Morgunblaðið - 25.01.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.01.1985, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 1985 Bifreiðin enn ófundin ÞRÁTT fyrir víðtæka leit að bifreið- inni X-5571, bæði úr lofti og á landi, hefur ekkert til bennar spurst. Bif- reiðin hefur verið týnd frá því um hádegisbil á sunnudag. Auglýst var eftir henni í blöðum og útvarpi í gær. Bifreiðin er Willys-jeepster jeppi, ár- gerð 1967, blágrá að lit með svörtum toppi. Þeir sem kunna að hafa orðið bifreiðarinnar varir vinsamlega láti lögregluna vita. Vínartón- leikar Sin- fóníunnar HINIR árlegu Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands verða í Háskólabíói á morgun, laugardaginn 26. jan., og hefjast þeir að þessu sinni kl. 17.00. A efnisskránni eru atriði úr ýms- um óperettum eftir Johann Strauss og Franz Lehár. Stjórn- andi er Páll P. Pálsson og ein- söngvari á tónleikunum er aust- urríski tenórsöngvarinn Michael Pabst. ■, 'm Morgunblaðið/Bjarni. SINUBRUNAR í GÓÐVIÐRINU Slökkviliðið var í vikunni kallað út vegna sinubruna. Nokkuð hefur borið á því, að börn hafi kveikt sinu nú í góðviðrinu. Einn slíkur bruni varð inn við Álfheima á miðvikudag. Mikinn reyk lagði yfir nágrennið. Formaður Alþýðuflokksins á fundi formanna á Norðurlöndum: 1 frétt frá Sinfóníuhljómsveit fslands segir um Pabst: „Hann hefur starfað við Borgarleikhúsið í Augsburg og frá 1983 við Volks- oper í Vín. Hann starfaði við óper- una í Barcelona 1982 og hefur á síðustu árum tekið þátt í mörgum tónlistarhátíðum. I fyrra kom hann fram á hinni frægu Wagn- er-hátíð í Bayreuth og er ráðinn þangað aftur nú í sumar. Á þessu ári er hann einnig ráðinn til starfa í Strassbourg og r Houston í Tex- as. Meðal hlutverka hans eru aðal- tenórhlutverkin í jafnólikum verkum og „Seldu brúðinni" eftir Smetana, „Lohengrin" eftir Wagner, „Der Freischútz" eftir Weber og „Sígaunabaróninum" eftir Richard Strauss." Tölvukaup grunnskólanna: Engin ákvörð- un um að kaupa ekki Apple segir Grímur Laxdal framkvæmdastjóri í Radíóbúðinni „ÞAÐ er ekki rétt eins og gefið er í skyn í viðskipta- blaði Morgunblaðsins á fimmtudag, að í grunnskól- um Akureyrar hafi verið horf- ið frá því, að kaupa Apple- tölvur, en þess í stað BBC-tölvur. Það hefur engin ákvörðun um tölvuval verið tekin enn,“ sagði Grímur Laxdal, framkvæmdastjóri Radíóbúðarinnar í samtali við Morgunblaðið. Grímur sagði staðreynd málsins þá, að ekki hefði verið mörkuð nein stefna í tölvu- kaupum fyrir grunnskólana og því engin ein tegund enn tekin fram yfir aðra. Auk þess væri það ekki rétt, að Innkaupastofnun ríkisins hefði markað þessa tölvu- stefnu. Það hefði verið menntamálaráðuneytið, sem það hefði gert. Innkaupa- stofnun væri hins vegar sá aðili, sem sæi um viðskipta- hliðina. Á móti tillögu um kjarnorku- vopnalaust svæði á Norðurlöndum JÓN BALDVIN Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins lýsti yfir andstöðu við tillögu Ankers Jörgensen formanns Jafnaðarmannaflokks Danmerkur á fundi jafnaðarmannaflokka á Norðurlöndum, sem haldinn var í Osló 16. og 17 janúar sl. Tillaga Jörgensen, sem er leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Dan- mörku, var m.a. þess efnis, að komið yrði á fót kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum og að lýst yrði yfir stuðningi við tillögu svokallaðra Palme- nefndar um kjarnorkuvopnalaust belti í Mið-Evrópu, að sögn Jóns Baldvins. Niðurstaða málsins varð sú, einnig að sögn Jóns Baldvins, að Gro Harlem Brundtland formaður Norska Verkmannaflokksins, sem var gestgjafi fundar- ins, lagði til málamiðlun, sem samþykkt var á fundinum. Auk stefnuyfirlýsingar um skilgreiningu efnahagsmálastefnu jafnaðarmanna á Norðurlöndum var umrædd tillaga Ankers Jörg- ensen formanns danska Jafnað- armannaflokksins til umræðu. Um hana sagði Jón Baldvn í viðtali við blm. Mbl.: „Hún var þess efnis, að leiðtogar jafnaðarmannaflokka Norðurlanda lýstu yfir, fyrir hönd flokka sinna, stuðningi við þá hugmynd að stofna kjarnorku- vopna laust svæði á Norðurlöndum og stuðningi við tillögu Palme- nefndarinnar um Evrópu. Jafn- framt var áskorun á ríkisstjórnir Norðurlanda um að hrinda þessari hugmynd einhliða í framkvæmd. Ég lýsti því yfir fyrir hönd jafnað- armanna á íslandi að þessa hug- mynd gætum við ekki samþykkt." Jón sagði, að rökstuðningur sinn fyrir mótmælunum gegn tillögunni heföi verið