Morgunblaðið - 20.02.1985, Page 46

Morgunblaðið - 20.02.1985, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1985 Útreikningur gjalda og skatta gjaldárið 1985 Embetti ríkisskattstjóra hefur góðfúslega orðið við þeirri beiðni Morgunblaðsins að sýna með dæmum hvernig má reikna út tekjuskatt. eignaskatt, útsvar o.fl. gjaldaárið 1985 út frá tekjum síðasta árs. Eftirfarandi eru dæmi um útreikning þessara gjalda hjá hjónum, einstakl- ingi og einstæðu foreldri: 1. Tekjuskattur manna reiknast af tekju- skattsstofni, sbr. reit 63 á framtali eftir að heimilaður frádráttur hefur verið dreginn frá skattskyldum tekjum. Dæmi: Hjón sem bæði hafa tekjur. 1.1. Tekjur þess tekjulægri maka skv. lið T 5 eru kr. 150.000 Notaður er 10% frádrátt- ur eða kr. 15.000 Tekjuskattsstofn skv. reit 63 kr. 135.000 Tekjuskattsstofn fellur allur í 1. þrep og reiknast 20% af 135.000 kr. eða kr. 27.000 Frá dregst persónuaf- sláttur kr. 35.000 Ónýttur persónuafsláttur (til greiðslu eignarskatts, sjúkratryggingagjalds og útsvars) verður kr. 8.000 Tekjur þess tekjuhærri maka eru skv. lið T 5 kr. 460.000 10% frádráttur (hjón hafi sömu frádráttarreglu) kr. 46.000 Tekjuskattsstofn skv. reit 63 kr. 414.000 Tekjuskattur reiknast þannig: 1. þrep. Af fyrstu 200.000 kr. reiknast 20% eða kr. 40.000 Til viðbótar reiknast 20% af 65.000 kr. eða kr. 13.000 Þar sem tekjuskattsstofn tekjulægri maka er lægri en 200.000 kr. hækkar tekjumark 1. þreps um þann mismun sem tekju- skattsstofn tekjulægri makans er lægri en 200.000 kr., þó að hámarki um 100.000 kr. (200.000 + 135.000 = 65.000) 2. þrep. Af fjárhæð sem er umfram tekjumörk í 1. þrepi (eftir hækkun) og ekki er yfir 400.000 kr., þ.e. af (400.000 - 265.000) = 135.000 reiknast 31% eða kr. 41.850 3. þrep. Af afgangi (um- fram 400.000 kr.) eða af 14.000 kr. reiknast 44% eða kr. 6.160 Samtals tekjuskattsstofn 414.000 kr., reiknaður tekjuskattur kr. 101.010 Frá dregst persónuafsláttur kr. 35.000 Álagður tekjuskattur kr. 66.010 1.3. Tekjuskattur einstaklings og einstæðs foreldris reiknast eftir sama skatt- stiga, en ekki er um að ræða breytingu á 1. og 2. þrepi. Ef tekjur skv. lið T 5 hjá einstaklingi eru lægri en 350.000 er lágmarksfrádráttur 35.000 kr. en hjá einstæðu foreldri er lágmarksfrádrátt- ur 61.250 kr. ef tekjur í lið T 5 eru lægri en 612.500 kr. Einstaklingur með tekjur í lið T 5 10% frádráttur Tekjuskattsstofn skv. reit 63 Tekjuskattur reiknast þannig: Af 200.000 kr. reiknast 20% eða Af næstu 200.000 kr. reiknast 31% eða Af afgangi 14.000 reiknast 44% eða Reiknaður tekjuskattur Frá dregst persónuaf- sláttur Álagður tekjuskattur Einstætt foreldri með tekj- ur í lið T 5 Lágmarksfrádráttur Tekjuskattsstofn skv. reit 63 Tekjuskattur reiknast þannig: Af 200.000 kr. reiknast 20% eða kr. 40.000 Af 198.750 kr. reiknast 31% eða kr. 61.612 Tekjuskattur reiknast kr. 101.612 Frá dregst persónuaf- sláttur