Morgunblaðið - 10.04.1985, Blaðsíða 39
39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. APRlL 1985
............ ......................
Elsa (Ragnheiður Arnardóttir). Einar (Eggert Þorleifsson) og blaðamaðurinn (Þrá-
inn Bertelsson).
Kíkt inn í myrkrið
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
NÝJA BÍÓ: SKAMMDEGI ★ ★
Leikstjóri: Þráinn Bertelsson.
Framleiðandi: Jón Hermannsson.
TónlisL- Lárus Grímsson. Kvik-
myndataka: Ari Kristinsson. Aðal-
hlutverk: Ragnheiður Arnardóttir,
María Sigurðardóttir, Eggert Þor-
leifsson, Hallmar Sigurðsson.
Nýtt líf 1985. Sýnd í Dolby.
Mynd Þráins og félaga,
Skammdegi, er ójöfn mynd, full
af góðum sprettum, en fellur
niður þess á milli, einkum sökum
ónógrar spennu í handriti. Það
er einsog ekki hafi tekist nægi-
lega vel að skilja kjarnann frá
hisminu. Oft glittir í góðan þrill-
er en einhverra hluta vegna er
einsog hann renni útúr höndum
kvikmyndagerðarmannanna
þegar líða tekur á myndina.
Fyrri hlutinn (fyrir hlé) er oft
ári magnaður. Við fylgjumst
með bralli peningamanna við að
sölsa undir sig afskekkta jörð á
Vestfjörðum þar sem hún er
ákjósanleg til fiskiræktar sökum
jarðhita. Þrjú systkinanna búa á
kotinu, en helming þess á stúlka,
Ragnheiður Arnardóttir, sem
gift var elsta bróðurnum sem er
nýlátinn. Hún er á sveif með
bröskurunum og fer vestur til að
hvetja mágkonu sína og mága til
að selja.
Það er einkum systirin, (María
Sigurðardóttir), sem ófús er að
yfirgefa jörðina, orðin heimótt-
arleg af einverunni. Álit annars
bróðurins, (Eggert Þorleifsson),
skiptir minna máli, þvi hann á
við geðræn vandamál að stríða.
Hinn (Hallmar Sigurðsson), er á
báðum áttum.
Lengra verður söguþráðurinn
ekki rakinn. Þetta er bakgrunn-
urinn, nú ættu „myrk öfl að fara
að leysast úr læðingi", sbr. aug-
lýsingu. Það er komið fram í
miðja mynd og allt gengið með
ágætum. Búið er að byggja upp
talsverða spennu meðal áhorf-
enda sem bíða hungraðir eftir
krassandi lokauppgjöri. Þar í
liggur megin ókostur Skamm-
degis að endaslagurinn er ekki
nógu kraftmikill. Hann er ekki
ósennilegur, miðað við það sem á
undan er gengið, ekki órökrétt
framvinda atburðanna, hinsveg-
ar of bragðlítill. Það hefði að
ósekju mátt vera meiri „drauga-
gangur".
Á hinn bóginn er margt fag-
lega gert. Rammi myndarinnar
er stórkostlegur, bæði umhverf-
ið, árstíminn, birtan. Maður hef-
ur á tilfinningunni að á slíkum
afkima veraldar geti í rauninni
ýmislegt gerst á myrkum
skammdegisnóttum þegar tungl-
ið veður í skýjum. Hér skiptir
kvikmyndatakan og tónlistin
ekki svo litlu máli við að magna
spennuna og báðir þessir þættir
eru ákaflega góðir. Hljóðupp-
taka er einnig vönduð, ein sú
besta í íslenskri kvikmynd til
þessa, Dolbyið drynur.
Yfirleitt spillir leikurinn ekki
fyrir Skammdegi. Ragnheiður
Árnardóttir er glæsileg leikkona
sem gerir flest vel sem henni er
sett fyrir í myndinni. María Sig-
urðardóttir á góða kafla, rétt
valin „týpa“ í hlutverkið en á í
örlitlum vandræðum með fram-
sögn. Hallmar Sigurðsson renn-
ur átakalítið í gegnum sína
rullu. En það er Eggert Þor-
leifsson sem er stjarna þessarar
myndar. ómenntaður í leiklist,
(líkt og fleiri góðir menn), sann-
ar að hann er leikari af guðs náð!