sá að benda í fyrsta lagi á að þrjú Norðurlandanna væru að- ilar að Atlantshafsbandalaginu. í annan stað væru 85% íslendinga þeirrar skoðunar að aðild að Atl- antshafsbandalaglnu væri grund- völlur að öryggis8tefnu íslands. Þriðja atriðið sem hann sagðist hafa bent á væri sú staðreynd, að þrjú Norðurlandanna hefðu með aðild sinni að Atlanshafsbandalag- inu kosið að tryggja öryggi sitt með aðild að varnarbandalagi vest- rænna lýrðæðisríkja, en hin tvö, Finnland og Svíþjóð, teldu sig hlutlaus. Jón Baldvin sagði ennfremur: „Ég sagði þvínæst: Ef við erum í varnarbandalagi, sem hefur ákveðna varnarðétlun þá eigum við sem erum í Atlantshafsbandalag- inu að taka hugmyndir sem þessar upp innan þess og svara um leið þeirri spurningu, hvað ætti að koma í staðinn. Þar að auki sagði ég, að íslendingar tækju aðild sína að Atlantshafsbandalaginu alvar- lega og að við værum andvig slík- um einhliða yfirlýsingum, án sam- ráðs við samstarfsaðila. Við teldum einnig tillöguna í lausu lofti og merkingarlausa nema því aðeins að hún væri liður í gangkvæmum samningum milli Atlantshafs- bandalagsins annars vegar og Varsjárbandalagsins hins vegar um gagnkvæma samning um af- vopnun í Vestur-Evrópu. Að lokum benti ég á, að það væru engin kjarnavopn á Norðurlöndum og engar áætlanir um að þeim yrði komið þar fyrir, utan einnar und- antekningar, en samkvæmt upplýs- ingum sænskra og norskra hernað- aryfirvald hefðu Sovétríkin hvað Vinsældalisti rasar 2: WHAM! heldur sínu striki HUÓMSVEITIN Wham! vermir enn fyrsta sæti vinsældalista rásar 2 og litlar hreyfingar eru á listanum, enda tiltölulega lítið framboð á nýrri frambærilegri rokktónlist um þessar mundir, ísiensku sveitirnar Grafík og Stuðmenn halda sínu striki og báðar hafa þær þokast upp listann, Grafík úr 4. í 3. sæti og Stuðmenn úr 6. í 5. sæti. Vinsældalistinn iítur ann- ars svona út: 1.(1) Everything She Wants — Wham! 2. ( 2) Sex Crime — Eurythmics 3. ( 4) Húsið og ég — Grafík 4. ( 6) Búkadú — Stuðmenn 5. ( 5) „16“ - Grafík 6. ( 3) One Night in Bangkok — Murray Head 7. ( 7) Heartbeat — Wham! 8. (11) Like a Virgin — Madonna 9. ( 8) Love is Love — Culture Club 10. (13) Easy Lover — Philip Baily eftir annað brotið alþjóðasam- skiptareglur og reyndar landhelgi þessara ríkja með þvi að vera með kjarnorkuvopn innanborðs í kjarn- orkukafbátum uppi í kálgörðum í Svíþjóð.” Jón Baldvin sagði að lokum, að niðurstaða málsins hefði orðið sú, eftir nokkurt fundarhlé, að gest- gjafi fundarins, Bruntland, hefði beitt sér fyrir málamiðlun á þá leið, að lýst yrði yfir stuðningi við hugmyndir um gagnkvæmt sam- komulag milli austurs og vestur um afvopnun og lækkun spennu í V-Evrópu og að fullt tillit yrði tek- ið til ólíkra aðstæðna Noðurlanda. Blásarakvintettinn frá Falun í Svfþjóð leikur á fyrstu tónleikum Myrkra músíkdaga í Norræna húsinu nk. laugardag. Myrkir músíkdagar hefj- ast með hækkandi sól Myrkir músíkdagar hefjast á morgun, laugardag, og standa til 10. febrúar. Það er Tónskáldafélag íslands sem stendur að Myrkum músík- dögum í samvinnu við flytjendur Háskólatónleika, menntamála- ráðuneyti og Reykjavíkurborg. Samtímis músíkdögunum verður sýning á handritum úr fórum ís- iensku tónverkamiðstöðvarinnar á Kjarvalsstöðum dagana 2. til 10. febrúar. Á fyrsta degi leikur Blásara- kvintettinn frá Falun í Svíþjóð í Norræna húsinu klukkan 17.00. Blásarakvintettinn frá Falun var stofnaður árið 1976 og að sögn aðstandenda Myrkra músíkdaga hefur hann þegar unnið sér sess sem einn fremsti blásarakvintett á Norðurlöndum. Á efnisskránni á laugardaginn verða blásarakvintettar eftir Joonas Kokkonen, Leif Þórarins- son og Hans Holewa, sonata fyrir einleiksflautu eftir Carin Malm- löf-Forssling og verkið Déja Connu — Déja Entendu eftir Bo Nilsson. Næstu tónleikar músíkdagana þar á eftir verða laugardaginn 2. febrúar kl. 17.00 í Bústaðakirkju, en þar leikur Strengjakvartett Guðnýjar Guðmundsdóttur. Síðan verða tónleikar sunnu- daginn 3. febrúar, miðvikudaginn 6. febrúar og sunnudaginn 10. febrúar. Auk þess verða frum- flutt verk eftir tvö íslensk tón- skáld. Fiðlukonsert eftir Hafliða Hallgrímsson verður frumfluttur á kammertónleikum Sinfóníu- hljómsveitar íslands 31. janúar og sellókonsert Jóns Ásgeirsson- ar á áskriftartónleikum Sinfóníu- hljómsveitarinnar fimmtudaginn 7. febrúar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.