Morgunblaðið - 14.02.1985, Side 30
30
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1985
Hvernig starfar
Rauði krossinn?
Námsstefna Rauða kross ísiands um starf-
semi félagsins og alþjóðasamtakanna.
Laugardaginn 16. febrúar verður haldin náms-
stefna um starfsemi Rauða kross íslands á inn-
lendum og erlendum vettvangi og einnig verður
starf Alþjóðasamtaka Rauða krossins kynnt.
Tilgangurinn með þessari námsstefnu er að koma
til móts við þá sem vilja fræðast um Rauða kross-
inn og hina víðtæku starfsemi sem fram fer á
vegum félagsins og Alþjóðasamtakanna um allan
heim.
Rauöi krossinn er nú starfandi í 135 ríkjum heims
og eru félagsmenn um 250 milljónir.
Námsstefna RKÍ er öllum opin og er framhalds-
skólanemendum og kennurum sérstaklega bent á
þetta tækifæri.
Geta má þess að í vor verður námskeiö fyrir verð-
andi sendifulltrúa RKÍ og verður sagt frá því og
ýmsu öðru er varðar möguleika ungs fólks til
starfa í þróunarlöndunum. Þeir, sem hyggjast taka
þátt í námsstefnunni, veröa að tilkynna þátttöku til
aðalskrifstou Rauða kross islands í síma 26722.
Námsstefnan verður haldin að Nóatúni
21, kl. 14—18 laugardaginn 16. febrúar.
Dagskrá:
1. Yfirlit yfir starfsemi Rauöa krossins innan lands og utan. Jón Asgeirsson.
framkvæmdastjóri Rauða kross íslands.
2. Stofnun og saga Rauða krossins. Siguröur Magnússon fulitrúi RKi.
3. Með mannuö til friöar. Björn Friöfinnsson stjórnarmaöur RKi.
4. A Plea for Humanity. Kvikmynd.
5. Neyöarhjálp/þróunaraöstoö/fyrirbyggjandi aögerðir Jakobina Þóröar-
dóttir, deildarstjóri i alþjóöadeild RKi.
6. Fjármögnun startsins og nýting söfnunarfjár. Hannes Hauksson. deildar-
stjóri í fjármáladeild RKi.
7. Ungliðahreyfing RKÍ. Hólmfriöur Gisladóttir, deildarstjóri i fólags- og heil-
brigóismáladeild RKÍ.
8. Kynningarkvikmynd RKÍ.
9. Umræöur.
10. Námsstefnuslit.
ÞESSAR FALLECU
VARADEKKSHLÍFAR
FÁST HJÁ OKKUR
— þægilegar í notkun —
— veðrast ekki —
— auðvelt að hreinsa —
Víetnamar umkringja
vígi Rauða Khmera
Aranayaprathet, 13. febrúar. AP.
TÍU M SIIND víetnamskir hermenn sóttu í gær art varnarvirkjum Raurtra
Khmera í fjöllum Vestur-Kambódíu og eru nú í aðeins sex kflómetra fjarlægrt
frá þeim art sögn thailenzka hersins. Raurtu Khmerarnir svöruðu mert harrtri
fallbyssuskothrírt.
Tvö þúsund víetnamskir her-
menn sækja í átt til Phnom Malai
úr þremur áttum og reyna að inni-
króa skæruliða við thailenzku
landamærin. Víetnömsku her-
mennirnir, sem eru úr 7., 8. og 59.
herfylkinu, hafa umkringt stöðvar
skæruliða í Phnom Malai og Khao
Din.
Árásirnar stóðu í 12 tíma og
fylgdu í kjölfar óvenjulega harðr-
ar stórskotahríðar Vietnama. Hún
varð til þess að Rauðir Khmerar
hörfuðu úr nokkrum útvirkjum til
nálægra hæða. Árásirnar leiddu
til þess að a.m.k. 8.000 óbreyttir
borgarar neyddust til að flýja inn
í Thailand.
Tvö þúsund manna sóknarlið
Víetnama, sem svaraði ekki
skothríð Rauðu Khmeranna, sótti
til staðar, sem er 16 km suðaustur,
sjö km suður og sex km austur af
Phnom Malai.
Fjögur þúsund skæruliðar eru
til varnar í Phnom Malai og hafa
varið stöðina síðan 1981 þrátt
fyrir blóðugar árásir Víetnama.
Thailendingar segja að tilgang-
ur Víetnama sé að einangra aðal-
stöðvar Rauðra Khmera í Phnom
Malai, en skæruliðar hafi sýnt að
þeir muni berjast og ekki hörfa.
David Lange:
Staðfestir trygg-
lyndi Nýja-Sjálands
Sydney, ÁstraJíu, 12. febrúar. AF.
DAVID Lange, forsætisráðherra
Nýja-Sjálands, sagrti í samtali við
ástralska sjónvarpið í dag, að þrátt
fyrir að stjórn hans hefði bannart
kjarnorkuvopnuðum bandarískum
herskipum art leggjast að nýsjá-
lenskum höfnum, yrði landið aldrei
hlutlaust erta fráhverft vestrænni
samvinnu. „I>art yrrti kúvending og
ekki að skapi alls þorra almennings
í landinu," sagði Lange.
„Samband okkar við Vestur-
lönd, Bandaríkin og Ástralíu er
mjög náið og svo verður áfram,
það eru löndin sem við höfum allt-
af átt samleið með,“ sagði Lange.
