Morgunblaðið - 22.01.1985, Qupperneq 48
EUROCARO
V J
Tli DAGLEGRA NOTA
Tímapantanir í síma 11630
ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR 1985
Morgunblaðið/Friðþjófur
Núverandi byggð viö Skúlagötu séð frá Sætúni fyrir neöan Höföa.
Módel aö byggðinni viö Skúlagötu eins og hugmyndir arkitektanna kveöa á
um. Fremst er nýbygging Seölabankans og þá útvarpshúsið.
Fyrri hugmvndum að skipu-
lagi við Skúlagötu bylt
í G/GR voru kynntar fyrir skipu-
lagsnefnd Reykjavíkur frumdrög
aö nýju skipulagi svonefnds
skuggahverfís, það er sveðisins
milli Setúns í norðri og Hverfís-
götu í suðri og Ingólfsstretis í
vestri og Snorrabrautar í austri.
Arkitektarnir Guðmundur Kr.
(iuðmundsson, Ólafur Sigurösson
og Björn Hallsson eru höfundar
hins nýja skipulags.
Eidri hugmyndum að skipu-
laginu við Skúiagötu upp að
Lindargötu er bylt. Horfið er frá
stórum byggingum, sem mynda
samfelldan vegg en í þess stað er
lögð áherzla á fjölbreytta byggð
og að útsýni haldist frá núver-
andi byggð fyrir ofan Lindar-
götu.
„í megindráttum leggjum við
áherzlu á smáar einingar í þess-
um drögum, sem falla vel að
þeirri byggð, sem fyrir er. Gert
er ráð fyrir tæplega 500 fbúðum
á svæðinu. Að íbúar á svæðinu
verði á milli þúsund og fimmtán
hundruð, svipað og í fyrri hug-
myndum,“ sagði Björn Hallsson,
arkitekt í samtali við blm. Mbl.
Skúlagatan mun halda sér og
verða húsagata fyrir hina nýju
byggð, en Sætún norður undan.
Þegar í sumar verður hafist
handa um uppfyllingu norðan
Skúlagötu vestur fyrir Klöpp.
LÍÚ skrifar ríkisstjórninni:
Staða útgerðar liggi fyr-
ir áður en olía hækkar
LANDSAMBAND íslenzkra útgerð-
armanna sendi ríkisstjórninni bréf
þess efnis í ger, aö hún kemi í veg
fyrir þá olíuverðshekkun, sem olíu-
félögin hafa nú óskaö eftir, að
minnsta kosti þar til hún hefur met-
'•ö stööu útgerðarinnar og bolmagn
til að taka á sig frekari hekkanir.
Olíufélögin biöja nú um 6% hækkun
á bensíni, 16% á gasolíu og 21% á
svartolíu. Nái sú hekkun fram að
ganga verður olía til fískiskipa hér
63%dýrari en í Bretlandi, en munur-
inn er nú 40%.
Gasolía hækkaði síðast 24. nóv-
ember síðastliðinn um 20% og
svartolía um 29%. Nái hækkun-
arbeiðni olíufélaganna fram að
ganga eykur hún útgjöld flotans
um 370 milljónir króna á þessu ári
og rýrir tekjur skuttogaranna um
5%.
Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri LIÚ, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að þessi hækk-
unarbeiðni olíufélaganna, næði
hún fram að ganga, væri mjög al-
•arrlegt áfall. Við ákvörðun fisk-
verðs í desemberlok hefði aðeins
verið tekið mið af þá gildandi olíu-
verði og þar sem gengi hefði mjög
lítið breytzt, kæmi þetta útgerðar-
mönnum mjög á óvart og afleið-
ingar hækkunar væru ófyrirsjá-
anlegar. Fiskverð ætti að gilda til
ágústloka, uppsegjanlegt frá 1.
júní og yrði hækkunin óbærileg,
fengjust engar breytingar á
rekstrarstöðu útgerðarinnar fyrir
þann tíma.
Kristján sagði ennfremur, að
vegna þessa hefði LÍÚ sent ríkis-
stjórninni bréf, þar sem því væri
lýst hvaða afleiðingar þessi verð-
hækkun hefði og að hún hefði ekki
verið inni í myndinni, þegar fisk-
verð hefði verið ákveðið. Þjóð-
hagsstofnun hefði staðfest, að
rekstrarstaða útgerðarinnar væri
afleit og með því að bæta þessum
álögum við, yrði hún óbærileg.
Þess vegna hefði þess verið óskað
við ríkisstjórnina, að hækkunin
yrði ekki látin ganga fram, fyrr en
hún hefði metið stöðuna að nýju.
Nái þessi verðhækkunarbeiðni
olíufélaganna fram að ganga,
hækkar bensín úr 25,90 í 27,45,
gasolía úr 10,70 í 12,40 hver lítri og
svartolía úr 10.400 krónum í 12.600
hver lest. Verð á gasolíu til fiski-
skipa í Bretlandi er nú 7,60 krónur
fyrir hvern lítra.
