Morgunblaðið - 20.02.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.02.1985, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1985 Vel farið ef of- beldismyndir verða gerðar útlægar segir Hjalti Zóphaníasson, deildar- stjóri í dómsmálaráðuneytinu, sem samræmdi aðgerðir lögreglu „EF MEÐ þessum aðgerðum hefur tekist að losa myndbandamarkað- inn við ofbeldismyndir, þá er vel farið ef tekst að gera ofbeldis- myndir útlægar hér. Dómsmála- ráðuneytiö í samráði við ríkissak- sóknara aö beiðni Kvikmynda- eftirlitsins sendi lögreglustjórum á landinu bréf, þar sem kveðið var á um að löggæzlumenn um allt land skyldu fara í myndbandaleigur og leggja hald á ofbeldismyndir. Hlut- verk ráðuneytisins I þessu máli var að samræma aðgerðir lögreglu," sagði Hjalti Zóphaníasson, deildar- stjóri í dómsmálaráðuneytinu, í samtali við Mbl. Lögreglan í Reykjavík lagði hald yfir 300 myndbönd á um 70 myndbandaieigum. Lögreglan í Hafnarfirði lagði hald á um 60 myndbönd, svipaðan fjölda var lagt hald á á Akureyri og í Kópa- vogi. Þann 1. febrúar sendi dóms- málaráðuneytið öllum lögreglu- stjórum landsins bréf þar sem bent var á, að samkvæmt lögum nr. 33/1983 var lagt bann við ofbeldiskvikmyndum hér á landi. í bréfinu segir m.a: „Með lögum nr. 33/1983 fylgdi listi yfir kvik- myndir, sem voru bannaðar. Síð- an hefur kvikmyndaeftirlit ríkis- ins skoðað þúsundir kvikmynda og brjóta margar þeirra tvímæla- laust í bága við lög um bann við ofbeldiskvikmyndum og hefur Kvikmyndaeftirlitið útbúið lista yfir myndir, sem úrskurðaðar hafa verið sem bannmyndir. Ráðuneytið hefur fengið beiðni frá Kvikmyndaeftirlitinu um að lögreglan geri samræmt átak i eftirliti með kvikmyndum, sem eru á myndböndum, en í 3. grein laga um ofbeldiskvikmyndir segir að barnaverndarnefndir og lög- gæzlumenn skuli hafa eftirlit af þessu tagi með höndum. Að fenginni þessari beiðni hef- ur ráðuneytið í samráði við ríkis- Morgunblaöiö/Júlíus Þorsteinn Hilmarsson, lögregluþjónn, við hluta þeirra myndbanda sem lögreglan í Reykjavík lagði hald á. saksóknara ákveðið að lögzælu- menn skuli fara í eftirlitsferð í aliar myndbandaleigur í umdæmi yðar, herra lögreglustjóri, mánu- daginn 18. og ef einn dagur reyn- ist ekki nægilegur þá einnig 19. febrúar. Ber lögreglumönnum að leggja hald á allar myndir, sem finnast og úrskurðaðar hafa verið sem ofbeldismyndir. Taka ber skýrslu af forráðamönnum mynd- bandaleiga um slíkar myndir, hvaðan þær séu fengnar, hvort þær séu leigðar út og hvort þeim sé kunnugt um að þær séu ofbeld- ismyndir. Ennfremur skal afla upplýsinga um hvort fleiri bannmyndir séu til hjá leigunni, þótt þær séu ekki til staðar, til dæmis f leigu. Skal ennfremur lagt hald á þær myndir. Lögreglu- skýrslur skulu sendar ríkissak- sóknara. Fylgjast ber með því að ofbeldismyndir verði framvegis ekki á boðstólum hjá myndbanda- leigum og mun kvikmyndaeftir- litið gera aðvart um þær kvik- myndir sem framvegis verða flokkaðar sem ofbeldiskvik- myndir." „Kvikmyndaeftirlitið fær nú lista um allar þær leigur, sem til eru. Hann var ekki til, því eigend- ur myndbandaleiga þurfa ekki verzlunarleyfi og leigurnar því ekki til á skrá. Sumar eru skráðar í firmaskrá og sumar með sölusk- attsnúmer en ekki allar," sagði Hjalti Zóphaníasson, deildar stjóri. ÞESSAR MYNDIR ERU BANNAÐAR HÉR FER Á eftir skrá yfir kvik- myndir sem Kvikmyndaeftirlit ríkis- ins hefur úrskurðað sem ofbeldis- kvikmyndir og eru þar með ólögleg- ar til sölu, dreifingar og sýningar á íslandi skv. lögum nr. 33/1983 um bann við ofbeldiskvikmyndum. After the fall of New York, Aftermath, Alone in the dark, Atlantis Interceptors, Blood, Blood Song, Caligula, Caligula and