Morgunblaðið - 09.03.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985
21
Réttarbót aldraðra
— eftir Lárus
Hermannsson
Dálítill hópur einstaklinga, hefur
komið sér saman um að stofna fé-
lagsskap og heitir hann „Réttarbót
aldraðra". — Félagsstofnun hefur
farið fram og fundur hefur verið
boðaöur, nú 12. þ.m. á Hofi við
Rauðarárstíg kl. 3 eftir hádegi. Nú
eru ýmsir að velta því fyrir sér,
hvað meint sé með þessum félags-
skap, og er það ósköp eðlilegt. Þar
sem ýmiskonar stofnanir séu fyrir
hendi á hðfuðborgarsvæðinu og
nágrenni, sem vinni einmitt í þágu
aldraðra og það þurfi því ekki frek-
ar vitnanna við. Satt er það, að
stofnanir eru starfandi, sem láta
ýmiskonar líknar- og þjónustustörf
til sín taka og er það vel.
Samanber bæði Rauða kross ís-
lands og Þjóðkirkjuna, sem hafa
unnið af kostgæfni að ýmiskonar
líknarmálum og þá að sjálfsögðu
eins fyrir þá öldruðu. Því er rétt að
taka skýrt fram, að þessi okkar
nýstofnaði félagsskapur er ekki
stofnaður eða hugsaður á neinn
hátt sem ögrun við þær félagsstofn-
anir, sem fyrir eru hér, eða ann-
arstaðar í nágrenninu. Heldur
myndum við vera reiðubúin að
vinna með öllum sem af heilum hug
vilja fyrir þetta fólk starfa og við
teljum ekki vera neina vanþörf á.
Vegna þess sérstaklega að þau eru
svo mýmörg verkefnin, sem þarf að
finna góða lausn á, svo allt eldra
fólk geti frekar en nú er lifað
áhyggjuminna lífi.
Trúlega ættu flestir að vita það,
að stöðugt verða þeir fleiri og fleiri,
sem lenda undir þeim hatti, að
verða taldir — ja, hvað á maður að
segja, aldraðir, gamlir eða eld-
gamlir, en hvað svo sem við erum
kölluð, eftir að við erum orðin full-
orðin, eða gömul, þá er það ekki
aðalatriðið. Atriðið er það, að öllum
þegnum þessa lands sé gert mögu-
legt að lifa nokkurnveginn sóma-
samlega. Þurfi ekki hálft í hvoru að
svelta, til þess að draga fram lífið.
Segi og skrifa hversu skammarlegt
það er fyrir þá sem úthluta lífeyri
til þessa fólks nú í dag og lengi
undanfarið. Og þó þetta sé sett á
blað í þrem liðum, ellilífeyrir,
tekjutrygging og e.t.v. einhver upp-
bót, ef menn verða þá hennar að-
njótandi, verður summan 11—12
eða 13 þús. krónur á mánuði. Það er
því ekki svo fjarlægt að spyrja
okkar háttvirtu alþingismenn, sem
hljóta að ráða nokkuð miklu hér
um, hvort þeir vildu ekki reyna
sjálfir að lifa á þessari mánaðar-
greiðslu, t.d. eins og svo sem eitt ár,
þó ekki væri meira.
Eitt af liðnu árunum okkar var
tileinkað öldruðum, þá vantaði ekki
fögur orð og fagurgala bæði frá
stjórnmálamönnum og ýmsum öð-
rum, sem þóttust svo margt vilja
gera og mörgu fórna fyrir afa sína
og ömmur, og ekkert skyldi til spar-
að. I hverju liggja efndirnar? Spyr
sá sem ekki veit. Áreiðanlega eru
þær teljandi þingsálykt-
unartillögurnar sem fluttar hafa
verið á háttvirtu Alþingi til rétt-
arbóta hinna öldruðu þegna þessa
lands.
Alstaðar í okkar þjóðfélagi eru
félagasamtök og ef ekki félaga-
samtök þá margskonar þrýstihópar
sem verða að berjast með oddi og
egg fyrir launum sínum, til lífsvið-
urværis. Og eins og við vitum, eru
stöðugar orustur á vinnumarkaðn-
um, gegn þeim ðflum, sem ekkert
vilja af hendi láta til réttlátra
lífskjara, sem og sýnir æ betur og
betur, að þeir ríku skulu ríkari
verða, en hinir fátæku fátækari. Ég
hef minnst á félagasamtök og
þrýstihópa. Og er ég þá kominn
langleiðina þangað sem ég hugsaði
mér að fara með þessu greinarkorni
því mér finnst nú mælirinn vera
fullur: Við öll sem erum orðin full-
oröin og látum bjóða okkur þessa
lífeyrisgreiðslusmán og anna óvið-
unandi, sem ekki verður tínt til nú:
myndum okkar samtök eða þrýsti-
hóp, sem ráðandi menn þessa þjóð-
„Myndum okkur sam-
tök eða þrýstihóp, sem
ráðamenn þessa þjóðfé-
lags verða neyddir til að
taka tillit til.“
félags verða neyddir til að taka til-
lit til. Og það gerir ekkert til þó þeir
fái að heyra það, að það er ekki
nægilegt að vera mjúkmáll og
loforðadrjúgur rétt fyrir kosningar.
Það ætti að þurfa meira til.
Lírus Hermannsson er rarafor-
maður „Rétíarbótar aldraðra".
Lárus Hermannsson
fHatgimftlaftift
Áskriftarshninn er 83033
WksoMíjrt á hwrjtm degi'
lykillinn er lítil en öflug
fiölnotatölva
MKRO/PDPll
MICRO/PDP-11 er nútímalega hönnuð og ekki *
umfangsmeiri en venjuleg feröataska, 20-30 kg.
Hér er um að ræða minnstu tölvuna i PDP—
fjölskyldunni. Ódýrt tölvukerfi, sem hentar vel 4.
fyrirtækjum og stofnunum sem strax þurfa *
öfluga tölvu fyrir marga notendur samtimis. if.
Fyrir fyrsta flokks vélbúnað fæst auðvitað -*
fyrsta flokks hugbúnaður, m.a.: 4
ritvinnsla
töflureiknir („spread sheet”)
fjárhags- og viðskiptamannabókhaltí
launabókhald
birgðabókhaid (lager, frátektir, sala)
framleiðslustýring
tollskýrslur og verðutreikningar
verkbókhald
Hópvinna og samstarf einkenna fyrirtæki í sókn. MICRO/PDP-11
auöveldar samvinnuna. Veldu MICRO/PDP-11 ef þúvilt á toppinn.
5DS0QBD
Einkaumboð Kristján Ó. Skagfjörð hf.simi 24120