Morgunblaðið - 26.01.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.01.1985, Blaðsíða 1
21. tbl. 72. árg. Noregur. Sjö erlend bankaútibú Osló, 25. janúir. AP. NORSKA stjórnin veitti í dag þremur bandarískum, einum brezkum og þremur frönskum bönkum heimild til þess að stofna útibú í Noregi. Bandarísku bankarnir eru Chase Manhattan, Cit.vbank og Manufact- urers Hanover Trust, sem allir hafa aðsetur í New York. Brezki bankinn er Samuel Montagu Co. í London. Einn franskur banki, Banque Paribas, fékk heimild til þess að stofna sjálfstætt útibú, en hinir frönsku bankarnir tveir, Banque Indosuez og Banque Nationale de Paris, hyggjast stofna útibú í sam- vinnu við norsku bankana Roga- landsbanken í Stafangri og For- retningsbanken í Þrándheimi. Munu norsku bankarnir tveir eiga 20% í þessum útibúum. Öll bankaútibúin verða í Osló. Þrír sænskir bankar höfðu einnig sótt um heimild til þess að opna útibú í Osló, en þeim var neitað á þeim forsendum, að norskum bönk- um væri ekki leyft að setja upp úti- bú í Svíþjóð. Chernenko er veikur Bonn 08 Moskvu. 25. jnnúar. AP. HÁTTSinTlR sovéskir embætt- ismenn hafa staðfest, að Konst- antin ('hernenko, forseti Sovét- ríkjanna, sem ekki hefur sést opinberlega í fjórar vikur, sé veik- ur, að því er vestrænn stjórnarer- indreki, sem ekki vill láta nafns síns getið, skýrði AP-fréttastof- unni frá í dag. Stjórnarerindrekinn sagði, að sovésku embættismennina hefði hins vegar greint á um eðli veik- inda forsetans. Sumir töluðu um lungnaþembu, aðrir um heila- blæðingu. Hann sagði að svo virtist, sem þeir teldu allir að veikindi hans væru alvarieg. Samtímis því, að þessar fregnir bárust frá Moskvu, var frá því greint í höfuðstöðvum Jafnaðarmannaflokksins í V-Þýskalandi, að sovésk stjórn- völd hefðu tilkynnt að heimsókn Willy Brandt, formanns flokks- ins, til Sovétríkjanna, hefði ver- ið frestað um óákveðinn tíma. Fyrirhugað var að Brandt yrði í Moskvu 14.—16. febrúar nk. Konstantin Chernenko, sem er 73 ára að aldri, sást síðast opinberlega 27. desember sl. Hann átti að sitja fund leiðtoga Varsjárbandalagsrikja í Sofiu I síðustu viku, en fundinum var óvænt frestað og hefur það gefið vangaveltum um heilsu forset- ans byr undir báða vængi. 48 SÍÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ 1913 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Mikið orð fer af „Bláa lóninu“ sem heilsulind og njóta þar margir baða. Þessa mynd tók Ijósmynd- ari Morgunblaðsins, Friðþjófur Helgason, af þremur ungum stúlkum, sem voru að baða sig í lóninu. Styttist f lok brezka kolaverkfallsins: Oformlegar viðræður boðaðar í næstu viku London, 25. jiiúir. AP. LEIÐTOGAR sambands námaverkamanna í Bretiandi og stjórn ríkisreknu koianámanna þar í landi ætla að halda með sér „óform- legar viðræður" í næstu viku um að binda endi á námaverkfailið, sem staðið hefur í 10 mánuði. Michael Eaton, talsmaður stjórnar kolanámanna, sagði í dag, að þessar viðræður myndu fara fram á þriðjudag. „Við höf- um brugðizt jákvætt við bréfi því, sem við fengum frá sambandi námaverkamanna, þar sem rætt er um, að fram fari óformlegar viðræður um fyrirkomulag frek- ari samningaviðræðna," sagði Eaton. Arthur Scargill, forseti sam- Botha sagði þetta í ávarpi, sem hann flutti á fyrsta fundi nýkjör- ins þings. Mælti hann þar með því, að svonefnd lög um „hömlur við fólksflutningum" yrðu milduð, en þau koma í veg fyrir að blökku- menn flytjist frá fátækum heima- héruðum sínum og setjist að í bands námamanna, sagði i stuttri yfirlýsingu í dag, að ákveðið hefði verið að taka boði stjórnar kola- námanna um viðræður. Aðal deiluefnið er þó óleyst. Samband námamanna neitar al- farið þeirri kröfu Margaret Thatcher forsætisráðherra, að áður en nýjar viðræður hefjist í alvöru, viðurkenni sambandið skriflega þá grundvallarreglu, að grennd við borgir hvítra manna til að leita sér þar að atvinnu. Jafn- framt yrðu stjórnvöld að leita samkomulags við blökkumenn um jafn mikilvæg réttindi og ríkis- borgararétt í landinu. Forsetinn útskýrði ekki tillögur sínar í einstökum atriðum. Hann óarðbærum námum skuli lokað. Er þessi krafa talin sýna tor- tryggni stjórnarinnar um að Scargill hyggist notfæra sér þess- ar viðræður tii þess eins að fá námamenn tii að hætta við að snúa til vinnu. Neil Kinnock, leiðtogi Verka- mannaflokksins, gagnrýndi Thatcher í dag og sagði, að þessi krafa hennar nyti ekki stuðnings, enda markmiðið eingöngu að auð- mýkja samband námamanna sem mest. Flest brezk blöð spáðu því hins vegar í dag, að nú færi að styttast kvaðst vera reiöubúinn til að ræða um möguleg eignarréttindi blökkumanna á fasteignum í að- skildum hverfum, sem væru þó í grennd við borgir hvítra manna. Það yrði fyrsta útfærslan á eign- arréttindum blökkumanna i land- inu allt frá árinu 1913, er þeim var meinað að eignast iand utan heimahéraða sinna. Sjá ummæli Desmond Tutus á bls. 20. í lok verkfallsins. Stjórn kola- námanna tilkynnti að 3.385 verk- fallsmenn hefðu snúið til vinnu í þessari viku og væri því fjöldi þeirra í þessum mánuði orðinn 9.332. Pólsku réttarhöldin: Kvikmynd sýnd af líkinu Torun, 25. janúnr. AP. í réttarhöldunum vegna morðsins á pólska prestinum Jerzy Popieluszko var í dag sýnd kvikmynd af líki hans aöeins nokkrum sekúndum eftir að kafarar höfðu náð því á land úr Vislufljóti. Sýningartími myndarinnar, sein er svart-hvít, var um 30 mínútur og var hún sýnd af hálfu ákæruvaldsins sem sönnunargagn um ástand líks- ins, er það fannst 11 dögum eftir að því hafði verið varpað i vatnið. Myndin sýndi Popieluszko enn í svartri prestshempu sinni, en iíkami hans var stífur og hnén beygð sökum kaðals, sem bundinn var um fæturna en síöan festur með snöru um hálsinn. Poki með grjóti til þess að sökkva líkinu var bundinn við fætur þess. Botha, forseti Suður-Afríku: Blökkumenn fái auk- in áhrif og réttindi Höftaborg, 25. janúar. AP. P.W. BOTHA, forseti Suður-Afríku, sagdi í dag að stjómvöid þar yrðu ad auka áhrif og réttindi blökkumanna í landinu . Tilgreindi hann sem ástæður óeirðir blökkumanna víðs vegar um landið að undanförnu og vaxandi mót- mælaöldu gegu Suöur-Afríku erlendis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.