Morgunblaðið - 22.01.1985, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1985
ÚTVARP/ S JÓN VARP
í fögrum
garði
Það var yndislegur þáttur í
sjónvarpinu á sunnudaginn
rétt fyrir barnatímann, hét sá
Garðayndi og var hinn sjðundi i
kanadískri þáttaröð er nefnist
Listrænt auga og höndin. í þætti
þessum var áhorfandinn leiddur
um hina fegurstu skrúðgarða, allt
frá garði Du Pont í Bandarikjun-
um er telur 600 gosbrunna til hins
skraufþurra steingarðs „kare-
sansui" í Zen-musterinu japanska.
Hvílík nautn að skoða slíka garða
af filmu svona einsog nákomna
ættingja. Já, það er mikil lukka að
eiga sinn garð í friði. En það er
líka mikil gæfa að búa í borg, þar
sem hver hugsar af natni um sinn
reit. Hér í Reykjavík er mikið um
fagra garða og víða eru skjólbelti
trjáa er hlífa gangandi fólki fyrir
veðri og vindum. Samt finnst mér
eigi nóg að gert. Þannig flaug mér
í hug er ég horfði á unaðsreitina í
fyrrgreindum sjónvarpsþætti
hvort ekki mætti milda ofurlítið
með trjágróðri hina ófrýnilegu
ásýnd iðnaðarhverfisbandormsins
er hringar sig hér meðfram hinni
fögru sjávarsíðu, allt frá Skúla-
götu upp að Sundahöfn. Ég sá
fyrir mér Kleppsveginn alsettan
stofnmiklum trjám er breyttu
honum í búlevarð.
Hin fagra ásýnd
Og hvað um Gullinbrúvu? í
sunnudagsbíltúrnum ók ég niður
að þessarri „Golden Gate bridge"
Reykvíkinga. Fagurt var yfir að
líta í bjartri norðanáttinni, vogar
og sund himinblá og undir hvít-
fextri Esjunni hvíldi hin vaxandi
Grafarvogsbyggð. í bakaleiðinni
var annað uppá teningnum. Him-
inninn var svo sem nógu blár en á
bökkunum frá mannræktarstöð-
inni að Vogi að sandnámunni við
Elliðavog blasti við einhver herfi-
legasta húsalengja er sést í
Reykjavík. Og ekki nóg með að
húsin séu ljót þarna heldur hafa
einhverjir sóðar dritað bílhræjum
rétt við akveginn frá Gullinbrú.
Þarna gæti svolítil hreingerning
og gróðursetning harðgerðra
grenitrjáa breytt miklu fyrir
framtíðaríbúa heils hverfis og
raunar alla þá er hafa yndi af
fögru og snyrtilegu umhverfi.
Hinn reiturinn
( þessu sambandi má minna á
að ekki rækta menn ætíð tré og
blóm við hin hagstæðustu skilyrði.
Hvað um einyrkjann í Stikluþstti
Ómars Ragnarssonar, er hættir
lífí og limum fyrir fáeinar hríslur
neðst í jökulgljúfri? Slíkur maður
bíður ekki eftir klappi heimsins.
Hann unir sáttur við sinn litla
sælureit. Getum við ekki lært
eitthvað af slíkum manni? Er
hamingjan máski fólgin í því að
una við eigið handverk og kæra sig
kollóttan um kvabb heimsins? Er
ég sest hér aftur við ritvélina að
afloknum kaffitíma og símatíma
morgunþáttar Stefáns Jökulsson-
ar þá verður mér hugsað til þeirra
er hringdu og ræddu við Þóri S.
Guðbergsson félagsmálafulltrúa
um málefni gamla fólksins. Það er
erfitt að verða gamall, nánast eins
og að hafa klifið hamravegg niður
á gilbotn. En geta ekki flestir
hinna öldruðu skapað sér svolítinn
sælureit á gilbotninum rétt eins
og einyrkinn í þætti ómars? Þar
er að vísu minna rými en fyrrum
og kannski skuggsælla, en þá er að
finna þær skrauturtir og plöntur
er þrífast við hinar nýju aðstæður.
