Morgunblaðið - 07.02.1985, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1985
Ráðstefna um flogaveiki
ÞANN 26. janúar síðastliðinn var haldin
ráðstefna á vegum Landssamtaka
áhugafólks um flogaveiki (LAUF) sem
stofnuð voru 31. mars 1984. Ráðstefn-
una sóttu um 150 manns, flogaveikir,
aðstandendur og annað áhugafólk.
Ráöstefnan hófst á ávarpi setts
landlæknis, Guðjóns Magnússonar en
þar kom m.a. fram að mikilvægt væri
að samtökin ynnu gegn fordómum í
garð flogaveikra.
Framsöguerindi fluttu prófessor
dr. med. Gunnar Guömundsson, Pét-
ur Lúðviksson, barnasérfræðingur í
taugasjúkdómum, Magnús Jóhanns-
Forsætisráðherra íslands, Stein-
grími Hermannssyni, hefur verið af-
hent eftirfarandi bænaskrá, undirrit-
uð af 107 íbúum við Þistilfjörö:
„Samviska okkar, sem ritum
nöfn okkar á þessa bænaskrá,
neyðir okkur til að mótmæla
framkomnum hugmyndum um
byggingu ratsjárstöðvar á Langa-
nesi vegna þess m.a. að við erum
þeirrar skoðunar að þær auki á þá
vígvæðingu þjóðanna sem stefnir
jarðarbyggð í geigvænlega hættu.
Við álítum að voðinn felist ekki
einungis í beitingu vígbúnaðarins,
heldur ali tilvist hans jafnframt á
tortryggni, ótta og hatri, og við
óttumst að fjárfestingar í um-
ræddum stöðvum hér á landi kalli
á fjárfrekar mótframkvæmdir
annars staðar. Slíka sjálfvirkni sí-
aukins vígbúnaðar ber að stöðva.
Því verða góðviljaðir menn nú að
son dósent og Þórey Ólafsdóttir, fé-
lagsráðgjafi. í framsöguerindunum
kom m.a. fram að vitað er með vissu
um að minnsta kosti 1.400 flogaveika
hérlendis og árlega greinast um
50—70 tilfelli. Flogaveiki má í grófum
dráttum flokka í tvennt: Meiriháttar
flogaveiki (grand mal) og minnihátt-
ar flogaveiki (petit mal) og afbrigði
þeirra. Fjallað var um flogaveiki
meðal barna, unglinga og fullorðinna
og lyfjameðferð við flogaveiki. í 65%
tilvika eru orsakir ókunnar en alloft
er hægt að halda flogaveikinni niðri
og er lyfjameðferð mest notuð. Bestar
einsetja sér að snúa farnaði ver-
aldar af þessari braut.
Við getum ekki varið fyrir sam-
visku okkar að frekara fjármagni
verði varið til vígbúnaðar meðan
sultur og vannæringarsjúkdómar
hrjá hálft mannkynið.
Jafnframt óttumst við að bygg-
ing þessarar umræddu stöðvar
geri heimabyggð okkar að skot-
marki í hugsanlegum hernaðar-
átökum.
En hvað viðvíkur öryggi ís-
lenskra loft- og sæfarenda, sem að
hefur verið vikið í þessu sam-
bandi, þá teljum við að okkur beri
að tryggja það sjálf.
Við berum því fram þá bæn við
ríkisstjórn íslands, að hún leyfi
ekki uppsetningu umræddrar
ratsjárstöðvar á Langanesi, eða
annars staðar á landinu."
(FréttatilkynninK)
horfur eru taldar vera hjá þeim sem
fá meiriháttar krampa eingöngu.
Að loknum framsöguerindum voru
pallborðsumræður. Þar var svarað
spurningum ráðstefnugesta. Aðallega
var spurt um áhrif lyfja og aukaverk-
anir þeirra og í því sambandi hvort
nægjanlegt eftirlit væri haft með
lyfjagjöfum. Einnig snerist umræðan
m.a. um það hvernig vinna ætti að
bættri félagslegri þjónustu fyrir
flogaveika og markvissum stuðningi
við foreldra og aðra aðstandendur.
Aðal niðurstaða ráðstefnunnar er
án efa sú að stórauka þarf fræðslu
fyrir flogaveika, aðstandendur og al-
menning. Eftirfarandi leiðbeiningar
við meiriháttar krömpum komu m.a.
fram á ráðstefnunni:
1. Verið róleg. Sá flogaveiki er
hvorki kvalinn né í lífshættu.
2. Reynið að hagræða einstaklingn-
um og losið um fatnað sem þrýstir
að hálsi. Verjið höfuðið gegn
höggum af völdum krampans.
3. Reynið ekki að troða neinu á milli
tanna hins flogaveika. Það gerir
ekkert gagn, getur fremur skaðað.
4. Reynið ekki að stöðva krampa eða
vekja einstaklinginn til meövit-
undar. Krampinn gengur yfir af
sjálfu sér.
5. Reynið ekki að gefa hinum floga-
veika að drekka.
6. Verið ekki hrædd við að snerta
fólk með krampa, flogaveikin er
ekki smitandi!
7. Þegar krampinn er yfirstaðinn
leggið þá einstaklinginn á aðra
hliðina með höfuðið lágt svo slím
geti runnið út úr munni hans.
8. Ekki er nauðsynlegt að kalla til
sjúkrabíl né lækni nema að
krampinn vari lengur en 5—6
mínútur eða að hann endurtaki
sig.
