Morgunblaðið - 22.01.1985, Qupperneq 38
araacqa
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1985
!
!
I
!
i
i
fólk í
fréttum
íslendingar í Köln
hittast ætíð á aðventu
Julio enn að?
Spænski söngv-
arinn og
kvennagullið Julio
Iglesias sást nýverið
með þessari huggu-
legu ungu konu og
voru fyrstu viðbrögð
á þá lund að nú væri
gamli rebbinn Julio
enn búinn að skipta
um vinkonu, en hann
ku gera það æði oft
og ávallt með sama
táraflóðinu og yfir-
lýsingunum að hann
gæti ekki fundið
hina einu og sönnu
ást. Tungurnar
hættu þó að tifa um
leið og parið gekk í
betra Ijós en þá kom
í ljós að konan var
leikkonan Heather
Thomas og allir sem
vita lengra nefi sínu
í gleðiborginni
Hollywood vita að
Heather býr með
leikaranum Graing-
er Hines og ekki tal-
in líkleg til að
„skúbba" honum út
fyrir óáreiðanlegan
og blóðheitan Spán-
verja.
IKöln hefur það tíðkast i áratugi að á aðventu
koma íslendingar saman og halda jólagleði.
Þessi siður varð til er frú Beatrix Löffler-Erhes
undirbjó árið 1957 jólagleði í fyrsta skipti. Allar
götur síðan hafa þau hjón og hr. Löffler eftir
andlát konu sinnar viðhaldið þessum sið og Is-
lendingar búsettir í Köln kunnað vel að meta
Það má geta þess að faðir Beatrix var íslandsvin-
urinn Heinrich Erhes, sem var einn af stofnend-
um fyrsta þýska íslandsvinafélagsins árið 1913 í
Dresden, og var stærsti bókasafnari á allt er
varðar íslenska menningu í Evrópu fyrir utan
Kaupmannahöfn. Hann arfleiddi háskólann í
Köln að því mikla safni. Þessi jól komu landarnir
saman og m.a. dönsuðu börnin í kringum jólatré,
jólasveinninn kom i heimsókn færandi hendi og
íslensk jólalög voru sungin.
„Göngum við
í kringum".
BLÁA LÓNIÐ
í NORSKU VIKURITI
Norðmenn eiga upp-
pantaðan júlímánuð
Adögunum birtist grein í norska ritinu „Norsk Ukeblad"
um Bláa lónið og lækningamátt þess fyrir psoriasis-
sjúklinga. Höfundurinn, Borge Nilsson, segir m.a. í grein-
inni: „Er þetta kraftaverkauppspretta? Nei, í vatninu eru
efnakljúfar sem þyrfti að einangra. Ef það heppnaðist
fengju psoriasissjúklingar um víða veröld varanlega hjálp."
Blm. iangaði að forvitnast um hvort Norðmenn væru tíðir
gestir í lóninu og hringdi í Þór Stefánsson sem sagði: „Já,
Norðmenn eru tíðir gestir hérna hjá mér og fólk er farið að
panta aftur frá þvi í fyrra. Það er t.d. allur júlímánuður
upppantaður og þar á lista eru eingöngu Norðmenn. Amer-
íkanar eru einnig tiðir gestir hér, en hinar Norðurlanda-
þjóðirnar eiga eftir að fá
vitneskju um þetta. Það er
mikið að gera núna og meðal
gesta er vinnuhópur frá ís-
lax, sem verður hér ef að lík-
um lætur fram á vor.“
— Hvað telur þú að fólk
þurfi að vera lengi tii að sjá
batamerki?
„Eftir þrjá til fjóra daga
er árangur þokkalegur. Eftir
viku er hann góður, en ef fólk
getur haldið þetta út í fjór-
tán daga, þá er árangurinn
hreint ótrúlegur."
Dr. O. Löffler,
konsúll AD.
meö jóla-
sveininum.
NÝJA BOND-STÚLKAN
Ásjáleg að vanda
Hér sjáum við nýjustu Bond-stúlkuna í öllu
sínu veldi. Þetta er Fiona Fullerton og leikur
hún má móti Roger Moore, hefðbundið hlut-
verk, i myndinni „A View to Kill“, en eins og
mörlandinn man ugglaust voru atriði úr
myndinni tekin upp hérlendis og eru í hópi
mestu spennuatriða myndarinnar. Þau
Moore og ungfrú Fullerton komu hingað þó
aldrei, statistar sáu um fjörið.
Þóröur
Stefánseon
Bláa
lóninu
SK
— Dette er ikke noe
humbug: den blá lagunen
lindrer psonasis, sier de sc
har badet l det varme. salts
vannet like ved Reykjavik
Etter noen bad har flere
oppíevd at psortaalaen har
holdt seg borte et helt ár.
Er det en mirakelkilde?
Nei, I vannet finnes et
enzym, og klarer man á
isolere det. vil paoriatikere
Greinin sem birtist í Norsk Ukeblad.
Hinn nýi
Stebbi
í Dynasty
Hinn nýi Steven Carrington í
Dynasty er ungur
Bandaríkjamaður að nafni Jack
Coleman, hann tók sæti Als Corl-
ey sem þurfti að losna af persónu-
legum ástæðum. Coleman þykir
myndarlegur piltur, en hann var
öllu óþekktur áður en honum
bauðst hlutverkið í Dynasty. „Ég
bý í New York og hafði farið til
Hollywood til reynsluupptöku. Ég
gerði mér ekki nokkrar vonir,
bjóst auðvitað við því að einhver
þekktari yrði fyrir valinu. Ég fékk
mikið sjokk er síminn hringdi og
mér sagt að snarast hið fyrsta til
Hollywood á ný, ég hefði hreppt
hlutverkið.
Fregnir herma að Coleman sé
afar jarðbundinn sveinn, hann lif-
ir ekki hátt eins og margir í Holly-
wood, „ég fjárfesti skynsamlega
og eyði ekki um efni fram,“ segir
Coleman og bætir svo við að fjár-
málaráðgjafi sinn sé engin önnur
er unnustan, lítið þekkt dansmær