Morgunblaðið - 02.03.1985, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLADID, LAUGARDAGUR 2. MARS 1985
Mýmörg verkefni
framundan hjá
Jagger og félögum
Á myndinni til haegri er
dóttir Husseins Jórdaníu-
konungs 13 ára gömul sem
var að fara að gifta sig og
áður en það gerðist þurfti
að lengja og rétta læri og
legg hennar. Með henni á
myndinni er aðstoðarlækn-
fclk í
fréttum
Fólk er alltaf að velta fyrir sér
hvort Mick Jagger og Jerry
Hall ætli ekki að fara að gifta sig.
Sumum finnst að það hljóti að
fara að koma að því, þau hafi ver-
ið svo lengi saman og hún sé orðin
barnsmóðir hans. Mick er kannski
ekki alveg á sömu skoðun, hann
var spurður um þetta mjög nýlega
og það stóð ekki á svarinu: „Að
ganga í hjónaband er eins og að
skrifa undir 365 daga samning og
hafa ekki hina minnstu hugmynd
um hvað stendur í honum og þá á
ég ekki bara við smáa letrið." Að
þessu mæltu staðfestir Mick að
hjónaband sé ekki á dagskrá hjá
sér og vinkona sín Jerry sé því
sammála, það hafi ekkert upp úr
sér: „Hví að ganga í hjónaband úr
því við erum hamingjusöm eins og
er,“ spyr Mick undrandi á svip.
'V
Jagger er nú 41 árs gamall og
margir ráku trpp stór augu er það
spurðist að hann hygði á sóló-
plötu, án aðstoðar félaga sinna í
„Rolling Stones". Það hefur hvílt
mikil leynd yfir öllu saman og
Mick hefur verið á þönum með
fræga leikara til Suður-Ameríku
til að taka upp myndsegulband til
kynningar gripnum. Er plötunnar
beðið með talsverðri óþreyju, enda
hefur höfuðpaur Stones ekki gert
slíkt fyrr, einungis Bill Wyman
bassaleikari reynt það með heldur
daufum árangri. Aðspurður um
hvort sveitin væri að leggja upp
laupana og hvort félagar hans
væru sér ekki reiðir að ætla sér
slíkt hlutverk á eigin spýtur segir
Mick: „Reiðir, nei öðru nær. Við
ræddum þetta og þeir lýstu engri
gremju. Keith Richard sagði:
„Drífðu þig úr því þú ætlar í þetta
á annað borð, en gleymdu því ekki
að þú tekur áhættu." Hvað sjálfan
mig varðar, þá hef ég gengið með
þetta í maganum í 10 ár og ég vissi
á fertugsafmæli mínu að ef ég
færi ekki að láta verða af þessu,
þá yrði það gleymt og grafið áður
en ég vissi af. Þess vegna fór ég á
stúfana nú. Sveitin? Nei, við erum
sko rétt að byrja, í vinnslu er
fyrsta platan af þremur sem við
höfum samið um við CBS, hún
ætti að koma með vorinu," segir
eldhress Mick Jagger á fimmtugs-
aldri...
Helgi kominn á endurhæfingardeild Borgarspítalans ásamt þjálfara sínum Anne Melen.
HELGIÓSKARSSON
\11 Hefur nú lengst um 34 sentimetra
„Þeir þurfa að vera sterkir
og trúa og treysta á sjálfa sig‘
Eins og ýmsum er orðið kunn-
ugt hefur Helgi óskarsson
farið til Rússlands i lengingar-
meðferð oftar en einu sinni, ásamt
föður sínum. Með viljafestu og
kjarki hefur þessi ungi drengur
lagt á sig ómældan sársauka og
erfiði til að árangur mætti nást.
Helgi er nú tiltölulega nýkominn
heim frá Rússlandi úr enn einni
meðferð ytra og á dögunum hitti
hann blm. og sagði stuttlega frá
þessari ferð.
„Ég kom heim í desember sl.
eftir tæplega 11 mánaða dvöl. Að
þessu sinni voru læri mín lengd
um 12 sentimetra og mjóhryggur-
inn (bakið) lengdur og réttur um 2
sm. Þannig að nú hef ég lengst um
34 sentimetra frá byrjun, því upp-
haflega var ég 1,14 m langur en er
í dag 1,48 m. Aðgerðin gekk mjög
vel og biðin var ekki löng er til
Rússlands kom, aðeins tvær vikur.
Það tók þrjá mánuði að skrúfa og
lengja, 3 til 4 mánuði að byggja
upp beinin og síðan var ég í æfing-
um unz heim kom.
— Hefur þú verið hérna á
endurhæfingardeild Borgarspítal-
ans síðan þú komst heim?
„Já og það var tekið einstaklega
vel á móti mér. Hérna eru frábær-
ir þjálfarar og læknar og ég vildi
gjarnan koma á framfæri innilegu
þakklæti til allra hérna. Ég var
einungis 29 kíló þegar ég kom
heim þreyttur og þurfti virkilega á
góðum „mömmumat" að halda.
Hérna er ég búinn að ná mér upp
aftur í venjulega þyngd þ.e.a.s. 37
kíló svo ekki er 'nú farið illa með
mig.
— Var maturinn svona ómögu-
legur?
„Það má segja að hann hafi ekki
hentað mér alveg því hann var svo
allt öðruvísi en ég var vanur að
heiman. Að vísu fór pabbi í
nokkra daga til Moskvu að ná í
mat, en fyrir utan það og matinn
Búið að slá upp afmæli á spítalanum því einn drengjanna er sést á
myndinni átti afmæli. Strákarnir eru Rússar, Armenar, Júgóslavi og
svo íslendingurinn Helgi.
sem við tókum með okkur að
heiman var fæðið ólíkt okkar ís-
lenska mat.
— Ertu nú alveg búinn í leng-
ingaraðgerðum í bili?
„Nei, nei, næst hyggst ég fara i
sumar og þá til að láta lengja
leggina og líklega verð ég í u.þ.b.
mánuð þá. Eftir jólin ætla ég svo
að leggja enn aftur í hann og þá til
að fara í aðgerð þar sem handlegg-
ir mínir yrðu lengdir.
— Hvernig fer með nám þitt?
„Ég er að hugsa um að geyma
það þangað til ég er alveg búinn að
fara í lengingarnar. Það er of mik-
ið fyrir mann að vera í hvoru
tveggja í senn, svo skólinn bíður
líklega fram á r.æsta ár.
— Er þetta, sársaukinn, kvlð-
inn og það allt, þess virði að leggja
út í þetta?
„Já, veistu það að auðvitað kvíð-
ir maður fyrir fyrst og þetta eru
mikil átök, en þegar árangurinn
sést þá verður það þess virði, það
er engin spurning. Eg vil endilega
ráðleggja öllum þeim sem þurfa á
aðgerðum sem þessum að halda,
að fara, en þeir verða að vera
sterkir og treysta og trúa á sjálfa
sig.