Morgunblaðið - 22.01.1985, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1985
37
Yfirlýsing:
Bændur í Vestfjarðahólfi
verða að standa saman
f tilefni af ályktun sauðfjáreigenda í Tálknafjaröar-, Ketildala- og Suður-
fjarðahreppum frá 7. desember 1984, viljum við undirritaðir taka fram eftirfar-
andi:
1. Sú stefna var mörkuð á aðal-
fundi Búnaðarsambands Vest-
fjarða 1983, að reyna með öllum
tiltækum ráðum að útrýma riðu-
veiki úr sauðfé á Vestfjörðum.
Það sem knúði á, um að sam-
ræmd stefna væri mörkuð og henni
framfylgt, var hörð útbreiðsla
veikinnar á Barðaströnd og rök-
studdur grunur um að hún væri
komin til nálægra sveita. Sauð-
fjárbúskapur í öllu Vestfjarðahólfi
var í veði, yrði ekkert að gert. Full-
reynt var talið að niðurskurður
einstakra hjarða, eins og hann
hafði verið framkvæmdur á Barða-
strönd, stöðvaði ekki veikina. Því
yrði áætlun, er tryggja ætti útrým-
ingu veikinnar í Vestfjarðahólfi að
ná til þess alls.
Skera yrði niður allt sauðfé á
skýrt afmörkuðum svæðum, þar
sem veikin var staðfest og einnig
þar sem nokkur grunur leyndist.
Jafnframt yrði aukið og hert allt
heilbrigðiseftirlit með búfé í öllu
hólfinu.
Þessi stefna var ítrekuð á aðal-
fundi Búnaðarsambandsins 1984.
Fylgi við þessa stefnu hafa lýst: að-
alfundur Fjórðungssambands
Vestfirðinga 1984, sýslunefndir
Vestur- og Norður-ísafjarðar-
sýslna og Vestur-Barðastrandar-
sýslu, fundur fulltrúa sveitarfélaga
í Vestfjarðahólfi, sem haldinn var
að Núpi 30. júni 1984 o.fl.
2. Þegar ákveðið er að skera
sauðfé í heilum sveitum fer ekki
hjá því að þar geta verið margar
einstakar hjarðir ósýktar, sem
skera þarf. Um slíkt er þó engin
leið að fullyrða, sökum hegðunar
veikinnar.
Það getur því á engan hátt talist
gerræðisleg aðför að einstökum
fjáreigendum þótt þeir verði að
lúta hagsmunum fjöldans að þessu
leyti.
Landbúnaðarráðherra og Sauð-
fjárveikivarnir fara með ákvörðun-
arvald um varnir gegn sauðfjár-
sjúkdómum og þar með ákvörðun
um hvar niðurskurði skuli beitt.
3. Niðurstöður sýnarannsókna
gefa tilefni til að óttast að riðu-
veiki geti verið í hjörðum sem ekki
voru skornar i haust og því síst
gengið of langt i niðurskurðinum
nú.
4. Mikilvægt er, að heilasýni séu
tekin úr öllu rosknu fé í Vest-
fjarðahólfi, sem slátrað er eða mis-
ferst og til næst.
Riðunefndum og héraðsdýra-
læknum ber að hafa eftirlit með
sýnatökunni. Sláturleyfishafar
bera ábyrgð á henni i sláturhúsum
sinum. Óskað hefur verið eftir að
riðunefndir hreppanna sjái um
sýnatöku úr rosknu vanhalda fé og
heimaslátruðu.
5. Sauðfjárveikivarnir og stjórn-
völd hafa brugðist vel við óskum
Vestfirðinga um aðstoð við útrým-
ingu riðuveikinnar og bar að þakka
það.
Á Tilraunastöðinni á Keldum er
verið að þróa upp aðferð til að leita
að riðusmiti á frumstigi með rann-
sóknum á heilasýnum og hefur þar
náðst verulegur árangur. Það væri
því nánast út í hött að ætla ein-
hverjum öðrum aðila að annast
rannsóknir sýnanna.
óhætt mun að fullyrða, að vel-
flestir vestfirskir bændur bera
fullt traust til starfsmanna
Tilraunastöðvarinnar á Keldum og
Sauðfjárveikivarna. Starfsmenn
Sauðfjárveikivarna hafa haft fullt
samráð við heimamenn um aðgerð-
ir i niðurskurðar- og fjárskipta-
málunum og rætt þau (tarlega við
einstaka fjáreigendur og aðra þá er
málið varðar. Það hlýtur að vera
einkamál Sauðfjárveikivarna
hvernig starfsmenn þeirra skipta
með sér verkum.
