Morgunblaðið - 22.01.1985, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANtJAR 1985
hvers vegna bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar hafi þurft að greiða tug-
milljónir á undanförnum árum til
BÚH, og er nú komið í slíkt óefni,
að verið er að reyna að breyta
BÚH í hlutafélag, jafnvel með
samþykki og vilja kratanna. En
kratar og kommar hafa Iengst áð-
ur komist með að koma BÚH á
haustinn 1960, en þá var tap BÚH
meira en allt útsvar bæjarbúa.
Stofnun útgerðarfélags
Hafnarfjarðar
Undirbúningsstofnfundur al-
menningshlutafélags um rekstur
BÚH var haldinn 13. janúar sl.
Flestir bæjarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins og annarra flokka
gerðust þá þegar hluthafar. Ætl-
unin er eflaust sú með kaupum
hlutabréfanna að vekja traust
bæjarbúa á þessu nýja hlutafélagi
og lagði hver fulltrúi fram kr.
5.000,- og efast ég ekki um að þeir
muni leggja fram mun meira þeg-
ar þörfin kallar, sem ég hef grun
um að verði bráðlega. Nema þá
bæjarfulltrúarnir séu þá, ef til
vill, tilbúnir að leggja fram meira
fé úr bæjarsjóði?
Ef bærinn ætlar að eiga 51% í
BÚH og þar af leiðandi meiri-
hluta, geta menn velt því fyrir sér
hvers vegna mannkostamennirnir
Vilhjálmur Skúlason, Haraldur
Sigurðsson og Hörður Zophanías-
son, sem stjórnarmenn hins nýja
hlutafélags, séu hæfari menn, en
núverandi útgerðarráð til að
stjórna útgerð?
Svona til að upplýsa bæjarbúa
frekar og til að undirstrika tor-
tryggni mína gagnvart hinu nýja
útgerðarfyrirtæki og komandi
ábyrgð bæjarins á rekstri þess, þá
var það útgerðarráð en ekki hin
nýja stjórn félagsins sem tók
ákvörðun um að senda togarana
(alla) til veiða og hefja rekstur á
ný! Einnig að efast um getu og
hæfni þeirra til reksturs útgerðar
og er ég ekki grunlaus um að þeim
mun finnast það jafnvel sjálfum.
Nokkrar spurningar
og hugleiðingar
Það eru margar spurningar er
vakna þegar talað er um stofnun
hins nýja hlutafélags, eins og t.d.
hver á að borga hallann, ef til
kemur (efast einhver?) fram til 1..
júlí. Hvar og hver á að útvega
rekstrarlán? Út á hvaða veð? Er
bæjarsjóður bakábyrgur? Hvernig
ætlar bæjarstjórnin að taka á
málunum, ef félagið verður gjald-
þrota? (Væri ánægjulegt að fá yf-
irlýsingu bæjarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins um þetta mál.) Vilja
allir bæjarfulltrúarnir bera per-
sónulega ábyrgð á því hlutafé, sem
þeir biðja fólkið í bænum að
kaupa, t.d. í 1 til 2 ár?
Að mínu áliti er verið að fá bæj-
arbúa til að leggja fram af frjáls-
um vilja fé í vonlaust fyrirtæki,
sem að mínu áliti verður búið að
éta upp allt hlutaféð á nokkrum
mánuðum miðað við fyrri reynslu.
Finnst forustumönnum Sjálfstæð-
isflokksins slíkt verjandi og
smræmast hugsjónum flokksins.
Er ekki heiðarlegra af bæjar-
fulltrúum Sjálfstæðisflokksins að
ganga fram fyrir skjöldu og segja
bæjarbúum hreinskilnislega,
hvers fólkið megi vænta með
kaupum á hlutabréfum i hinu nýja
hlutafélagi. Frá mínum sjónarhóli
séð er raunverulega verið að biðja
bæjarbúa um að taka á sig viðbót-
araukaálögur vegna misheppnaðs
og óraunsæs reksturs BÚH, sem
allir flokkar bera ábyrgð á.
Um hvað var kosið
í síðustu bæjarð
stjórnarkosningum?
Ég leyfi mér að minna bæjar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins á
það, að fyrir síðustu bæjarstjórn-
arkosningar var gerð hörð atlaga
að flokknum, einmitt vegna af-
stöðu flokksins í málefnum BÚH.
Þessari aðför svöruðu kjósendur
með glæsilegum kosningasigri
Sjálfstæðisflokksins og bættu við
sig bæjarfulltrúa. Það var stoltur
hópur, sem stóð að þeim sigri.
Eg var og er sannfærður um, að
með stuðningi sínum ætluðust
kjósendur flokksins til að tekið
yrði á málefnum BÚH af festu. En
með botnlausri óábyrgri skulda-
söfnun, sem ógnar nú fjárhags-
legu öryggi bæjarfélagsins, hlýtur
að stefna óðfluga 1 það, að kjós-
endur flokksins muni hætta
stuðningi við slika óráðsíu. Nú
sem hingað til á stefna Sjálfstæð-
isflokksins að vera ábyrgð í stað
upplausnar.
Kristófer Magnússon er rekstrar-
hagfræðingur og í sæti í stjórn fuii-
trúaráðs sjilfstæðisfélaganna í
Hafnarfírði.
Einn af hinum furðulegu félögum
Alex í geimstríðinu.