Og þegar svo er komið skiptir
engu máli þótt ekki sé klappað og
hrópað á gilbrúninni, því hið nýja
líf festir helst rætur í kyrrðinni.
Ólafur M.
Jóhannesson
Landið gullna Elidor
— 2. þáttur
■i ( kvöld verður
00 fluttur annar
þáttur fram-
haldsleikritsins „Landið
gullna EIidor“ eftir Alan
Garner i útvarpsleikgerð
Jam Zamzelius. Þessi
þáttur heitir „Leynidyrn-
ar“. Sverrir Hólmarsson
þýddi leikritið en Lárus
Grímsson samdi tónlist-
ina. Leikstjóri er Hallmar
Sigurðsson.
( fyrsta þætti voru þau
Róland, Davíð, Nikki og
Helena að leika sér að því
að finna götur á stóru
korti af borginni Man-
chester, þar sem þau eiga
heima. Ein gatan heitir
því undarlega nafni
Fimmtudagsgata. Krakk-
arnir halda af stað til að
leita að henni og finna
hana loks í skuggalegu
hverfi í borginni. í ljós
kemur að búið er að rífa
öll húsin við götuna, nema
hrörlega krirkju, sem
stendur þar auð og yfir-
gefin. Á meðan krakkarn-
ir dvelja á staðnum heyra
þau leikið á fiðlu í grennd-
inni en fiðluleikarinn er
hvergi sjáanlegur. Helena
hendir boltanum sinum
óvart inn um glugga í
kirkjunni og fer að leita
að honum en kemur ekki
aftur. Þegar drengirnir
fara að skyggnast um eft-
ir henni, verða þeir við-
skila. Róland rekst á hinn
dularfulla fiðlara sem bið-
ur hann að opna fyrir sig
dyr á einum veggnum.
Allt í einu er Róland
staddur á ókunnri strönd
og sér dökkar kastalarúst-
ir bera við himin uppi á
háum kletti.
Leikendur í 2. þætti eru:
Viðar Eggertsson, Emil
Guðmundsson, Kristján
Franklín Magnús, Kjart-
an Bjargmundsson, Sól-
veig Pálsdóttir og Róbert
Arnfinnsson. Eyjólfur Bj.
Alfreðsson leikur á víólu.
Tæknimenn eru Vigfús
Ingvarsson og Áslaug
Sturlaugsdóttir.
(Frá leiklistardeild)
Fjallað verður um átökin við landamæri Kambódíu og Thailands í þættinum í kvöld.
Kastljós
■■H Umsjónarmað-
9915 ur Kastljóss í
kvöld er Einar
Sigurðsson, fréttamaður,
og að þessu sinni fjallar
þátturinn um erlend mál-
efni.
Einar mun fjalla um af-
vopnunarviðræður stór-
veldanna og þá sérstak-
lega þá nýju tækni sem
um er rætt í þessu sam-
bandi, þ.e. geimvopna-
tæknina.
Þá verður rætt um
átökin við landamæri
Thailands og Kambódíu
og baráttu stjórnarand-
stæðinga í Kambódíu
gegn víetnamska herlið-
inu sem þar styður við
bakið á stjórninni.
r
UTVARP
J
ÞRIÐJUDAGUR
22. janúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. A virkum degi. 7.25
Leikfimi. 7.55 Dagiegt mál.
Endurt. þáttur Valdimars
Gunnarssonar frá kvöldinu
áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir. Morgunorð: —
Eggert G. Þorsteinsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Trltlararnir á Titringsfjalli"
eftir Irina Korschunow. Krist-
ín Steinsdóttir les þýðingu
sfna (2).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
10.45 „Man ég það sem löngu
leið".
Ragnheiður Viggósdóttir sér
um þáttinn.
11.15 Við Pollinn.
Umsjón: Ingimar Eydal.
(RÚVAK.)
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12^0 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13J20 Barnagaman.
Umsjón: Sigrún Jóna Krist-
jánsdóttir.
13.30 Spænsk. frðnsk og grlsk
lög sungin og leikin.
