Morgunblaðið - 10.04.1985, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR10. APRlL 1985
63
Eyðum ekki kröft-
unum til einskis
Kæri Velvakandi
Mörg okkar hafa án efa fengið
heimsóknir trúboða. Einn dag-
inn kann að vera að kristinn
maður úr einhverjum kristnum
sértrúarflokknum banki upp á
dyrnar hjá okkur, og þegar sá
dagur er kominn að kveldi er ef
til vill bankað á nýjan leik og við
dyrnar stendur annar kristinn
maður tilbúinn að kynna fyrir
okkur sinn flokk og stefnu-
markmið til sáluhjálpar.
Fjöldi trúboða frá hinum
ýmsu sértrúarflokkum ganga
hús úr húsi með boðskap sinn til
að vinna sálir fyrir Krist. Það er
ekkert eðlilegra fyrir kristinn
mann en að boða hinar góðu
fréttir, Fagnaðarboðskapinn.
Hitt er leiðinlegt að vita að
sértrúarflokkar skuli berjast
innbyrðis um sálirnar.
Því langar mig til þess að
beina orðum mínum til þessara
ágætu systkina minna í Kristi
sem leggja mikið á sig með glöðu
geði fyrir Krist. Reynum heldur
að minna fólk á hjálpræðið sem
fæst fyrir trúna á Jesúm og ein-
ungis hann, í staðinn fyrir að
munnhöggvast hver við annan
og eyða þannig kröftum okkar til
einskis. Það er ekki spurt um
hvaða flokki við tilheyrum, held-
ur hvort við trúum eða trúum
ekki á Jesúm Krist, ... þ v í ekki
er hjálpræðið í neinum öðrum,
því ekki er heldur annað nafn
undir himninum er menn kunna
að nefna er oss sé ætlað fyrir
hólpnum að verða.“ (Post.4:12)
Hvort sem lesandi minn er trú-
boði eða sá sem fer til dyra þá
hafi hann hugfast það sem segir
í Rómverjabréfinu 10. kafla
versi 9: „Því að ef þú játar með
munni þínum Drottin Jésum og
trúir með hjarta þínu að Guð
hafi uppvakið hann frá dauðum
muntu hólpinn verða."
Með þökk fyrir birtinguna
Einar Ingvi Magnússon
Lítilfjörleg
verðlaun
Osta- og smjörsalan hefur aug-
lýst eftir ostauppskriftum, og þeir
auglýsa grimmt, einkum í sjón-
varpi. Þar er ekki sparað í aug-
lýsingakostnað. En hver eru verð-
launin? Helgarferð til Kaup-
mannahafnar með kvöldverði einu
sinni, helgarferð til Húsavíkur,
ekki einu sinni með kvöldverði, og
helgarferð til Akureyrar, ekki
heldur með neinu.
Ég hefði haldið að þessi verð-
laun væru „hefndargjöf fyrir
vinningshafa".
Það er gott og blessað og ágætt
að auglýsa eftir uppskriftum,
margir hafa gaman af að taka
þátt í þeim — en þetta — nei —
þetta er ekki hægt að bjóða fólki.
Minnkið auglýsingar í sjónvarpi
og bjóðið vinningshafa hótel- og
matarkostnað meðan á helgarreis-
unni stendur.
K.G.
Trausti Jónsson
Trausta
aftur í
sjónvarpið
Jón Gunnarsson, Þverá, skrif-
ar:
Sjónvarps- og útvarpsráð taki
eftirfarandi til athugunar:
Við útvarps- og sjónvarps-
hlustendur viljum gjarnan að
Trausti veðurfræðingur komi
aftur til starfa hjá sjónvarpinu
svo fljótt sem auðið er. Hinn
skemmtilegi og lifandi veður-
fréttaflutningur hans hentar
mjög vel í okkar veðurbarða
landi og mættu gjarnan fleiri
veðurfræðingar temja sér álíka
útfærslu á veðurfréttum.
Skáldlegar og skemmtilegar
lýsingar Jóns Múla á morgnana
lífga ótrúlega mikið upp á. Fyrir
alla muni, leyfið þulum og veður-
fræðingum sem til þess eru fær-
ir, að tala ofurlítið frá eigin
brjósti. Það lífgar ótrúlega mik-
ið upp á annars þokkalega
dagskrá.
Varla mun leika á því nokkur
vafi að fréttastarf sem og þátta-
gerð Ómars Ragnarssonar eru
eitt vinsælasta efni sem sjón-
varpið flytur, enda maðurinn
með ótrúlega fjölhæfa þekkingu
á atvinnuháttum, landi og þjóð
og mörgu öðru, svo sem sálar-
fræði, þó að hann hafi yfirleitt
ekki pappíra til að styðjast við.
