Morgunblaðið - 13.03.1985, Síða 20

Morgunblaðið - 13.03.1985, Síða 20
20 MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1985 EM Islandshestaeigenda: Reglur um val á ís- lenska landslið- inu lítið breyttar ÁKVEÐNAR hafa verið reglur til að fara eftir við val á landsliði tslands fyrir Evrópumótið í hestaíþróttum, sem haldið verður um miðjan ágúst í Hermenn í norðurflota Sovétríkjanna æfa landgöngu. Norræn staðfesta gegn sovéskri ásælni — eftir Arne Olav Brundtland Nú á dögum er Norður-Noregur eina svæðið á Norðurlöndum, sera er jafn hernaðarlega mikilvægt og Finnland var árið 1939 þegar Sovétmenn gerðu innrás inn í landið. Þetta skrifar sænski embættismaðurinn Örjan Berner í nýútkominni bók sinni „Sovétríkin og Norðurlönd — samvinna, öryggi og togstreita í fimmtíu ár“ (Sovjet & Norden — samarbete, sakerhet och konflikter under femtio ár, útg. Bonnier Fakta, Stokkhólmi 1985). Bókin kemur einnig út á ensku. Berner starfar nú fyrir sænsku utanríkisþjónustuna. Hann hlaut styrk til náms við Harvard-háskóla og skrifaði bókina þar. Höfundurinn leggur áherslu á að í bókinni komi eingöngu fram persónu- legar skoðanir hans. Þótt bókin sé stutt og hnitmiðuð geymir hún mikinn fróðleik og ekki spillir fyrir að Sverker Aström, þekktur sænskur embætt- ismaður, skrifar formála að henni. Svíþjóð. í fréttatilkynningu frá EM- nefnd segir að sjö hestar fari utan að venju og verða þeir valdir sem hér segir: 1. Stigahæsti keppandi úr tölti, fimmgangi, hlýðnikeppni og 250 metra skeiði eða gæðingaskeiði. 2. Stigahæsti keppandi úr tölti, fjórgangi, hlýðnikeppni og víða- vangshlaupi. 3. Stigahæsti keppandi úr tölti og fimmgangi. 4. Stigahæsti keppandi úr tölti og fjórgangi. 5. Stigahæsti keppandi úr flmmgangi og 250 metra skeiði og gæðingaskeiði. 6. Skeiðhestur sem náð hefur að skeiða 250 metra vegalengd á 23,0 sek. þarf að skila einum spretti í úrtöku undir 24,0 sek. 7. Hlutfallslega stigahæsti keppandi úr einni eftirtalinna keppnisgreina: tölti, fjórgangi eða fimmgangi. Nái enginn skeiðhestur settum lágmörkum verður valinn næst- stigahæsti keppandi f fimmgangi AÐALFUNDUR Bandalags kvenna í Reykjavík beinir því tU stjórnar bandalagsins, að það hlutist til um að I skólum Reykjavíkur verði efnt til hugmyndasamkeppni um hvernig bæta megi og fegra umhverfl í borg- inni. Að Bandalag kvenna í Reykja- vík gangist fyrir verðlaunaveit- og skeiði. Keppendur verða valdir í þeirri röð sem hér er getið. Haldin verður ein úrtökukeppni með tvöfaldri umferð og verður árangur úr báðum umferðum lát- inn gilda við valið. Hver þátttak- andi má vera með tvo hesta fyrri dag úrtökunnar en aðeins einn seinni daginn. óheimilt verður að skipta um knapa á hestum eftir að keppni er hafin. Úrtakan verður haldin á Viði- völlum, félagssvæði Fáks, dagana 5.