Morgunblaðið - 22.01.1985, Qupperneq 23
Kína:
MORGUNBLADID, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANtJAR 1985
23
Fólk bíður í röðum
eftir að kaupa íbúðir
sem einkaaðili byggir
Peking, 21. jaoúar. AP.
KAUPENDUR bíða nú í röðum eftir að tryggja sér húsnæði sem einkafyrir-
tæki í borginni Zhengzhou í Henan-héraði hefur byggt, að því er hin opinbera
fréttastofa, Xinhua, sagði á sunnudag.
„Við munum selja húsnæði á
lægra verði en ríkið," var haft eft-
ir Li Jinan, 30 ára gömlum fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins.
Li vann við byggingarvinnu, en
efnaðist á rekstri veitingastofu og
kjúklingabús, þegar hið opinbera
rýmkaði um athafnafrelsi ein-
staklinga.
Hann stofnaði byggingafyrir-
tæki ásamt sjö öðrum verktökum
úr strjálbýlinu og hóf að byggja í
bæjum og borgum.
Hjá fyrirtækinu starfa nú um
1.000 manns og úthlutaði Zheng-
zhou-borg því ókeypis landsvæði
til að byggja á um 1.300 íbúðir á
þessu ári.
„Fjölmargir borgarbúa hafa
leitað eftir að fá að kaupa þessar
íbúðir fyrirfram," sagði Xinhua,
„og margir vilja eignast hlut í
fyrirtækinu".
AP/SImamynd
Bræður munu berjast...
Joshua Nkomo, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Zimbabwe, boðaði fyrir
nokkrum dögum fréttamenn á sinn fund og sýndi þeim hvernig bfllinn
hans, brynvarinn Mercedes Benz, leit út eftir að áhangendur Roberts
Mugabes, forsætisráðherra, réðust á hann með grjótkasti í þorpinu
Masvingo í Suður-Zimbabwe, Segir Nkomo, að þeir hafí ætlað að ráða
sig af dögum og er þá illa komið fyrir frelsishetjunum, sem einu sinni
börðust saman fyrir sjálfstæði þjóðarinnar.
Japanir vilja ekki
kvenslökkvistjóra
en staða kvenna hefur batnað á áratugnum
Tókýó, 21. janúar. AP.
SAMKVÆMT niðurstöðum skoðanakönnunar um stöðu
kvenna í Japan sem var birt í dag, hefur hún batnað stórlega
síðustu tíu árin. Skoðanakönnunin var framkvæmd á vegum
forsætisráðuneytisins og í henni var einnig leitað eftir afstöðu
karla til kvenna varðandi þátttöku í störfum sem hingað til
hefur einkum verið gegnt af karlmönnum. í Ijós kom að
menn vilja ekki að konur verði slökkviliðsstjórar né heldur
geta þeir hugsað sér konu sem flugstjóra á millilandaflugleið-
um.
Áttatíu prósent þeirra sem
spurðir voru nú í lok kvennaára-
tugarins töldu að staða konunnar
hefði styrkst mjög vegna athafna
og áróðurs Sameinuðu þjóðanna
á liðnum áratug. Yfirleitt voru
menn dús við að kona gegndi
störfum sem forstjóri í stórfyr-
irtækjum svo fremi hún væri því
starfi vaxin og vaxandi fylgi var
við þátttöku kvenna í stjórnmál.
Hins vegar var augljós andúð á
því að kona gegndi starfi ríkis-
saksóknara eða fangelsisstjóra,
auk þeirra starfa sem áður voru
nefnd.
Um fimmtíu prósent töldu að
mikil breyting á viðhorfi til
stöðu konunnar almennt hefði
orðið í landinu á síðustu tíu ár-
W/
ERLENT,
um, en þó var viðurkennt að það
kynni að vera enn svo að konur
þyrftu öllu fremur að sanna
hæfni sína í ýmis ábyrgðarstörf
en karlar og með þeim væri
fylgst af meiri gagnrýni. Hins
vegar álitu menn að þetta væri
einnig að breytast til hins betri
vegar.
ÞÓRÐARHÚS
Trésmlðia Þörðar Tangagölu i 900 Vestmannaey]um s 98 2640
Viö kynnum
nidarbergene
W ^
9 Laban
Seigmenn
5-MINUTT
súkkulaðihúðað kex
i
TROIKA GULLBR0D
súkkulaði með súkkulaði með
marsipani, brúnu kremi' marsipanfyllingu
og hlaupi. ,
KLIN KOKOS
súkkulaði með
kókosfyllingu
CAN CAN,}
fylltir kohfekl
STRATOS SPESIAL
mjólkursúkkulaði
TROFFEL
súkkulaði með
kremfyllingu, j
ristuðum heifl
BRAVO N0TT
súkkulaði með heilum
hnetum
'jt
LAKRIsfeftFER
lakkrísbátar 1
LABAN SEIGMENN
sykurhúðað hlaup
BARNETIMEN
blandað bamasælgæti
KARANAM
súkkulaðikö
r með
;nk
ngu
ÍfMáJ karamellufy
mm
iEzi
TilMHN
EKTE KAMFER
brjóstsykur með
I iiinfiimlii rin»ái —
SYRLIGE DROPS
brjóstsykur með
ávaxtabragði ---
tyrCk*'
BRINGEBÆR
brjóstsykur með
bvingeberjabragði
CANDY
fylltur brjóstsykur
■
...og miklu ódýrara.”
Heildsölubirgðir:
EHHRí . ,
simi 82700
H
F