Morgunblaðið - 24.02.1985, Blaðsíða 32
S§2 «B
MÖKGUMAÐIÐ, SÖNNUÍyÁGt’ff ^.'FÉBRbÁR 1985
félk í
fréttum
Ljósm. Mbl./Júlíus
Hallur Skúlason og Grétar Marin-
ósson eigendur Leiðsagnar sf. Á
myndina vantar Svövu Guðmunds-
dóttur og Lilju Kristófersdóttur,
hina eigendurna.
" ■
HALLUR SKÚLASON
OG GRÉTAR MARINÓSSON
Kennsla - ráðgjafarþjónusta
„Þörf á slíkri þjónustu fyrir fólk“
Margir þurfa að leita sér
leiðsagnar á ýmsum svið-
um, en stundum reynist það ekki
innan handar, sem að er leitað
hverju sinni, þó að skóla og
ráðgjafa virðist víða hægt að
finna. Blm. uppgötvaði nýlega að
til er i borginni kennsla og
ráðgjafarþjónusta, sem lætur
lítið yfir sér hvað auglýsingar og
ytri ásýnd varðar, en hefur þó
upp á að bjóða margskyns
fræðslu sem mörgum ætti að
geta komið að notum að vita af.
Við heimsóttum Leiðsögn sf. í
Breiðholtið fyrir skömmu og
hittum þar fyrir tvo af eigendum
þjónustunnar, Grétar Marinós-
son og Hall Skúlason.
„Við starfrækjum hér kennslu
og ráðgjafarþjónustu og skiljum
þær deildir að, eftir því sem
hægt er. Fræðsluþjónustan hef-
ur á sínum snærum námsaðstoð
fyrir grunnskóla og fram-
haldsskólastig en heldur einnig
námskeið fyrir almenning.
Það er kannski vert að taka
fram að við lftum ekki á þetta
sem einkaskóla, því við lútum
ekki ákvæðum laga um grunn-
skóla- og framhaldsskólamennt-
un, heldur aðstoðum við fólk við
það nám sem það þarf á að haida
og vill læra.“
Ráðgjafarþjónustan aftur á
móti býður upp á alhliða ráðgjöf
hvort sem er fyrir börn, ungl-
inga eða fullorðna, í sambandi
við náms- eða starfsval og per-
sónulega erfiðleika og einnig
langtíma sálfræðilega meðferð
fyrir einstaklinga, hjón og fjöl-
skyldur.
— Hverskonar námskeið eru
það sem í boði eni fyrir almenn-
ing?
„Það eru tungumálanámskeið,
þ.e.a.s. þýsku- og itölskunám-
skeið fyrir fólk sem er á leið til
þýsku- eða ítölskumælandi
landa. Það er ný kennsluaðferð
hjá okkur sem notuð er hér á
landi og kennarinn, Christian
Gabriel Favre, hagar henni
þannig að hann byggir á mynd-
máli og samræðum, þ.e. notar
skuggamyndir, bækur með
myndum, samtöl og segulband.”
Þá erum við einnig með nám-
skeið í viðhaldi bíla, sem Elías
Arnlaugsson iðnskólakennari
hefur umsjón með. Það er bæði
bókleg og verkleg kennsla, sem
þar er hægt að fá.“
— Hvaða námsgreinar er al-
gengast að börn komi og fái hjálp
með?
„f grunnskólum eru það
kjarnafögin, íslenska, stærð-
fræði, enska og danska. Þegar
lengra kemur eða i framhaldssk-
óla eru það aðallega raungrein-
ar, enska og þýska.“
—Er einhver aldurshópur sem
leitar tii ykkar öðrum fremur?
„Enn sem komið er eru það 7.,
8. og 9. bekkingar. Það er líklegt
að foreldrar yngstu barnanna
sem eiga við erfiðleika að etja
hafi ekki uppgötvað þetta enn.“
— Er einhver sérstök ástæða
fyrir því að þið lögðuð út í þetta?
„Við höfum verið viðloðandi
menntakerfið það lengi að við
vissum að brýn þörf var á slíkri
Hægt er að fá aðstoð fyrir alla sem
eru á grunnskóla- og framhalds-
skólastigi í Leiðsögn sf. Hér er
Stella Eymundsdóttir að kenna tveim-
ur ungum stúlkum íslensku.
