Morgunblaðið - 10.04.1985, Side 3
MORGUNBLAMÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. APRlL 1985
Flamingóinn kom meö álftum til íslands:
„Þær munu hafa séð
að hann var ekki álft“
— segir Sigurður Björnsson á Kvískerjum
„OKKUR skilst að álftirnar hafi ekki verið sérlega hrifnar af flamingóanum
— þær munu hafa séð að hann var ekki álft þótt hálslangur væri,“ sagði
Sigurður Björnsson, bóndi á Kvískerjum í Öræfasveit, í samtali við blm.
Morgunblaðsins um flamingóann, sem fannst á Mýrum á laugardaginn.
Sigurður sagðist helst hallast að
því að fuglinn væri ættaður úr
dýragarði á Bretlandseyjum.
„Þessir fuglar eru gjarnan í hóp-
um í opnum görðum svo það er
ekki útilokað að einn og einn verði
viðskila við hópinn. Hann hefur
svo líklega flækst til íslands með
álftunum, sem komu hingað í
veðrinu fyrir helgina. Það kom þá
öflug lægð upp að landinu og hún
hefur létt undir með honum á
fluginu," sagði hann. „Ég held að
það sé útilokað að hann hafi kom-
ið hingað alla leið frá Suður-
Ameríku. Það kom mikið af skóg-
arþröstum og álftum til landsins
þennan sama dag — hann gæti
hafa fylgt þeim eftir."
Flamingóar eru óvenju fallegir
fuglar, bleikir á lit, hálslangir og
Áreitti stúlku
UNGUR maður var handtekinn að
morgni fimmtudagsins eftir að
hafa áreitt stúlku. Atburðurinn
átti sér stað á Tómasarhaga og
mun maðurinn hafa komist inn
um glugga á herbergi stúlkunnar
þar sem hún lá sofandi. Stúlkan
vaknaði við það að maðurinn lagð-
ist nakinn i rekkju hennar og kom
til átaka milli þeirra og náði
stúlkan að koma manninum út.
Lögreglan var kvödd á vettvang og
var maðurinn handtekinn
skömmu síðar.
tignarlegir — sá sem fannst í
Holtahólum er talinn hafa verið
um 130 sentimetrar á hæð. Fuglar
af þessu tagi lifa á vatnagróðri,
sía fæðuna frá leðjunni með ein-
skonar skíðum í efri hvolfti. Guð-
mundur bóndi Bjarnason í Holta-
hólum sagðist hafa orðið stein-
hissa þegar hann rak augun í fugl-
inn á laugardagsmorgun, um 400
metra frá bænum. „Hann virtist
spakur," sagði Guðmundur. „Þetta
var rétt við veginn og fólk var að
stoppa bíla sína til að skoða hann.
Álftirnar voru fljótar að fljúga
upp en hann settist alltaf fljótt
aftur.“
Guðmundur gerði Hálfdán
Björnssyni á Kvískerjum, ein-
hverjum náttúrufróðasta manni
hérlendis, viðvart og hann setti
sig í samband við Ævar Petersen
á Náttúrufræðistofnuninni í
Reykjavík. Þeir töldu heilladrýgst
að aflífa fuglinn, svo hægt væri að
ganga úr skugga um hvaða af-
brigði flæmingja væri um að ræða
— og svo vantar flamingóa á Nátt-
úrugripasafn íslands. „Hann hefði
kannski getað lifað hér til næsta
hausts en þá er spurning hvað
hefði orðið um hann,“ sagði Ævar.
„Nú munum við spyrjast fyrir um
það í nágrannalöndunum hversu
algengt þetta afbrigði er og þá
verður kannski hægt að segja með
nokkurri vissu um hvaðan hann er
kominn.“
Einhver tími mun liða þar til
flamingóinn verður til sýnis.
MorgunblaðiA/G.Berg.
Góöa veöriö á Akureyri
VeðriA lék við Akureyringa um páskahátíðina og sóttu þeir mikið
skíðabrekkurnar í Hlíðarfjalli. En það voru ekki allir nógu gamlir til að
renna sér á skíðum og var þá góða veðrið notað til að moka snjó í fötu.
Skák:
Góður árangur
Sævars Bjarna-
sonar í New York
SÆVAR Bjarnason hafnaði í 7.—12.
sæti á opnu alþjóðlegu skákmóti í
New York, sem lauk á mánudag.
Með árangri sínum náði Sævar 2.
áfanga að alþjóðlegum meistaratitli í
skák, að sögn forráðamanna mótsins.
Hins vegar taldi Sævar líklegt, að
hann hefði náð áfanga að stórmeist-
aratitli. Árangur Sævars er mjög góð-
ur og í síðustu umferð bar hann sigur-
orð af stigahæsta alþjóðlega meistara
heims, Spraggett frá Bandaríkjunum.
11.—6. sæti á mótinu urðu Ljub-
omir Ljubojevic, Júgóslavíu og
Bandaríkjamennirnir Kudrin,
D’Lugy, Christiansen, Seirawan og
DeFirmian með 7 vinninga. I
7,—12. sæti urðu Adorjan, Júgósla-
víu, Gheorhiu, Rúmeníu, Barlov,
Júgóslavíu, Sævar Bjarnason,
Lombardy, Bandaríkjunum og
Gurevich, Bandaríkjunum.
Alls tóku liðlega þúsund skák-
menn þátt í mótinu, þar af telfdu í
efsta fiokki 138 skákmenn frá 14
löndum.
5 skipverjar
á Arinbirni
játa smygl
FIMM skipverjar á togaranum
Arinbirni RE hafa. viðurkennt að
vera eigendur að 650 lítrum af
spíra, sem tollverðir úr Reykjavík
lögðu hald á í Hafnarfjarðarhöfn
síðastliðinn miðvikudag. Áfengið
var sótt í smábát út á Faxaflóa,
þar sem skipverjarnir köstuðu
áfenginu í sjóinn. Arinbjörn RE
var að koma úr söluferð frá
Cuxhaven í V-Þvzkalandi.
Ætlir þú aö ávaxta fé þitt í lengri eöa skemmri tíma
er þér óhætt aö set jast niður, loka eyrunum fyrir öllum gy llibtJÖum og bera saman k jör og öryggi
á sparifjármarkaðnum. Niöurstaöan veröur áreiöanlega sú að þú velur
spariskírteini ríkissjtÝös aö því loknu og stendur upp meö pálmann í höndunum.
Verötryggö spariskírteini
nieð 7% vöxtum. Innlevsanleg
eftir 3 ár.
Verötrvggö spariskírteini
meö 6.71% vöxtum sem greiðast
misserislega. Innleysanleg
eftir 5 ár.
Verðtryggð spariskírteini
til 18 mánaöa meö vöxtum sem
eru meöaltal vaxta
viðskiptabankanna á 6 mán.
Gengistryggö spariskírteini
meö 9% vöxtum til 5 ára.
verötr. reikn.
+ 50% VAXTAAUKA.
ENGIR LEYNDIR VARNAGLAR - ENGIR LAUSIR ENDAR
HREINIR OG KLÁRIR SKILMÁLAR MEÐ MEIRl ÁVÖXTUN OG FULLKOMNU ÖRYGGI.
1
Solustaðir eru:
Seðlabanki Islands. viðskiptabankamii, sparisjóðir, nokkrir verðbréfasalar og pósthús um land allt.
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS