Morgunblaðið - 02.02.1985, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1985
45
Óborganlegt tríó; Eddie Murphie, Jamie Lee Curtis og Dan Aykroyd í Vistaskiptum.
AÐ EIGA — EÐA EIGA EKKI
Kvíkmyndír
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó: Vistaskipti (Trading
Places)*#*
Leikstjóri: John Landis. Handrit:
Timothy Harris og Herschel
Weingro. Kvikmyndataka: Robert
Paynter. Tónlist: Elmer Bernstein.
Aðalhlutverk: Dan Aykroyd, Eddie
Murphy, Jamie Lee Curtis, Don
Araache, Ralph Bellamy, þá bregð-
ur fyrir nokkrum gamalkunnum
andlitum í smáhlutverkum, eins og
James Belushi, Frank Oz og Bo
Diddley. Bandarísk, frumsýnd
1983, frá Paramount Pictures.
Vistaskipti er ein af þessum vel
gerðu myndum sem halda manni
alsælum við efnið vegna snjalls
leiks og leikaravals i öllum hlut-
verkum, ágætra brandara með
ekki of löngu millibili, hraða og
yfirborðsfágunar. En svo þegar
upp er staðið, rennur það upp
fyrir manni að innihaldið var
reyndar ósköp lítið og vitlaust,
fljótlega gleymt og grafið. Þetta
kallast afbragðs afþreyingar-
myndir.
Efnisþráður Vistakipta er
harla snúinn og viðsjárvert að
reyna að endursegja hann í fáum
orðum. Hann er þó á þá leið að
tveir náungar, annar allslaus
„bísi“ (Eddie Murphy), hinn vel-
ættaður, snobbaður bisnissmað-
ur sem ekkert skortir (Dan
Aykroyd), verða leiksoppur hús-
bænda þess síðarnefnda, Duke-
bræðranna (Ralph Bellamy og
Don Amache), auðjöfra og
verstu skálka. Þeir veðja sem-
sagt einum dal um hvort erfðir
séu meiri örlagavaldur en um-
hverfi þegar um einstaklinga er
að ræða — og koma þvi þannig
fyrir að þeir Dan og Eddie skipta
um þjóðfélagsstöðu.
Framhaldið er margslungið en
þeir félagar ná loks fram hefnd-
um af engu síðri slægvisku en
þeim var sýnd.
Sem sagt púragrín og gaman
uppundir tvo tíma. Eins og fyrr
var getið er það leikurinn og
leikaravalið sem er aðal Vista-
skipta.Það er unun að sjá gömlu
kempurnar, Ralph Bellay og Don
Amache, fara á kostum og Den-
holm Elliott man ég ekki eftir að
hafi nokkurntíma brugðist.
Jamie Lee Curtis er magnaður
kvenmaður og undir æsilegu yf-
irborðinu er greind, fjölhæf
leikkona.
Dan Aykroyd hefur aldrei not-
ið sín betur, enda fær hann hér
rakið tækifæri til að sýna hvers
hann er megnugur. Það er sama
i hvaða kringumstæðum Louis
Winthorpe III lendir í, Aykroyd
klárar sig í hverju sem er með
frábæru fasi, svipbrigðum og
tímasetningu.
Eddie Murphy, að líkindum
vinsælasti leikarinn vestanhafs í
dag, dæmist þó aðalsenuþjófur-
inn. Með ólíkindum heillandi
leikari sem ræður yfir öllum
hugsanlegum aðstæðum. Hann
er ólýsanlegur, það þarf að sjá
hann, sjón er sögu ríkari.
tlNGO!
hefst kl. 13.30._
'____25 umferðir____
Verðmæti vinninga kr. 40 þús.
Hæsti vinningur kr. 15 þús.
TEMPLARAHÖLUN
EIRÍKSGÚTU 5 — SÍMI 20010
r
Heba heldur
vió heilsunni
Ný 4ra vikna námskeiö hefjast
4. febrúar.
í Hebu geta allar konur á öllum aldri
fundiö eitthvaö viö sitt hæfi.
Við bjóöum upp á:
Leikfimi, músikleikfimi, sána, Ijós, megrunarkúra,
nuddkúra — allt saman eöa sér.
Dag- og kvöldtimar 2, 3 og 4 sinnum i viku.
Innritun og tímapantanir í símum
42360 og 41309.
Heilsurœktin Heba
Audbrekku 14, Kópavogi.
Metsölublad á hvetjum degi!
HEIMIUS- OC RAFTÆUASÝNING
LAUCARDAC KL. 10 -17 — SUNNUDAC KL. 13 -17
Allt tílað auka ánægjuna af helmilishalðinu Allt tilað gera borðhaldið hátíðlegt
Hnífapör - Matarstell - Eldföst stálföt með silfuráferö - Dúkar - Bakkar - skrautkerti o.fl.
Allt vörur í hæsta gæöaflokki
frá heimsþekktum framleiðendum
HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD
IhIHEKIAHF
J LAUGAVEGI 170 -172 SÍMAR 11687 • 21240
Pottar - Pönnur — Lampar - kafflkönnur — Teborð o.fl.
Allt sem léttir hússtörfin
Hrærivélar - Kæliskápar - uppþvottavélar - Djúpsteikingapottar - Brauöristar -
Rafmagnskjöthnífar - Taupurrkarar - Þvottavélar - Sorpkvarnir - straujárn - Hárpurrkur o.fl.