Morgunblaðið - 25.01.1985, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1985
Jarðskjálfta-
hætta á Ítalíu
ristoia, ttalíu, 24. janúar. Al'.
YFIR 100.000 manns í 14 þorpum í
Apponnínafjöllum flúðu skelfingu
lostnir af heimilum sínum í dag, eft-
ir að almannavarnir á Ítalíu höfðu
varað við því að stór jarðskjálfti
kynni að vera yfirvofandi. Miklir
skjálftar eru tíðir á þessum slóðum
og er verið að gera ráðstafanir að
koma skyndiþaki yfir höfuð fólksins,
en því hefur verið ráðlagt að vera á
varðbergi næstu 2—3 sólarhringa.
Jarðfræðistofnun ftalíu mældi
miðlungskippi á þessum slóðum í
nótt og að fenginni reynslu er slíkt
oft undanfari mikilla jarðskjáifta
i þessum fjöllum. Telja jarðfræð-
ingar að sá stóri muni koma á
næstu 2—3 sólarhringum ef hann
kemur á annað borð. Stærstu
kippirnir í nótt og morgun voru 5
og 6 stig á svokallaðan Mercally-
skala, en samsvarandi tölur á
Richter-kvarða eru heldur lægri.
Björguðu mannlausu
skipi á Norðursjó
Kaupmannahöfn, 24. janúar. AP.
TÆPLEGA 600 tonna norskt strand-
ferðaskip, Habe, sigldi með mikla
slagsíðu um Norðursjó í nokkrar
klukkustundir í gær, miðvikudag,
eftir að áhöfninni hafði verið bjarg-
að um borð í þyrlu, að sögn vakthaf-
andi starfsmanns í miðstöð sjóslysa-
varna í Danmörku.
„Sem betur fer varð vélin elds-
neytislaus," sagði hann.
Habe var á leið til Noregs með
járnfarm frá Danmörku, þegar
slagsíða kom á skipið. Var kallað
eftir aðstoð, þegar skipið var statt
um 22 sjómílur vestur af Hirts-
hals, sem er á norðvesturströnd
Danmerkur.
Sjóslysavarnirnar sáu svo um,
að björgunarskipið Nordjylland
var sent af stað frá Hirtshals, en
þegar það var komið hálfa leiðina,
hafði áhöfninni á Habe að eigin
ósk verið bjargað um borð í
danska björgunarþyrlu, sem kom-
in var á vettvang, að sögn
starfsmanns björgunarmiðstöðv-
arinnar.
Ham hafði hins vegar ekki
hugmynd um, hvers vegna Norð-
mennirnir drápu ekki á vélinni,
áður en þeir yfirgáfu skipið. Mátti
björgunarskipið Nordjylland elta
Habe mannlaust í u.þ.b. tvær
klukkustundir, áður en eldsneytið
gekk til þurrðar og unnt var að
taka skipið í tog.
Var Habe dregið til hafnar í
Skagen, sem er nyrst á Jótlands-
skaga.
Sprenging í Boeing-þotu
Ij» l*az, Bólivíu, 24. janúar. AP.
SPRENGJA sprakk á salerni aftast í
Boeing 727-farþegaþotu sem var í
áætlunarflugi milli La Paz og Miami
í Flórída í dag. Einn farþegi lét lífid
og leikur grunur á því að það hafi
verið sjálfur sprengjuburðarmaður-
inn. Flugmanninum tókst að lenda
þotunni þrátt fyrir að miklar
skemmdir hafi orðið í afturhluta
hennar af völdum sprengjunnar.
Sprengingin varð er aðeins
fimm mínútur voru í lendingu og
farþeginn sem lét lífið hafði farið
inn á salernið um það bil fimm
mínútum áður og hafði hann litla
ferðatösku undir höndum. Það
leikur því grunur á því að hann
hafi ætlað að fremja hryðjuverk,
en hvort hann ætlaði að fórna
sjálfum sér í leiðinni eða að
sprengjan sprakk af slysni er ekki
vitað. Það er líka verið að athuga
Möguleikann á því að sprengjunni
hafi verið komið fyrir áður og far-
þeginn verið hreinlega það ólán-
samur að vera á staðnum er hún
sprakk.
Lávarðadeildin brezk
útgáfa af „Dynasty"
segir blaðið Times í London
LoDdon, 24. janúar. AP.
HIÐ sögulega upphaf á beinum
sjónvarpsútsendingum frá lávarða-
deild brezka þingsins fékk yfirlcitt
lélegar undirtektir í brezkum blöð-
um í dag. Kölluðu sum Lundúna-
blöðin þetta sérvitra „sápuóperu",
sem lofaði engu góðu um fram-
haldið.
Blaöið Times í London lýsti
útsendingunni sem brezkri út-
gáfu af sjónvarpsmyndaflokkn-
um „Dynasty" með „mjög mörg-
um skapgerðarleikurum. En
söguþráðurinn var bæði laus í
reipum og hlykkjóttur", segir
blaðið.
Blað kommúnista, Morning
Star, tók svipaða afstöðu og kall-
aði útsendinguna „sápuóperu
með uppgjafaleikurum“. Blaðið
Daily Express, sem er hægri
sinnað, komst svo að orði: „Sjón-
varpsvélarnar voru á röngum
stað. Það sem máli skiptir, fer
fram í Neðri málstofunni."
Blaðið Financial Times, helzta
fjármálablað Bretlands, var hins
vegar á annarri skoðun og hrós-
aði útsendingunni: „Utsendingin
í gær leiddi í ljós, að áhorfendur
hafa engu að tapa heldur allt að
vinna með þessari nýjung."
Talið er, að allt að 2 millj.
áhorfenda hafi fylgzt með út-
sendingunni í sjónvarpi.
