Morgunblaðið - 09.03.1985, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985
Reagan heitir Rússum
samráði um geimvopn
Wa«hington, H.marz. AP.
RONALD REAGAN forseti hef-
ur heitið því að samráð verði
haft við Rússa þegar nýju geim-
varnarkerfi verður komið fyrir
að því er ráöunautur hans í þjóð-
aröryggismálum, Robert C.
McFarlane, sagði á fundi í félagi
erlendra fréttaritara í gær-
kvöldi.
Bandaríkjamenn hafa einnig
gefið til kynna að þeir muni ekki
koma fyrir slíku kerfi einhliða að
sögn McFarlanes.
Þessi nýja yfirlýsing McFar-
lanes stafar af þeim ásökunum
Rússa að Bandaríkjamenn reyni
að tryggja sér frumárásargetu til
þess að ráðast á Sovétríkin án
Sænskir her-
flugmenn hætt-
ir í verkfalli
Anders Thunborg, varnarmála-
ráðherra Svía, sagði að ófremdar-
ástand væri að skapast og því yrði
að grípa í taumana, það mætti ekki
eiga sér stað, að landvarnir Svía
liðu fyrir að flugfélögin borguðu
flugmönnum betur en hið opinbera.
Stokkbólmi, 8. mare. AP.
HERFLUGMENN Svíahers voru aft-
ur mættir til starfa í dag eftir eins
dags verkfall. Þeir mótmæltu þannig
lágu kaupi og upplýsingaskorti frá
viðræðum farþegaflugmanna við
sáttasemjara. Vegna verkfallsins var
fátt um flugvarnir í Svíþjóð f gær.
Herflugmennirnir eru sagðir
uggandi um útkomu viðræðnanna,
bæði óttast þeir að samið verði um
alls ófullnægjandi kauphækkanir
og einnig óttast þeir að sett verði í
lög og reglur að flugfélögunum
verði að mestu bannað að ráða her-
flugmenn. Sven Olof Olson, yfir-
maður flugherafla Svía sagði að
vissulega væri verið að stemma
stigu við að mjög margir herflug-
menn með mikla og góða reynslu
færu í farþegaflug, en þess í stað
væri rætt um að greiða herflug-
mönnum umtalsverðar yfirgreiðsl-
ur. Á síðustu árum hafa SAS og
fleiri flugfélög ráðið mikinn fjölda
herflugmanna, en í ráði er, að eigi
fleiri en 25 herflugmenn geti farið
til flugfélaganna á næstu tveimur
árum.
þess að þurfa að óttast hefndar-
árás. Ágreiningur um „stjörn-
ustríð“ hefur varpað skugga á
viðræður þær sem eiga að hefjast
í Genf á þriðjudaginn um tak-
mörkun kjarnorkuvígbúnaðar.
Hann sagði að „of snemmt"
væri að segja nokkuð um það
hvort Bandaríkjamenn mundu
koma fyrir geimvarnarkerfi, ef
ekkert viðunandi samkomulag
tækist við Rússa um takmörkun
kj arnorkuvígbúnaðar.
McFarlane lagði á það áherzlu
að stjörnustríðsáætlunin væri
ekki brot á nokkrum samningi.
Slíkt þyrfti ekki að valda áhyggj-
um nema geimvarnarkerfi
reyndist starfhæft.
í Moskvu varaði Pravda
bandalagsþjóðir Bandaríkjanna
við því í dag að þeim „skjátlaðist
hrapallega", ef þær teldu að
bandarískt geimvarnarkerfi
mundi veita þeim aukið öryggi.
Blaðið sagði í grein um fyrir-
hugaðar Genfar-viðræður að
mikill skoðanamunur væri rikj-
andi. Blaðið sagði að „pólitískan
vilja" þyrfti til að ná samkomu-
lagi og endurtók áhuga Rússa á
samkomulagi.
AP/Símamynd
Martröðinni lokið
Bandariska kaupsýslukonan Marie McBroom er hér með dóttur
sinni Dana Manno en McBroom var handtekin í Nígeríu og gefið að
sök að hafa stundað ólöglega oliuverslun. Þeir, sem gerast sekir um
það, eru straffaðir á lifinu en herrétturinn, sem dæmdi í máli
McBroom, fann hana sýkna saka.
Shulz
stöðvaði
lán til
Nicaragua
WuhÍBgton, S. mara. AP.