Messalina, Cannibal, Cannibal holocaust, Cannibal Terror, Centerfold Girls, Child, Children of the Corn, Class of '84, Com- munion, Confessional Murders, Contami- nation, Dark Places, Day of Violence, Death Promise, Devil Hunter, Don’t go into the House, Evil Dead, Evilspeak, Ex- ecutioners of the Year 3000, Friday the 13th, Friday the 13th Part II, Friday the 13th Part III, Fríday the I3th Final Chapter, Galaxy of Terror, Hallowen II (Maskernes Nat 2), Happy Birthday to Me, He Knows You’re Alone, Human Ex- periments, I Spit on Your Grave, Insem- inoid (Sæðingin), Island of Death, Killer Nun, Killers Moon, Last Horror Film, Last House on the Left, Madhouse, Mortuary, New Barbarians, Nightmare Makers, Outing, Poor White Trash, Poor White Trash II, Pranks, Prom Night, Psychic Killer, Red Nights of the GESTA- PO, Scanners, Superstition, Super Vixen, Survival Zone, Tenebrae, Terminal I»- land, Terror, Torso, Turkey Shoot, Twothousand and Nineteen After the fall of New York, llnseen (Kjallarinn), Visit- ing Hours, Wrong Way og Xtro. íslenska hljómsveitin: Suðrænir sveiflu- tónar á ösku- dagstónleikum „Minn þáttur í þessum hljómleik- um er þessi forleikur, sem gæti heit- ið karnival-forleikur og er hálfgerð kjötkveðjuhátíðartónlist með suð- rænum blæ,“ sagði Stefán S. Stef- ánsson, tónskáld og saxafónleikari, í stuttu spjalli við blm. Mbl. í gær. En forleikur Stefáns er eitt þriggja verka, sem frumflutt verða á _Sveiflum“, öskudagstón- leikum Islensku hljómsveitarinn- ar í Laugardalshöll í kvöld. Hin tvö eru Ljóð án orða, eftir Þóri Baldursson og Konsert fyrir tvo rafmagnsgítara og kammerhljóm- sveit, eftir Vilhjálm Guðjónsson. Stefán kvaðst nota suðræn stef með miklum áslætti og öðru sem tilheyrði slíkri tónlist f þessum öskudagsforleik. Einleikari í verkinu er Ásgeir Steingrímsson, sem leikur á trompet, en sjálfur ætlar Stefán að láta sér nægja að sitja úti í sal og hlýða á hvernig til tekst. „Ég held ég hafi spilað í öllu, sem ég hef samið hingað til,“ sagði hann. „En núna ætla ég einu sinni að sjá hvernig það er að sitja bara og hlusta." Það eru eingöngu meðlimir fs- lensku hljómsveitarinnar, sem leika í verki Stefáns. En eins og kunnugt er, hefur hljómsveitinf- engið til liðs við sig á þessum tón- leikum valinkunnugt lið manna, sem ættu að kunna skil á sveiflu. Má þar nefna útsetjarana ólaf Gauk og Rikharð Örn Pálsson, söngvarann Sverri Guðjónsson og fjóra af fimm meðlimum jazz- og sveifluhljómsveitarinnar Gamm- anna, þá Björn Thoroddsen, Skúla Sverrisson, Þóri Baldursson og Stefán S. Stefánsson. Háskóla- tónleikar FJÓRÐU Háskólatónleikar á vormisseri verða haldnir í Nor- ræna húsinu í dag 20. febrúar og hefjast þeir klukkan 12.30. Hrönn Hafliðadóttir kontralt syngur lög eftir Robert Schu- mann, Hugo Wolf og Wolfgang Amadeus Mozart. Undirleikari er Þóra Friða Sæmundsdóttir. Þóra Fríða Sæmundsdóttir Hrönn Hafliðadóttir Umsögn ríkislögmanns: Framlenging á uppsagnar- fresti kennara er lögmæt RÍKISLÖGMAÐUR hefur sent menntamálaráðherra umsögn um uppsagnarfrest starfsmanna ríkisins vegna kennaradeilunnar og um það álit Arnmundar Backman, hrl., að réttur raenntamálaráðherra til að framlengja uppsagnarfrest kennara frá 1. mars til 1. júni hafi ekki verið Bifreið stolið AÐFARANÓTT miðvikudagsins 13. febrúar síðastliðins var bif- reiðinni R-52665, sem er Toyota Corolla árgerð 1974, stolið af bíla- stæði í Lækjargötu. Bifreiðin er gulbrún að lit. Þeir sem kunna að vita um þjófnaðinn eða hvar bif- reiðin er niðurkomin, eru vinsam- lega beðnir að láta lögregluna í Reykjavík vita. fyrir hendi hinn II. febrúar síðast- liðinn. Kemst Gunnlaugur Claessen, ríkislögmaður, að þeirri niðurstöðu, að