Morgunblaðið - 25.01.1985, Side 1

Morgunblaðið - 25.01.1985, Side 1
72 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 20. tbl. 72. árg. FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Bokassa á vonarvöl París, 24. janúar. AP. BOKASSA, fyrrum einvaldur í Mið- Afríku lýöveldinu, hefur beðið frönsku rfkisstjórnina um að koma í veg fyrir, að lokað verði fyrir gas og rafmagn í hýbýlum hans vegna ógreiddra reikninga. Bokassa, sem steypt var af stóli árið 1979, býr i kastala, fyrir utan París, ásamt 15 af 54 börnum sín- um. Hann segir að einu tekjur sín- ar séu eftirlaun, sem franski her- Rajiv Gandhi: Síkhar falli frá kröfu um heimastjórn Nýju Delhí, 24. janúar. AP. RAJIV Gandhi, forsætisráðherra Indlands, lýsti því yfir í þing- ræðu í dag, að hann mundi ekki taka upp viðræður við leiðtoga síkha um deilurnar í Punjab- fylki nema þeir fordæmdu hryðjuverk og féllu frá kröfum um heimastjórn. Það var hinn herskái flokk- ur síkha, Akali Dal, sem setti fram kröfuna um heimastjórn fyrir Punjab-fylki árið 1973. „Það næst aldrei samkomu- lag meðan Akali Dal-flokkur- inn vill ekki falla frá þessari kröfu," sagði Gandhi. Hann kvað nauðsynlegt, að allir leið- togar síkha lýstu því afdrátt- arlaust yfir, að þeir virtu stjórnarskrá Indlands. Rajiv Gandhi inn greiðir honum fyrir herþjónustu á þeim árum, er Frakkar fóru með stjórn Mið-Afríku lýðveldisins. Fyrr á þessu ári kvaðst Bokassa vera svo blankur að börn sín yrðu að leggja sér til munns plöntur, sem þau tíndu i nágrenni kastalans. { síðasta mánuði kvartaði hann yfir því, að loka ætti fyrir vatnið í hi- býlum hans og hótaði að efna til mótmælastöðu með börnum sínum fyrir utan forsetahöllina í París. Þá var ekki lokað fyrir vatnið. Andstæðingar Bokassa halda því fram, að á valdaárum sínum hafi hann framfylgt ógnarstefnu, látið pynta og myrða fjölda stjórnmálaandstæðinga sinna og gert ríkissjóð gjaldþrota með bruðli og óhófslíferni. Einvaldur- inn fyrrverandi þvertekur fyrir, að nokkuð sé hæft í þessum ásök- unum. Nýtt lækningatœki gegn krabbameini Símamynd/AP. Tsutomu Sugawara, prófessor við Kyoto-háskóla í Tókýó, sést hér stjórna tæki, sem nýlega hefur verið smíðað og auðvelda á baráttuna gegn krabbameini. Tæki þetta beitir hátíðni rafeindageislum til að hækka líkamshita manna upp í 43 gráður á Celcíus á þeim svæðum, sem sýkt eru af krabbameini. Með þessum hætti hefur við tilraunir að undanförnu tekist að ná undragóðum árangri við að fjarlægja æxli og sporna gegn vexti þeirra. Endalok kolanámuverk- fallsins virðast blasa við Talið að leiðtogar námamanna hafi fallið frá höfuðkröfu sinni Lundúnum, 24. janúar. AP. LEIÐTOGAR breskra kolanámamanna, sem verið hafa í verkfalli und- anfarna tíu mánuði, virðast hafa fallið frá þeirri höfuðkröfu sinni, að haldið verði áfram starfrækslu náma, sem ekki skila arði. Hafa þeir óskað eftír samningafundi í byrjun næstu viku. Michael Eaton, talsmaður stjórnar ríkisreknu kolanám- anna, sagði i dag, að ef þessar fréttir um eftirgjöf leiðtoganna væru á rökum reistar væri hugs- anlegt að lausn fyndist á vinnu- deilunni innan fárra daga. óskin um nýjan samninga- fund var borin fram að loknum fundi framkvæmdastjórnar Samtaka