14.00 „Þættir af kristniboðum
um vlða veróld" eftir Clar-
ence Hall. Blóð plslarvott-
anna — útsæði kirkjunnar.
Plslarvottar I Ecuador. (Ann-
ar hluti.) Astráður Sigur-
steinsdórsson les þýðingu
slna (15).
14.30 Miödegistónleikar.
Kammersveit Jean-Pierre
Paillards leikur Branden-
borgarkonsert nr. 2 I F-dúr
eftir Johann Sebastian
Bach
14.45 Upptaktur.
— Guömundur Benedikts-
son.
15J0 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
16.20 Siödegistónleikar.
Sinfónla nr. 2 eftir Vaugh-
an-Williams. Sinfónlu-
hljómsveit Lundúna leikur;
André Previn stj.
19.25 Sú kemur tið
Nlundi þáttur. Franskur
leiknimyndaflokkur I þrettán
þáttum um geimferðaævin-
týri. Þýðandi og sðgumaöur
Guöni Kolbeinsson. Lesari
með honum Lilja Berg-
steinsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
17.10 Slödegisútvarp.
— 18.00 Fréttir á ensku. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson í.ytur þáttinn.
20.00 Barna- og unglingaleikrit:
„Landið gullna Elidor" eftir
Alan Garner. 2. þáttur:
Leynidyrnar. Utvaprsleik-
gerð: Maj Samzelius. Þýð-
andi: Sverrir Hólmarsson.
leikstjóri: Hallmar Sigurð-
sson. Tónlist: Lárus Grlms-
son. Eyjólfur Bj. Alfreðsson
leikur á víólu. Leikendur: Viö-
ar Eggertsson, Emil Gunnar
Guðmundsson, Róbert Arn-
finnsson, Kristján Franklln
Magnús, Kjartan Bjarg-
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Heilsaö upp á fólk
6. Þórunn Eirlksdóttir
Ingvi Hrafn Jónsson spjallar
viö Þórunni Eirlksdóttur, hús-
freyju á Kaðalstöðum II I
Stafholtstungum I Borgar-
firöi.
21.15 Derrick
2. Um nótt I ókunnu húsi
mundsson og Sólveig Páls-
dóttir.
20.40 Forvlgismaður I orði og
verki.
Minnst Jónasar Þorbergs-
sonar útvarpsstjóra á aldar-
afmæli hans. Baldur Pálma-
son tók saman dagskrána,
þar sem borið er niður I út-
varpsákvöröum Jónasar og
viötöl við hann. Einnig lesið
úr ritum hans og minningar-
orðum sem birtust að honum
látnum. Lesari með Baldri:
Jón Þórarinsson og Þor-
steinn Hannesson.
21.3 Utvarpssagan:
„Morgunverður meistar-
anna“ eftir Kurt Vonnegut.
Þýðinguna gerði Birgir Svan
Slmonarson. Glsli Rúnar
Jónsson flytur (5).
22.00 Tónlist.
Þýskur sakamálamynda-
flokkur I sextán þáttum. Að-
alhlutverk: Horst Tappert og
Frltz Wepper. Þýðandi Vet-
urliði Guðnason.
22.15 Kastljós
Þáttur um erlend málefni.
Umsjónarmaöur Einar Sig-
urðsson.
22.50 Fréttir I dagskrárlok
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Frá tónleikum Tónlistar-
félagsins I Austurbæjarblói
5. janúar sl. Edda Erlends-
dóttir leikur planóverk eftir
Felix Mendelssohn, Robert
Schumann, Claude Debussy
og Frédéric Chopin. Kynnir:
Knútur R. Magnússon.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
22. janúar
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
14.00—15.00 Vagg og velta
Stjórnandi: Glsli Sveinn
Loftsson.
15.00—18.00 Með slnu lagi
Lög leikin af Islenskum
hljómplötum.
Stjórnandi: Svavar Gests.
16.00—17.00 Þjóölagaþáttur
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
17.00—18.00 Frlstund
Unglingaþáttur.
Stjórnandi: Eðvarð Ingólfs-
son.
SJÓNVARP
ÞRIÐJUDAGUR
22. janúar