Morgunblaðið - 22.01.1985, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1985
Vestur-Þýskaland;
• •
Okubanni
aflétt
í Ruhr-héraöi
INwwldorf. Veotur-frýskmlandí, 21. janúar.
ÖKUBANN sem sett var á í öllum
starstu borgum í Ruhr-héraöi á
lostudag var numið úr gildi á
sunnudag, þegar mengunar-
ástandinu sem hrjáð hafði þetta
mikla iðnaðarhérað í fjóra daga
linnti.
Þá var verksmiðjum leyft að
hefja framleiðslu með eðlilegum
hætti á ný og hættuástandi var
að fullu aflétt á sumum svæð-
um, að sögn heilbrigðisyfir-
valda.
Þeim sem langt áttu að sækja
í vinnu í vesturhluta héraðsins
var ráðlagt að taka lest eða
áætlunarbíl vegna þess hve
mengunin var enn mikil sums
staðar á svæðinu.
Eins og veðurfræðingar spáðu
blés snarpur vestanvindur frá
Atlantshafi inn yfir landið og
rak óloftið á brott á undan sér.
Fleiri ferða-
menn til
Grikklands
Aþeaa, 21. janúar. AP.
Á SÍÐASTA ári komu um sex
milljónir erlendra ferðamanna til
Grikklands og er það 14,6 prósent
aukning frá árinu 1983. Griska
ferðamálaráðið greindi frá þessu í
dag. Flestir útlendinganna eru
Bretar eða um ein milljón, síðan
kom Vestur-Þjóðverjar og Banda-
ríkjamenn. Einna mest varð fjölg-
un í prósentum meðal franskra
ferðamanna.
Ronald Reagan forseti og George Bush varaforseti á svölum þinghússins AP/Símamynd
í Washington í 12 stiga frosti á celcius. Nancy Reagan forsetafrú kyssir mann sinn er hann hafði svarið eið.
Embættistaka Reagans að
hluta innandyra vegna kulda
Washington, 21. janúar. AP. • ^
RONALD Reagan sór embættiseið öðru sinni
er hann tók formlega við aeðsta embætti
Bandaríkjanna öðru sinni í gær. Athöfninni var
sjónvarpað beint. Viðstaddir voru 94 gestir. Þar
sem kuldanæðingur var utandyra var hefð-
bundinni athöfn utandyra á mánudag aflýst og
stefnuræða forsetans flutt innandyra.
Af þessum sökum var gestalistinn við at-
höfnina við þinghúsið skorinn niður úr 140
þúsund gestum í nokkur hundruð. Var at-
höfnin flutt frá vesturframhlið þinghússins
inn í sal.
Æðstu ráðgjafar forsetans hafa að und-
anförnu mótað stefnu þá sem forsetinn mun
kynna i dag, og mun þar boðaður mikill
niðurskurður á útgjöldum en engar skatta-
hækkanir, mikið átak í þá veru að ná sam-
komulagi um takmörkun vigbúnaðar og heit
um áframhaldandi stuðning við bandamenn
í Mið-Ameríku.
Embættistakan fór nú sjötta sinni fram á
sunnudegi. Hefð hefur verið að hún færi
fram á mánudegi. Áður en Reagan sór eiða
tók George Bush formlega við embætti vara-
forseta. Warren E. Burger forseti hæsta-
réttar Bandaríkjanna stýrði embættistök-
unni. Nancy forsetafrú hélt á biblíu sem
notuð var við eiðtökuna og er Burger hafði
óskað forsetanum til hamingju sneri Reag-
an sér að Nancy, faðmaði hana og kyssti.
Var Nancy íklædd rauðum kjól ísettum stór-
um gylltum hnöppum.
Anatoly Dobrynin hafði forystu fyrir er-
lendum sendifulltrúum sem skáluðu til heið-
urs Reagan í hófi, sem framleiðendur
Pepsi-Cola stóðu fyrir í John F. Kennedy-
miðstöðinni í Washington. Reagan var fjar-
verandi vegna embættistökunnar, sem fór
fram um svipað leyti, er Dobrynin skálaði í
rússneskum vodka. Það mun hafa verið
Dobrynin ókunnugt að þjónninn, sem bar
fram vodkað, er ungverskur flóttamaður,
George Skorka, fyrrverandi veitingastjóri á
Gyerta-veitingahúsinu í Búdapest. Hlutu
þau hjónin hæli sem pólitískir flóttamenn er
þau heimsóttu Bandaríkin 1981.
Sovézkt vodka hvarf úr veizlum í Wash-
ington í kjölfar innrásar Rússa í Afganist-
an, en að þessu sinni var Stolichnaya-vodka
veitt. Framleiðendur Pepsi hafa viðskipta-
samkomulag við Rússa sem gengur út á það
að framleiðendur Pepsi-Cola kaupa lítra af
vodka fyrir hvern lítra af Pepsiþykkni sem
Rússar kaupa af þeim.