kolanámamanna, sem haldinn var í Shefffield í morg- un. Haft var eftir Arthur Scar- gill, hinum herskáa leiðtoga samtakanna, að ekki yrði fallist á að sett yrðu skilyrði fyrir þvi að kveðja samninganefndir deiluaðila á fund. Stjórn ríkisreknu kolanám- anna sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem segir að ekki komi til greina að hefja viðræður við verkfallsmenn á ný nema fyrir liggi skrifleg yfirlýsing um að þeir hafi fallið frá þeirri kröfu sinni, að haldið verði áfram rekstri óarðbærra kolanáma. í kvöld sagði Trevor Bell, tals- maður Samtaka kolanáma- manna, að þessi yfirlýsing væri til marks um „vísvitandi skemmdarverkastarfsemi" stjórnarinnar. Verkfallið hófst í mars í fyrra þegar stjórn kolanámanna greindi frá því, að fyrirhugað væri að loka 20 námum, sem ekki skiluðu lengur arði, og segja jafnframt 20 þúsund námumönnum upp störfum. Stefnubreyting Samtaka kola- námamanna kemur á sama tíma og fréttir berast um að námu- verkfallið sé að leysast upp. Samkvæmt upplýsingum frá námunum sneru 260 námumenn til starfa á ný í dag í fyrsta sinn eftir að verkfallið hófst. Hafa þá 3.160 verkamenn snúið til starfa í vikunni. Samtals eru þá 77 þúsund námumenn að störfum, þrátt fyrir verkfallið, en námu- menn í Bretlandi eru 187.300. Discovery í himingeimnum á ný: Með gervihnött sem fylgjast á með fjarskiptum Sovétmanna Kanaveralhöfda, 24. janúar. AP. GEIMFERJAN Discovery fór í kvöld í fyrsta leiðangur sinn, sem er hernaðarlegs eðlis. Um borð eni fimm geimfarar, sem allir eru foringjar í Bandaríkjaher, og er haft eftir áreiðanlegum heimildum að verkefni þeirra sé að koma á braut umhverfis jörðu gervihnetti, sem m.a. er unnt að nota til að hlera fjarskipti í Sovétríkjunum og víða í Evrópu, Asíu og Afríku. Sovétmenn sendu slíkan hálft þriðja tonn og nam kostn- njósnahnött út í geiminn í lok aður við smíði hans 300 milljón- september á síðasta ári. Banda- um bandaríkjadala. ríski gervihnötturinn vegur Af öryggisástæðum hefur mikil leynd hvílt yfir undirbún- ingi að ferð Discovery að þessu sinni og var ekki greint ná- kvæmlega frá brottfarartíma ferjunnar fyrr en eftir geimskot- ið, sem var kl. 19.50 að ísl. tíma. Tíu mínútum síðar var ferjan komin út í himingeiminn og gekk allt að óskum. Tvívegis undanfarna daga hef- ur orðið að fresta ferð Discovery út í geiminn vegna óhagstæðra veðurskilyrða á Kanaveralhöfða í Flórida. Stjórnandi geimferjunnar er Thomas K. Mattingly, sem er höfuðsmaður í sjóhernum, en hann stjórnaði annarri ferð Dis- covery árið 1982 og var að auki í geimfari því, sem fór umhverfis tunglið 1972. Colombía: Fjörutíu fórust í flugslysum Bogota. ( olombíu, 24. janúar. AP. TALIÐ er að fjörtíu manns hafi látið lífið í tveimur flugslysum í Colombíu í gær. Þegar síðast fréttist höfðu sveitir björgunarmanna komist að hvorugu flugvélaflakanna, en flugmálayfirvöld töldu samt fullvíst, að enginn hefði lifað slysin af. í annarri vélinni, sem fórst í vonskuveðri í háfjöllunum í norðvesturhluta landsins, voru 23 manns. í hinni, sem hrapaði skammt frá Cali, þriðju stærstu borg Colombíu, voru 17 manns. Ekkert er enn vitað um orsakir flugslysa þessara.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.