Morgunblaðið - 10.04.1985, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1985
Ákvörðun bankaráða um greiöslur til bankastjóra:
Framkvæmd
verði frestað
— segir í bréfi viðskiptaráðherra til bankaráðanna
RÍKISSTJÓRNIN fjallaði á fundi sínum í gærmorgun um afgreiðslu
bankaráða ríkisbankanna á greiðslum til bankastjóra, sem ákveðið var að
kæmu í stað greiðslna vegna bifreiðakaupa bankastjóra. Viðskiptaráð-
herra sendi síðan bankaráðunum bréf eftir fundinn þar sem hann óskaði
eftir greinargerðum um mál þetta þegar í stað. Jafnframt mæltist hann til
pess að bankaráðin frestuðu framkvæmd samþykktanna.
Þingflokkar Alþýðuflokksins
og Bandalags jafnaðarmanna
o
INNLENT
hafa báðir sent frá sér mótmæli
vegna þessara ákvarðana banka-
ráðanna. Greiðslur þær sem hér
um ræðir munu nema um 450
þús. kr. til hvers bankastjóra og
eiga að koma í staðinn fyrir
greiðslur tii bílakaupa. Þær
munu samkvæmt heimildum
Mbl. inntar af hendi um og upp
úr áramótum.
Að sögn viðskiptaráðherra er
að vænta frumvarps um við-
skiptabankana á Alþingi á næstu
dögum. Hann var af því tilefni
spurður hvort fyrirhugaðar væru
breytingar í frumvarpinu á því
hver tæki ákvarðanir um launa-
kjör bankastjóra. Hann sagði að
í núverandi mynd gerði frum-
varpið ráð fyrir óbreyttum regl-
um, þ.e. að bankaráðin tækju
einhliða ákvörðun um þau. Hann
sagði síðan: „Ég mun að sjálf-
sögðu taka til athugunar hvort
breyta eigi þeim ákvæðum þar
sem fjallað er um launakjör í
frumvarpinu. Þá hefur Alþingi
ennfremur möguleika á að skoða
málið sérstaklega þar sem frum-
varpið verður tekið til umfjöllun-
ar á næstu dögum.“
Akranesið statt í Osakahöfn
Hnattsigling ms. Akraness:
Tveir fimmtudagar í röö
— þegar farið var yfir 180. lengdarbauginn
því að hjá áhöfninni á Akranesinu
eru 32 dagar í marsmánuði. Hefði
Akranesið siglt hina leiðina kring-
um hnöttinn þ.e. farið vestur um
frá *slandi, hefði klukkunni verið
flýtt um 24 klukkustundir og mars-
mánuður þá aðeins innihaldið 30
FLUTNINGASKIPIÐ Akranes sem í
heimssiglingii sinni er nú statt á
Kyrrahafi á leið sinni frá Kína til Los
Angeles, þar sem það tekur olíu, vatn
og vistir, sigldi yfir 180° lengdar-
bauginn á miðnætti 28. mars sl.
Þegar skipið sigldi yfir bauginn
var klukkunni seinkað um 24
klukkustundir, þannig að hjá
skipverjum var fimmtudagurinn
28. mars tvisvar í röð. Þetta veldur
MorgunWðW/HB)
Flak Bervíkur að byrja að koma upp úr sjónum á fjörunni á annan
páskadag.
Kristbjörn Þórarinsson skoðar aðstæður um borð í Bervík þegar flakið
hafði verið rétt nokkuð við á fjörunni. Eins og sést að hluta til á myndinni
er flakið illa farið eftir slysið og tilfæringar í sjónum að því loknu.
Bervíkurslysið:
Kafarar fundu lík
þriggja skipverja
— Leit er haldið áfram
LEIT að skipverjunum af Bervík
SH 43 sem fórst skammt undan
Rifi fyrir hálfum mánuði stóð alla
páskahelgina. Hafa lík þriggja
mannanna fundist en tveggja er
enn leitað. Menn frá Köfunarstöð-
inni og heimamenn á Hellissandi
og í Ólafsvík hafa jafnframt unnið
að því að ná upp flakinu af bátnum
og er hann nú kominn upp á grynn-
ingar skammt frá landi.
Fundist hafa lík Úlfars Krist-
jónssonar skipstjóra, Sveins
Hlyns Þórssonar stýrimanns og
Jóhanns óttars Úlfarssonar há-
seta. Voru þeir í sjónum skammt
frá þeim stað sem Bervík sökk.
