Morgunblaðið - 10.04.1985, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1985
64
Viðræður um þátttöku
íslendinga í þróunar-
verkefnum í Eþíópíu
FJÓRIR Eþíópíumenn dveljast hér i landi dagana 7.—16. aprfl í boói
utanríkisráðuneytisins í samvinnu við Hjálparstofnun kirkjunnar og l>róun-
arsamvinnustofnun fslands til þess að kynna sér jarðhita og vatnsveitumál
svo og möguleika íslenskra sérfræðinga og fyrirtækja á að veita ráðgjöf og
taka þátt í framkvæmdum á því sviði.
Eþíóparnir eiga viðræður við ís-
lensk stjórnvöld, starfsmenn
Orkustofnunar, Jarðborana ríkis-
ins, borgaryfirvöld i Reykjavík,
fulltrúa verktakafyrirtækja og
fleiri um skipulagningu og áætl-
anir um boranir eftir heitu og
köldu vatni í Eþíópíu, áveitu-
framkvæmdir og fleira. Áhugi er á
þvi að viðræðurnar geti leitt til
þátttöku íslendinga í þróunar-
verkefnum í Eþíópíu.
Eþíópsku gestirnir eru Alem
Al-Azar, yfirmaður Landsnefndar
um vatnsöflunarmál sem sér um
skipulagningu kaldavatnsborana,
áveitukerfa og hvers kyns vatns-
veituframkvæmda; Eshetu Habte-
mariam, skipulagsstjóri hjálpar-
starfs hjá sömu stofnun; Getahun
Demissie, framkvæmdstjóri Jarð-
rannsóknastofnunar Eþíópíu, en
sú stofnun heyrir undir ráðuneyti
orku- og námamála; ennfremur
Mabrahtu Fesseha, forstjóri Petr-
am Co. Ltd., en það fyrirtæki hef-
ur haft mikil samskipti við ýmis
fyrirtæki á Norðurlöndum. Mab-
rahtu Fesseha hefur reynst Is-
lendingum hjálplegur við störf í
Eþíópíu.
„Höfum fullan rétt á flutningi
tónlistar Ravels við ballettinn“
— segir Þjóðleikhússtjóri
„VIÐ öfluðum okkur að sjálfsögðu réttar til flutnings tónlistar Ravels við
ballettinn Dafnis og Klói,“ sagði Gísli Alfreðsson þjóðleikhússtjóri í samtali
við Mbl.
t lesendadálki Morgunblaðsins
laugardaginn 30. mars velti les-
andi því fyrir sér hvort Þjóðleik-
húsið virti rétt höfundar tónlist-
arinnar og hljómlistarmanna, sem
hana flytja. Gísli sagði, að auðvit-
að hefði Þjóðleikhúsið aflað sér
réttar til flutnings og greitt það
sem gjaldskylt væri. „Það reyndist
vera mun ódýrara að flytja tón-
listina af bandi og greiða fyrir
þann flutning heldur en að fá ís-
lenska tónlistarmenn til að leika
tónlistina," sagði hann. „Undan-
farin ár hefur tónlist iðulega verið
flutt af bandi við ballettsýningar
hjá leikhúsinu og þá flutt af er-
lendum tónlistarmönnum. Það
hefur reynst hagkvæmara en að fá
ísienska menn til starfans," sagði
þjóðleikhússtjóri.
Brúðhjónin Nína Einarsdóttir og Sigurður Karl Pálsson við komuna til Reykjavíkur. Hægra megin við þau er
Ólafur Örn Jónsson, skipstjóri á Viðey, og vinstra megin er Ingólfur Sveinsson, fyrsti stýrimaður, sem gaf
brúðhjónin saman. Morvunblaðið/Ol K M
Hjónavígsla um borð í Viðey
ÞAÐ bar ýmislegt til tíðinda í síð-
ustu söluferð togarans Viðeyjar RE
6 til Bremerhaven í Þýzkalandi á
heimleiðinni. Morgunblaðið hefur
áður skýrt frá því, að skipið hafi
sett heimsmet í sölu afla, en á
heimleið á páskadag bar það til
tíðinda, að brúðhjón voru gefin
saman um borð.
Það var Ingólfur Sveinsson,
fyrsti stýrimaður á Viðey og
skipstjóri í söluferðinni, sem gaf
þau Sigurð Karl Pálsson, neta-
mann, og Nínu Einarsdóttur
saman. Ingólfur sagði í samtali
við Morgunblaðið, að þetta hefði
verið ánægjulegur endir vel
heppnaðrar söluferðar. Giftingin
hefði verið eins konar punktur
yfir i-ið. Hann hefði reyndar
færzt undan athöfninni enda
ekki vanur að fást við slíka hluti
um borð, en brúðhjónin hefðu
verið alveg ákveðin og ekkert
gefið eftir.
Ingólfur sagði, að brúðhjónin
hefðu verið ánægð með athöfn-
ina enda slegið upp veizlu á eftir
og skipshöfninni gerður nokkur
dagamunur. Síðan þyrfti að
staðfesta hjónavígsluna hjá
borgarfógeta og þá væri allt
klappað og klárt.
Það má af þessu sjá, að skyld-
ur og hlutverk skipstjórnar-
manna eru af ýmsum toga og
vonandi oftast ánægjulegar eins
og um borð í Viðey RE 6.
Skipshöfnin á Viðey ásamt gestum og framkvæmdastjóra HraAfrysti-
stöðvarinnar, Ágústi Einarssyni, sem gerir togarann ÚL
VWLKStt'ii?,íi?^ww
. ..... ■,: ;o..ASœ
\iai\Váaa
0^00
0000 0000 #
Síaffc*****
VS%&&&&£****
Iðnaðarbankinn
i i Í ! M r. 1 * h i i í ; i
.....i........................g.n.A...........Éiiiíiiiiii.ikiii