GEORGE Shultz greip persónu-
lega í taumanna til að koma í
veg fyrir að bandarískur þróun-
arbanki lánaði Nicaragua 58
milljónir dollara nú fyrir
skömmu. Háttsettur embættis-
maður í ráðuneyti Shultz gaf
upplýsingarnar og sagði ráðherr-
ann hafa stigið það óvanalega
skref að rita persónulegt bréf tif
bankastjóra bankans og óska
eftir að lánið yrði ekki veitt.
Embættismaðurinn sagði
Shultz hafa farið að með þess-
um hætti til þess að undir-
strika vilja bandarískra
stjórnvalda í þessu máli. Skýr-
ingarnar sem Shultz gaf voru
þær, að lánið gengi í berhögg
við efnahagsstefnu Nicaragua
og að landið væri stórskuldugt
við aðrar lánastofnanir.
Bandarfska stórblaðið New
York Times greindi frá þessu í
dag og þar kom fram, að það
skipti ekki siður máli, að
stjórnvöld í Washington telji
að stórlán af þessu tagi geti
létt svo mikið á skuldabyrði
sandinista, að þeir fái svigrúm
til að breiða út marxisma sinn.
Sprengjuvarpan heimasmíðaða, sem írski lýðveldisherinn, IRA, notaði í árásinni á lögreglustöðina í Newry á
Norður-frlandi á dögunum.
Annar íri fyrir rétt
Newrj, H.marz. AP.
ANNÁR maður hefur verið ákœrð-
ur fyrir morð á þremur þeirra níu
lögreglumanna er biðu bana í
sprengjuvörpuárás írska lýðveld-
ishersins (IRA) á lögreglustöð í
Newry fyrir viku.
Maðurinn, sem er ekki nafn-
greindur, er tvítugur Newry-búi
og kemur fyrir rétt í dag.
í gær handtók lögreglan 16
menn á kaþólskum svæðum um-
hverfis Newry.
AIDS
komið til
Taiwan
Tmpei, Ttiwan, g. m»r». AP.
FYRSTA tilfellið af AIDS, eða
áunninni ónæmisbæklun, hefur
fundist á Taiwan. Það var
bandarískur læknir, 32 ára gam-
all, sem hné niður með krampa-
köstum í flugstöðvarbygging-
unni í Tapei. Hann var á ferða-
lagi og flugvél hans millilenti á
Taiwan.
Læknir þessi kenndi sér vart
meins er hann lagði af stað frá
Miðausturlöndum þar sem hann
hefur dvalist síðasta árið. En
vegna þess að hann fékk flesnu og
léttist þar nokkuð, fór hann í
læknisskoðun og þá var blóðsýni
tekið af honum og sent til Banda-
ríkjanna. Það stóð síðan nokkurn
veginn á endum, að um leið og
hann var kominn i sjúkrarúm i
Tapei og læknar þar veltu vöngum
yfir hvað kynni að ama að honum,
þá fundu sérfræðingar AIDS-
veiruna í blóði hans fyrir vestan
haf.
Forríkur rithöfundur í Beverly Hills:
Auglýsir eftir „alvöru
velskri eiginkonu"
CardifT, Waies, g. nura. AP.
SKIPTIBORÐIÐ hjá dagblaói í
Cardiff var rauðglóandi í dag, eftir
að auglýsing birtist í blaðinu þar
sem bandarískur milljónamæring-
ur auglýsti eftir kvonfangi úr „Döl-
unum“ f Wales. Hundruð kvenna
lögðu inn nöfn sfn, og margar
þeirra sendu einnig myndir með
ýmsum upplýsingum um hagi sína.
Milljónamæringurinn býr í Los
Angeles og hann hefur boðið réttri
stúlku „glæst líf*.
Auglýsingafulltrúi á blaðinu
sagði að nafn mannsins væri
leyndarmál. „Við megum þó
greina frá því, að hann er rithöf-
undur, 56 ára gamall og á ættir
að rekja til „Dalanna". Hann
lýsir eftir eiginkonu, 35—40 ára,
læsri, vel upplýstri og ekki feitri.
Viðkomandi þarf að hafa kímni-
gáfu, vera hlý, þrautseig og geta
lynt við lítinn loðinn hund að
nafni Arnold. Hann býr í Bev-
erly Hills og er vel efnaður,"
sagði fulltrúinn og bætti við
hann væri frægur maður og
myndi roðna mjög ef réttist hver
hann væri.
„Hann vill hafa hana 35—40
ára. Ég er 25 ára og of ung fyrir
hann. Samt ætla ég að freista
gæfunnar, ég hef allt hitt til
brunns að bera sem hann óskar
eftir,“ sagði ein af mörgum sem
hafði hug á að hreppa hnossið.