ísraelar undirbúa
Heim afsjúkrahúsi
Margrét prinsessa (til hægri), systir Elísabetar Bretadrottningar, sést hér
á leið heim frá Brompton-sjúkrahúsinu. Prinsessan, sem er 54 ára gömul,
gekkst undir lungnaaðgerð 6. janúar sl. Samkvæmt tilkynningu sjúkra-
hússins hafa hafa rannsóknir sýnt, að meinsemd sú, sem fjarlægð var, var
ekki illkynjuð.
flutning frá Líbanon
TtlAriv, 21. janúv. AP.
ÍSRAKLAR tóku til við að flytja
hergögn sín frá nyrstu stöðvum sín-
um í Líbanon á sunnudag og greiða
þannig fyrir áfangaflutningi her-
liðsins til baka til ísrael.
í fyrsta áfanga hverfa ísraelar
til baka um 30 kílómetra og reisa
þar nýja varnarlínu. Byrjað hefur
verið að flytja til baka ónauðsyn-
leg hergögn, svo sem lyf og
læknisgögn og einingahús og fær-
anlegar byggingar aðrar, en
hersveitir verða ekki færðar til
baka fyrr en 18. febrúar.
Núverandi varnarlína fsraela í
norðri er við Awali-ána, 60 kíló-
metra fyrir norðan ísraelsku
landamærin. Ný varnarlína verð-
ur frá Miðjarðarhafsströndinni
rétt við Litani-ána.
ísraelsstjórn ákvað fyrir viku að
hefja í febrúar brottflutning herja
sinna frá Líbanon. Annar áfangi
Flugslys um helgina
Sjötíu og átta létust
Mexíkóborg, Feking. AP.
SJÖTÍU og átta manns létust í
tveimur flugslysum, sem urðu um
helgina. Flugvél frá kúbanska
ríkisflugfélaginu fórst skömmu
eftir flugtak í Havana á laugardag
og allir sem með vélinni voru, 40
manns, létust. Þeir voru Kúbu-
menn og Nicaraguabúar.
í frétt frá Peking í gær, segir
að þrír hafi komist lífs af af 41
sem með kínverskri farþegavél
var sem fórst við Jinan flugvöll.
Meðal þeirra sem létust voru
tveir Bandarikjamenn, einn
Breti og nokkrir Hong Kongbú-
ar, en flestir Kínverjar.
hefur ekki verið tímasettur, en
fastlega búist við að það verði í
apríl. Hverfa ísraelar þá frá línu í
Bekadal, sem skilur ísraelskar og
sýrlenzkar hersveitir þar að.
Shimon Peres forsætisráðherra
kveðst vongóður um að brottflutn-
ingunum ljúki árla sumars. Talið
er að um 20 þúsund ísraelskir her-
menn séu í suðurhluta Líbanon.
Barist var næturlangt í vestur-
hluta Beirút og fjöllunum um-
hverfis borgina. Féllu sjö manns
og 15 særðust.
Ungverjaland:
Miklar verðhækkanir
á vörum og þjónustu
Búdapetú, 21. junúar. AP.
Á laugardag tilkynntu ungversk yf-
irvöld um miklar verðhækkanir á
fjölmörgum vörutegundum og þjón-
ustu, en greindu samtimis frá lítils
háttar hækkunum launa og lífeyris-
greiðslna í því skyni að draga úr
áhrifum verðhækkananna.
Efst á blaði var hækkun póst-
burðar- og fargjalda, að sögn hins
opinbera málgagns kommúnista-
stjórnarinnar. I nýrri verðskrá
kemur fram, að póstburðargjöld
hækka um 80% og venjuleg far-
gjöld með innanbæjarvögnum og
neðanjarðarlestum hækka um
100% frá og með 1. febrúar.
Þar að auki má nefna, að elds-
neyti hækkar um 25—30%, mjólk-
urvörur um 29%, að því er fram
kom í tilkynningu stjórnarinnar.
Rafmagnsverð hækkar um 18%.
Laun hækka að meðaltali um 8%
á árinu 1985, sagði í tilkynning-
unni. Lífeyrisgreiðslur hækka um
9% og fjölskyldubætur og styrkir
til námsmanna enn meira.
„Kjöthleifur"
með
matareitrun
Newcustle, En«landi. 21. jnnúar. AP.
ROKKSÖNGVARINN Meat
Loaf fékk aðsvif er hann var að
kyrja vinsæl rokklög á hljóm-
leikum i Newcastle á laugar-
dagskvöld. Umboðsmaður
Meat Loaf sagði að söngvarinn
hefði að öllum líkindum fengið
matareitrun og myndi rokk-
hljómsveitin halda áfram
ferðalagi sínu fljótlega eftir
helgi.