Bann það sem hann setti á banda-
rísku herskipin kom á sama tíma
og Bob Hawke forsætisráðherra
Ástralíu var að undirbúa opinbera
heimsókn til Bandaríkjanna og
voru uppi vangaveltur um það
hvort Bandaríkin og Ástralía
myndu fordæma Nýja-Sjáland
fyrir viðhorf sitt og jafnvel hvort
hernaðarbandalagið „Anzus“
myndi leysast upp eða veikjast til
muna. Þeir Ronald Reagan Banda-
ríkjaforseti og Hawke fullvissuðu
hins vegar hvern sem vita vildi, að
Anzus væri síður en svo liðið und-
ir lok og engar ákvarðanir um
viðbrögð við viðhorfi Nýsjálend-
inga yrðu teknar fyrr en í júlí, er
ráðherrafundur Anzusríkjanna
yrði haldinn í Canberra í Ástralíu.
Sovétríkin hylltu mjög Lange
fyrir „dirfsku sína og ákveðni" á
dögunum, en um það sagði Lange:
„Ég tek nú ekki mikið mark á fólki
sem brosir við manni á einu sviði,
en grefur undan fótum manns á
öðrum." Hann bætti við að sann-
færing sín yrði alltaf hin sama,
öryggi Nýja Sjálands væri frekar
ógnað með tilvist kjarnorkuvopna
í landinu, þvi myndu stjórnvöld
koma í veg fyrir slíkt, „það skiptir
MARGARET Thatcher, forsætisrárt-
herra Breta, hefur sent forsætis-
rártherrum Norrturlanda bréf vegna
ályktunar, sem þeir gerrtu á fundi
sínum í Reykjavík í desember sl. um
afstörtu breskra stjórnvalda til aö-
gerrta gegn „súru regni“.
1 bréfinu segir Thatcher að hún
sé sammála norrænu forsætisráð-
herrunum um nauðsyn átaks, al-
þjóðlega og innan hvers þjóðríkis,
til að draga úr mengun andrúms-
loftsins. Bendir hún á, að Bretum
hafi orðið mikið ágengt á þessu
sviði heima fyrir.
Breski forsætisráðherrann segir
nauðsynlegt að hindra útrennsli
brennisteinsdíoxíðs og nituroxíðs
frá verksmiðjum og bifreiðum og
það sé stefna bresku ríkisstjórnar-
innar að draga úr þessari loft-
mengun um 30% fram til alda-
móta og er þá miðaö við ástandið
1980. Jafnframt verði lagt til at-
lögu við annars konar mengun
andrúmsloftsins. í því sambandi
bendir Margaret Thatcher á, að
nýlega ákvörðun Evrópubanda-
lagsins að setja blýlaust bensín á
í sjálfu sér litlu máli hverrar
þjóðar kjarnorkuvopn þurrka út
Nýja-Sjáland ef út í það fer,“
sagði Lange.
markað ekki síðar en 1989, megi
rekja til frumkvæðis Breta fyrir
einu og hálfu ári.
Loks segir í bréfinu að breska
ríkisstjórnin óski eftir að eiga hér
eftir sem hingað til náið samstarf
við ríkisstjórnir á Norðurlöndum
um baráttuna gegn loftmengun.
Ætluðu að
selja eld-
flaugakerfi
Los Angeles, 13. febrúar. AP.
Alríkisdómstóll lagrti í gær, þriðju-
dag, fram kærur á hendur fimm
mönnum fyrir að hafa ætlart að selja
útsendurum lögreglunnar hluta úr
Hawk-eldflaugakerfi.
Kærurnar koma í kjölfar rann-
sóknar, sem bandaríska tollgæsl-
an hefur staðið fyrir í heilt ár, að
sögn embættismanna.
Thatcher svarar forsætisráðherrum Norðurlanda:
Vill samstarf um bar-
áttu gegn loftmengun
Vísindamenn andvígir
varnarkerfi í geimnum
Wanhington, 12. tebrúar. AP.
HÓPUR vísindamanna sem hefur rannsakað gaumgæfilega tæknilegu
hlirtarnar á hugmyndum Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta á varnark-
erfi gegn kjarnorkuvopnum í geimnum, er sammála um að vankantarnir
séu of margir til þess að íhuga málið fyrir alvöru.
Nefndin starfaði á vegum
samtaka bandarískra vísinda-
manna og sendi frá sér greinar-
gerð í dag. Þar kom fram, að
slíkt fyrirtæki sem hér um ræðir
myndi kosta bandarfsku þjóðina
að minnsta kosti 70 milljarða
dollara næstu 10 árin, auk þess
sem slíkt varnarkerfi myndi ekki
koma í veg fyrir hugsanlegar
kjarnorkuárásir á Bandaríkin,
og áætlun um að koma slíku
kerfi á fót myndi skemma sam-
komulagslíkur við Sovétríkin í
afvopnunarmálum. Fleiri gallar
voru tíndir til, vígbúnaðar-
kapphlaupið myndi í raun æsast
og samheldni innan NATO
myndi dofna. Vísindamennirnir
telja vænlegra til árangurs að
halda áfram á sömu braut, að
semja um fækkun vopna af öll-
um tegundum, slíkt myndi draga
úr líkunum á „gerræðislegum
aðgerðum þar sem einhver aðili
myndi í fljótfærni nota kjarn-
orkuvopn", eins og stóð í skýrsl-
unni.
Ronald Reagan Bandaríkja-
forseti hefur ítrekað lýst yfir að
hann hætti ekki við áætlanir um
varnarkerfi gegn kjarnorku-
vopnum í geimnum og hann hef-
ur beðið þingið að samþykkja 3,7
milljarða dollara fjárveitingu til
rannsókna á fjárlagaárinu 1986.
Óvíst er um úrslit málsins á
þinginu og í Evrópu eru ýmis
bandalagsríki Bandaríkjanna
tvístígandi. Bretland og Vestur-
Þýskaland hafa þó lýst yfir full-
um stuðningi við Bandaríkin, en
jafnframt sagst vongóð um að
komandi afvopnunarviðræður
gangi sem best.