Mættu vera fleiri þættir með
Ómar við stjórnvölinn ef kostur
er.
Ég var aldrei í neinum vafa
um að sjónvarpsstarfsemi á ís-
landi myndi takast. Það hefur
líka komið í ljós að myndatöku-
og dagskrárgerðarmenn eru oft
á tíðum hreinir snillingar og oft
standa þeir miklu framar
starfsbræðrum sínum á hinum
Norðurlöndunum. Um kvik-
myndaval má það segja að
margt er gott, en annað fyrir
neðan allar hellur, svo ekki sé
meira sagt.
Skrifið eða hringið
til Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaöeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til
föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er
þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fvrirspurnir og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisfóng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Takk fyrir „Ltfandi heiminnu
David Attenborough
Himinlifandi sjónvarpsnotandi
hringdi:
Ég má til með að láta í ljós
ánægju mína með breska heimild-
armyndaflokkinn Lifandi heimur
sem nú er sýndur í sjónvarpinu.
Hann er alveg einstaklega vel
gerður, fróðlegur og fallegur. Att-
enborough vílar fátt fyrir sér í
rannsóknarferðum sínum og er
ótrúlega fimur þar sem hann
sveiflar sér á milli trjástofna og
klífur fjöll og kletta.
Það eru engar ýkjur að ég sit
límd við skerminn á miðviku-
dagskvöldum og sannfærð er ég
um að fimmtán fílar gætu ekki
dregið mig frá honum á meðan á
sýningu heimildarflokksins stend-
ur.
Ekki má gleyma óskari Ingi-
marssyni sem er bæði frábær þýð-
andi og þulur og er hrein unun að
hlýða á hans hljómþýðu rödd um
leið og horft er á fallegar plöntu—
og dýralífsmyndir. Hafi hann
þökk fyrir og jafnframt sjónvarp-
ið fyrir að leyfa okkur að verða
þeirrar ánægju aðnjótandi að
fylgjast með þessum þætti.
TÓNABÍÓ
Slmi31182
frumsýnir páskamyndina
Hörkuspennandi og snilldarvel gerð, ný,
amerísk sakamálamynd í litum. Myndin
hefur aðeins verið frumsýnd í New York,
London og Los Angeles. Hún hefur hlotiö
frábæra dóma gagnrýnenda sem hafa lýst
henni sem einni bestu sakamálamynd síð-
ari tíma. Mynd í algjörum sérflokki.
ísl. texti.
John Getz, Frances McDormand.
Leíkstjóri: Joel Coen.
Sýnd kl. 5, 7,9 og 11.10.
Stranglega bönnuö innan 16 ára.
Námskeið fyrir
iónfyrirtæki
Vöruþróun og markaðssókn
veröur haldiö á vegum Félags íslenskra iðnrekenda 16.—18.
apríl nk.
EFNI:
— Umfjöllun og skilgreining helstu hugtaka, vöruþróun — til
hvers?
— Aðferðir til vöru-, markaösgreiningar.
— Innri greining — ytri greining, aöferöir til mats á sterkum og
veikum hliðum fyrirtækja.
— Mat á þróun markaðarins (þarfir og kröfur).
— Leit að nýjum framleiðsluhugmyndum.
— Samanburöur og val hugmynda.
— Gerö framkvæmdaáætlunar.
— Framkvæmd aögeröa.
— Fjármögnun vöruþróunarverkefna.
MARKMIÐ:
Gera þátttakendur færa um aö standa fyrir og stjórna vöru-
þróun innan eigin fyrirtækja, þannig aö hámarks árangur náist
meö lágmarks kostnaöi.
ÞÁTTT AKENDUR:
Stjórnendur fyrirtækja; forstjórar, framkvæmdastjórar, deildar-
stjórar, tæknimenn og aðrir starfsmenn er bera ábyrgö á vöru-
þróun, framleiöslustjórnun og markaðsmálum.
TÍMI:
16.—18. apríl kl. 8:30—12:30, samtals 12 tímar.
STAÐUR:
Hallveigarstígur 1, 3. hæö.
VERÐ:
Fyrir félagsmenn Fil kr. 2.400.-
Fyrir aöra kr. 3.200.-
Þátttaka tilkynnist til Félags íslenskra iönrekenda, Hallveigar-
stig 1, sími 91-27577 fyrir 12. apríl nk.
LEIÐBEINANDI:
Gunnar B. Hinz, tæknideild Fll.
Markmið Félags islenskra iönrekenda er aö efia islenskan iönaö þannig aö
iönaöurinn veröi undirstaða bættra lifskjara. Félagiö gætir hagsmuna iönaöarins
gagnvart opinberum aöilum og veitlr felagsmönnum ýmiskonar þjónustu.
FÉLAG ÍSLENSKRA
IÐNREKENDA