9. Dveljið hjá þeim flogaveika þar til
hann fær meðvitund og getur
bjargað sér sjálfur.
10. Spornið við óþarfa ágangi og for-
vitni fólks.
Þistilfjörður:
107 mótmæla 2
ratsjárstöðvum
Rex-Rotary
-7010-
Það er ekkert mál að finna smá pláss fyrir Rex-
Rotary 7010. Þessi litla en harðsnúna ljósritunarvél
er aðeins 24 cm á hæð og 47 cm á lengd. Hún annar
samt allri venjulegri ljósritun á örskömmum tíma.
Þú hlýtur að muna eftir Rex-Rotary, hún var í „öllum“
GÍSLI J. JOHNSEN
TÖLVUBÚNAÐUR SF - SKRIFSTOFUBÚNAÐUR SF
SMIÐJUVEGI 8 - P.O BOX 397 - 202 KÓPAVOGI - SlMI 73111
n i
skólum hér um árið.
i
CT.
c
i
kr.
59.300,-
Sigfús Halldórsson
,jSigfúsarkvöld“ á
Olafsfirði og Akureyri
NÚ UM helgina munu þau Sigfús
Halldórsson, Elín Sigurvinsdóttir
og Friðbjörn G. Jónsson leggja
land undir fót og fara í tónleika-
ferð til Ólafsfjarðar og Akureyrar,
og flytja „Ljúfustu lögin hans
Fúsa“ fyrir tónlistarfélögin þar.
Þau Elín og Friðbjörn munu ýmist
syngja dúett eða einsöng hvort í
sínu lagi við undirleik Sigfúsar.
Fyrri tónleikarnir verða á
Ólafsfirði laugardaginn 9. febrúar
kl. 20.30 og hinir síðari í Borgar-
bíói á Akureyri sunnudaginn 10.
febrúar kl. 15.00.
Athugasemd frá Kristjáni
Jónssyni vegna frá-
sagnar af landsfundi BJ
VEGNA frásagnar af landsfundi Bandalags jafnaöarmanna í Morgunblaðinu
í gær hefur Kristján Jónsson, sem hafði framsögu um utanrfkismál, haft
samband við Morgunblaðið vegna setningarinnar: „Vildi hann að íslend-
ingar tækju að sér þátt varnanna, að þeir kæmu upp eigin her...“
Kristján segist hafa varpað
fram spurningunni um meiri þátt-
töku íslendinga sjálfra í vörnum
landsins, en verið hefði og varpaði
fram spurningunni, hvers vegna
Islendingar vildu ekki bera vopn.
Síðan segist hann hafa sagt:
„Persónulega á ég erfitt með að
sjá fyrir mér þá mynd, að íslend-
ingar gangi bísperrtir um með
frethólka um öxl, en þetta atriði
er ekki fremur heilög kýr en ann-
að í varnarmálum okkar. Það er
sjálfsagt að athuga það til enda,
hvernig við verjum þessa afstöðu
— að bera ekki vopn, hvort til séu
röksemdir sem gera þessa afstöðu
sjálfsagða og eðlilega, t.d. fámenni
þjóðarinnar."
Volvo kynnir nýja „station“-bifreið
Ný gerð af „station“-bifreið, Volvo 760/740 GLE og turbo verður kynnt
á bflasýningum í Chicago og Toronto á næstunni. Sala þessara bifreiða
mun hefast í Bandaríkjunum og Kanada um miðjan aprfl nk. en árgerð
1985 af þessari gerð verður ekki seld utan þeirra. Volvo 240 „station“-
bifreiðirnar verða framleiddar áfram að minnsta kosti til loka þessa
áratugar.
Frumvarp Alþýðubandalagsins í húsnæðismálum:
Aflað verði 1400 mill-
jóna með veltuskatti
á banka og verslun
í GÆR VAR lagt fram á vegum Alþýðubandalagsins frumvarp til laga um
ráðstafanir í húsnæðismálum. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er
Steingrímur Sigfússon, en aðrir flutningsmenn eru Guðmundur J. Guð-
mundsson, Hjörleifur Guttormsson, Geir Gunnarsson og Svavar Gestsson.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
veitt verði lán sem dugi fyrir 75%
byggingarkostnaðar 1000 íbúða á
ári í fimm ár. Auk þess gerir
frumvarpið ráð fyrir að veitt verði
lán til þeirra sem hafa byggt eða
keypt síðustu árin, og eru að tapa
íbúðum sínum vegna kjaraskerð-
ingar og okurkjara á bankalánum,
eins og komist er að orði í frétt
þingflokks Alþýðubandalagsins.
Þar segir að gert sé ráð fyrir 800
lánum á ári — eða alls 4.000 lán-
um á tímabilinu — og að húsnæð-
ismálastjórn fái til ráðstöfunar í
þessu skyni um 400 milljónir á ári.
Jafnframt er gert ráð fyrir að
húsnæðissamvinnufélög fái fulla
aðild að húsnæðislánakerfinu með
nýju fjármagni að upphæð um 300
milljónir á ári.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
Byggingarsjóður verkamanna fái
sérstakt fjármagn, 100 milljónir
króna á ári, sem gangi til bygg-
ingar leiguhúsnæðis. Gerir frum-
varpið ráð fyrir að aflað verði
1.400 milljónum króna til Bygg-
ingarsjóðs ríkisins og Bygg-
ingarsjóðs verkamanna og að að-
altekjustofnar í þeim tilgangi
verði tímabundinn veltuskattur á
verslun, skipafélög og banka.