kr. 35.000 Álagður tekjuskattur kr. 66.612 2. Eignarskattur reiknast af eignar- skattsstofni og geta framteljendur reiknað út eignarskattsstofn á bakhlið framtals „Ákvörðun eignarskattsstofns". Hjá hjónum skiptist hann að jöfnu og reiknast eignar- skattur af hvorum hluta um sig. Af eign- arskattsstofni að fjárhæð 975.000 kr. eða lægri, reiknast enginn eignarskattur, af því sem umfram er reiknast 0,95%. Dæmi: Eignarskattsstofn er 1.225.000 kr. af 975.000 kr. reiknast ekkert af 250.000 kr. reiknast 0,95% eða 2.375 kr. 3. Sjúkratryggingagjald reiknast af út- svarsstofni. Af útsvarsstofni að fjárhæð 296.000 kr. eða lægri reiknast enginn skatt- ur en 2% af afgangi. í þ^ssu dæmi reiknast sjúkratrygginga- gjald aðeins hjá tekjuhærri makanum, þ.e. af 460.000 kr. þannig: af fyrstu 296.000 kr. reiknast ekkert af 164.000 kr. reiknast 2% eða 3.280 kr. 4. Útsvar reiknast af útsvarsstofni. Fjár- hæð hans kemur ekki sérstaklega fram á framtali. Til einföldunar er hér miðað við niðurstöðu í lið T 5 (þ.e. ekki sé um aðrar tekjur eða frádrátt að ræða). Hundraðshluti útsvars er breytilegur eftir sveitarfélögum og er hér miðað við 11%. 4.1. Útsvarsstofn tekjulægri makans er 150.000 kr. x - 11% eða kr. 16.500 Frá dregst persónufrá- dráttur kr. 2.250 Álagt útsvar Frá dragast eftirstöðvar ónýtts persónuafsláttar, sbr. 1.1. eftir að hluti hans kr. 14.250 hefur gengið til greiðslu eignarskatts, þ.e. (8.000 + 2.375) eða kr. 5.625 Gjaldandi greiðir af álögðu útsvari kr. 8.625 4.2. Útsvarsstofn tekjuhærri makans er 460.000 x 11% eða kr. 50.600 Frá dregst persónufrá- dráttur kr. 2.250 Álagt útsvar kr. 48.350 Ennfremur hækkar útsvar um 450 kr. fyrir hvert barn innan 16 ára á tekjuári á framfæri manns og að auki um 450 kr. fyrir hvert barn umfram þrjú. Lækkun þessi skiptist milli hjóna. 5. Barnabætur til framfæranda barns ákvarðast sem hér segir og skiptast milli hjóna: Með fyrsta barni kr. 7.500 Með hverju barni umfram eitt kr. 11.250 Barnabætur með börnum einstæðra foreldra eru þó með hverju barni án tillits til barnafjölda kr. 15.000 Fyrir hvert barn yngra en 7 ára í lok tekjuárs hækka barnabætur um kr. 7.500 Auk þess verður greiddur sérstakur barnabótaauki að fjárhæð 15.000 kr. með hverju barni, en fjárhæð þessi skerðist skv. eftirfarandi reglum: 1. Um 8% af því sem samanlagður út- svarsstofn hjóna fer fram úr 275.000 kr. og fellur niður við 462.000 kr. 2. Um 8% af því sem útsvarsstofn einstæðs foreldris fer fram úr 187.500 kr. og fellur niður við 375.000 kr. 3. Um 1,2% af því sem eignarskattsstofn hvors hjóna fer fram úr 937.500 kr. og fellur niður við 1.562.500 kr. 4. Um 2,4% af því sem eignarskattsstofn einstæðs foreldris fer fram úr 1.250.000 kr. og fellur niður við 1.875.000 kr. kr. 460.000 kr. 46.000 kr. 414.000 kr. 40.000 kr. 62.000 kr. 6.160 kr. 108.160 kr. 35.000 kr. 73.160 kr. 460.000 kr. 61.250 kr. 398.750 