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Almannaskarð:
8,6 tonna
bíll fauk af
veginum
TÆPLEGA níu tonna þungur fíutn-
ingabíll, sex hjóla MAN, fauk út af
veginum síödegis { ger skammt frá
benum Dynjanda, sem stendur neö-
an við Almannaskarð í Hornafírði.
Þar var mjög vindasamt í ger.
Bílstjórinn var einn í tómum
bílnum að koma frá Djúpavogi á
leið til Hafnar til að sækja vörur
fyrir kaupfélagið á Djúpavogi. Bíl-
stjórinn, sem slapp ómeiddur,
komst með girðingum heim að
Dynjanda og þaðan til Hafnar.
Bíllinn var á hliðinni utan vegar í
nótt en í dag verður reynt að velta
honum á hjólin, viðri til þess.
Hann er talinn nokkuð skemmdur.
Skálkaskjól 2:
Sala á
bjórlíki
stöðvuð
OLKÚTAR og birgöir af sterku víni
voru geröar upptekar á veitinga-
staönum Skálkaskjóli 2 nú fyrir helg-
ina. Aö sögn Ársels Harðarsonar
framkvemdastjóra Félagsstofnunar
stúdenta komu eftirlitsmenn veit-
ingahúsanna á fímmtudagskvöldið og
geröu upptekar birgöir af sterku víni
og bönnuðu sölu á bjórlfki. Á föstu-
dagskvöldið komu fulltrúar Rann-
sóknarlögreglu ríkisins og gerðu upp-
teka ölkúta, sem höföu að geyma
bjórlfki.
Ársæll sagði að hann væri hand-
hafi leyfis fyrir sölu á léttu víni á
veitingastaðnum Skálkaskjóli 2 og
væri hér um að ræða mismunandi
skilgreiningu á bjórlfki.„Sam-
kvæmt minni skilgreiningu er bjór-
líki létt vín,“ sagði Ársæll, „en þeir
sem hingað komu eru ekki sam-
mála mér um það. Hér er ekki selt
sterkt vín, hvorki fyrir né eftir
mat, en ég blanda bjórlíkið sjálfur
á þeim tíma sem engir gestir eru
hér.
Eg held að þetta sé fyrsta málið
sem kemur upp út af þessu svokall-
aða bjórlíki. Ég vil fá það skil-
greint hvort það telst létt vín eða
sterkt og bíð spenntur eftir niður-
stöðum þessa máls. Það er greini-
legt að margs konar leyfi eru í
gangi og ekki farið eftir neinni
stefnu f þessum málum. Ég sótti
t.d. um leyfi fyrir sterk vfn f maí sl.
þar sem hér eru öll skilyrði fyrir
hendi, en hef ekkert svar fengið
enn,“ sagði Ársæll að lokum.
500 myndbönd tekin úr
FIMM HUNDRUÐ ólögleg
myndbönd frá níu myndbandaleig-
um á höfuöborgarsvæöinu voru
tekin í vörslu Samtaka rétthafa
myndbanda á íslandi í síöustu
viku, þar af voru tvö hundruö frá
einni og sömu myndbandaleig-
unni. Þá sendu samtökin menn út
af örkinni til að athuga ástandiö á
myndbandaleigum á Suöurlandi og
á þeim þremur myndbandaleigum,
sem heimsóttar voru, reyndust
vera 26 frumútgáfur og 27 eftirtök-
ur, sem eru ólöglegar lögum sam-
kvæmt.
Friðbert Pálsson, formaður
Samtaka rétthafa myndbanda,
sagði í samtali við Morgunblað-
ið, að stefnt væri að hertu eftiliti
með ólöglegum myndböndum
enda næmi tap aðildarfélaga
samtakanna yfir 100 þúsund
krónum á mánuði vegna þessar-
ar starfsemi. Friðbert sagði að
venjan væri sú, þegar ólögleg
myndbönd finnast á mynd-
bandaleigum, að gerð er skilyrð-
islaus krafa um afhendingu
myndbandanna, sem fyrsta
skref til að komast að samkomu-
lagi, ef um ólögleg frumeintök er
að ræða. Sé hins vegar um að
ræða eftirtökur er slíkt umsvifa-
laust kært til rannsóknarlög-
reglu, enda eftirtökur með öllu
ólöglegar og engin samningaleið
fær í slíkum tilvikum. Friðbert
sagði að í þeim tilvikum sem áð-
ur er getið voru spólurnar af-
hentar og stæðu nú yfir samn-
ingaviðræður um lausn málsins.
Dæmi væru um að spólur væru
afhentar og málið látið niður
falla. Ef hins vegar ekki næðist
umferð
samkomulag væri málið kært til
rannsóknarlögreglunnar.
Friðbert Pálsson sagði enn-
fremur, að það væri umhugsun-
arefni, hversu margar eftirtökur
fundust í myndbandaleigunum á
Suðurlandi, eða rúmur helming-
ur þeirra myndabanda sem skoð-
uð voru. Taldi hann ekki vanþörf
á að herða eftirlit með mynd-
bandaleigum úti á landi enda
gæfi rannsóknin á Suðurlandi
vísbendingu um að ólöglegar eft-
irtökur væru algengar.