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓHÖLLIN: STJÖRNUKAPP-
INN (The last Starfighter) ★★'A
Leikstjóri: Nick Castle.
Kvikmyndataka: King BaggoL
Handrit. Jonathan Betuel. Aðal-
hlutverk: Lance Guest, Dan
O’Heliby, Catherine Mary Stewart
og Robert Preston sem Centauri.
Bandarisk fri Lorimar/Universal.
Frumsýnd síðla árs 1984. Sýn-
ingartím ca 96 mín. Dolby.
Stjörnukappinn er vissulega
enn eitt óskilgetið afkvæmi Star
Wars-myndanna, en um margt
ólík þessum frægu forverum sín-
um. í Stjörnukappanum er lögð
áhersla á einfaldleikann, þvi
höfðar myndin sjálfsagt best til
barna og unglinga — þó svo að
allir aldurshópar geti haft af
henni gaman. Hér eru engin
risavaxin svið né tæknibrellur
tæknibrellanna vegna. Engar
óendanlegar styrjaldir með öll-
um sínum gný, brellum og alls-
herjardarraðardansi, heldur
stutt og fjörug átök þar sem eng-
inn þarf að efast eitt augnablik
að góðu öflin vinni. Sögðuþráð-
urinn hreinn og beinn, engar
vifilengjur eða útúrsnúningar.
Og siðast en ekki síst er
Stjörnukappinn einkar mannleg-
ur, af þessum myndum að vera,
þvi hún snýst einnig um ástir
Rómantík og
stjörnustríð
Alex og Maggie í Stjörnukappan-
um.
tveggja táninga i einhverju
bandarisku krummaskuði þar
sem fátt er til afþreyingar utan
myndbandaspilið Starfighter.
En það er einmitt spilið sem
breytir lífi söguhetja myndar-
innar, Alex og Maggie. Báðum
Alex við Stjörnukappa-\e\ktækiö.
dauöleiðist grámi tilverunnar,
en þegar Alex setur glæsilegt
met i Starfighter-leiknum fara
hjólin að snúast. Spilið er nefni-
lega hannað einhvers staðar útí
geimnum af verum sem eiga i
ægilegu stríði við ill nágranna-
öfl. Þeir sem slá met í spilinu
hafa jafnframt sannað afburða-
getu sem stríðsmenn við þær að-
stæður sem rikja þarna útí
blámanum. Svo Alex er sóttur.
Ekki er að orðlengja að Alex
getur sér orð sem hinn ógurleg-
asti stjörnukappi, sem kemur
svo í myndarlok að bjargar sinni
heittelskuðu úr tilbreytingar-
leysi krummaskuðsins!
Semsagt, einföld, slétt og felld
skemmtimynd af gamla skólan-
um. Tæknilega upp og ofan, enda
hefur ekki verið ætlunin að gera
Stjörnukappann að einhverju
tækniundri. Hér er fléttað sam-
an spennu, geimstriðum og
gömlu, góðu rómantíkinni með
prýðilegri útkomu. „Pottþétt
mynd,“ sagði tólf ára sonur
minn, og undirstrikaði þar með
það sem áður var sagt um hvaða
aldurshópur kann sjálfsagt hvað
best að meta Stjörnukappann.
(yf time manager
s3fW>3 W&) irrtematlonar
Scandinavian Service School er sameignarfélag sem
Scandinavian Airlines System (SAS) og Time Manag-
er International (TMI) eiga að jöfnu. Markmið félags-
ins er að halda námskeið og útbúa námsgögn sem
hjálpa fyrirtækjum um allan heim við að veita betri
þjónustu. Scandinavian Service School kennir
hvernig betri samskipti milli starfsmanna og við-
skiptavina jafnt sem milli starfsmanna innbyrðis leið-
ir til betri þjónustu.
Frá stofnun í október 1983 hafa yfir 40.000 manns
sótt námskeið SSS, og nýlega var gerður samningur
við British Airways um að allt starfsfólk þess fari á
þetta námskeið.
Námskeiðið ber yfirskriftina „Personal service
through Personal Development" og fer fram á ensku.
Megináhersla er lögð á þætti sem þróa einstaklinginn
í átt til betri og jákvæðari manneskju og viðhorf hans
til sjálfs sín og annarra.
Þátttakendur: Námskeið þetta er sniðið fýrir alla
sem sinna þjónustustörfum á einn eða annan hátt.
Námskeiðin hafa sótt fólk frá flugfélögum, ferðaskrif-
stofum, hótelum og veitingahúsum, verslunum og
bönkum og öðrum þeim vinnustöðum þar sem starfs-
fólk kemst í beint persónulegt samband við viðskipta-
vini.
Á íslandi mun Stjórnunarfélag íslands annast
skipulagningu námskeiða fyrir Scandinavian Service
School. Fyrstu námskeiðin verða haldin í febrúar
1985 og munu nokkur námskeið síðan verða haldin
síðar á því ári.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Cecilie Andvig frá
Noregi. Hún er einn af aðalleiðbeinendum Scandina-
vian Service School og starfaði m.a. að þjálfun starfs-
fólks hjá SAS. Námskeiðið er kennt á ensku.
Tími: 4.-5. og 6.-7. febrúar kl. 9—17.
Kristalsal Hótel Loftleiða.
NÝ SPENNANDI
SAMSETNING
TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU
í SÍMA 82930
SCANDINAVIAN
SERVICE SCHOOL
ASJJÓRNUNARFÉLAG
Æ&. ISLANDS