álit Arnmundar sé á misskilningi byggt. í þessu tilviki hafi mennta- málaráðherra haft svigrúm til að framlengja frestinn frá 30. nóvem- ber 1984 til 28. febrúar 1985. Ríkislögmaður telur að Arn- mundi Backman hafi yfirsést grundvallaratriði í áliti sínu, þeg- ar hann notar reglur um uppsagn- arfresti á almennum vinnumark- aði er lúta í lögfræði að skýr- ingarreglum einkaréttar um rétt- arstöðu ríkisstarfsmanna, sem markist af reglum opinbers réttar. „Kjarni málsins er sá,“ segir í umsögn Gunnlaugs Claessen, „að reglur hins opinbera réttar um þessi atriði varðandi ríkisstarfs- menn verða almennt ekki túlkaðar eða skýrðar sem undantekningar frá reglum einkaréttar, sem eru með öðrum hætti. Þegar af þeirri niðurstöðu er aðferð lögmannsins til að komast að niðurstöðu á mis- skilningi byggð." Þá er á það bent í umsögn ríkis- lögmanns, að orðalag þeirrar laga- greinar sem menntamálaráðherra beitir við framlengingu frestsins gefi ekki tilefni til ályktunar í þá veru, að heimild stjórnvalds til að framlengja uppsagnarfresti í allt að sex mánuði sé skilyrt eða tak- mörkuð við það, að stjórnvaldið geri tafarlaust heyrum kunnugt hvort henni verði beitt. Lögskýr- ingagögn renni ekki stoðum undir aðra túlkun í þessu tilviki en skýr orð lagaákvæðisins segja til um. Minnir ríkislögmaður á, að upp- sagnarfrestur dómarafulltrúa hafi verið framlengdur 1971 aðeins 4 dögum áður en uppsagnir skyldu taka gildi. Þá hafi menn ekki túlk- að lög með sama hætti og Arn- mundur Backman geri nú og dóm- arafulltrúar töldu sér skylt að halda áfram störfum. Kröfur kennara stefna málum í enn meira óefni — segir deildarstjóri launadeildar „KRÖFUR kennara hljóða upp á að almennum framhaldsskólakennur- um verði raðað í efstu launaflokk- ana í þessum nýja dómi Kjaradóms og þá þyrfti væntanlega að lengja skalann til að koma stjórnendum og skólastjórum fyrir,“ sagði Indriði H. Þorláksson, deildarstjóri launa- máladeildar fjármálaráðuneytisins, í samtali við Morgunblaðið, eftir að kennarar lögðu fram kröfu sína á fundi deiluaðila í gær. „Þessar kröfur þýða, sýnist okkur, um 100% hækkun á grunn- launum þeirra," sagði Indriði ennfremur. „Þar að auki gera þeir kröfu um að yfirvinnan hækki um 40% umfram þetta, eða um 140%. Okkar viðbrögð við þessu voru þau að við höfnuðum þessu sem umræðu- eða viðskiptagrundvelli með einum eða öðrum hætti. í öðru lagi lítum við svo á, að þess- ar kröfur geta ekki orðið til ann- ars en að stefna málum í meira óefni en þegar er orðið. Við höfum óskað eftir fundi með launamála- ráði BHM á fimmtudaginn til að ræða um sérkjarasamningana al- mennt og möguleika á samræm- ingu í vinnubrögðum. I framhaldi af þeim fundi munum við setja niður fundarhöld með þeim aðild- arfélögum launamálaráðs sem eru tilbúin til viðræðna," sagði Indriði H. Þorláksson. Kristján Thorlacius, formaður Hins ísienska kennarafélags, sagði það rétt, að lengja þyrfti launaskalann til að laun t.d. skólastjóra kæmust á blað. „Kjaradómur gerir ráð fyrir því að skalann sé hægt að lengja allt að því óendanlega, aðeins ef 3% munur er á milli þrepa,“ sagði Kristján. „Byrjunarlaun mennta- skólakennara eiga að hækka, samkvæmt kröfum okkar, úr 20 þúsundum á mánuði upp í 35 þús- und og hæstu laun, eftir 18 ára starfsaldur, hækka úr rúmlega 29 þúsundum í 57.600. Við gerum einnig kröfu um breyttan yfir- vinnustuðul, sem yrði 1,8 í stað 1,3 eins og nú er. Slíkt er einfaldlega nauðsynleg leiðrétting og réttur útreikningur." Kristján sagði að lokum, að kennarar væru fúsir til viðræðna og þeir vonuðust til að þær héldu áfram. Þetta er nauðsyn- leg leiðrétting — segir formaður HÍK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.