Morgunblaðið - 22.01.1985, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1985
5
Arnfinnur Jónsson
Skólastjórastaðan
í Grafarvogi:
Fræðsluráð
mælir með
Arnfinni
Jónssyni
FRÆÐSLURÁÐ samþykkti í gær að
leggja til við menntamálaráðuneytið
að Arnfinnur Jónsson, skólastjóri,
taki við stöðu skólastjóra Grafar-
vogsskóla frá 1. júní næstkomandi að
telja. Jafnframt samþykkti fræðsluráð
að óska eftir því, að staða skólastjóra
við Fellaskóla verði auglýst laus til
umsóknar miðað við ráðningu frá
sama tíma að telja. Að þessari sam-
þykkt stóðu 5 manns í fræðsluráði,
Ragnar Júlíusson, Bessí Jóhannsdótt-
ir, Jóna Gróa Sigurðardóttir, Sigurjón
Fjeldsted og Bragi Jósepsson.
Við afgreiðslu málsins létu þau
Þorbjörn Broddason og Gerður
Steinþórsdóttir bóka eftirfarandi:
„Allir fjórir umsækjendurnir
uppfylla formlegar kröfur til
starfsins og 3 þeirra hafa langa
reynslu af skólastörfum. Af þessum
þremur eiga tveir, Arnfinnur Jóns-
son og Lena Rist, langan og farsæl-
an feril að baki í grunnskólum
Reykjavíkur og væri mikill fengur
að hvoru þeirra sem væri til þess
starfs, sem hér um ræðir. Lena er
jafnframt eina konan i umsækj-
endahópnum.
Svo sem umsókn Lenu ber með
sér hefur hún verið sívakandi við að
leita sér frekari menntunar auk
þess sem hún hefur öðlazt mikla
reynslu af félagsmálum og hefur
notið trúnaðar stéttarsystkina
sinna. Loks ber að hafa í huga að I
kennaraliði grunnskóla Reykjavík-
ur eru konur u.þ.b. 70% en I hópi 22
skólastjóra almennra grunnskóla
eru 3 konur.
Með öll ofangreind atriði í huga
leggjum við til að fræðsluráð mæli
með Lenu Rist til að vera skóla-
stjóri hins nýja Grafarvogsskóla."
Ómaroq Jón
Áður en þú velur þér bíl
til kaups, þarftu að gæta að
fjölmörgum atriðum sem skera
úr um aksturseiginleika,
öryggi og endingu. Eitt
þcssara atriða er spumingin
um hvort þér henti hetur
afturlijóladrifmn eða framhjóla-
drifinn bíll.
Hvernig a________
að nota bílinn
Framleiðcndur Volvo hafa til
þessa kosið að hafa híla sína
með afturhjóladrifl. Pessi
ákvörðun er að sjálfsögðu ekki
tekin út í bláinn. Afturhjóla-
drifið tryggir góða aksturs-
eiginleika. Allir sérfræðingar í
málefnum bíla geta örugglega
staðfcst, að einum bíl liæfir
betur afturhjóladrif og öðrum
framhjóladrif. Pað sem sker úr
um þetta er byggingarlag,
þyngdardreifing bílsins og
ætluð not af bílnum, hvort um
er að ræða fjölskyldubíl, eða,
bíl sem nær eingöngu er fyrir
bílstjóra og framsætisfarþega.
seqja:„Það er
auðveldara að
stjórna bíl með
afturhjóladrifi
í keppni."
Þvngdarh/utföl/
skipta máii
Volvo hefur rétt þ\ugdarhlut-
fall, með þvngdarpunkti
nálægt miðju. Volvo-bílamir
em fyrirtaks fjölskyldubílar:
Pað er sama hve mikill þungi er
í aftursætinu, og skottið
fullhlaðið, hinir góðu aksturs-
eiginleikar haldast fullkom-
lega. Ef framhjóladrifmn bíll
væri notaður á þennan hátt,
væri árangur ekki eins góður og
hjá afturhjóladrifnum bíl. Hins
vegar, ef framhjóladrifinn bíll
hefur rétt þyngdarhlutfall, og
aftursæti og skott em jafnan
auð, þá gctur hann notið sín.
Pitt er að vclja.
Læst drif
ievsir vandann
Pú átt þess kost að bæta enn
aksturseiginleika afturhjóla-
drifins bíls í snjó og hálku, ef
þú lætur setja í hann læst drif.
Þá þarftu ekki að hlaða
sandpokum í skottið! Læst
drif vom í upphafi eingöngu
ætluð í kappakstursbíla, þess
vegna cr hægt að trevsta því að
það bregst ekki í venjulegum
fjölskyldubíl, þegar hálka og o
snjór ráða ríkjum.
Bræðumir Omar og Jón
Ragnarssvnir, sem þekktir em
fyrir góðan árangur í rallkeppn-
um, hafa sagt að auðveldara
sc að stjóma bíl með aftur-
hjóladrifi í kcppni.
Reynsian hefur
sitt að seqja
Notfærðu þcr reyiislu Ömars
oi* Jóns í ghmunni við
snjóinn og hálkuim í vetur.
\Ti EEJílI*
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200
Minni fyrirtæki
og stofnanir at-
- - hugiö þaö er
jk góö hugmynd
aö halda árshá-
tíöina meö Ríó i Broadway
þar fær fólkið Ijúffengan
kvöldverö og frábæra
skemmtun fyrir lágt verö.
HELCARi
ICST** REISUR
Flug, gisting í 2 nætur og adgöngumidi.
Frá Akureyri kr 4.351
Frá Isafiröi kr. 4.203.
Leitið frekari upplýtinga a söluskrifttofum
Flugleiöa, umboösmönnum og feröa-
skrifstofum.
NK. FOSTUDAGS- OG LAUGARDAGSKVOLD
BIKCADWAT
i»r Dansstudió Sóleyjai
* Broadway ballettinn
sýnir nýjan stórkostlegan
dans eftir Soley Jóhanns-
■ dóttur
töc i.&
SOLEYJAR
Miöa- og borðapantanir daglega í síma 77500 frá kl
11—18.
Velkomin vel klædd í Broadway.
BDCADWAT
Þaö má enginn missa
af þessari stórkostlegu
skemmtun meö Ríó
sem fara á kostum
asamt stórhljomsveit
Gunnars Þóröarsonar.