Lögreglan leitar ræn-
ingja hins unga Springer
ZUrich, 24. janúar. AP.
ALLT ER á huldu um eðli hvarfs
hins 19 ára gamla Sven Axel Spring-
er, sonarsonar blaðakóngsins vest-
ur-þýska, Axel Springer, en hann
kom í leitirnar í nótt eftir að hafa
verið saknað í þrjá daga. Óljósar
fregnir bárust um að honum hefði
verið rænt og mikils lausnargjalds
Var Mengele handtek-
inn í Vínarborg 1947?
krafist, en svissneska lögreglan hef-
ur hafið leit að óþekktum ræningj-
um. Axel Springer neitaði því af-
dráttarlaust að nokkuð lausnargjald
hefði verið reitt af hendi.
Sven Axel hvarf frá heimavist-
arskóla sem hann hefur stundað
nám við í Ziirich og var málið allt
hið loðnasta þegar í stað. Það
vakti ekki minni athygli, að dag-
blaðið Bild, sem er augasteinn Ax-
el Springer með 5,5 milljón ein-
taka upplag, greindi frá hvarfi
piltsins inni í blaði og ekki með
neinum sérstökum uppslætti, á
sama tíma og öll dagblöð Vestur-
Þýskalands slógu málinu upp á út-
síðum, meira að segja hin íhalds-
samari blöð. Þótti umfjöllun Bild
gefa til kynna að Sven Axel hefði
ekki verið rænt þrátt fyrir allt en
á móti komu aðgerðir lögreglunn-
ar sem telur einhverjar líkur á því
að piltinum hafi verið rænt.
Dagblað í Genf lét þó í ljós efa og
ritaði m.a. eftirfarandi um málið:
„Var Sven Axel í raun og veru
rænt, eða var þetta einfaldlega
ríki strákurinn orðinn dauðleiður
á heimavistarskóla sínum?"
New York, 23. janúar. AP.
Kínverjar setja lög um
loft- og hljóðmengun
l’eking, 24. janúnr. AP.
STrOFNIIN Simons Wiesenthal í
Los Angeles segir að nýfundin
skjöl gefi til kynna að foringjar úr
handarísku leyniþjónustunni hafi
handtekið stríðsglæpamanninn
Josef Mengele, yfirheyrt hann og
sleppt honum síðan í Vín 1947.
Samkvæmt öðru skjali, sem
stofnunin birti, virðist Mengele
hafa sótt um kanadískan ríkis-
borgararétt 1962.
Mengele, sem stjórnaði fanga-
búðunum í Auschwitz og hefur
verið sakaður um að bera ábyrgð
á dauði 400.000 manna, mun
hafa sézt síðast í Paraguay á síð-
asta áratug. Stjórn landsins
neitar því að hann sé þar, en
frönsku „nazistaveiðararnir"
Serge og Beate Klarsfeld, sem
áttu þátt I handtöku nazistans
Klaus Barbies, telja að hann sé
þar enn.
Fyrra skjalið er bréf dagsett
26. apríl 1947 frá fyrrverandi
foringja úr leyniþjónustu banda-
ríska landhersins, Ben J.M.
Gorby, til yfirmanns gagn-
njósnaþjónustudeildar hersins í
Vín.
Gorby sagði að komið hefði
fram í yfirheyrslum að Mengele
hefði verið handtekinn I Vín að
því er Gyðingapresturinn Marv-
in Hier skýrði frá á blaða-
mannafundi á Manhattan. En
hann sagði að ekki hefðu fundizt
önnur skjöl, sem sönnuðu yfir-
lýsingu Gorbys. Tilraunir til að
finna Gorby hafa ekki borið
árangur.
Síðara skjalið var bandarískt
svar við kanadískri fyrirspurn
um mann að nafni Josef Menke,
sem hafði sent umsókn um
kanadíska vegabréfsáritun frá
Buenos Aires.
Hier sagði að í svarinu hefði
komið fram að Bandaríkjamenn
hefðu talið að „Josef Menke væri
hinn illræmdi dr. Josef Meng-
ele“. Hann sagði að ekki hefði
fundizt nokkur vísbending um
hvort Mengele hefði fengið að
koma til Kanada eða ekki.
Forsætisráðherra Kanada,
Brian Mulrooney, sagði í bréfi til
stofnunarinnar að rannsókn
væri hafin í málinu. Hier harm-
aði að Bandaríkjastjórn hefði
ekki farið að dæmi kanadísku
stjórnarinnar.
Kínverjar hyggjast setja lög til
höfuðs loft- og hljóðmengun og eiga
þau að ganga í gildi þegar á þessu
ári. Eru þau liður í víðtækri um-
hverfisverndarbaráttu þeirra, að því
er fram kemur í dag í dagblaði því
sem hið opinbera gefur út á ensku.
Blaðið hefur eftir Xu Hongtao
hjá umhverfisvarnarráði ríkisins,
að Kínverjar verði að „læra sína
lexíu af Bhopal-slysinu" á Ind-
landi.
Verksmiðjur sem losa sig við
mengunarvaidandi efni munu
verða látnar sæta þungum sekt-
um, að sögn Xu Hongtaos. „Núver-
andi sektir eru svo lágar, að það er
ekkert aðhald í þeim,“ sagöi hann.
Kínverjar hafa þegar sett lög
um verndun vatns og sjávar og
hafa í undirbúningi lagasetningu
um geislavirk efni og verndun
villtrar náttúru.
Hin opinbera Xinhua-frétta-
stofa sagði að á síðasta ári hefðu
verið höfð afskipti af 150 aðilum í
22 héruðum, þar sem talin var
hætta á mengun. Einnig voru 30
ár og vötn hreinsuð af mengun.