þjónustu fyrir fólk. Það þarf
ekki annað að koma til en að
sumir nemendur verði veikir,
aðrir flytji á nýjan stað og þá
þurfa þeir að ná þræðinum upp á
nýtt. Við sáum ekki fram á að
skólarnir kæmu til móts við
þessas þörf, þannig að við ákváð-
um að prófa að takast á við
þetta. Þetta er alls engin sam-
keppni við skólana heldur frekar
til stuðnings við þá.“
— Eru kennararnir hjá ykkur
ekkert óánægðir með launin?
„Við erum með 10 kennara og
þeir hafa ekkert kvartað enn
sem komið er. Við auglýstum að-
eins einu sinni eftir fólki og
viðbrögðin voru þannig að við
hefðum getað ráðið a.m.k. 30
kennara á stundinni. Eins og
fram hefur komið hér fyrr býður
þetta fyrirtæki ekki upp á
kennslu utan hins opinbera kerf-
is og það er auðséð að almenn-
ingur er tilbúinn til að greiða
fyrir þetta þó völ sé á endur-
gjaldslausri kennslu hjá þvi
opinbera. Hitt má benda á að
þetta býður kennurum upp á
betri kjör en þeir fá hjá
grunnskólum og framhaldsskól-
unum.“
— Er þetta kvöldskóli?
„Nei, námsaðstoðin starfar
virka daga frá klukkan 8 til 19
og tímarnir eru samkomulags-
atriði milli kennara og nemenda,
og svo eru kvöldnámskeiðin að
auki. Ráðgjafarþjónustan er
starfrækt um kvöld og helgar."
— Hefur verið mikið um það að
fólk hafi leitað til ykkar með
vandamál sín í ráðgjöfina?
„Það er nú kannski ekki að
marka ennþá því ráðgjafarþjón-
ustan er eiginlega i burðarliðn-
um, en það hafa þó þann stutta
tíma komið nokkrar tilvísanir
frá skólum og þá sérstaklega
skólum er ekki hafa upp á slíka
ráðgjafarþjónustu að bjóða."
Litrík
brúð-
kaupsmynd
Eins og við greindum frá hér á síðunni
fyrir nokkru gekk rokkarinn Ron Wo-
od í það heilaga með sinni heittelskuðu, Jo
Howard. Mætti Ron í gallabuxum, þröng-
um bol og maulandi franskar kartöflur í
athðfnina, eins og við greindum frá, og
þótti engum í hans vinahópi tiltökumál
þótt vegfarendur lyftu augabrúnum. í
veislunni um kvöldið mætti Wood hins veg-
ar í sínu fínasta pússi svo sem sjá má, en
það fer ekki á milli mála á myndinni hver
brúðguminn er. Væri gaman ef myndin
væri í lit, þá myndi hárauð slaufa Woods
njóta sín til hins ýtrasta.
Myndin? Já, hún er skrautleg og tekin af
veislugestum er liðið var á veisluna og
gleðin stóð sem hæst. Þarna gefur að líta
fríðan flokk og ýmsa fræga kappa úr
rokkheiminum. Standandi f.v. eru Bill
Wyman bassaleikari Rolling Stones,
ónefndur kvenmaður, Charlie Watts kíkir
yfir öxlina á Keith Richard sem leggur
vinstri hönd á öxl brúðgumans hamingju-
sama. Frú Wood er auðþekkjanleg við hlið
Ronnie, en litli kappinn við öxlina á henni
er Peter Cook, því næst gamli vinur Roll-
inganna, Rod Stewart, með vinkonu sinni
Kelly Emberg, því næst ungfrú að nafi
Lorrain Kirke.
Börnin fremst þekkjum við varla, en
lengst til vinstri er Jesse Wood, sonur Ron
Wood, Leah, dóttir Ron og Jo, loks Gregory
Kirke, sonur Jo. í miðröðinni eru f.v. Lizzie
Howard, systir Jo, popparinn Peter
Frampton og gítarsnillingurinn Jeff
Beck...
i
I