Morgunblaðið - 28.04.1985, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUB 28. APRÍL1985
7<
INNLENT
Gamlir nem-
endur VI
hittast á
þriðjudag
HINN árlegi Nemendamótadagur
Verzlunarskóla fslands er hátíólegur
haldinn á þriöjudaginn, 30. marz, á
Hótel Sögu. Þessi skólahátíA á sér
áratuga langa sögulega hefA. Þenn-
an dag rifja gamlir nemendur skól-
ans upp Kskudagaan og gömul
kynni og hittast á Nemendamótinu.
Þar eru aAallega hópar nemenda
sem fagna og minnast brottfarar-
afmæla frá skólanum, eAa þegar
hálfur eAa heilir tugir ára eru frá
brottfararprófi.
Ýmsir nemendaárgangar hafa á
þessum tímamótum fært gamla
góða skólanum sínum gjafir. Hef-
ur í ár verið bent á byggingasjóð
skólans, en verið er að reisa nýtt
og glæsilegt skólahús i nýja mið-
bænum. Nemendasamband skól-
ans sér um hófið, en formaður
þess er Kristinn Hallsson, óperu-
söngvari. Aðgöngumiðar eru af-
hentir á skrifstofu Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur i Húsi
verzlunarinnar.
Við bjóðum í sumar einstaklega ódýrar ferðir til
Salzburg í Austurríki. Flogið er út í beinu leiguflugi á laugardagskvöldum
-fyrstaferðin verðurfarin 29.júní og sú síðasta 17. ágúst.
FLUG OG BÍLL
Salzburg er sérlega heppilegur áfangastaöur þeirra
sem hyggjast aka um Evrópu á bllaleigubíl - borgin er
ekki aðeins falleg sjálf, heldur er hún frábærlega vel
staðsett. (allar áttir liggja góðir vegir um stórfenglegt
landslag -til Munchen eru um 150 km, til Feneyja um
350 km, til Prag um 380 km, til Vínar um 300 km svo
nokkur dæmi séu tekin um hinar stuttu vegalengdir.
Og vegna hagstæðra samninga viö Avis bílaleiguna i
Austurríki er verðið frábært. Hjón með 3 börn greiða
aðeins kr. 52.000 fyrirflug og bílaleigubil I tvær vikur.
(Ekki innifalið: Tryggingar, söluskattur og flugvallar-
skattur.)
Ævlntýri á gönguför
Austurríki er ævintýraland göngumanna. Viö
skipuleggjum lengri og skemmri gönguferðir fyrir
hópa, útvegum gistingu og leiðsögn.
Dónársigling
Óvenjulegt ferðalag! Við bjóðum t.d. siglingu um Vfn
til Búdapest í Ungverjalandi.
Lestarferðlr
Við bjóðum hina vinsælu Eurorail-miða sem opna þér
nánast allar lestar í Austurríki og Evrópu í lengri eða
skemmri tíma!
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRJETI 12 - SÍMAR 27077 A 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SiMAR 21400 « 23727
Mjólkurframleiðendum hef-
ur fækkað um 864 á 10 árum
UNDANFARIN 10 ár hefur mjólkur
framleiAendum í landinu fækkaA um
864 á öllu landinu, úr 2.897 í 2.033.
Flest árin fækkaAi á bilinu 70—110
nema á árinu 1976 þegar fækkaAi
um 183 innleggjendur og á árinu
1984 þegar „aAeins“ fækkaAi um 34
mjólkurinnleggjendur.
í fyrra voru flestir mjólkurinn-
leggjendur hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna, 738. 261 var hjá mjólkur-
samlaginu á Akureyri, 187 í Borg-
arnesi, 156 á Sauðárkróki og 127
lögðu inn í mjólkursamlagið á
Húsavík. Samkvæmt yfirliti
Framleiðsluráðs eru mjólkursam-
lögin i landinu 17 í ailt og eru
ofanskrá þau stærstu. Minnstu
samlögin eru hins vegar á Þórs-
höfn (3 innleggjendur), Neskaup-
stað (10), Vopnafirði (15) og
Djúpavogi (20).
Þrennt í gæzluvarðhald
ÞRENNT, 24 og 28 ára gamlir menn
og 19 ára stúlka, var á sumardaginn
fyrsta úrskurAaA í Sakadómi Reykja-
víkur í gæzluvarAhald aö kröfu
Rannsóknarlögreglu ríkisins, en
fólkiA er grunaA um aö hafa ráöist á
og rænt tvo menn með nokkurra
klukkustunda millibili fyrir nokkru.
Stúlkan var úrskuröuö til 8. maí,
annar mannanna til 15 maí og hinn
til 1. maí.
Aðfaranótt 19. april var ráðist á
mann við Lindargötu og annan við
Freyjugötu. Maðurinn á Lindar-
götu var ristarbrotinn og rændur
nokkrum þúsundum króna,
greiðslukorti og ávísanahefti.
Skömmu síðar var ráðist á mann á
sjötugsaldri og honum veittir
áverkar en engu stolið, enda hafði
maðurinn ekkert fémætt á sér.
Þremenningarnir voru hand-
teknir í vikunni og játar stúlkan
að hafa tekið þátt í báðum árásun-
um. Yngri maðurinn hefur játað
aðild að árásinni á gamla mann-
inn, en hinn eldri neitar sakargift-
um.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Bjórstofa sett á grunn
MeAfylgjandi mynd var tekin í HafnarfirAi í blíAviArinu á föstudaginn þegar
veriA var aö setja nýtt bús á grunn, þar sem áöur var Hafnarkaffi, og er í ráöi
að opna þarna bjórstofu, sem mun verða hin fyrsta sem opnuA er f Hafnar-
firöi.
heii*
»
Ritstjóri
Alþýðu-
blaðsins
segir upp
RITSTJÓKI AlþýAublaAsins, GuA-
mundur Árni Stefánsson, hefur
sagt starfi sínu lausu og mun lík-
lega hætta um mánaðamótin maí-
júní. Ákvöröun sína hefur GuA-
mundur Árni tilkynnt flokks-
stjórn Alþýðuflokksins, sem ræð-
ur ritstjóra Alþýöublaösins.
Guðmundur sagði i samtali
við blaðamann Mbl., að per-
sónulegar ástæður lægju að
baki uppsögn sinni, pólitík
kæmi þar hvergi nærri. Hann
sagðist hafa verið að bræða
þessa ákvörðun með sér nokk-
urn tíma og hefði nú ákveðið að
hætta. Hvað hann tæki sér fyrir
hendur væri óráðið.
Ekki hefur verið ákveðið hver
tekur við starfi ritstjóra Al-
þýðublaðsins af Guðmundi
Árna Stefánssyni.