Morgunblaðið - 02.03.1985, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 2. MARS 1985
Svarc&u m<r bara. Já e&O- nci, hefró-,
Marit þú eba varst Þci ekk.i, eini
óbnr-Fsmaðufinn sem kunni á. IsesingLina.?
... að haldast í
hendur.
TM Rm. U.s. Pit on.-i* rlohtt r«s«v«0
•1984 Lot Angítts ThMsSyndkata
O!
' ,1 ■<*'»
HÖGNI HREKKVISI
Fyrirspurnir um myndir
Getur ekki einhver frætt mig
um, hvar og hvenær hval þann
rak, sem hér er birt mynd af.
í öðru lagi, á einhver myndir
þær, sem hér eru birtar af
marsvínum strönduðum á Snæ-
fellsnesi 22. ágúst 1943? Þær
birtust í Náttúrufræðingnum
það ár, bls. 179-180.
Þakka fyrirfram góð og greið
svör.
Lúðvík Kristjánsson,
Álfaskeiði 18,
Hafnarfirði, simi 50179.
Sjómenn fái það sem þeim ber
Sjómannskona skrifar:
Ég vil taka undir orð óskars
Vigfússonar í viðtali við frétta-
mann útvarps nýlega, að ef út-
gerðarmenn treysta sér ekki til að
borga sjómönnum það kaup sem
þeir eiga skilið eiga þeir að hætta
að gera út. Ekki eiga þeir að gera
út á kostnað sjómanna sem þeir
nú gera, því tæp 40% fara utan
skipta til útgerðar.
Það yrði margur atvinnurek-
andinn í landinu „himinlifandi" ef
fólk sem ynni hjá fyrirtækjum
væri látið taka þátt í rekstrar-
kostnaði þeirra.
öll fjarvera sjómanna frá fjöl-
skyldum sínum hefur aldrei verið
tekin með í dæmið. Svo ég tali nú
ekki um konur þessara manna og
þá ábyrgð sem þær þurfa að axla í
fjarveru manna sinna á sjó. Eða
börn þeirra sem hitta pabba einu
sinni til tvisvar í mánuði, eins og
hvern annan gest, sem stoppar f
sólarhring og fer svo aftur á sjó-
inn.
En það gerist alltaf aftur og af-
tur að ekki er á sjómenn hlustað
og af því hlýst verkfall, allt stöðv-
ast og allir tapa. Hvernig væri nú
að semja strax um það kaup sem
sjómönnum ber, til þess að ekki
þurfi sífellt að koma til verkfalla.
Það væri miklu ódýrari lausn fyrir
þjóðarbúið í heild. Allt það sem
tapa9t í verkfalli og stoppi á öllum
vígstöðvum er margfalt meira en
sem nemur kauphækkunum til
sjómanna.
Það er reyndar fleira sem þjóðin
hefur ekki efni á. Hún hefur ekki
efni á að hafa Dallas í sjónvarp-
inu, taka við sjónvarpsefni frá
gervihnöttum, né leyfi til að hafa
Keflavíkursjónvarpið og drekka
bjór. Hvað verður okkur meinað
næst?
Sjómannskona segir að nær hefði verið að semja strax um þau laun sem sjómönnum ber svo að yfirstandandi verkfall
sjómanna og útgerðarmanna hefði ekki þurft að koma til framkvæmda.
-k-' -