Námaleyfi Kísiliðj- unnar við Mývatn Sveitarstjórn Skútustaðahrepps birtir bréfið til iðnaðarráðherra Undanfarna daga hefur i dag- Jslöðum verið fjallað um námaleyfi Kísiliðjunnar hf. og þá gjarnan vitnað í bréf það er sveitarstjórn Skútustaðahrepps sendi iðnaðar- ráðherra Sverri Hermannssyni hinn 5. janúar síðastliðinn. Því miöur hefur aðeins hluti bréfsins verið birtur og meining þess leidd út á annan veg en bréfið hljóðar upp á Af þessum ástæðum telur sveitarstjórn rétt að birta sína bókun til iðnaðarráðherra þó hún hafi ekki ætlað sér í blaðaskrif út af þessu máli. F.h. Sveitarstjórnar Skútu- staðahrepps. Helga Valborg Pétursdóttir oddviti. Hr. iðnaðarráðherra, Sverrir Hermannsson, Arnarhváli, Reykjavík. Málefni: Endurnýjun á rekstrarleyfi Kísiliðjunnar hf. Vegna framkominna blaða- skrifa varðandi endurnýjun á námaleyfi Kísiliðjunnar hf. við Mývatn og umsögn Náttúruvernd- arráðs urn tímalengd þess leyfis hefur hreppsnefnd Skútustaða- hrepps á fundi sínum 5. janúar 1985 ályktað eftirfarandi: Kísiliðjan hf. við Mývatn er þjóðhagslega hagkvæmt fyrirtæki og eit.t af stærri útflutningsfyrir- tækjum landsins sem veitir 70—80 manns fasta vinnu auk þess hefur fjöldi annarra aðila atvinnu tengda starfsemi hennar. Það er því augljóst hve mikil áhrif henn- ar eru i 580 manna byggðarlagi. óvissa um framtíð Kísiliðjunn- ar skapar öryggisleysi hvað varð- ar lífsafkomu þessa fólks og lamar uppbyggingu í sveitarfélaginu öllu. Við teljum því að nauðsynlegt sé að Kísiliðjan hf. fái starfsleyfi til að minnsta kosti 15 ára svo fram geti farið eðlileg þróun fyrirtækis- ins og sveitarfélagsins í heild. Eðlilegt. má telja að hafður væri fyrirvari á um stöðvun efnistöku úr Mývatni ef rannsóknir leiða í ljós nauðsyn þess. Á undanförnum árum hefur hreppsnefnd ítrekað reynt að vekja athygli fjárveitinganefndar og þingmanna kjördæmisins á nauðsyn þess að framkvæma skipulagðar rannsóknir á svæðinu eins og lög og reglugerð um vernd- un Laxár og Mývatns kveða á um. í 5. grein reglugerðar no. 36/1974 kemur skýlaust fram aö stjórn rannsóknarstöðvarinnar við Mý- vatn skuli sjá um aö fram fari á kostnað ríkissjóðs, þær rannsókn- ir sem eru nauðsynlegur grund- völlur fyrir verndum svæðisins. Þarna hefur aldrei verið unnið markvisst að málum þar sem hvorki stjórn rannsóknarstöðvar- innar né ríkissjóður hafa sinnt skyldum sínum. Hreppsnefnd vill því beina þeirri eindregnu ósk við iðnaðar- ráðherra að hann beiti sér fyrir að nú þegar verði hafnar skipulagðar rannsóknir á svæðinu með alla nauðsynlega þætti I huga sem hugsanlega gætu haft, áhrif á líf- ríki Mývatns og umhverfi þess og þær ákvarðanir sem eftirleiðis verði teknar geti byggst, á vísinda- lega sönnuðum rannsóknum fram- kvæmdum af hinum færustu mönnum. Ályktun þessa samþykkti sam- hljóða Hreppsnefnd Skútustaða- hrepps.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.