-6. júlí nk. Keppendur þurfa að hafa skráð sig fjórtán dögum fyrir keppnina og er skráningargjald 2.500 kr. á hvern hest. óheimilt er að mæta með yngri hesta en sex vetra í keppnina. Ákveðin hafa verið lágmarks- stig til að öðlast þátttökurétt í úr- tökunni og eru þau sem hér segir: Fjórgangshestar: tölt 70 stig, fjórgangur 40 stig. Fimmgangshestar : tölt 60 stig, fimmgangur 50 stig og gæðinga- skeið 55 stig. Lágmarksárangur þarf að hafa náðst á löglegu íþróttamóti. ingu í viðurkenningarskyni fyrir bestu hugmyndir að mati þar til kvaddrar dómnefndar. Þessi samkeppni um bætt um- hverfi á vegum BKR verði framlag bandalagsins til Reykjavikurborg- ar og þar með félagssvæðis síns í tilefni af 200 ára afmæli Reykja- víkurborgar, 18. ágúst 1986. Leningrad Samanburður á stöðu Finna á fjórða áratugnum og Norð- manna nú á dögum hefur löng- um sett mark sitt á öryggismála- umræðuna í Noregi. Landamæri Finnlands og Sovétríkjanna lágu svo nærri Leningrad að Stalfn taldi að öryggi borgarinnar væri ógnað. Því áleit hann nauðsyn- legt að færa þau lengra til vest- urs. Stalín taldi hættu á að Þjóð- verjar hernæmu Finniand og gerðu þaðan árás á Sovétríkin. Þannig hófst strfð milli Finna og Sovétmanna, sem nefnt hefur verið Vetrarstrfðið. Niðurstaða Berners er sú að stefna Sovét- manna gagnvart Finnlandi hafi verið röng, en hann bendir á að stórveldi jafnt sem smáríki geri oft mistök við mótun utanríkis- stefnunnar. Finnmörk Samanburður Berners á Norður-Noregi og Finnlandi er einungis ábending. Bók hans fjallar aðallega um hlutverk hersvæða Sovétmanna umhverf- is Leningrad og á Kolaskaga og um mikilvægi Finnmerkur. Saga og landafræði skipta miklu við mótun öryggisstefnu Sovét- manna. Þeir hafa ekki gleymt því að herir Hitlers héldu frá Norður-Noregi þegar árásin á Murmansk var gerð í seinni heimsstyrjöldinni. Árás Þjóð- verja olli miklum skaða en þeim tókst ekki að hernema Murm- ansk. Ef til vill eykur þessi stað- reynd öryggistilfinningu Sov- étmanna. Þrátt fyrir að draga megi lærdóm af sögunni hefur slfkur samanburður í raun takmarkað gildi. Hættan á að fjendur Sov- étmanna myndu nýta sér Finnmörku til að gera árás til austurs er hverfandi lítil. Á þessu svæði eru yfirburðir Sov- étmanna of miklir. Ef Sovét- menn óttast um öryggi hernað- Bandalag kvenna: Samkeppni um fegrun Reykjavíkur á afmælinu 35 ár með íslenskum sjómönnum Rætt við Palle Grönvaldt skipshandlara — eftirGuðnýju Bergsdóttur Þeir eru margir fslensku sjó- mennirnir á kaupskipaflotanum, sem koma til Kaupmannahafnar ár hvert — og allir hafa þeir sam- band við skipshandlara. Aftur á móti eru það ekki margir sjómenn, sem til höfuðborgar Dana koma, sem ekki þekkja Palle Gronvaldt skipshandlara. Hjá honum voru þeir vanir að panta allt til skips- ins, vistir og varahlutir, en einnig allt annað milli himins og jarðar, frá jólagjöfum til trúlofunar- hringa! Palle sér um innkaupin, pakkar vörunum inn og stendur sjálfur með þær á hafnarbakkan- um þegar lagt er að. Stundum kemur hann út f bát, ef tfmi gefst ekki til að leggja að. En nú er það liðin tíð. Palle, sem verður sextug- ur 15. mars, hættir störfum sem skipshandlari 1. aprfl. Og það er ekki aprílgabb — segir hann sjálf- ur! Sjómennirnir hafa átt góðan vin þar sem Palle Granvaldt er, og ekki er að