Að undanförnu hefur leitin
einkum beinst að slysstaðnum og
svæðinu þar í kring. Kafarar
björgunarsveita Slysavarnafé-
lags tslands hafa aðallega leitað
en einnig hafa komið til aðstoðar
kafarar frá lögreglunni í
Reykjavík. Við leitina eru notað-
ir fiskibátar og gúmbátar og
notuð neðansjávarmyndavél. Fé-
lagar úr björgunarsveitum
Slysavarnafélagsins gengu fjör-
ur þar til í fyrradag, en þá var
því hætt.
Að frumkvæði Vélbátatrygg-
ingar Breiðafjarðar, sem var
með bátinn i tryggingu og
heimamanna hafa starfsmenn
Köfunarstöðvarinnar hf. að und-
anförnu unnið að því að ná upp
flaki Bervíkur. Tilgangurinn er
að fjarlægja flakið af siglinga-
leiðinni og reyna að bjarga verð-
mætum úr því. Orion, skip Köf-
unarstöðvarinnar, og nótarskip-
ið Skarðsvík SH frá Rifi hífðu
flakið upp af hafsbotni og drógu
upp á grynningar, þannig að
hægt væri að rétta það við á
fjöru, dæla sjónum úr því og
koma því á flot. Ætlunin var að
taka vélina úr bátnum en leggja
honum síðan. Ekki hefur enn
reynst unnt að koma bátnum á
flot. Hann er mjög illa farinn og
taldi Kristbjörn Þórarinsson hjá
Köfunarstöðinni vafasamt að
það væri hægt að koma honum á
flot vegna þess hversu lekur
hann er orðinn. Menn frá rann-
sóknarnefnd sjóslysa og
Siglingamálastofnun hafa verið
á staðnum og skoðað flakið.
Ákranesið er væntanlegt til Los
Angeles 6. apríl. Þaðan fer skipið
gegnum Panama-skipaskurðinn til
Baltimore og síðan til Lambert
Point þar sem lestuð verða kol
fyrir Járnblendifélagið á Grund-
artanga, en þaðan fór skipið 16.
janúar sl. og sigldi á leið sinni til
Japan gegnum Gíbraltarsund,
Suez-skipaskurðinn og Indlands-
hafið með viðkomu f Singapore.
Farmur skipsins 7000 tonn af
járnblendi var losaður í Osaka og
Kawasaki í Japan. Frá Japan sigldi
skipið til Dalian í Kína, þar sem
lestað var fullfermi af magnusite
til Baltimore á austurströnd Amer-
íku.
Til Grundartanga er skipið
væntanlegt ca. 10. maí, og hefur
hnattsiglingin þá tekið tæpa fjóra
mánuði.
í áhöfn skipsins eru 17 karlar og
ein kona.
Geir Zo'éga
látinn
Á páskadag lést í Borgarspitalanum
einn hinna eldri Vesturbæinga, Geir
Zoega forstjóri Öldugötu 14. Hann
varð 88 ára, fæddur 27. júlí árið 18%.
Um langt árabil var Geir umboðs-
maður fyrir breska togaraútgerðar-
menn hér á landi. Foreldrar hans
voru Geir kaupmaður Zoega og Helga
Jónsdóttir er var síðari kona Geirs.
Árið 1913 brautskráðist Geir frá
Verzlunarskóla íslands.
Hann var lengi vel búsettur suður
í Hafnarfirði, en þar var hann um-
boðsmaður fyrir breska togarafé-
lagið Hellyersbræður, sem ráku
umfangsmikla útgerð þar. Sjálfur
var hann einnig útgerðarmaður á
þessum árum. Þá starfaði Geir á
árum seinni heimsstyrjaldarinnar
fyrir bresku stjórnina hér og ann-
aðist fiskkaup fyrir Breta. Hafði
hann með höndum fiskflutninga
héðan til Bretlands, sem voru um-
fangsmiklir. Halut hann fyrir þessi
störf og önnur fyrir Breta hérlendis
bresk heiðursmerki.
Eiginkona Geirs er Halldóra
Ólafsdóttir frá Keflavík og lifir hún
mann sinn ásamt tveim börnum
þeirra. Síðasta árið átti Geir við
vanheilsu að stríða. Spítalavist
hans að þessu sinni var um það bil
tvær vikur.