Hann fer á kostum í hlutverki
geðveika bróðurins, svo unun er
að fylgjast með hverri hans
hreyfingu.
Skammdegi er gerð af mun
meiri metnaði en tvær fyrri
myndir Nýs lífs, með sterkari
hápunkti væri hún vissulega í
hópi okkar bestu mynda. Við Is-
lendingar, með hverskyns
draugasögur, reimleika og þjóð-
trú svo ofarlega í þjóðarvitund-
inni, viljum magnaðar sögur.
Stórkostleg sýning
á gallerímyndum og plakötum.
Frábært úrval
góöra fermlngargjafa.
Opið laugardag kl. 10—17,
sunnudaga kl. 13—17.
Dalshrauni 13
Myndin sími 54171
Frá Grunnskólum
Reykjavíkur
Innritun sex ára barna (þ.e. barna sem fædd eru á árinu
1979) fer fram í skólum borgarinnar miövikudaginn 10.
og lýkur fimmtudaginn 11. apríl nk., kl. 15—17 báöa
dagana.
Það er mjög áríðandi aö foreldrar láti innrita börnin á
þessum tilgreinda tíma eigi þau aö stunda forskólanám
næsta vetur.
Skólastjórar
fFrá skólaskrifstofu
Reykjavíkur
Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem þurfa aö
flytjast milli skóla fyrir næsta vetur fer fram í skóla-
skrifstofu Reykjavíkur, Tjarnargötu 12, sími 28544, miö-
vikudaginn 10. og fimmtudaginn 11. apríl nk., kl. 10—15
báöa dagana.
Þetta gildir um þá nemendur, sem flytjast til Reykjavíkur
eöa úr borginni, koma úr einkaskólum eöa þurfa aö
skipta um skóla vegna breytinga á búsetu innan borgar-
innar.
Þaö er mjög áríöandi vegna nauösynlegrar skipulagn-
ingar og undirbúningsvinnu aö öll börn og unglingar
sem svo er ástatt um veröi skráö á ofangreindum tíma.
Þá nemendahópa, sem flytjast í heild milli skóla aö
loknum 6. bekk, þarf ekki aö innrita.
Framleiðslu-
stýring
Námskeið fyrir stjórnendur
framleiöslufyrirtækja
Framleiðslustýring er kerfisbundin aöferö viö aö
skilgreina verkefni, skipuleggja, skrá og meta út-
komuna hvaö varöar tíma, gæöi, verö og kostnaö.
Helstu efnisþættir sem teknir veröa fyrir á nám-
skeiöinu eru:
• Verdlagning með hliðajón af markaöi, kostnaði og
takmarkandi þáttum framleiöslunnar.
• Tímaáætlun meö óherslu á aö afgreiösla standist.
• Framleiöslustýring meö tilliti til hámarksnýtingar
vála, aöstööu og mannafta á hverjum tíma.
• Framleiöslueftirliti þar sem áhersla er lögö á aö
útkoman liggi strax fyrir eftir hvert vinnslustig
þannig aö gripið sé strax á vandamálum.
• Framleiöslueftirlit þar sem lesa má út afkomu
hvers verks strax að því loknu og hvers tímabils
jafnóöum.
• Gæöaeftirlit þar sem fjallaö er um gæöastaöal, há-
marksfrávik, öryggismörk og eftirlitsþörf.
Námskeiöiö er ætlaö stjörnendum framleiösiufyr-
irtækja, framkvæmdastjórum, verksmiðjustjórum,
og verkstjórum.
Fyrsta námskeiöiö veröur haldiö dagana 12. og
13. apríl og veröur sérstaklega sniöiö aö þörfum
prjónastofa.
Nánari upplýsingar gefnar í síma 687311.
Hannarr
RÁÐGJAFAÞJÓNUSTA
Síðumúla 1 108 Reykjavík Simi 687311
Aðsloö vlð: SliornsKipulag — AaBllanagerð — Hagræöingu —
Fjarleslingarmat — Markaðsmál — Starfsmat — Launakartl —
Namskeiðahalð — Lay-oul — TðtvuvSBðlngu — Gaaöamil o.fl.