efast um að hann hefur hjálpað mörgum. En um það vill hann ekkert tala sjálfur. Einn kunningja hans sagði, að ef Palle skrifaði endurminningar sfnar — 35 ár með íslenskum sjómönnum — þá myndi hann stórgræða á þeim, en sennilegast myndi hann græða enn meira, ef hann skrifaði þær ekki! Þegar Palle Gronvaldt var sótt- ur heim fyrir nokkrum dögum, var hann stáíhress eins og vanalega, jafnvel þótt hann væri fótbrotinn! í hálkunni fyrir um það bil mán- uði rann hann og datt þegar hann var að setja bensín á bílinn. Og má ekki stíga í fótinn. En hin fræga danska kfmni lætur slíkt ekki á sig fá og Palle vinnur nú bara heima f staðinn. En gefum honum orðið. Fyrst með „herra Bruun“ nÉg byrjaði að vinna hjá Oscar Rolffs Eftf. þann 1. aprfl 1950. Þá Palle Grönvaldt. — Kunningjarnir fjölmörgu kannast við hið hlýja og glettna bros. var fyrirtækið til húsa f kjallaran- um við Sankt Annæ Plads í Ný- höfninni. Til að byrja með hafði ég að mestu samband við þýsk, hol- lensk og dönsk skip, en pakkaði einnig niður vörum eftir pöntun- um frá fslensku skipunum. Það var „gamli" Bruun — eða „herra Bruun“ eins og íslendingarnir kölluðu hann alltaf, sem hafði tek- ið á móti pöntununum. Þannig byrjaði ég að koma um borð f ís- lensku skipin," segir Palle. „Oft þurfti að skipa vörunum, vegna þess að þær pössuðu ekki þegar til skips kom. Þá voru skipin ýmist með 110 eða 220 volt og oftast var þetta aldrei nefnt í pöntunum né önnur atriði, sem nauðsynlegt var að fá að vita. Vél- stjóri á skipi þá var fullviss um að hans skip væri það eina sem ein- hverju máli skipti f heiminum — og þar af leiðandi hlytu allir að vita á hverju hann þyrfti að halda! Reyndar fyrirfinnast enn nokkrir, sem hafa þessa skoðun!" Palle Gronvaldt fylgdist sem sagt með Bruun um borð i islensku skipin og smám saman safnaði hann saman nauðsynlegum tækni- legum upplýsingum um hin ein- stöku skip í sambandi við vélar, straumleika, fatningar, lampa og margt annað. Fljótlega varð því ekki naðsynlegt að skifta hlutun- um svo oft við pantanir eins og áður. Þeir skildu hvað ég var ad fara Um leið kom áhuginn að læra íslensku. „Ég fór reyndar í tvo kennslu- tima í íslensku hjá Bjarna Einars- syni, en við gáfumst upp — báðir. Eg borgaði þessa tvo tima með einum kassa af eplum! Karl Sigurðsson, sem þá stund- aði nám við veitingaskóla í Kaup- mannahöfn — seinna bryti hjá Eimskip og nú kaupmaður á Akra- nesi — kom til mín á hverjum miðvikudegi — ásamt öðrum ógiftum náungum — og kenndi hann mér mörg fslensk orð, án þess þó að aðaláherslan væri lögð á málfræðina. Það var Ifka ná- kvæmlega það, sem ég hafði þörf fyrir. Á skipunum var það aðallega Jón örn Ingvarsson hjá Samband- inu, sem reyndi að kenna mér þær setningar og orðatiltæki, sem ég hafði mest þörf fyrir í sambandi við pantanir. Til allrar hamingju hef ég aldrei verið feiminn, svo ég tók það ekki nærri mér, þegar allir veltust um af hlátri i hvert skipti sem ég sagði eitthvað rangt. En svo mikið er víst, þeir skildu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.