjölgun-
in 1,61%, en 2,10% í öðrum
sveitarfélögum á höfuðborgar-
svæðinu. Á þessu svæði er mest
fjölgun í Bessastaðahreppi eða
8,3%. Þar næst koma Mosfells-
hreppur (5,5%) og Hafnarfjörð-
ur (2,5%).
Mesta fækkun á landinu varð
á Norðurlandi eystra. Þar fækk-
aði íbúum um 178 (-0,68%).
Einnig fækkaði íbúum á Vestur-
landi töluvert eða um 115 (-
0,76%). Á Austurlandi fækkaði
íbúum um 25 (-0,19%)
Á Suðurnesjum fjölgaði íbúum
um 136 (0,97%), á Vestfjörðum
um 4 (0,04% ),á Norðurlandi
vestra um 70 (0,65%) og á Suður-
landi um 68 (0,34%).
Fiskflutningar SH til Bandaríkjanna:
Lægsta tílboðið frá
Skipafélaginu Víkur
Sigurður Björnsson fram-
kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveit-
arinnar sagði í samtali við blm.
Morgunblaðsins að búið væri að fá
ítalska söngvarann Pietro Ballo til
að syngja á tónleikunum á
fimmtudaginn kemur kl. 20.30 í
stað Nicholai Gedda. Pietro Ballo
hefur starfað í La Scala ópæruhús-
inu í Mílanó auk margra frægustu
óperuhúsa í Evrópu. Á tónleikun-
um mun hann syngja úr ítölskum,
frönskum og rússneskum óperum.
Nicholai Gedda átti einnig að
syngja á Vínarkvöldi Sinfóníu-
hljómsveitarinnar nk. laugardag
kl. 17.00. í hans stað mun Vín-
arbúinn Michael Pabst syngja.
Michael Pabst syngur við óperuna
í Vín auk þess sem hann hefur
starfað víða s.s. í Þýskalandi, á
Spáni, í Portúgal og Frakklandi. Á
þessu ári mun hann starfa við
óperuna í Huston í Bandaríkjun-
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna hefur enn ekki ákveðið
hvaða tilboði verður tekið í flutn-
inga hennar á freðfiski til Cam-
bridge í Bandaríkjunum. Fimm
skipafélög buðu í Hutningana og
var tilboð Skipafélagsins Víkur
lægst, eða 5,5 dollurum lægra á
hverja lest en tilboð Eimskipafé-
lagsins, sem annazt hefur þessa
flutninga til þessa.
í útboðsgögnum SH var óskað
tilboða í flutninga 18.000 lesta á
yfirstandandi ári til Cambridge
með 8 til 12 útskipunarhöfnum
hér á landi. Auk flutninga á
flökum og blokkum er hér um að
ræða flutninga á lausfrystum
fiski, sem talið er að nemi 2 til
3% af heildinni.
Tilboð Skipafélagsins Víkur
hljóðaði upp á 119,5 dali fyrir
hverja lest, hvort sem um er að
ræða flök, blokkir eða lausfryst-
an fisk. Skipafélagið Föroyar
bauð 120 dollara farmgjöld fyrir
flök og blokkir en 140 dollara
fyrir lausfrystan fisk. Færeyska
skipafélagið var hins vegar að-
eins með tvær útskipunarhafnir
inni i tilboði sinu og er því talið
úr leik. Eimskipafélagið bauð
125 dollara farmgjöld fyrir flök
og blokkir en 150 fyrir lausfryst-
an fisk. Skipadeild Sambandsins
bauð 135 dollara farmgjöld fyrir
flök og blokkir en 202,5 fyrir
lausfrystan fisk. Hafskip bauð
137 dollara farmgjöld fyrir flök
og blokkir, en 178 fyrir laus-
frystan fisk.
Starfsmenn SH eru nú að fara
yfir tilboð Skipafélagsins Víkur
og Eimskipafélagsins, sem þeir
telja mjög áþekk og því þurfi að
fara vandlega yfir alla þætti til-
boðanna, svo sem söfnun á
ströndinni, tíðni ferða, búnað
skipa, reynslu aðilja og fleira.
Miðað við tilboð Skipafélags-
ins Víkur munu heildarfarm-
gjöld fyrir þessa flutninga nema
um 88 milljónum króna, en mið-
að við tilboð Eimskipafélagsins
um 92 milljónum. Er þá ekki
tekið mið af tilboðum í flutninga
á lausfrystum fiski, sem eru að-
eiiis 2 ti' 3% af heildinni.
Lýst eftir
manni
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir
29 ára gömlum manni. Kristjáni
Árnasyni. Síðast sást til hans um
klukkan 9.30 á laugardagsmorgun-
inn þegar hann fór frá Kleppsspítala.
Kristján var klæddur blárri
mittisúlpu og bláum flauelsbux-
um. Hann er 190 sentimetrar á
hæð, dökkhærður með fremur
mikið hár og dökkt yfirvarar-
skegg. ____^ ^
Yfirmannaskipti
hjá varnarliðinu
SKIPT verður um æðsta yfirmann
varnarliðsins nú á næstunni. Ron-
ald E. Narmi, aðmíráll, sem verið
hefur yfirmaður varnarliðsins síð-
an 1983, lætur af störfum og mun
fara á eftirlaun. Nafn flotafor-
ingjans sem tekur við af Narmi
hefur ekki verið tilkynnt form-
lega, en hann er væntanlegur
hingað til lands í febrúar.
um.
Nýr hreppstjóri
í Skarðshreppi
Sigrún Aadnegard hreppstjóri.
Saudárkróki, 19. janúar.
FYRIR skömmu skipaði Halldór
Þ. Jónsson sýslumaður Skagfirð-
inga Sigrúnu Aadnegard húsfreyju
á Bergsstöðum hreppstjóra Skarðs-
hrepps. Hún mun vera fyrsta kon-
an frá upphafi, sem skipuð hefur
verið hreppstjóri í Skagafírði. Sig-
rún er fertug að aldri, og býr á
Bergsstöðum við Sauðarkrók
ásamt manni sínum Viðari Ágústs-
syni og fimm börnum.
Aðspurð sagðist Sigrún ekki
hafa sóst eftir embættinu, en
fyrst henni væri fyrir því trúað,
myndi hún gera sitt besta til að
rækja það vel. Forveri hennar er
Ólafur Lárusson bóndi í Skarði,
sem sat á hreppstjórastóli { nær
40 ár við miklar vinsældir. Hann
er nú 85 ára.
Árið 1907 var hinum forna
Sauðárhreppi skipt í tvö sveit-
arfélög, Skarðshrepp og Sauð-
árkrókshrepp. Skarðshreppur
liggur að Sauðárkróki á tvo vegu
og eru því samskipti þessara
sveitarfélaga mikil. Að öllum
jafnaði hafa þau verið góð, þótt
upp hafi komið ágreiningsefni,
en engin þó svo alvarleg, að ekki
hafi tekist að leysa þau farsæl-
IeKa- Kári.