Við undirritaðir lýsum yfir
fyllsta trausti okkar á starfs-
mönnum þessara stofnana og
hörmum að heilindi og starfshæfni
þeirra skuli hafa verið dregin í efa.
6. Það er fagnaðarefni, að fjár-
eigendur í Tálknafjarðar-, Ketil-
dala- og Suðurfjarðahreppum skuli
lýsa sig fúsa til samstarfs um varn-
ir gegn og útrýmingu á riðuveiki.
Bændur í Vestfjarðahólfi verða að
standa saman, ef sigur á að vinnast
á riðuveikinni. Niðurskurður og
fjárskipti er slæmur kostur. Þau
eru nauðvörn, sem gripa hefur orð-
ið til þegar í nauðir rak.
Það er eðlilegt að menn greini á
um framkvæmd svona aðgerðar
sem umturnar búskaparháttum í
heilum sveitum, þó um stundarsak-
ir sé.
Þegar ágreiningur kemur upp,
þarf að reyna að jafna hann án
þess þó að skerða möguleikana á að
ná lokatakmarkinu, þ.e. að útrýma
riðuveikinni á Vestfjörðum.
Vonandi bera vestfirskir bændur
gæfu til að standa þannig að þess-
um málum að sigur vinnist.
Dýrafirði, 9. janúar 1985
f.h. stjórnar
Búnaðarsambands Vestfjarða,
Valdimar Gíslason
f.h. Framkvæmdanefndar
Fjárskiptanefndar Vestfjarðahólfs
Bergur Torfason
Árbók Akureyr-
ar komin út
BÓKAFORLAG Odds Björnssonar
hefur sent frá sér fjórða árganginn af
Árbók Akureyrar og fjallar hann um
árið 1983. Auk fréttayfírlits og sam-
antekinna yfirlita um þróun mála og
ástand undanfarin ár á Akureyri eru í
Árbókinni sérstakir liðir I mörgum
köftum um samfélagsmál, atvinnu-
mál, menningarmál, fþróttir og tóm-
stundir og yfírlit úr kirkjubókum. Ár-
bókin hefur að lauslegri fyrirmynd
hinar vinsælu norrænu handbækur í
litlu broti, sem á aðgengilegan og
ódýran hátt varðveita andrúmsloft
hvers árs í máli og myndum.
Helstu nýjungarnar í Árbók Ak-
ureyrar 1983 eru þær, að ritstjór-
inn, Ólafur H. Torfason, hefur tek-
ið saman margvíslegar upplýsingar
frá ýmsum aðilum og freistað þess
að gera þær auðskiljanlegar með
grafiskum aðferðum, teikningum
og greinargerðum. Má þar nefna
viðamikla úttekt á „Eyjafjarðar-
svæðinu". Til hliðsjónar við frétt-
irnar eru birt gömul tíðindi, ef ára-
fjöldinn sem liðinn er síðan þau
gerðust stóð á tug. Auk þess helstu
innlendu og erlendu fréttirnar
1983.
Fjölmargir höfundar rita í Ár-
bókina að vanda, forstöðumenn
stofnana, félaga og fyrirtækja, al-
mennir launþegar og áhugamenn á
mismunandi sviðum.
Aðalfundur
fulltrúaráðsins í Reykjavík
Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfataaöisfélaganna í
Reykjavík veröur haldinn í kvöld þriöjudaginn 22.
janúar kl. 20.30 í sjálfstæöishúsinu Valhöll.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg aöalfundar-
störf.
2. Ræöa Davíös
Oddssonar borgar-
stjóra.
3. Önnur mál.
Fulltrúaráösmeölimir eru hvattir til aö fjölmenna
og hafa meö sér fulltrúaráðsskírteini.
Stjórn fulltrúaráösins.
TBiodroqa (
Nýtt
2000
snyrtivörur
skrúbbkrem frá Biodroga
2000 hreinsar stíflaöa fitukirtla og yfir-|
borösfitu á andliti, bringu og baki.
lello
Bankastræti 3.
S. 13635.
~Biodmqa
2000
snyrtivörur.